Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Qupperneq 5
í viðræðunefndina voru kjörin: Kristján
Thorlacius, Haraldur Steinþórsson, Þór-
hallur Halldórsson, Ágúst Geirsson, Einar
Ólafsson, Svanlaug Árnadóttir, Valgeir
Gestsson og Örlygur Geirsson.
Fundur með ráðherra.
Nefnd sú, sem kjörin var af samninga-
nefndinni hélt síðan fund föstudaginn 2..
febr. með fjármálaráðherra, formanni
samninganefndar ríkisins og fulltrúum að-
ila að ríkisstjórninni.
Þar lét fjármálaráðherra í ljós svipuð
viðhorf og í blaðaviðtalinu, en gat þess að
ríkisstjórnin vildi beina umræðunni inn á
önnur réttindamál. Þar væri samningsrétt-
armál efst á blaði, einnig atvinnuleysisbæt-
ur. endurmenntun o.fl.
Fulltrúar bandalagsins kynntu nokkur
helstu atriði í kröfum BSRB, létu í Ijós, að
þeir vildu að sáttafundir yrðu hafnir og
gagntilboð kæmi við kröfum bandalagsins.
Bre'ffjá rmála ráðherra:
„Vegna þeirra samningaviðræðna
sem nú standa yfir milli samninga-
nefndar BSRB og fjármálaráðherra
vill ríkisstjórnin taka fram eftirfar-
andi:
Ríkisstjórnin telur ljóst, að þau
áform að draga úr verðbólgu með
ströngum verðlagshömlum og binda
hámark hækkana á einstökum vörum
og þjónustu við 8% fram að 1. maí, 1%
fram á 1. ágúst og 5% fram að 1. nóv-
ember á þessu ári séu algerlega háð
því að ekki verði almennar grunn-
kaupshækkanir á þessu ári. Hins veg-
ar mun það fyrst og fremst ráðast í
haldinn í húsakynnum okkar að Grettisgötu
89, en þar er nægilegt húsrými fyrir þann
fjölmenna hóp, sem kallaður er til samn-
ingagerðar.
Var þar rætt um vinnubrögð, og m.a. kom
fram að ríkissáttasemjari mundi óska eftir
að skipa aðstoðarsáttasemjara í deilu þessa,
sem eingöngu fengist við hana ásamt þeim
Hrafni Magnússyni og Jóni Erlingi Þor-
lákssyni, sem eru í sáttanefnd núna eins og í
samningunum og verkfallinu 1977.
Nokkrum dögum síðar var svo Vilhjálm-
ur Hjálmarsson, fyrrverandi menntamála-
ráðherra, skipaður til að taka sæti ríkis-
sáttasemjara í sáttanefndinni.
Á sáttafundi 27. febr. setti Þorsteinn
Geirsson formaður samninganefndar ríkis-
ins fram ósk um frestun á sameiginlegum
viðræðum aðila málsins og lagði í því skyni
fram eftirfarandi bókun:
frjálsum samningum á almennum
vinnumarkaði, hver þróunin verður.
Meðan þróun kjaramála á þessu ári
er jafn óljós og raun ber vitni, er eðli-
legt að viðræður ríkisins og BSRB
beinist að ýmsum almennum rétt-
indamálum félagsmanna BSRB og
samtaka þeirra. Meðal málefna, sem
samninganefnd BSRB hefur lagt
áherslu á og ríkisstjórnin telur rétt að
ræða nánar um, eru þessi:
1. Rýmkaður samningsréttur BSRB,
m.a. með breytingum á þeim laga-
ákvæðum sem binda samningsrétt
BSRB við tveggja ára samnings-
tímabil, svo og ákvæði um að
samningsréttarlögin nái til hálfop-
inberra stofnana.
gert ráð fyrir að unnt verði að leggja fram
gagntilboð n.k. föstudag eða mánudag."
Kröfugerðin kynnt.
BSRB lagði á það áherslu, að kröfur
bandalagsins yrðu hið fyrsta kynntar ræki-
lega fyrir sáttanefndinni, og féllst Vil-
hjálmur Hjálmarsson sáttasemjari á það.
Voru því sáttafundir haldnir 4. og 5.
mars, og önnuðust kynninguna undir-
nefndirnar sex, sem störfuðu að samningu
kröfugerðarinnar. Þar á eftir mun sátta-
nefndin hafa kynnt sér afstöðu og viðhorf
samninganefndar ríkisins og einnig hefur
verið haldinn sáttafundur með samnings-
aðilum hjá Reykjavíkurborg.
Hvað dvelur?
Þegar þetta er skrifað (10. mars) er ekki
ennþá komið gagntilboð frá ríkisstjórn.
Norðurlandaþing hefur sennilega truflað
afgreiðslu mála talsvert, en hitt er einnig
augljóst, að niðurstaða virðist ekki komin
hjá ríkisstjórninni. og fjármálaráðherra
hefur í blöðum heldur dregið úr yfirlýsing-
unni frá sáttafundinum um að gagntilboð
væri á næsta leiti.
2. Breytingar á lögum lífeyrissjóða
opinberra starfsmanna, sem m.a.
feli í sér þá breytingu að allir þeir,
16 ára og eldri, sem laun taka
samkvæmt kjarasamningi BSRB
og aðildarfélaga þess verði sjóðfé-
lagar, enda hafi þeir starfað sam-
fellt hjá hinu opinbera í a.m.k. 4
mánuði.
3. Atvinnuleysistrygging í þágu fé-
lagsmanna BSRB.
4. Aukin framlög til fræðslumála
BSRB.
5. Stofnun starfsmannaráða í ríkis-
stofnunum.
6. Aðild BSRB að ákvörðunum um
ráðstöfun þess fjármagns sem ætl-
að er að verja til félagslegra fram-
kvæmda á þessu ári, sbr. stjórnar-
sáttmálann, m.a. til þess að greiða
fyrir kjarasamningum.
Með þær forsendur í huga sem hér
hafa verið nefndar leggur ríkisstjórnin
til að samningaviðræður milli ríkisins
og BSRB beinist sérstaklega að fram-
angreindum atriðum og öðrum hlið-
stæðum atriðum, sem BSRB kynni að
leggja áherslu á, og er ríkisstjórnin
reiðubúin að gera frekari grein fyrir
afstöðu sinni til framangreindra at-
riða í væntanlegum viðræðum.“
Ragnar Arnalds
(sign)
Sáttafundir hefjast.
R-íkissáttasemjarinn, Guðlaugur Þor-
valdsson, boðaði næst aðila til sáttafundar
mánudaginn 25. febrúar. — Var hann
„Frestbeiðni samninganefndar ríkisins er
tilkomin vegna þess að verið er að und-
irbúa gagntilboð.
Málið verður til umræðu í ríkisstjórninni
í fyrramálið — ef niðurstaða fæst þá — er
ÍT. og það koni bréf
Þegar verið var að leggja síðustu hönd á Ásgarð í prentsmiðjunni (miðviku-
daginn 12. febr.) þá barst BSRB bréf frá fjármálaráðherra.
Ákveðið var strax að boða sameiginlegan fund með stjórn bandalagsins og
allri samninganefndinni til að ræða stöðuna í samningamálum og viðbrögðin við
þessu svari ríkisstjórnarinnar. Fundurinn var ákveðinn föstudaginn 14. mars.
Ásgarður getur ekki beðið eftir niðurstöðu þess fundar, en hér er birt svarbréf
fjármálaráðherra í heild.