Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Síða 11
Starfsfólk hefur vaxandi áhuga á öryggismálum
Geislayarnir á íslandi
En hvemig er þessum málum háttað hér-
lendis? Ásgarður leitaði til nokkurra aðila og
spurðist fyrir um geislavamir. Hér koma
svörin:
Öryggiseftirlit ríkisins:
Öryggiseftirlitið kemur ekki nálægt
geislavörnum, en vísaði til Geislavarna
ríkisins.
Geislavamir ríkisins:
Þar fengum við þær upplýsingar, að
Geislavamir ríkisins (GR) hefur eftirlit með
tækjum, uppsetningu þeirra og veittu leyfi til
innflutnings tækja og geislavirkra efna.
Eftirlit með tækjum fer fram á 2ja ára fresti
skv. reglugerð, en fram kom, að tækjakostur
GR er nær tveggja áratuga gamall. Þróunin
á þessu sviði hefur hins vegar verið mjög ör,
þannig að til eru á markaðnum miklu ná-
kvæmari tæki.
Eftirlit með starfsfólki fer fram á þann
hátt, að starfsfólkið ber filmur, sem sýna, ef
þær verða fyrir geislavirkni. Fram kom að
þetta eru sams konar filmur og mjög hafa
verið gagnrýndar í Svíþjóð, þar sem miklu
nákvæmari filmur eru notaðar t.d. í sænsk-
um kjamorkuverum. Þessu er þó verið að
breyta þannig, að allar líkur eru á að breytt
verði yfir í það kerfi, sem sænsku kjam-
orkuverin nota, þegar á þessu ári.
Guðmundur Jónsson, yfirmaður geisla-
varna lagði að lokum áherslu á, að stofnunin
byggi við fjárskort. Þannig eru ekki nema 1,2
stöðugildi heimiluð við stofnunina, en brýn
þörf fyrir fleira starfsfólk.
Heilbrigðiseftirlitið:
Heilbrigðiseftirlitið kemur ekki nálægt
þessum málum. Hins vegar er forstöðu-
11
maður þess, Hrafn V. Friðriksson, yfir-
læknir formaður nefndar, sem er aðili að
„Norrænni samvinnu á orsakasambandi
atvinnu- og fósturskemmda“.
Nefndin hefur rétt hafið störf, en
meiningin er að gera umfangsmiklar at-
huganir á vinnustöðum hérlendis og mun
röntgengeislun að sjálfsögðu koma þar
við sögu. „En allt kostar þetta peninga"
sagði Hrafn. „Við höfum leitað til aðila
vinnumarkaðarins, þ.e. ASÍ, BSRB,
BHM, VSÍ og VSS og fengið mjög já-
kvæðar undirtektir. Þó töldu þessir aðilar
rétt að rannsóknir þessar væru kostaðar af
ríkinu. Við höfum kynnt viðkomandi
ráðuneytum málið, en ekki fengið nein
svör enn sem komið er.“
Landlœknir:
Ólafur Ólafsson, landlæknir, gaf Ás-
garði það álit sitt, að ástandið í þessum
málum virtist mjög gott hérlendis, enda
hefði þróun röntgentækja verið mjög ör
að undanförnu. Embættið er nú að fara af
stað með sérstaka rannsókn í samvinnu
við Geislavarnir ríkisins, sem e.t.v. getur
leitt til þess, að nýjar reglur verði settar
um, hvað unnt er að ætla að fólk þoli af
geislun.
Trúnaðarmaðurinn:
Ásgarður ræddi að lokum við Önnu B.
Ólafsdóttir, trúnaðarmann röntgentækna
á Landspítalanum. Hún sagði að starfs-
fólk gengist árlega undir blóðrannsókn,
en sér væri ekki kunnugt um að neitt hefði
komið fram í þeim.
Anna benti á, að mikill áhugi væri hjá
starfsfólki og yfirmönnum röntgendeilda
fyrir öryggismálum og reynt að ganga
lengra í þá átt, en reglugerðir segðu fyrir
um.
B.A.
Konan reifst og skammaðist. Hún kvartaði,
bað og ógnaði með skilnaði. „Maður gæti
haldið að ég færi með þig eins og hund“,
sagði eiginmaðurinn. „Nei“, æpti hún.
„Hundurinn á loðfeld".
Forstjórinn hlustaði á Sigurð útlista hvers
vegna hann þyrfti nauðsynlega á kaup-
hækkun að halda. Þegar hann hafði lokið
máli sínu brosti forstjórinn vingjarnlega og
klappaði honum á öxlina. „Já Sigurður
minn“, sagði hann ljúfmannlega. „Ég veit,
að þú getur ekki gift þig á þeim launum,
sem þú hefur hér. En einn góðan veðurdag
muntu þakka mér fyrir það“.
Faðirinn var gamaldags og siðavandur,
— ogdóttirin reis að lokum upp og hrópaði:
„Ég skal láta þig vita að ég ætla að trúlofast,
giftast og eiga börn þegar ég vil.“
— „Ef þú lofar að gera það í þessari
röð“, svaraði faðirinn, „þá mótmæli ég
ekki“.
— Pabbi, má ég fá bílinn þinn lánaðan 1
kvöld?
— Til hvers heldurðu að þú hafir lappir,
drengur?
— Aðra á bremsuna og hina á bensínið.
Góð samviska orsakast oft af slæmu
minni.
— Hvers vegna viltu alltaf sitja við
glugga þegar þú ferð á veitingahús?
— Það er vegna þess að þeir skammta
meira á diskana ef þeir sjást vel frá götunni.
— Veistu hvers vegna Skotar spila svo
sjaldan á spil?
— Nei?
— Það er vegna þess að enginn vill gefa.
— Pabbi, hver var Columbus?
— Hvað heyri ég, kanntu nú ekki
biblíusögurnar þínar?