Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Page 15
70% meó gróóa —
30% töpuóu
Björn tók dæmi um þetta. Samkvæmt
upplýsingum Þjóðhagsstofnunar þá var
hagnaður frystihúsa á Suðurlandi í heild á
árinu 1978 aðeins 1.25% af heildarveltunni.
Þetta er slæm afkoma og jafngildir tapi. En
þetta þarf að skoða nánar. Nefnilega, 70%
frystihúsanna var rekinn með hagnaði, en
aðeins 30% með tapi.
Við sjáum á mynd 1, að 10 frystihús voru
rekin með meir en 10% tapi á sama tíma og
5 gengu með meir en 10% hagnaði og 18
með meir en 5% hagnaði.
Taldi Björn, að við ættum að einbeita
okkur að tapfyrirtækjunum, leysa vanda
þeirra, eða leggja þau niður í stað þess að
beita almennum aðgerðum, sem vissulega
minnkuðu tapið, en stórhækkuðu gróða
þeirra er vel gengju fyrir.
Skipt eftir
landshlutum
Mynd 2 sýnir okkur afkomudreifingu
frystingarinnar eftir landshlutum
(nettóhagnaður/tap). Myndin sýnir að
vandinn er mjög mismunandi eftir lands-
hlutum, sem Björn taldi einnig styðja þá
fullyrðingu sína að þessi mál yrðu ekki leyst
með almennum aðgerðum einum saman.
FRYSTING ’78
— landshlutaskipting
HAGNAÐUR%
0%
MYND2
5.2
0.6
2
3
4_
5
6
x
TAP x
+ 5.2
x
w
z
—
z
<
—
Q
x
x
>
X
Oi
3
C
x
O
Jóhannes Siggeirs-
son, hagfræðingur
Jóhannes Siggeirsson flutti greinargott
erindi á efnahagsráðstefnu BSRB í janúar
sl. og benti á, að hlutfall fjármunamyndun-
ar miðað við þjóðarframleiðslu er hærra
hérlendis en víðast hvar annars staðar. Há-
mark náðist á árunum 1967 og 1968 eða
31— 32% og aftur á árunum 1974 og 1975
32— 33%. Það er því þýðingarmikið, að vel
sé vandað til ákvarðanatöku í þessu efni og
launþegasamtökin hafa margbent á, að
fjárfestingar undanfarinna ára hafa verið of
miklar að umfangi og ekki síður að þær hafa
margar hverjar verið rangar.
Frá árinu 1950 jókst:
Þjóðarframleiðsla um 4.6% á ári
Vinnuaflið um 2.0% á ári
Þjóðarframleiðsla á vinnandi mann um
2.6% á ári.
Fjármagn á vinnandi mann um 3.0% á
ári.
Hvað útlánin snertir eru 8.6% þeirra hjá
ríkissjóði, 3.4% hjá sveitarfélögum, 60.1%
hjá atvinnuvegunum (þar af 28.7% í sjáva-
rútvegi) og 24.8% hjá einstaklingum. Þá er
meðtalið lánsfé til fjármunamyndunar,
rekstrarkostnaðar og einkaneyslu. Gífur-
legur mismunur er á kjörum þessara lána,
þótt rétt sé að benda á að verulegar breyt-
ingar hafi orðið í seinni tíð. En árið 1978 má
finna allt frá óverðtryggðum lánum með
12% vöxtum upp íverðtryggð lán miðuð við
byggingavísitölu með 8.5% vöxtum.
Reynslan hefur sýnt að
1. Færa má að því gild rök, að fjárfesting á
mörgum sviðum sé of mikil, t.d. í fisk-
veiðum og landbúnaði og einnig að
margs konar steinsteypuframkvæmdir
undanfarinna ára séu óarðbærar.
2. Vextir hafa ekki gegnt því hlutverki hér á
landi að velja úr hagkvæmustu fjárfest-
ingar þar sem stefna í peningamálum
e
z
<
<
a
z
<
X
X
^ n rf,
< 5 x
1 z
> X
:x O
> X
1.5
>
x
3.9
1.25
hefur verið sú að veita atvinnuvegunum
styrki í formi ódýrs lánsfjármagns.
3. Það skipulagsleysi, sem hér hefur ríkt á
stóran þátt í þeirri miklu fjárfestingu,
sem hér er.
4. Reynslan hefur sýnt fram á, að þegar
rætt er um efnahagsvanda þjóðarinnar,
þá verður stjórnmálamönnum starsýnt á
launin og einkaneysluna og hrópa, að
við séum að éta okkur út á gaddinn og
eina ráðið, sem þeir flestir hafa, er að
ráðast á kaupmátt launafólks. Stjórn-
málamönnum láist hins vegar oftast að
líta á aðrar stærðir svo sem verðlagsmál,
peningamál, fjármál og fjárfestingamál.
Að lokum fjallaði Jóhannes um hvað
gera þyrfti og benti m.a. á að
1. Ekki er óraunhæft að miða fjárfestingar
við 25—27% þjóðarframleiðlu, þegar til
lengri tíma er litið og fjármagna hana að
mestu leyti með innlendum spárnaði.
2. Semjafjárfestinga-oglánsfjáráætlun til
nokkurra ára, sem endurskoðuð yrði ár-
lega.
3. Setja fram almenna kröfu um arðsemi
framkvæmda frá sjónarmiði fyrirtækja
og þjóðarheildar.
4. Endurskipuleggja lánastofnanakerfið og
samræma lánareglur í samræmi við þá
meginreglu, að lánskjör séu byggð á já-
kvæðari raunvöxtum. Ef ástæða er til að
ívilna eða íþyngja einstökum atvinnu-
greinum, sé það gert með ákveðnum og
meðvituðum hætti, en verðbólgan ekki
látin ráða því.
5. Auka þarf innlendan sparnað með já-
kvæðari raunvöxtum þannig að hann
getiíríkari mæli staðið undir fjármuna-
mynduninni.
Ýmislegt fleira kom fram í fróðlegu er-
indi Jóhannesar, sem ekki er svigrúm til að
rekja hér, en það mun í heild sinni sent
ráðstefnugestum.