Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Qupperneq 16

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Qupperneq 16
16 Upplýsingar um skattamál og leiðbeiningar um útfyllingu skattskýrslunnar verða væntanlega árlega á dagskrá hjá fræðslu- nefnd. Á sama kvöldi fjölmenntu Reykvíkingar að Grettisgötu 89 og Akureyringar í Iðn- skólann á vegum fræðslunefndar BSRB og Starfsmannafélagsins. Fundarsalurinn að Grettisgötu reyndist alltof lítill en það mál var leyst með aðstoð tæknimanna á sjónvarpssviði. Skatt- skýrsla erflókin Miðvikudaginn 20. febrúar gekkst fræðslunefnd BSRB fyrir kynningu að Grettisgötu 89 á gerð skattskýrslu og út- skýringum á helstu atriðum skattalaga. Það var Jón Guðmundsson námskeiðsstjóri hjá ríkisskattstjóra, sem flutti mjög greinargott erindi og rakti lið fyrir lið skatteyðublað það, sem nú hefur verið dreift meðal al- mennings. Er þar um verulegar breytingar að ræða frá fyrri eyðublöðum. Sýndi hann eyðublaðið á glæru og út- skýrði sýnishorn, sem útbúið hafði verið hjá ríkisskattstjóra af útfylltu framtali hjóna ásamt nákvæmum skýringum við einstaka liði. Fundarsalur bandalagsins að Grettisgötu 89 tekur aðeins um 100 manns í sæti. Þar sem búist hafði verið við miklu fjölmenni, hafði fræðslunefndin látið koma fyrir tveimur sjónvarpsvélum, sem síðan endur- vörpuðu sjónvarpsmynd bæði fram á gang, þar sem voru um 30—40 manns og upp í sal á 4. hæð þar sem voru á annað hundrað manns. Þannig munu samtals um hátt á þriðja hundrað manns hafa sótt erindið og reyndist þessi tækninýjung hin prýðilegasta í alla staði. Alþingi hafði samþykkt endanlegar breytingar á lögum um tekjuskatt nokkrum klukkutímum áður en erindið var flutt og skýrði Jón Guðmundsson frá þeim heistu, sem orðið höfðu frá því að skattskýringar höfðu verið birtar í dagblöðum. Þar sem þetta blað Ásgarðs mun ekki berast lesend- um fyrr en eftir að lokið er framtalsskyldu einstaklinga, þá verða ekki raktar að svo stöddu helstu breytingar á skattskýrslu- eyðublöðunum. Þó mun óhætt að fullyrða, að áheyrendur munu margir hafa sannfærst um að einstaklingum væri gert mun erfið- ara að útfylla á eigin spýtur skattframtölin en áður og eyðublaðið væri óþarflega flókið. Margar fyrir- spumir Fjölmargar skriflegar fyrirspurnir bárust og var reynt að sundurliða þær eftir efni. Svaraði Jón þeim bæði fljótt og greinilega og kenndi þar ýmissa grasa. Margar fyrirspurnir komu um frádrátt vegna námskostnaðar og þátttöku í nám- skeiðum, bæði stuttum og lengri. Þá var k:': ' ‘' ' 1 Síi'js J ii Setið í ganginum — horft á skýringar af sjónvarpsskermi Tvö sjónvarpstæki voru á efstu hæðinni — og þar var líka fjölmennt Jón Guðmundsson útskýrði mjög fimlega flókið mál

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.