Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Qupperneq 22

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Qupperneq 22
22/Utan úr heimi Þagnarskylda Að undanförnu hafa átt sér stað miklar umræður í Danmörku um þagnarskyldu opinberra starfsmanna eða m.ö.o. um rétt þeirra til að tjá sig um þau mál. er þeir fá til umfjöllunar í starfi sínu. Tilefni er m.a. að opinberir starfsmenn í Danmörku hafa orðið fyrir aðkasti vegna opinberra yfirlýsinga og hefur atvinnuleysið þar í landi torveldað starfsmönnum að tjá sig frjálst um málið. Umræður hjá Dönum Tvö áhugamannasamtök um réttarvernd héldu umræðufund í nóvember 1979 um þetta viðkvæma efni með tilstyrk nokkurra félaga opinberra starfsmanna. Var þar einkum stillt upp annarsvegar þagnar- skyldu opinberra starfsmanna og hinsvegar málfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar. Þar kom í ljós að í Danmörku er heill frumskógur af reglum um þessi mál, en sérfræðingar voru sammála um að þær væru svo loðnar og jafnvel mótsagnar- kenndar að erfitt væri að segja nokkuð um þessi mál með nákvæmni. Vandamálið væri þess vegna að starfs- menn vissu of lítið um rétt sinn eða skyldur. Hins vegar skipuleggur atvinnurekandinn vinnuna og ákveður einnig um stöðuhækk- anir og getur á þann hátt refsað þeim, sem teljast ganga of langt samkvæmt mati yfir- manns. Hvernig er þetta á fslandi? í 32. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins segir: „Hverjum starfsmanni er skylt að gæta þagmælsku um atriði, er hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara sam- kvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli málsins. Þagnarskylda helst, þótt látið sé af starfi.“ Óneitanlega er þetta ákvæði óljóst eða hver á t.d. að dæma um „eðli málsins"?? Ásgarði þætti fengur í að fá vitneskju um það frá lesendum, hvort ákvæði þetta hefur valdið deilum eða reynst sérstakt vandamál á vinnustað. (Heimildir: Fællesrádet og Hospital- laboranten í jan. ’80) rá fræðslunefn Frœðsluerindi Ákveðin hafa verið tvö næstu fræðslu- erindi, sem flutt verða í fundarsalnum að Grettisgötu 89. Sigurður E. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Húsnæðismálastofnunar ríkisins flytur erindi þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30. Hann mun m.a. gera grein fyrir löggjöf um húsnæðismál og félagslegar íbúða- byggingar svo og stefnumið ríkis og sveit- arfélaga. Einnig um skyldusparnað, lána- möguleika og aðstöðu einstaklinga til húsbygginga. Þá er líklegt, að málefni leigjenda o.fl. beri á góma. Ufeyrtssjóösmál: Kristján Thorlacius, sem sæti á í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, flytur erindi miðvikudaginn 19. mars kl. 2030. Mun hann m.a. fjalla um aðildarrétt að sjóðnum, stofnun biðreiknings, iðgjöld og réttindi sjóðfélaga og maka. Einnig um ávöxtun sjóðsins, lánaréttindi og lánsskil- mála. Jakobína Sigurðar- dóttir Bókmenntakynning: Fyrirhuguð er ein bókmenntakynning í viðbót á vetrinum, þann 10. apríl. Verða þá kynnt verk eftir Jakobínu Sigurðar- dóttur skáldkonu og mun hún skv. venju síðan svara fyrirspurnum. Námskeið um fundasköp og ræðumennsku Ákveðið hefur verið að efna til nám- skeiðs fyrir félagsmenn innan BSRB að Grettisgötu 89 um fundasköp, funda- stjórn og ræðumennsku. Þátttakendur munu fá margvísleg gögn og leiðbeiningar og áhersla verður lögð á þjálfun í ræðuflutningi. Námskeiðstími hefur verið valinn kl. 17—20 eftirtalda daga: 18., 20., 24. og 27. mars og því lýkur með kveðjukvöldi 1. apríl.

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.