Morgunblaðið - 06.04.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.04.2021, Blaðsíða 32
Efni í þætti kvöldsins: Mats Wibe Lund segir frá lífsstarfi sínu sem ljós- myndari á Íslandi um áratuga skeið. Átthaga- myndir hans af Íslandi hafa sína sérstöðu. Óskar Reykdalsson forstjóri segir frá bólusetningnum Heilsugæslunnar á Höfuð- borgarsvæðinu og hvað er framundan hjá aldurshópnum 67 ára og eldri. Elín Sigrún Jónsdóttir lögmaður rekur Búum vel sem er sérhæfð þjónusta fyrir eldri borgara sem eru að breyta um húsnæði eða standa í eignatengdum aðgerðum. Þorsteinn Pálsson rifjar upp viðburðar- ríkan starfsferli síðan hann hóf störf sem blaðamaður árið 1970. Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson Dagskráin á Hringbraut Lífið er lag Fréttir, fólk og menning á Hringbraut og hringbraut.is kl. 21.00 á Hringbraut í kvöld Þorsteinn Pálsson Elín Sigrún Jónsdóttir Ingveldur Ýr mezzósópran kemur ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara fram á hádegistónleikum í Hafnar- borg í dag, þriðjudag, kl. 12. Yfirskrift tónleikanna er „Ljós og skuggi“ og á efnisskránni eru aríur eftir Cacc- ini, Menotti og Bizet. Vegna gildandi samkomutak- markana verða tónleikarnir haldnir fyrir tómum sal en streymt í beinni útsendingu á vef og Facebook-síðu safnsins. Upptakan verður einnig aðgengileg áfram að tónleikunum loknum. Hádegistónleikar í Hafnarborg í beinu streymi í dag kl. 12 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 96. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Gylfi Þór Sigurðsson og liðsfélagar hans hjá Everton misstu af góðu tækifæri til að sækja að liðunum fyrir ofan þá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er liðið þurfti að sætta sig við 1:1-jafntefli gegn Crystal Palace á heimavelli í gær. Stuðningsmenn Manchester City geta farið að kæla kampavínið eftir 2:0-útisigur á Lei- cester á laugardaginn. Leið liðsins að meistaratitlinum virðist greið. Á íþróttasíðunum er einnig fjallað um toppslagina sem fram fóru bæði í Þýskalandi og Frakk- landi um páskana. »27 Everton lét gott tækifæri sér úr greipum ganga gegn Palace ÍÞRÓTTIR MENNING Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Við áttum satt best að segja von á meiri vilja bæjarins gagnvart þessu móti, en kemur okkur kannski ekki algjörlega á óvart því þetta er sama niðurstaða og var árið 2016 þegar síðast var haldið Íslandsmót á Jaðarsvelli,“ segir Steindór Ragn- arsson, framkvæmdastjóri Golf- klúbbs Akureyrar, GA. Íslandsmótið í golfi verður haldið á Jaðarsvelli á komandi sumri, dagana 5. til 8. ágúst. Þátttakendur, konur og karl- ar, verða um 150 talsins. Golfklúbbur Akureyrar sótti um styrk að upphæð 2 milljónir króna til Akureyrarbæjar í því skyni að gera völlinn sem best úr garði áður en blásið yrði til Íslandsmóts. Íslandsmótið fór síðast fram á golfvellinum á Jaðri fyrir fimm ár- um, árið 2016 og hafði þá ekki verið haldið slíkt mót þar frá árinu 2000. Fjölmargir fylgdust með mótinu fyr- ir fimm árum og var m.a. bein út- sending í sjónvarpi frá seinni dögum mótsins sem ríflega 35 þúsund manns horfðu á. „Við erum mjög spennt fyrir því að halda mótið í sumar og vonum svo sannarlega að ekkert komi í veg fyr- ir það,“ segir Steindór og vísar þar m.a. í kórónuveirufaraldur sem sett hefur strik í margan reikninginn. „Við höfum mikinn metnað til að hafa umgjörð alla sem best verður á kosið,“ bætir hann við og nefnir að leitað hafi verið til bæjarins um styrk til að vinna að endurbótum á vellinum fyrir mótið. Mikil lyftistöng fyrir íþróttina Endurbyggja þarf þrjá teiga. Þá stendur til að lengja þrjár brautir til að gera þær meira krefjandi fyrir bestu kylfingana. Eins þarf að betr- umbæta vökvunarkerfi vallarins og leggja þar rafmagn og setja upp raf- magnskassa svo hægt sé að dreifa rafmagni víðar um völlinn en nú er. Horft er til þess að notast við raf- magnssláttuþjóna á stórum slegnum svæðum, m.a. vegna umhverfissjón- armiða, minni launakostnaðar og minni kostnaðar við rekstur véla og viðhalds. Kostnaður við fyrirhug- aðar framkvæmdir nemur um 5,5 milljónum króna. Fram kemur í bókun frá frí- stundaráði Akureyrarbæjar að það fagni því að mótið verði haldið á Akureyri en það geti ekki orðið við erindinu því ekki sé gert ráð fyrir slíkum styrkveitingum í fjárhags- áætlun. Leggur ráðið áherslu á að íþróttafélög sæki um styrki við gerð fjárhagsáætlunar sem fram fer að hausti. „Auðvitað þykir okkur miður að bærinn sjái sér ekki fært að styrkja okkur, þetta er stærsta golfmótið sem haldið er á hverju ári og þar etja allir bestu kylfingar landsins kappi. Það er mikil lyftistöng fyrir íþróttina á Akureyri að fá mótið í bæinn og er ákveðinn stimpill á gott starf hjá Golfklúbbi Akureyrar. Það ríkir mikill metnaður í okkar her- búðum að bjóða gestum upp á góða upplifun. Öll aðstaða er til fyrir- myndar og kapp er lagt á að kylf- ingar sem leggja leið sína á Jaðars- völl fari með eftirminnilega upplifun í farteskinu að leik loknum,“ segir Steindór. Aldrei fleiri hringir spilaðir en í fyrra Golfklúbburinn er á mikilli upp- leið en golfiðkun á liðnu ári jókst umtalsvert miðað við fyrri ár. Ís- lendingar tóku tilmælum yfirvalda og ferðuðust í ríkum mæli innan- lands í fyrrasumar og var Akureyri vinsæll áfangastaður. Steindór segir Golfklúbbinn vel hafa orðið þess var- an, umferð um völlinn var meiri en vanalega. Alls voru spilaðir 26.982 hringir á vellinum sem er það mesta frá árinu 2014, ríflega 5.000 hringj- um meira en þá og um 25% aukning frá síðasta metári. Völlurinn var opinn 163 daga í fyrra, en loka þurfti 1. nóvember vegna hertra sóttvarnareglna. Að meðaltali voru spilaðir 166 hringir á dag á Jaðarsvelli en ef horft er til sumarmánaðanna, júní, júlí og ágúst voru spilaðir að meðaltal 212 hringir á dag, 50 fleiri á dag en var árið 2019. Stóru mótin á sínum stað Steindór segir komandi sumar líta vel út náist að halda kórónuveiru- faraldri í skefjum. Golf sé þó þannig íþrótt að það má leika án snertingar og með því að fylgja sóttvarna- reglum sé hægur vandi að leika golf. „Stóru mótin okkar eru á sínum stað í sumar, segir Steindór og nefndir m.a. að skráning á miðnætursólar- mótið Arctic Open 2021 fari vel af stað. Þegar hafa 27 erlendir kylf- ingar skráð sig til leiks og á hann von á að sú tala fari vaxandi á næstu vikum. „Erlendir kylfingar voru lítið á ferðinni í fyrrasumar vegna að- stæðna í samfélaginu, en við vonum að staðan verði betri á komandi sumri,“ segir Steindór að endingu. Undirbúa sig á Jaðri - Íslandsmótið í golfi verður haldið á Akureyri í sumar Morgunblaðið/Margrét Þóra Jaðarsvöllur Steindór Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA, fyrir utan æfingaaðstöðu klúbbsins, Klappir, sem senn verður tekin í notkun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.