Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 17

Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021 Óska eftir sumarbústað til leigu í sumar Góður sumarbústaður óskast í langtímaleigu í sumar. Bústaðurinn þarf að vera í hóflegri akstursvegalengd frá Reykjavík og leigjast í a.m.k. mánuð, jafnvel allt sumarið. Hann þarf að vera rúmgóður fyrir hjón með tvö ung börn, snyrtilegur og með helstu þægindum. Áhugasamir sendi póst á box@mbl.is merkt: Sumarbústaður „Hið óþekkta vekur gjarnan ótta“ skrifar Dóra Björt Guðjóns- dóttir í aldeilis ágætri grein í Morgunblaðinu 3. apríl sl. Þar tæpir hún á ýmsu, allt frá tilfinn- ingagreind til Borgar- línu og gerir það skemmtilega. Margt fólk hefur ríka tilfinningagreind og skynjar hvernig hópar og ein- staklingar starfa saman í þjóðfélaginu. Það sér hugmyndir koma upp, þrosk- ast og aðlagast aðstæðum í þjóðfélag- inu þannig að allir njóti góðs af. Þetta fólk er óhrætt við að varpa hug- myndum sínum út í þjóðfélagið og fylgja þeim eftir inn í framtíðina. Þetta er oft fólkið sem er reiðubúið að stinga sér út í djúpu laugina og synda af stað þótt bakkinn hinum megin sé hulinn þoku. Fyrir kemur þó að það leiðir hjá sér viðvaranir um að það standi á bakka grunnu laugarinnar og betra að hoppa með fæturna fyrst. Markaðssetning Borgarlínu Borgarlínu var slegið upp sem stór- kostlegri hugmynd og hefur vakið mikla hrifningu víða. Henni var líka fylgt fast eftir, reynt var að fegra hana á allan hátt með auglýsingaskrumi og tengja órjúfanlega við breytta stefnu í skipulagsmálum. Útmálað var að hér væri komin okkar besta lausn á lofts- lagsvanda framtíðar. Margir hafa trú- að þessu, fylgja nú blint í spor foringja síns og horfa til hans í stað þess að horfast í augu við framtíðina sjálfa. Af- leiðingum verður ekki betur lýst en með orðum Dóru: „Borgarlínan er dæmi um framþróun sem hefur raðað fólki í fylkingar þar sem önnur hliðin virðist eiga erfitt með að horfast í augu við nýja tíma. Þetta er jafnvel óháð staðreyndum máls og rökum með og á móti.“ Hvað er Borgarlína? Nafnið Borgarlína á að minna á lest og nýja tækni. Málið snýst um hve langt þarf að ganga í nýtingu BRT-tækni sem er áratuga gömul, fyrst þróuð í S-Ameríku í borgum þar sem strætó- kerfið var sprungið og koma þurfti mikilli mergð fólks til vinnu. Hér er um að ræða tækni til að flýta för strætisvagna með því að fækka bið- stöðvum þeirra, útbúa stöðvarnar eins og járnbrautastöðvar með sömu gólf- hæð og vagnarnir, búa til sérrými fyr- ir vagnana og gefa þeim forgang á um- ferðarljósum. Allt svo þeir geti keyrt áfram eins og lest á teinum án tillits til annarrar umferðar. Vagnarnir sjálfir eru stórir, glæsileg borgarprýði og gjarnan liðskiptir. Þetta er sú mynd þungu Borgarlínunnar sem fyrst var slegið upp. Í raun ganga BRT-kerfi í ríkjum í grennd fæst svo langt í tækninni. Sérrýmin eru til dæmis allt frá því að vera ystu akreinar, hvor sín- um megin vegar þar sem umferð er mest eins og við sjáum á Miklubraut, upp í rauða dregla á miðju vegar. Dómsdagsspáin Sumu fólki með mikla tilfinninga- greind er líka gefið innsæi og rökvísi. Þetta fólk skynjaði hættumerkin um leið og fyrsti uppsláttur Borgarlínu með fullkomnustu BRT-tækni sem völ er á leit dagsins ljós. Rökin sem fylgdu voru dómsdagsspá. Sagt var: „Um- ferðartafir munu bara vaxa, það er til- gangslaust að fjárfesta í meira veg- rými fyrir einkabíla, það fyllist bara um leið.“ Ekkert var framundan nema umferðaröngþveiti. Eina ráðið var að setja allt okkar fjármagn í Borgarlínu og bíða svo eftir að fólk gefist upp á einkabílnum. Óttalaus skoðun Reynsluboltar í umferðarfræðum töldu þarna spáð í framtíðina af ótta og ráðaleysi. Umferðin heldur at- vinnulífi hverrar þjóðar gangandi og það gengur ekki að láta þar allt reka á reiðanum meðan beðið er eftir að fólk hrekist upp í Borgarlínu og æ síðan. Þeir settust því niður og greindu mál- ið. Niðurstaðan var þessi. Þunga Borgarlínan er sóun. Byggja má létta borgarlínu sem nær langt til sömu markmiðum, er þrisvar til fjórum sinnum ódýrari, sveigjanlegri, auð- veldari í aðlögun að mannlegu um- hverfi og nýju skipulagi, jafn virk gagnvart loftslagsmálum og mun fljót- legri í framkvæmd. Jafnframt þarf að hafa tilbúið á teikniborðinu úrval mannvirkja til að greiða fyrir umferð eftir þörfum. Lokaorð Dóra Björt skrifar ekki hreint út af- stöðu sína til Borgarlínu en við hana vil ég segja þetta. Kastaðu þér til sunds þótt þú sjáir ekki hinn bakkann en hafðu fæturna á undan því auglýs- ingaskrumið gruggar líka vatnið svo ekki sér í botn. Veldu létta Borgarlínu, hana má þyngja síðar og taktu fyrst fyrir þá leið þar sem þörfin er mest. Restin er bara tækni og tímasetning. Þetta tikkar í öll jákvæðu boxin nema egó einhverra spámanna sem vilja leiða okkur blinduð inn í framtíðina. Eftir Elías Elíasson » Þunga Borgarlínan er sóun. Byggja má létta borgarlínu sem nær langt til sömu markmiðum, er þrisvar til fjórum sinnum ódýr- ari, sveigjanlegri, auð- veldari í aðlögun að mannlegu umhverfi. Elías Elíasson Höfundur er verkfræðingur. eliasbe@simnet.is Óttalaust skal framtíð skoða Í Morgunblaðinu 24. mars sl. var viðtal við forstjóra Coca-Cola European Partners Ís- land ehf. (sem áður bjargaðist við nafnið Vífilfell). Þetta er langt viðtal sem nær yfir heila opnu í blaðinu. Fram kemur að velta fyrirtækisins síðasta ár var 11 millj- arðar, en ekki er ljóst hve mikið af því var sala á hefðbundnu kókakóla, því að sykurlausir drykkir skila vax- andi hlut. Eftir því sem forstjórinn segir er dagleg neysla á framleiðslu fyrirtækisins tæplega 330 ml á hvern landsmann að meðaltali. Það jafngildir einni dós af kók á dag, sem kókunnendum eins og mér þykir ekki sérlega mikið. Fyrir réttu ári sendi ég tölvu- skeyti til fyrirtækisins og spurði hverju það sætti að kók sem fram- leitt væri hérlendis og selt á flöskum væri ólíkt því sem framleitt væri er- lendis og selt hér á dósum. Mun- urinn virtist liggja í kolsýrumagn- inu, sem væri mun minna í því íslenska en því erlenda. Þetta breytti bragðinu og því spurning hvort mönnum væri stætt á að aug- lýsa í báðum tilvikum að bragðið sé upprunalegt. Sjálfum fyndist mér erlenda kókið mun betra. Spurning mín var þessi: Hvernig stendur á þessum mun? Var á einhverjum tímapunkti ákveðið að draga úr kol- sýrumagninu hérlendis? Svarið sem ég fékk var á þá leið að smekkur væri misjafn eftir löndum. Á Íslandi væri kolsýrumagnið með því hæsta sem gerðist, en í ná- grannalöndum væri magnið yfirleitt minna. Kók í gleri sem selt væri hér- lendis væri framleitt í Svíþjóð, fyrir Svíþjóð og Noreg auk Íslands, og hefði því lægra kolsýrumagn. Kók í dósum væri líka framleitt í Svíþjóð, en aðeins fyrir Ísland og tæki mið af því sem framleitt væri hér heima. Þetta væri í mótsögn við það sem fram kæmi í mínu bréfi og yrði kannað nánar. Þremur mánuðum síðar, í júní 2020, ritaði ég bréf til fyrirtækisins og árétt- aði fyrra skeyti. Sagði að nú hefði það gerst að kolsýrumagnið í dós- unum hefði minnkað og væri nú svipað og í flöskunum. Ég væri ekki einn um þessa skoðun; fleiri hefðu tek- ið eftir því. Hver væri skýringin á þessari breytingu, sem ég myndi kalla afturför? Þessu bréfi var ekki svarað þrátt fyrir ítrekun í tölvupósti. Í september gerði ég aftur at- rennu. Fékk ég þá það svar að erind- ið hefði verið sent til markaðsstjóra, en ekkert heyrði ég frá þeim heið- ursmanni. Í október sendi ég enn skeyti og sagðist vera farið að lengja eftir svari. Þá var mér tjáð að erindið hefði verið ítrekað við markaðs- deildina. Þaðan heyrðist hvorki stuna né hósti. Ég gat þó huggað mig við það að dósakókið hafði breyst til batnaðar. Hélst það í góðu horfi þar til nýlega, að dósirnar fengu texta sem að mestu leyti var íslenskur. Það var í sjálfu sér jákvæð breyting, en því miður gerðist það um leið, að kolsýrumagnið minnkaði verulega og varð allt of lítið fyrir minn smekk. Dró ég þá ályktun að farið væri að fylla á dósirnar hér- lendis, en þegar ég spurðist fyrir var mér tjáð að svo væri ekki, heldur færi áfyllingin fram í Svíþjóð eins og áður. Á nýju dósunum stendur á sér- kennilega blönduðu máli: „Original taste síðan 1886“. Stenst sú fullyrð- ing? Spyr sá sem ekki veit. En það er einkennilegt að stórfyrirtæki skuli ekki svara einföldustu spurn- ingum um söluvöru sína. Breytilegt bragð á vinsælum drykk Eftir Þorstein Sæmundsson Þorsteinn Sæmundsson »Magn kolsýru í kóka- kóla sem selt er hér- lendis er breytilegt og hefur það veruleg áhrif á bragðið. Höfundur er stjörnufræðingur. halo@hi.is Flestir sem upplifa kvíða reyna að forðast það sem framkallar kvíðann, en ef þú vilt vinna bug á kvíða er forðun það versta sem þú getur gert. Þetta eru samt fullkomlega eðlileg viðbrögð sem hjálpa okkur til að lifa af. Kvíði er þó ekki hættulegur í sjálfum sér og það er hægt að vinna með hann og ná tökum á honum. Fyrsta stigið er að þjálfa bjargráð sem hjálpa okkur að vera kyrr í kvíða- tilfinningunni þar til hugarró er náð. Að ná hugarró í kvíðaástandi tekur tíma og gott getur verið að ráðfæra sig við fagaðila. Tengist þunglyndi kvíðanum myndast ástand sem get- ur verið hættulegt í sjálfu sér og tengist gjarnan sjálfsvígshugsunum. Meðferð þar sem beitt er bæði sam- talsstuðningi og lyfjum er oft besta leiðin, en opin mannleg samskipti og hlýja eru ekki síður mikilvægir þættir við slíkar aðstæður. Flest verðum við hrædd og kvíðin þegar við greinumst með alvarlegan sjúk- dóm. Það getur reynst mörgum erfitt að hvíla kyrr í kvíðanum við slíkar aðstæður. Við leitumst við að bægja frá okkur kvíðvæn- legum hugsunum og einbeitum okkur að voninni um bata. Þau bjargráð sem reynast mörgum vel eru lyf sem slá á kvíðann samhliða þjálfun í hugleiðslu og núvitund. Fátt hjálpar þó betur en að hafa ein- hvern til að tala við um líðan sína. Krabbameinsfélagið veitir krabba- meinsgreindum og aðstandendum faglegan stuðning án endurgjalds. Krabbamein og kvíði Eftir Ásgeir R. Helgason Ásgeir R. Helgason » Flest verðum við hrædd og kvíðin þegar við greinumst með alvarlegan sjúkdóm. Höfundur er dósent í sálfræði við HR og sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu. asgeir@krabb.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.