Morgunblaðið - 06.04.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.04.2021, Blaðsíða 27
og vann síðari leikinn í gær 39:19. Aron skoraði 1 mark og gaf eina stoðsendingu en meira mun vafalítið mæða á Aroni þegar lengra líður á keppnina. _ Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Flensburg sem vann 32:29-útisigur á Magdeburg og end- urheimti toppsætið í þýsku 1. deild- inni í handknattleik. Magdeburg hafði ekki tapað í síðustu 14 deild- arleikjum sínum eða síðan á síðasta ári en gestirnir voru sterkari á loka- kaflanum að þessu sinni. Með sigrinum tókst Flensburg að komast aftur á toppinn og hefur þar 36 stig en Kiel er í öðru sæti með 35 stig og Magdeburg í þriðja með 34 stig. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur heimamanna með sjö mörk, þar af þrjú úr vítum. _ Japanska sundkonan Rikako Ikee er á leiðinni á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar, aðeins tveimur árum eftir að hún greindist með hvítblæði. Ikee er aðeins tvítug en hún sló í gegn á Asíuleikunum árið 2018, vann til sex gullverðlauna og þótti líkleg til stór- afreka áður en hún greindi frá veik- indunum. Hún sagðist þó ætla að sigrast á þeim á sínum tíma og virð- ist hafa staðið við þau orð. Hún náði lágmarkinu inn á Ólympíuleikana með því að koma fyrst í mark í 100 metra flugsundi á móti í heimaland- inu á tímanum 57,77 sekúndunum. Hún byrjaði ekki að æfa á fullu fyrr en í mars á síðasta ári eftir að hafa dvalið á sjúkrahúsi í tíu mánuði. _ Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason glímir við alvar- legri meiðsli en fyrst var haldið og verður sóknarmaðurinn frá næstu vikurnar. Kjartan, sem er samnings- bundinn Esbjerg í dönsku B- deildinni, meiddist í leik Esbjerg og Viborg í síðasta mánuði. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Esbjerg, sagði við JydskeVestkysten um helgina að Kjartan yrði sennilega ekki með í næstu þremur leikjum Esbjerg í dönsku B-deildinni. Úrslitariðill B- deildarinnar hófst í gærþar sem sex efstu liðin leika um tvö laus sæti í úrvalsdeildinni. _ Þorlákur Árnason mun láta af störfum sínum sem yfirmaður knatt- spyrnumála hjá knattspyrnu- sambandi Hong Kong í sumar. Samn- ingur hans við sambandið rennur þá út og Þorlákur snýr sér að öðru. Þor- lákur sagði í útvarpsþætti Fótbolt- a.net að hann hefði náð að ljúka þeim verkefnum sem hann tók að sér en hann tók við starfinu árið 2019. ENGLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Gylfi Þór Sigurðsson og liðsfélagar hans hjá Everton misstu af góðu tækifæri til að sækja að liðunum fyrir ofan þá í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið þurfti að sætta sig við 1:1-jafntefli gegn Crystal Palace á heimavelli í gær. Everton var töluvert sterkari aðilinn og skapaði sér fjölda færa, en hetjuleg frammi- staða Vicente Guaita í marki Crystal Palace kom í veg fyrir að Everton fagnaði sigri. Hvað eftir annað varði Guaita frá sóknar- mönnum Everton úr góðum færum og hinum megin refsaði Michy Batshuayi með jöfnunarmarki á 86. mínútu eftir að James Rodríguez hafði komið Everton yfir á 56. mín- útu. Gylfi byrjaði á bekknum hjá Everton en leysti meiddan André Gomes af hólmi á 31. mínútu. Gylfi komst ekki mikið í takt við leikinn og hefur oft spilað betur. Leicester, Chelsea og Tottenham töpuðu öll stigum um páskahelgina og gæti það reynst dýrkeypt fyrir Everton að nýta sér það ekki betur. Geta kælt kampavínið Sigurvegarar helgarinnar voru Manchester-liðin tvö og West Ham. Stuðningsmenn Manchester City geta farið að kæla kampavínið eftir 2:0-útisigur á Leicester á laug- ardaginn var. City var miklu betri aðilinn frá fyrstu mínútu og var sig- urinn gífurlega verðskuldaður. City hefur svarað tapinu fyrir Manchest- er United í mars með fimm sann- færandi sigrum í öllum keppnum. Bláa liðið í Manchester er með fjór- tán stiga forskot á granna sína, en United á leik til góða. Þrátt fyrir það eru afar litlar líkur á því að City tapi nægilega mörgum stigum til að United eigi möguleika á topp- sætinu. United tapar ekki í deildinni United þurfti að hafa mikið fyrir 2:1-sigri á Brighton á heimavelli á sunnudag. Mason Greenwood skor- aði sigurmarkið á 83. mínútu, 20 mínútum eftir að Marcus Rahsford jafnaði í 1:1. United lenti snemma undir þar sem Danny Welbeck, fyrrverandi leikmaður liðsins, kom Brighton yfir á 13. mínútu. United hefur hins vegar aðeins tapað ein- um deildarleik síðan 1. nóvember og er liðið nú með fjögurra stiga forskot á Leicester í baráttunni um annað sætið. Næsti leikur United er gegn Granada í átta liða úrslit- um Evrópudeildarinnar, þar sem liðið er líklegt til afreka. Þá fór West Ham upp í fjórða sætið með 3:2-sigri á Wolves á úti- velli í gær. West Ham hefur komið öllum á óvart á leiktíðinni og væri það magnað afrek fyrir David Mo- yes ef honum tekst að koma Hömr- unum í Meistaradeildina. Óvæntustu úrslit helgarinnar urðu á laugardag er WBA gerði sér lítið fyrir og vann 5:2-útisigur á Chelsea. Thiago Silva fékk rautt spjald á 29. mínútu í stöðunni 1:0 Chelsea í vil og við það hrundi leik- ur liðsins. Chelsea er fallið niður í fimmta sæti í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni. Þrátt fyrir sig- urinn er WBA enn átta stigum frá öruggu sæti í deildinni. Þá mistókst Tottenham að nýta sér tap Chelsea- manna því liðið fékk á sig jöfn- unarmark undir lokin gegn New- castle á útivelli þar sem lokatölur urðu 2:2. Dýrkeypt fyrir Everton - City í kjörstöðu - United sneri tafl- inu við - Chelsea fékk ótrúlegan skell AFP Basl Gylfi Þór Sigurðsson og samherjar hjá Everton misstu af góðu tæki- færi til að sækja að liðunum fyrir ofan í ensku úrvalsdeildinni í gær. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021 Spánn Gran Canaria – Zaragoza................... 84:76 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig og tók 2 fráköst fyrir Zaragoza. Valencia – Joventut Badalona ......... 89:102 - Martin Hermannsson lék ekki með Val- encia vegna meiðsla. Andorra – Baskonia ............................ 68:82 - Haukur Helgi Pálsson lék ekki með An- dorra vegna meiðsla. B-deild: Melilla – Girona ................................... 95:93 - Kári Jónsson skoraði 6 stig. Caceres – Real Canoe ......................... 81:80 - Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 5 stig, gaf 2 stoðsendingar og tók 3 fráköst fyrir Real Canoe. Þýskaland Fraport Skyliners – Crailsheim ........ 92:84 - Jón Axel Guðmundsson skoraði 22 stig, gaf 5 stoðsendingar fyrir Fraport. NBA-deildin Chicago – Brooklyn.......................... 115:107 LA Clippers – LA Lakers.................. 104:86 Boston – Charlotte ............................. 116:86 Philadelphia – Memphis .................. 100:116 Atlanta – Golden State..................... 117:111 Houston – New Orleans................... 115:122 Denver – Orlando ............................. 119:109 4"5'*2)0-# Þýskaland Wetzlar – RN Löwen........................... 34:32 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Löwen. Magdeburg – Flensburg..................... 29:32 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson er frá vegna meiðsla. - Alexander Petersson skoraði 2 mörk fyrir Flensburg. Göppingen – Füchse Berlín................ 25:24 - Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyr- ir Göppingen og Janus Daði Smárason er frá vegna meiðsla. Kiel – Stuttgart.................................... 33:28 - Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir Stuttgart. B-deild: Bietigheim – Aue................................. 31:20 - Aron Rafn Eðvarðsson varði 8 skot í marki Bietigheim. - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1 mark fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 3 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. Meistaradeild karla 16-liða úrslit, seinni leikur: Barcelona – Elverum .......................... 39:19 - Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir Barcelona sem fer áfram í 8-liða úrslit 76:44 samanlagt. Danmörk Aalborg – Holstebro............................ 34:30 - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 3 mörk fyrir Tvis Holstebro. Mors – Skjern....................................... 26:32 - Elvar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Skjern. Kolding – Lemvig................................ 31:31 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 5 skot í marki Kolding. Ribe-Esbjerg – Ringsted .................... 30:32 - Daníel Þór Ingason skoraði 4 mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Rúnar Kárason 1. Fredericia – GOG ................................ 26:30 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 16 skot í marki GOG. SönderjyskE – Aarhus........................ 27:33 - Sveinn Jóhannsson skoraði 2 mörk fyrir SönderjyskE. Svíþjóð 8-liða úrslit, fjórði leikur: Kristianstad – Malmö.......................... 34:28 - Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 7 mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein- arsson 3. _ Kristianstad vann samtals 3:1 og er kom- ið í undanúrslit. %$.62)0-# Evrópumeistararnir í Bayern München tóku stórt skref í áttina að Þýskalandsmeistaratitlinum í knattspyrnu með 1:0-útisigri í topp- slag gegn Leipzig á laugardag. Leon Goretzka, sem skoraði fyrir Þýskaland gegn Íslandi í undan- keppni HM á dögunum, skoraði sig- urmarkið á 38. mínútu. Leipzig var töluvert sterkari aðilinn í seinni hálfleik en tókst ekki að jafna met- in og fyrir vikið munar nú sjö stig- um á liðunum. Bayern er með 64 stig á toppi deildarinnar og Leipzig í öðru sæti með 57 stig þegar sjö umferðir eru eftir. Leipzig gat því með sigri minnkað forskot Bæjara niður í eitt stig. Það tókst ekki, jafnvel þótt Bayern sé nú án Ro- berts Lewandowski sem valinn var leikmaður ársins í heiminum 2020. Tvö efstu liðin mættust einnig í Frakklandi þegar Lille vann Paris St. Germain í París 1:0. Brasilíu- maðurinn Neymar hjá Paris fékk rauða spjaldið í leiknum. Lille er á toppnum með þriggja stiga forskot á Paris St. Germain. AFP Mikilvægt Leon Goretzka fagnar markinu sem reyndist sigurmarkið. Bayern og Lille unnu uppgjörsleikina Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, lands- liðskona í blaki frá Norðfirði, var á dögunum valin í úrvalslið tíma- bilsins í sænsku úrvalsdeildinni. Jóna Guðlaug leikur sem atvinnu- maður með Hylte/Halmstad og hefur liðið átt stórkostlegt tíma- bil, þar sem bikarmeistara- og deildarmeistaratitlar eru þegar í höfn. „Það er náttúrlega mikill heið- ur að vera valin og ég var rosa- lega glöð að fá þessa útnefningu í ár. Ég byrjaði leiktímabilið meidd og það tók smá tíma að koma til baka. En svo er ég auðvitað með frábært lið á bak við mig sem hjálpar til. Ég er rosalega ánægð,“ sagði Jóna Guðlaug í samtali við mbl.is. Það eru ekki einu erfiðleikarnir sem hún, og liðið, hefur yfirstigið á tímabilinu því að eftir að Hylte/ Halmstad hafði verið fullkomlega óstöðvandi greindist allt byrj- unarliðið með kórónuveiruna í febrúar síðastliðnum. „Við vorum í öllum fjölmiðlum í útlöndum því að við töpuðum ekki hrinu þangað til að við fengum Covid í liðið. Allt byrjunarliðið fékk Covid. Það voru svona smá erfiðleikar sem fylgdu því. Við fengum þetta í febrúar inn í liðið og það varð smá uppnám þá. Þá töpuðum við okkar fyrsta leik. Með því er ekki ætlunin að kasta bekknum undir rútuna, þær stóðu sig mjög vel í erfiðum aðstæðum,“ sagði Jóna Guðlaug en lengra viðtal við hana er að finna á mbl.is/sport frá því á föstudag. Hylte/Halmstad er komið í undanúrslit í úrslitakeppninni um sænska meistaratitilinn og glímir þar við Örebro, lið sem Jóna lék áður með. Staðan í rimmunni er 1:0 Örebro í vil. gunnaregill@mbl.is Mikil velgengni þrátt fyrir mörg smit Ljósmynd/HHVolley Öflug Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir í búningi sænska liðsins. Dragan Adzic hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í hand- knattleik í Slóveníu í kjölfar þess að Uros Bregar sagði starfi sínu lausu. Adzic er reyndur þjálfari en undir hans stjórn var Svartfjalla- land Evrópumeistari kvenna árið 2012. Slóvenía og Ísland mætast tvívegis síðar í mánuðinum í um- spili um laust sæti á heimsmeist- aramótinu. Adzic stýrir liði Slóveníu gegn Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.