Morgunblaðið - 06.04.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.04.2021, Blaðsíða 26
SKOTLAND Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Varnarmaðurinn Arna Sif Ásgríms- dóttir gekk til liðs við Skotlands- meistara Glasgow City á láni frá Þór/KA rétt eftir jól á síðasta ári. Áætlað var að fyrsti leikur Örnu Sifjar færi fram skömmu síðar, þann 17. janúar, en það gekk ekki eftir. Það var ekki fyrr en á sunnudaginn, páskadag, þegar hún skoraði í 3:0- sigri gegn nágrönnunum í Celtic, að hún spilaði loks sinn fyrsta leik fyrir liðið. Vegna kórónuveirufaraldursins og útgöngubanns í tengslum við hann í Skotlandi þurfti Arna Sif nefnilega að bíða í rúma þrjá mánuði eftir því að spila sinn fyrsta leik frá því hún hóf æfingar með liðinu, í stað rúmra tveggja vikna eins og til stóð. „Þetta hefur náttúrlega verið svo- lítið skrítið með þessu Covid-stoppi. Þegar ég kem erum við bara að æfa venjulega, saman sem lið, en svo eft- ir einhverja 10 daga er útgöngubann sett á og við fáum ekki að æfa neitt. Við fengum síðar leyfi til þess að æfa bara tvær og tvær saman og reynd- um einfaldlega að gera það besta úr þessu. Þetta eru auðvitað búnar að vera ferlega skrýtnar aðstæður,“ sagði Arna Sif í samtali við Morgun- blaðið. Lífið í Glasgow á undarlegum tím- um hefur þrátt fyrir allt verið í lagi. „Það hefur í rauninni verið mjög fínt miðað við allt. Það er allt lokað og lítið um að vera. Við vorum beðnar um að vera mestmegnis heima til þess að koma okkur ekki í nein vand- ræði. En ég er mjög heppin með stelpuna sem ég bý með og við erum búnar að vera duglegar að reyna að gera gott úr þessu og reyna að fara í göngutúra hér og þar, reyna aðeins að skoða lífið í borginni,“ sagði hún. Munurinn snýr að peningum Knattspyrnuleikir karla hafa farið sleitulaust fram í tveimur efstu deildunum í Skotlandi þessa tvo og hálfan mánuð sem keppni í kvenna- deildinni hefur legið niðri. Arna Sif telur aðalástæðuna fyrir þessum mun snúa að peningum. „Eins og ég skildi þetta er boðið upp á vikulegar skimanir hjá körlunum og þessi fé- lög eru betur fær um að halda utan um allt það sem þarf að uppfylla í tengslum við Covid, sem kostar nátt- úrlega mikið af peningum.“ Félag hennar, Glasgow City, er þó eitt af þeim kvennaliðum í skosku úrvalsdeilduinni sem hefur ráð á að borga fyrir vikulegar skimanir en það á ekki við um öll átta lið deild- arinnar. „Það hafa ekki öll liðin í kvennadeildinni tök á því að borga fyrir vikulegar skimanir. Þetta var því í rauninni ekki hægt af því að það er ekki rökrétt að leyfa topp þremur liðunum að æfa vegna þess að þau eiga peninga. Það þurfti það sama að ganga yfir alla,“ útskýrði hún. Síðasti leikur í september Sem áður segir sneri Arna Sif loksins aftur á knattspyrnuvöllinn þegar hún lék allan leikinn í örugg- um 3:0-sigri gegn grönnunum í Celt- ic. Hún skoraði annað mark leiksins með þrumuskalla eftir hornspyrnu. Hvernig var að snúa aftur á völlinn og skora mark í þokkabót í sínum fyrsta leik? „Það var bara hrikalega skemmti- legt. Það var auðvitað smá stress af því að það var svo langt síðan maður hafði spilað. Ég held ég hafi spilað síðasta fótboltaleikinn minn í sept- ember, þannig að stressið var kannski bara eðlilegt. En við erum búnar að fá að æfa sem lið í ein- hverjar fjórar vikur núna þannig að maður var held ég eins vel undir- búinn og maður gat verið. Æfing- arnar eru búnar að vera góðar og maður hefur hugsað vel um sig. Þetta var bara geggjað og að skora er náttúrlega alltaf skemmtilegt, það var smá bónus,“ sagði Arna Sif. Auðvitað mjög svekkjandi Lánssamningur Örnu Sifjar við Glasgow City gildir einungis í rúman mánuð í viðbót og snýr hún aftur til uppeldisfélagsins Þórs/KA að hon- um loknum. „Ég er bara með samn- ing til 10. maí. Ef allt hefði verið eðli- legt hefði deildin verið að klárast um 2. maí og ég hefði þá náð að klára alla leikina en fyrst þetta fór svona næ ég bara helmingnum af því sem eftir er. Það er auðvitað mjög svekkjandi. Það er auðvelt að pirra sig á því en maður stjórnar svo sem ekki þessu blessaða Covid-ástandi. En auðvitað er þetta ótrúlega leiðinlegt af því að mér líður mjög vel hérna og finnst ég passa vel inn í þetta lið. Þetta er miklu betra lið en ég hélt. Ég var ekki alveg viss út í hvað ég var að fara en það eru bara ótrúlega góðir leikmenn hérna og þetta er klárlega umhverfi til þess að vaxa og þrosk- ast enn meira. Þannig að þetta er smá fúlt,“ sagði Arna Sif. Gæti farið aftur síðar Hún sagði það ekkert hafa verið rætt að framlengja núverandi láns- samning en að öllum dyrum verði þó haldið opnum. „Það hefur ekkert komið til tals núna. Ég er samnings- bundin Þór/KA út október þannig að ég veit ekki hvort það væri mögu- leiki, en við höfum svo sem alveg rætt það hvort við myndum tala saman eftir sumarið.“ Áhugi Glasgow City var enda það mikill að liðið vildi upphaflega fá hana alfarið til liðs við sig. „Við töl- uðum um það þegar þetta byrjaði, þeir vildu semja fyrst til einhverra ára en við ákváðum svo að fara þessa leið. Ef báðir aðilar vilja, þá væri kannski hægt að ræða saman eftir tímabilið á Íslandi,“ sagði Arna Sif að lokum í samtali við Morgunblaðið. Beið í þrjá mánuði eftir fyrsta leiknum - Fengu hvorki að æfa né keppa Morgunblaðið/Þórir Leiðtogi Arna Sif Ásgrímsdóttir er fyrirliði Þórs/KA og snýr aftur til liðs- ins í maí þegar lánssamningur hennar við Glasgow City rennur út. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021 England Everton – Crystal Palace ...................... 1:1 - Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á hjá Everton á 30. mínútu. Arsenal – Liverpool ............................... 0:3 - Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Arsenal. Southampton – Burnley ........................ 3:2 - Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 90 mínúturnar fyrir Burnley. Chelsea – WBA ....................................... 2:5 Leeds – Sheffield United........................ 2:1 Leicester – Manchester City ................. 0:2 Newcastle – Tottenham.......................... 2:2 Aston Villa – Fulham .............................. 3:1 Manchester United – Brighton.............. 2:1 Wolves – West Ham................................ 2:3 Staðan: Manch. City 31 23 5 3 66:21 74 Manch. Utd 30 17 9 4 58:33 60 Leicester 30 17 5 8 53:34 56 West Ham 30 15 7 8 48:37 52 Chelsea 30 14 9 7 46:30 51 Tottenham 30 14 7 9 51:32 49 Liverpool 30 14 7 9 51:36 49 Everton 29 14 5 10 41:38 47 Aston Villa 29 13 5 11 42:31 44 Arsenal 30 12 6 12 40:35 42 Leeds 30 13 3 14 47:48 42 Crystal Palace 30 10 8 12 32:48 38 Southampton 30 10 6 14 39:53 36 Wolves 30 9 8 13 30:41 35 Burnley 30 8 9 13 24:40 33 Brighton 30 7 11 12 33:38 32 Newcastle 30 7 8 15 30:50 29 Fulham 31 5 11 15 24:41 26 WBA 30 4 9 17 25:59 21 Sheffield Utd 30 4 2 24 17:52 14 Reading – West Ham.............................. 0:5 - Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn fyrir West Ham. B-deild: Stoke – Millwall ...................................... 1:2 - Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 82. mínútu hjá Millwall. Þýskaland Augsburg – Hoffenheim........................ 2:1 - Alfreð Finnbogason var allan tímann á varamannabekk Augsburg.. Bikarkeppnin, undanúrslit: Wolfsburg – Bayern München .............. 2:0 - Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var á varamannabekknum hjá Bayern Münc- hen. Eintracht Frankfurt – Freiburg ...........2:1 - Alexandra Jóhannsdóttir var á vara- mannabekknum hjá Frankfurt. _ Wolfsburg og Frankfurt leika til úrslita. Frakkland Bordeaux – Issy ...................................... 1:0 - Svava Rós Guðmundsdóttir var ekki í leikmannahópi Bordeaux. Le Havre – Dijon .................................... 0:2 - Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Andrea Rán Hauks- dóttir léku allar allan leikinn fyrir Le Havre. Rússland Tambov – CSKA Moskva ....................... 1:2 - Hörður Björgvin Magnússon lék fyrstu 70 mínúturnar í liði CSKA Moskvu, Arnór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir liðið. Rúmenía CFR Cluj – Dinamo Búkarest ............... 1:0 - Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á hjá Cluj á 66. mínútu. Grikkland Panathinaikos – PAOK.......................... 3:0 - Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn fyrir PAOK. Katar Al-Arabi – Al-Duhail.............................. 2:3 - Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 85 mínúturnar fyrir Al-Arabi. Heimir Hall- grímsson þjálfar liðið. Skotland Celtic – Glasgow City ............................ 0:3 - Barbára Sól Gísladóttir var ekki í leik- mannahópi Celtic. - Arna Sif Ásgrímsdóttir lék allan leikinn og skoraði fyrir Glasgow City. Danmörk Midtjylland – Bröndby........................... 1:0 - Mikael Anderson lék fyrstu 62 mínút- urnar fyrir Midtjylland. - Hjörtur Hermannsson lék fyrstu 80 mínúturnar fyrir Bröndby. Nordsjælland – AGF .............................. 2:0 - Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 80 mínúturnar fyrir AGF. Horsens – OB .......................................... 1:1 - Ágúst Eðvald Hlynsson var allan tím- ann á varamannabekk Horsens. - Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn fyrir OB og Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 81. mínútu og lagði upp mark. B-deild: Silkeborg – Helsingör............................ 2:0 - Patrik Gunnarsson lék allan leikinn fyr- ir Silkeborg. Stefán Teitur Þórðarson lék síðari hálfleikinn og lagði upp mark. Lettland Riga – Spartaks Jürmala....................... 6:1 - Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn fyrir Riga og lagði upp mark. 50$99(/:+0$ _ Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður í knattspyrnu, er með slitna hásin og þarf að fara í að- gerð vegna þess. Hann leikur því ekki meira með CSKA Moskvu á þessari leiktíð og landsliðið mun ekki njóta krafta hans næstu mánuðina. Hörður var borinn af velli á 70. mínútu er CSKA Moskva vann Tambov á útivelli í rússnesku úrvalsdeildinni á páska- dag. _ Patty Tavatanakit frá Taílandi sigraði á fyrsta risamóti ársins í golfi þegar hún lék samtals á 18 höggum undir pari á ANA Inspiration-mótinu í Kaliforníu. Tavatanakit er aðeins 21 árs og er nýliði í LPGA-mótaröðinni en nýliði á mótaröðinni hefur ekki unnið ANA-mótið síðan 1984 þegar Juli Inkster afrekaði það. _ Diljá Ýr Zomers og samherjar í Häcken frá Gautaborg leika til úrslita í sænsku bikarkeppninni í knatt- spyrnu eftir 1:0-sigur á Rosengård í undanúrslitunum. Diljá er nýkomin til félagsins frá Val en félagsskiptin gengu í gegn í síðasta mánuði. Hún var á varamannabekk liðsins allan leikinn en landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir spilaði all- an leikinn með Rosengård. Häcken mætir Eskilstuna í úrslitaleiknum. _ Í karlaflokki gætu þrír Íslendingar komið við sögu í úrslitaleiknum. Hammarby leikur til úrslita eftir 1:0- sigur gegn Djurgården í undanúrslit- unum á páskadag. Jón Guðni Fjólu- son lék allan leikinn með Hammarby sem mætir Häcken í úrslitum. Í liði Häcken eru þeir Valgeir Lunddal Friðriksson og Oskar Tor Sverrisson. _ Alexandra Jóhannsdóttir og samherjar í Eintracht Frankfurt leika til úrslita í þýsku bikarkeppninni í knattspyrnu eftir 2:1-sigur á Frei- burg í undanúrslitunum. Alexandra gekk til liðs við Frankfurt í janúar en var ónotaður varamaður í undan- úrslitaleiknum. Frankfurt mætir stórliðinu Wolfsburg í úrslita- leiknum. _ Spænsku meistararnir í Barce- lona eru komnir áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar karla í handknatt- leik en norska liðið Elverum reyndist lítil hindrun fyrir Börsunga. Barce- lona sló Elverum út í 16-liða úrslit- um 76:44 samanlagt. Barcelona þurfti ekki á stjörnuleik frá Aroni Pálmarssyni að halda að þessu sinni Eitt ogannað Íslensku knattspyrnumennirnir í Hollandi fóru ekki of geyst í páska- matinn. Þrír léku með liðum sínum um páskahelgina og skoruðu allir. Albert Guðmundsson skoraði eina markið þegar AZ Alkmaar vann Willem II 1:0 á útivelli. Er AZ í 3. sæti úrvalsdeildarinnar. Í b-deildinni skoruðu þeir Elías Már Ómarsson og Kristófer Ingi Kristinsson. Kristófer kom inn á hjá Jong PSV á 69. mínútu og skoraði í 3:1-sigri á Maastricht á heimavelli. Elías Már Ómarsson skoraði fyrir Excelsior en það dugði skammt því liðið fékk svakalegan 7:2-skell gegn Cambuur á útivelli. kris@mbl.is AFP AZ Albert hefur leikið vel í vetur þegar hann hefur fengið tækifæri. Þrír Íslendingar á skot- skónum um páskana GOG varð deildarmeistari í efstu deild karla í danska handknatt- leiknum en með liðinu leikur lands- liðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson. Nú tekur við úrslitakeppni átta liða sem skipt er í tvo riðla, en Ís- lendingar eiga fulltrúa í sex þess- ara liða. Arnór Atlason er aðstoðar- þjálfari Álaborgar, sem hafnaði í 2. sæti. Óðinn Þór Ríkharðsson leikur með Holsterbro, sem varð í 3. sæti. Sveinn Jóhannsson með Sönder- jyskE, sem varð í 5. sæti, Elvar Örn Jónsson með Skjern, sem varð í 6. sæti, og Ágúst Elí Björgvinsson með Kolding, sem varð í 8. sæti. Íslendingar í sex liðum af átta í úrslitakeppninni AFP Danmörk Viktor Gísli Hallgrímsson varð deildarmeistari með GOG.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.