Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 10

Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég er miðjumaður í viðhorfum og brenn fyrir byggðamálunum. Í stjórnmálunum er og verður mikilvægt að jafna búsetuskil- yrðin á landinu. Fólk vill búa úti á landi, en svo byggðirnar dafni þar þarf að standa vörð um og byggja upp innviði og jafna leik- inn. Ég vil leggja mitt af mörk- um,“ segir Stefán Vagn Stef- ánsson, forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar. Grasrótin var spurð Í póstkosningu á dögunum var Stefán Vagn valinn til að skipa oddvitasætið á lista fram- sóknarmanna í Norðvestur- kjördæmi fyrir alþingiskosningar í haust. Hann fékk flest atkvæði í 1. sætið; 580 alls eða um 60%. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, formaður Sambands ungra fram- sóknarmanna, sem er úr Borg- arfirði, hlaut 439 atkvæði í 1. og 2. sætið og Halla Signý Krist- jánsdóttir þingmaður hlaut 418 atkvæði í 1.-3. sæti. Sjálfur seg- ist Stefán Vagn ánægður með út- komuna, framboðslistinn sé sterkur og mikilvæg verkefni blasi við. „Já, ég hafði lengi velt fyrir mér að fara í landsmálin. Endan- lega ákvörðun um að taka slag- inn tók ég þegar ákveðið var að fara í prófkjör; það er með því spyrja grasrótina hvernig fram- boðslistinn yrði skipaður. Ég er þakklátur fyrir þann góða stuðn- ing sem ég fékk og hlakka til verkefnanna framundan. Ég er alinn upp við kröfuga, pólitíska umræðu og að sjálfsagt sé að fólk hafi skoðanir og berjist fyr- ir framgangi málefna sem það ber fyrir brjósti,“ segir Stefán Vagn: sonur Stefáns heitins Guð- mundssonar sem var þingmaður Framsóknarflokksins 1979 til 1999. Samfélagsleg verkefni Stefán Vagn hefur frá árinu 2010 verið leiðtogi Framsókn- arflokksins í Skagafirði og í for- ystu sveitarstjórnar á þeim tíma. Verkefnin á þessum ellefu árum segir viðmælandi okkar mörg hafa verið afar krefjandi, svo sem sú uppstokkun á stjórn og fjármálum sveitarfélagsins sem þörf var á eftir efnahagshrunið. Velta hafi þurft hverjum steini við og koma málunum á rétt ról. Þessar aðgerðir hafi að mörgu leyti tekið á, en í dag sé Sveitar- félagið Skagafjörður í sterkri stöðu. Á þess vegum sé fram- kvæmt á ári hverju fyrir 450-650 milljónir króna og af verkefnum síðustu ára megi nefna endur- bætur á skólahúsum á Sauðár- króki og á Hofsósi, sundlauginni á Sauðárkóki hafi verið breytt og stækkun framundan og úti í sveitunum sé lagning hitaveitu og ljósleiðaraveitu risastórt verkefni. Fyrirhugaðar eru miklar breytingar á skólahúsinu í Varmahlíð. „Hitaveitan fer þangað sem raunhæft er og stefnan að ljós- leiðarinn fari á alla bæi. Auðvit- að kostar slíkt talsvert en þarna er framtíðin, þetta er óhjákvæmilegt. Í stóra samheng- inu þarf að koma öllu dreifbýlinu í háhraða netsamband, jafnvel þótt markaðslegar forsendur séu fyrir því. Ef ekki, er slíkt ein- faldlega samfélagslegt verkefni. Þannig þurfum við raunar að nálgast mörg fleiri viðfangsefni í byggðum landsins.“ Kjördæmi ólíkra hagsmuna Norðvesturkjördæmi er víð- feðmt; nær frá Hvalfjarðarbotni og norður í Fljót. Þetta er dreif- býlt svæði, þar sem frum- atvinnugreinarnar eru í aðal- hlutverki. Akranes er stærsta og fjölmennasta byggðin í kjördæm- inu og hagsmunirnir þar eru um margt aðrir en til dæmis á sunn- anverðum Vestfjörðum eða í sveitum Borgarfjarðar, Dalanna eða á Norðurlandi vestra. „Akranes og jafnvel hluti af Borgarfirðinum eru í raun orðin úthverfi höfuðborgarsvæðisins og verða enn frekar þegar Sundabraut kemur. Sú fram- kvæmd er mikilvæg fyrir Norðvesturkjördæmi, á sama hátt og fara verður sem fyrst í mikilvægar endurbætur á stofn- brautum víða í dreifbýlinu, svo sem á sunnanverðum Vest- fjörðum,“ segir Stefán Vagn og jafnframt: „Einnig þarf að standa vörð um opinbera þjónustu, sem var skorin miskunnarlaust niður fyrst eftir hrun. Bara í Skaga- firði lagði ríkið niður tugi starfa í sparnaðarskyni, sem leiddi til þess að fjöldi fólks flutti á brott. Útkoman var þá sú að atvinnu- leysi á svæðinu jókst ekki, sem var blekking. Þegar kórónuveir- unni slotar er hættan alltaf sú að farið verði í sambærilegan nið- urskurð, sem veikir dreifbýlið. Slíkt má þó bara ekki gerast.“ Eftirminnilegt að fylgja Clinton-hjónunum Stefán Vagn Stefánsson á að baki langan feril í lögreglunni. Hann hóf ferilinn árið 1997 sem sumarafleysingamaður á Sauð- árkróki, fór svo til starfa í Reykjavík og var seinna um langt árabil í sérsveit Ríkislög- reglustjóra. Stefán starfaði sem friðargæsluliði í Afganistan frá árinu 2006 til ársins 2007. Stefán var svo árið 2008 skipaður yfir- lögregluþjónn á Sauðárkróki. „Störf í lögreglunni og stjórnmálum eru eðlislík á þann veg að samskipti eru rauði þráð- urinn. Mér finnst gaman að vinna með fólki og fyrir fólk. Segi líka alltaf að ef samtöl ein- kennast af virðingu verður út- koman yfirleitt í lagi þótt fólk sé ekkert endilega sammála,“ segir Stefán Vagn og að síðustu: „Úr sérsveitinni er margt eftirminnilegt, svo sem að vera lífvörður þeirra Bills og Hillary Clinton þegar þau komu hingað til lands í heimsókn sumarið 2004. Fáa ef þá nokkra hef ég hitt um dagana með jafn sterka nærveru og Bandaríkjaforsetinn fyrrverandi hafði. Hann fyllti út í hvert einasta rými hvar sem hann fór. Einstakur maður – rétt eins og margt eftirminnilegt ger- ist í lögreglustarfinu hér fyrir norðan. Þau samskipti eru góður skóli og reynsla sem nýtast mun í nýjum verkefnum í landsmála- pólitíkinni, nái ég kjöri.“ Stefnir á landsmálin eftir ellefu ár í sveitarstjórn Skagafjarðar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Norðvesturkjördæmi Víðfeðmt svæði og ólíkir hagsmunir milli svæða. Myndin er frá Patreksfirði. Samfélagsleg verkefni Frambjóðandi Kröftug pólitísk umræða og að fólk berjist fyrir fram- gangi málefna sem það ber fyrir brjósti,“ segir Stefán Vagn í viðtalinu. „Færið er gott og leiðin – með brekk- um og beinum köflum sitt á hvað - er frábær fyrir hjólreiðamenn,“ segir Sigurður G. Guðjónsson lögmaður. Margir voru á faraldsfæti hér og þar um landið yfir páskahelgina og að morgni föstudagsins langa hitti blaðamaður Sigurð á Mosfellsheiði. Það var skammt austan við Kjós- arskarðsafleggjara þar sem hallar niður að Þingvöllum. Fleiri hjóla- garpar voru á þessum slóðum; sumir einir en aðrir í hópum og fóru hratt yfir. Áhugi meiri og aðstaða betri Markmið Sigurðar er að hjóla 7.000 kílómetra á þessu ári og sprett- urinn sem hann tók um helgina var 1% af því. „Heiman frá mér í Sel- ásnum í Reykjavík, að Heiðarbæjar- afleggjara á Þingvallaveginum og aftur til baka er þriggja tíma ferð og 70 kílómetrar. Ég verð sjötugur síðar á þessu ári og því vel ég tölur og tak- mörk við hæfi,“ segir Sigurður sem hefur stundað hjólreiðar í meira en 30 ár. Hann segist alltaf hafa haft mikla þörf fyrir útiveru og hreyfingu. Í því tilliti henti hjólreiðar á léttstígu götuhjóli honum afar vel. „Áhugi fólks á hjólreiðum verður sífellt meiri og aðstaðan betri. Úr Ár- bæjarhverfinu get ég valið leiðir og mismunandi vegalengdir, svo sem 40 kílómetra ferð - en þá fer ég fram Elliðaár- og Fossvogsdali, út með Skerjafirði, Ægissíðuna og út á Gróttu. Þaðan svo inn í bæ og inn með Sundunum, yfir brúna á Elliða- árósum, upp í Grafarholt og þaðan í Selásinn. Þessi leið er fín, til dæmis þegar safna skal kílómetrum,“ segir Sigurður. Raunhæft takmark „7.000 kílómetrarnir eru raunhæft takmark og nú þegar – þegar þrír mánuðir eru liðnir af árinu – er ég kominn í 1.600. Þá er sumarið allt framundan, en þá er ég með fjöl- skyldunni mikið á heimaslóðum vest- ur á fjörðum þar sem er gaman að hjóla um fjallvegi og útnes.“ Ætlar sjötugur 7.000 km í ár - Hjólreiðamaður á Mosfellsheiðinni Garpur Kominn í 1.600 km á árinu, segir Sigurður G. Guðjónsson. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sprettur Hjólreiðamenn á Mosfellsheiði skammt fyrir ofan Gljúfrastein að morgni föstudagsins langa. Færið fínt og súrefnð gott fyrir lungu og hjarta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.