Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 25

Morgunblaðið - 06.04.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021 „JÁ, ÉG GRÉT – EN ÞAÐ VAR EKKI ÁKALL Á HJÁLP.“ „HEFURÐU EINHVERJA HUGMYND UM ÞAÐ Á HVERSU MIKLUM HRAÐA ÞÚ VARST?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga óþrjótandi brunn af smákökum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „KÆRA SPYRÐU HUND, HUNDURINN MINN HLÝÐIR MÉR EKKI“ „HVAÐ ER AÐ HONUM?“ VOFF! VOFF! VOFF! HVAÐ ER AÐ ÞÉR? FÉLAGAR, EF VIÐ TRÚUM STÖNDUM VIÐ UPPI SEM SIGURVEGARAR Í ORUSTUNNI! HA! HVAÐA TRÚ?! TRÚ Á ÞAÐ AÐ EF VIÐ TÖPUM ENDUM VIÐ Í SALTNÁMUNUM! FÖRUM OG SIGRUM! í nýjum, áhugasömum og sístækkandi söfnuði með frábærum prestum og öðru starfsfólki, hæfileikaríku tónlist- arfólki, einstaklega öflugum sóknar- nefndum, byggingarnefnd og safn- aðarfélagi, þar sem allir voru sam- stíga og opnir fyrir nýjungum í safnaðarstarfinu. Glæsileg kirkja og Kirkjusel bera vott um mikinn eld- móð, áhuga og fórnfúst starf í þessum stærsta söfnuði landsins. Við Elín höfum átt blessunarríka samleið í 54 ár þar sem fjölskyldan hefur verið í öndvegi í lífi okkar hjóna. Safnaðarstarfið var mikið áhugamál hjá okkur báðum. Bæði í safnaðar- starfinu á Siglufirði og hér í Grafar- voginum eignuðumst viðmarga góða vini – ævivini – sem svo sannarlega ber að þakka á tímamótum í lífinu.“ Fjölskylda Vigfús kvæntist 27.7. 1968 Elínu Pálsdóttur, f. 16.6. 1948, fyrrv. for- stöðumanni Jöfnunarsjóðs sveitarfé- laga. Hún er dóttir hjónanna Stefáns Stefánssonar, f. 31.12. 1928, d. 14.10. 2012, iðnskólakennara í Reykjavík, og k.h., Bjargar Bogadóttur, f. 13.9. 1926, d. 8.9. 2009, húsfreyju. Börn Vigfúsar og Elínar eru 1) Árni Þór, f. 4.5. 1976, fram- kvæmdastjóri en kona hans er Ma- riko Margrét Ragnarsdóttir, yfir- maður tækni- og hugbúnaðarþróunar, og eru synir þeirra Vigfús Fróði, Tómas Grettir og Emil Eldar. Þau eru búsett í Stokkhólmi. 2) Björg, f. 21.12. 1978, klíniskur fjölskyldumeðferðafræð- ingur en maður hennar er Reimar Pétursson hrl. og eru börn þeirra Pétur Goði, Erna María og Þór. 3) Þórunn Hulda, f. 29.4. 1980, fram- kvæmdastjóri en maður hennar er Finnur Bjarnason rafvirki og eru dætur þeirra Elín Helga og Elma Björg. Systkini Vigfúsar: Gunnar Maggi Árnason, f. 24.12. 1940, d. 23.8. 2003, prentsmiðjustjóri í Kópavogi; Halla Vilborg Árnadóttir, f. 28.10. 1948, fyrrv. bankastarfsmaður í Reykjavík; Rúnar Jón Árnason, f. 19.6. 1953, leið- sögumaður í Reykjavík. Foreldrar Vigfúsar voru Árni Ingvar Vigfússon, f. 10.7. 1914, d. 16.4. 1982, bifreiðarstjóri í Reykjavík, og k.h., Hulda Halldórsdóttir, f. 10.5. 1920, d. 12.2. 2000, húsfreyja. Vigfús Þór Árnason Guðrún Sýrusdóttir húsfreyja á Hellissandi Sigurður Gilsson verkamaður á Hellissandi Sólveig Bergmann Sigurðardóttir húsfreyja á Byggðarenda og víðar í Reykjavík Júlíus Sigurðsson formaður á Byggðarenda Hulda Halldórsdóttir húsfreyja í Reykjavík Þorkatla Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurður Jónsson tómthúsmaður á Byggðarenda í Skuggahverfi í Rvík Ingibjörg Gestsdóttir ljósmóðir í Reykjavík Árni Árnason dómkirkjuvörður í Reykjavík Vilborg Elín Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík Vigfús Lúðvík Árnason lagermaður í Reykjavíkurapóteki Elínborg Guðmundsdóttir húsfreyja á Sveinsstöðum Magnús Jóhannesson bóndi á Sveinsstöðum í Neshreppi utan Ennis, Snæf. Úr frændgarði Vigfúsar Þórs Árnasonar Árni Ingvar Vigfússon bifreiðarstjóri í Reykjavík Lausn Helga R. Einarssonar álaugardagsgátunni fylgdu tvær limrur með þessari athuga- semd: „Allt snýst nú um veirur og gos. Þessar eru öðruvísi“ – „Sá óheppni“: Heimskupörin þau há ’onum, hrósyrðin streyma’ ekki frá ’onum, auk þess er blá bólgin og grá bóla á nefinu á ’onum, Fór aldrei með fleipur Bráðum er ég allur útlistaði Hallur, inn svo skreið og út af leið, enginn rugludallur. Þorgils Hlynur Þorbergsson guð- fræðingur frá Bolungarvík skrifar á facebooksíðu sína eftir tvo tap- leiki knattspyrnulandsliðsins: Gylfalausir getum ei glæstum sigrum fagnað, geta leikmenn nokkuð? Nei, nema bölvað, ragnað! Liechtenstein er lambið grátt, leikinn þann skal vinna. Leikmenn þurfa að hugsa hátt, helst öll svör að finna. Ef sífellt boltann senda má, sókn dauð enda tekur, en boltastrákum bendi á bolti’ í vort mark lekur. Knattspyrnunnar kúnst er sú, keppa að því marki: Sigri’ á hafa tröllatrú, treysta eigin sparki. Skorið mörkin mörg og glæst, miðið, skjótið, þorið! Gengur bara betur næst, bráðum kemur vorið. Eða: Skorið mörkin mörg og glæst, miðið, þorið, skjótið! Gengur bara betur næst, boltans framtíð mótið. Friðrik Steingrímsson yrkir að gefnu tilefni: Blómstrað getur ástin enn oft þó fari í hringi, fljótt á vorin fara menn að fíla grön á þingi. Indriði á Skjaldfönn rifjar upp stöku eftir Stephan G. Stephansson: Hvar þér opnar heillin mín heimur sínar álfur, gef honum bara brosin þín, böl þitt eigðu sjálfur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Veirur og gos og bóla á nefinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.