Morgunblaðið - 06.04.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, hvatti fólk í gær til að
gangast undir kórónuveirupróf jafn-
vel þótt það kenndi sér einskis meins.
Prófin væru ókeypis á bólusetning-
arstöðvum, í lyfjabúðum og heims-
end gjaldfrjálst. „Þar sem bólusetn-
ingarverkefni okkar miðar vel og
varfærnisleg aflétting þvingunarað-
gerða á grundvelli vegvísisins ber
ávöxt eru reglulegar smitmælingar
mikilvægari en áður til að tryggja að
aðgerðir okkar beri árangur,“ sagði
Johnson er hann fagnaði í gær þess-
um auknu prófunum.
Frá og með næstkomandi föstu-
degi bjóðast öllum Englendingum
tvö hraðpróf fyrir kórónuveirunni í
viku hverri. Sýna þau niðurstöðu inn-
an hálftíma. Með þessu skimunar-
verkefni stjórnvalda stækkað, að
sögn Edwards Argar, ráðherra í heil-
brigðisráðuneytinu í London, sem
sagði að prófanir þessar gætu hjálp-
að til við að bæla niður kórónuveir-
una blossaði hún upp er þvingunar-
aðgerðum yrði aflétt. Andstæðingar
þessara prófana segja þá hættu fyrir
hendi að verkefnið verði „hneykslan-
leg“ peningasóun.
Johnson kynnti í gær „nýjan veg-
vísi“ um afléttingu aðgerða sem grip-
ið var til í janúar sl. gegn kórónuveir-
unni. Segir hann fyrri áætlanir um
fyrstu afléttingu 12. apríl næstkom-
andi standast. Létt var í gær á þving-
unum í Skotlandi á hárgreiðslustof-
um og verslunum með heimilistæki
og tæki og tól til umhirðu garða.
Útlit er fyrir átök í flokki Johnsons
um útgáfu bólusetningarskírteina,
sem hann sagði geta verið til mikils
gagns heima og í útlöndum, en
mættu ekki verða til að hindra óbólu-
setta í t.d. innkaupum. Um væri að
ráða bráðabirgðaráðstöfun því bólu-
setning hentaði ekki öllum og mörg-
um væri ráðlegt að sleppa henni af
ýmsum ástæðum. Segist stjórn John-
sons andvíg notkun skírteina í grunn-
þjónustu á borð við almenningssam-
göngur og verslanir með
nauðsynjavörur; þar eigi allir að hafa
jafnan aðgang. Aftur á móti mætti
beita skírteinunum í leikhúsum, næt-
urklúbbum og á fjöldasamkomum.
Annars sagði Johnson að skírteinin
væru langt í frá að verða að veru-
leika. Hann er í þeim vanda staddur
að innan Íhaldsflokksins er mikil
andstaða við notkun skírteinanna.
BBC segir að fjöldi háttsettra flokks-
manna myndi rísa gegn skírteinun-
um ef Johnson ákvæði að halda notk-
un þeirra til streitu. Á
blaðamannafundi í Downingstræti í
gær sagði Johnson að embættismenn
í ráðuneyti hans væru að skoða hugs-
anlega kosti og galla bólusetningar-
skírteina. Meðal úttektar þeirra væri
sérstök reynslukeyrsla verkefnisins
sem færi fram um miðjan apríl.
Chris Whitty, landlæknir Bret-
lands, sagðist í gær telja að kórónu-
veiran yrði lengi við lýði og myndi
ekki hverfa innan nokkurra mánaða.
„Kórónuveiran mun valda okkur
talsverðum erfiðleikum um ófyrirsjá-
anlega framtíð en vísindin munu með
tímanum draga úr hættunni af veir-
unni,“ sagði Whitty.
Matt Hancock heilbrigðisráðherra
sagði að þriðjungur þeirra sem sýkst
hefðu af kórónuveirunni sýndu engin
merki þess. „Og með því sem sam-
félagið verður smám saman aftur
opnað og við tökum aftur til við þá
iðju sem við höfum saknað leika
hraðprófin lykilhlutverk í að finna
sýkingu á byrjunarstigi svo kæfa
megi hana og koma í veg fyrir að hún
spretti upp aftur,“ sagði Hancock.
Met slegið á Indlandi
Í gær var slegið met í fjölda
kórónuveirusmita á Indlandi en þá
voru staðfest nýsmit á Indlandi
103.558, sem er met á einum sólar-
hring þar í landi. Aðeins í Bandaríkj-
unum og Brasilíu hafa nýsmit farið í
sex stafa tölur áður. Indverjar höfðu
gælt við þær vonir í ársbyrjun að
veiran væri á undanhaldi en það hef-
ur farið á annan veg undanfarið í
þessu 1,3 milljarða manna samfélagi.
Ný bylgja hefur blossað upp og hafa
12,5 milljónir manna sýkst undan-
farna daga og 165.000 dáið af völdum
kórónuveirunnar. Verst er ástandið í
ríkinu Maharashtra en þar er m.a. að
finna fjármálahöfuðborg landsins,
Mumbai, en þar mældust tæplega
60.000 nýsmit síðasta sólarhring.
Yfirvöld fá lítt við ráðið og hertu í
fyrradag útigöngubann frá klukkan
átta að kvöldi til sjö að morgni. Að-
eins þeir sem starfa við nauðsynlega
þjónustu mega fara af heimilum sín-
um utan þessara tímamarka.
Reyndi að ganga til Svíþjóðar
Pílagrímsferðir múslima verða
ekki með eðlilegum hætti í ár vegna
kórónuveirunnar, að sögn embættis-
manna, sem bættu því við að til
helgra staða á borð við Mekka í
Sádi-Arabíu fengju aðeins þeir að
fara sem hefðu verið bólusettir til
fulls.
Norðmaður nokkur freistaði þess
að komast framhjá sóttvarnareglum
heimafyrir með því að ganga á skíð-
um yfir til Svíþjóðar á páskadag.
Tókst honum ekki betur upp en svo
að hann neyddist til að kalla eftir
hjálp björgunarsveita. „Hann var
blautur og kaldur inn að beini og
hundfúll, en taldi sig engum skulda
afsökunarbeiðni,“ sagði einn af
björgunarmönnum hans.
Veiruprófaðir tvisvar í viku
AFP
Hraðpróf Starfsmaður smitrakningarstöðvar í London afhendir gesti bækling um hraðpróf fyrir veirusmiti.
- Boðið upp á ókeypis hraðpróf í Bretlandi - Íhaldsmenn greinir á um bólusetn-
ingarskírteini - Met var slegið í fjölda kórónuveirusmita á Indlandi í gær
Lögregla í suður-
hluta Frakklands
hefur handtekið
fjórar konur og
stúlku vegna
meints ráða-
bruggs um
hryðjuverk í
borginni Mont-
pellier.
Að sögn lög-
reglunnar í Heraultsýslu eru kon-
urnar í varðhaldi í borginni Beziers
en þar voru þær gómaðar fyrir
áform um hryðjuverk á kirkju á
páskum. Mál þeirra rannsakar inn-
anríkisleyniþjónustan (DGSI) og
skrifstofa sérstaks hryðjuverkasak-
sóknara.
Athygli rannsakenda beindist
fyrst og fremst að 18 ára konu, sem
býr í leiguíbúðahverfi í Beziers.
Hún er grunuð um að hafa skipu-
lagt árás í Montpellier. Móðir kon-
unnar ungu og þrjár systur hennar
voru einnig handteknar. Hafði hin
18 ára stært sig af því við nágranna
að hafa séð myndbönd hryðju-
verkasamtakanna Ríki íslams .
Robert Menard
FRAKKLAND
Plottuðu hryðjuverk
Saksóknari í París hefur hafið
rannsókn á meintum brotum á sótt-
varnarlögum sem snúast um fimm
stjörnu neðanjarðarkvöldverðar-
boð í borginni. Hermt er að meðal
gesta hafi verið ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar sem hafði bannað
samkomur meðan á útgöngubanni
stendur. Innanríkisráðherrann,
Gerald Darmanin, hefur jafnframt
falið lögreglu að rannsaka málið og
leiða í ljós gestgjafa og þátttak-
endur í veislum af þessu tagi.
Sama dag og M6-sjónvarpsstöðin
ljóstraði upp um hátterni þetta var
skýrt frá því að nýsmit á sólarhring
hefðu numið 67.794 tilfellum sem er
það mesta á einum degi á árinu.
5.341 kórónuveirusjúklingur
liggur á gjörgæsludeild.
Gestir leynikvöldverðanna til-
heyra yfirleitt frönsku elítunni eins
og verð á kræsingunum ber með
sér. Í fréttinni sáust myndskeið af
máltíðum á verðbilinu 150-500 evr-
ur. agas@mbl.is
Lúxusmáltíðir
á leynikvöldum
FRAKKLAND
Tíu fyrrverandi sjóliðsforingjar í
Tyrklandi voru handteknir í gær
fyrir að hafa birt opið bréf þar sem
þeir gagnrýna áform um gröft skipa-
skurðar, en verkefni það er Tayyip
Erdogan forseta mjög hjartkært.
Um er að ræða 45 km langan
skipaskurð frá Istanbúl sem yrði
sambærilegur Panamaskurðinum og
Súesskurðinum. Hafa áformin leitt
til umræðu um skuldbindingar
Tyrkja vegna Montreux-sáttmálans
frá 1936. Segja bréfritarar að sátt-
málinn „tryggi best“ hagsmuni
Tyrkja og það sé áhyggjuefni ætli
stjórnvöld að draga landið út úr al-
þjóðlegum sáttmálum.
Aðalsaksóknarinn í Ankara stað-
festir að handtökuskipanir hafi ver-
ið gefnar út á hendur 10 aðmírálum
og fjórum öðrum og hafi þeir þrjá
daga til að gefa sig fram, en vegna
aldurs þeirra var ekki ráðist beint í
handtöku þeirra.
Þeir hafa verið kærðir fyrir að
„beita afli og ofbeldi gegn stjórnar-
skrárvarinni ákvörðun“ sagði NTV-
stöðin. Sambærilegt orðalag var
brúkað gegn öðrum andróðurs-
mönnum Erdogans sem handteknir
voru í framhaldi af tilraun til að
steypa honum af stóli árið 2016.
Meðal aðmírála sem handteknir
voru í gær, mánudag, voru sumir
frægustu sjóliðsforingjar Tyrklands.
agas@mbl.is
AFP
Í Istanbúl Tyrkneskir lögreglumenn handtaka stúdenta í mótmælum.
Gagnrýnin leiddi
til handtöku