Morgunblaðið - 10.04.2021, Side 2

Morgunblaðið - 10.04.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is KLETTARHEILSÁRSHÚS Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu. Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn. Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður. Uppsetninghúsannaerafarfljótleg. Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti (hæð2,1m) semeykurnotagildi hússinsumtalsvert. Klettar 65 –Grunnverð kr. 9.475.000,- Klettar 80 –Grunnverð kr. 11.975.000,- Ítarlegar upplýsingar og afhendingarlýsingumá finna á vefsíðu okkar. Húsið ámyndinni er af gerðinni Klettar 80 sem reist var 2019 á Vesturlandi. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Meiri hafís er nú norður af landinu en undanfarin ár á þessum árstíma, að sögn Ingibjargar Jónsdóttur, dósents í landfræði við Háskóla Ís- lands. Á meðfylgjandi gervihnatta- mynd sem tekin var í gær má sjá talsverðan og nokkuð þéttan ís fyrir norðan land en einnig stóra ísspöng sem teygir sig í átt að landinu. Í gær var ísinn um 16 sjómílur (30 km) norður af Kögri. Ingibjörgu þótti líklegt að hann myndi lóna eitt- hvað nær næsta sólarhringinn. Spáð er suðvestanátt fram á aðfaranótt sunnudags og rekur vindurinn ísinn inn í hafstrauma sem bera hann nær landi. Á sunnudag á að hvessa og veðrið mun líklega sundra ísspöng- inni sem teygir sig næst landinu. Meira er af ísspöngum við hafís- jaðarinn þegar norðar dregur. Ingi- björg sagði það gefa vísbendingar um að vorið gæti orðið „áhugavert“ með tilliti til hafíssins. Þó nokkuð mikið af hafís „Það er þó nokkuð mikið af ís að sjá hérna í kringum okkur,“ sagði Björn Jónasson, skipstjóri á togar- anum Málmey SK 1. Þeir höfðu ver- ið við ísröndina í gær og í fyrradag. Þegar rætt var við hann eftir há- degi í gær var hann að keyra suður með ísspöng um 33 sjómílur norð- norðvestur frá Kögri. „Meginísinn er mjög þéttur að sjá og það er aðeins hrafl sunnan við ís- röndina. Ísinn er það þéttur að hann sést vel í radar,“ sagði Björn. Hann sagði að ísinn væri á veiðislóð togar- anna en ekki á almennri siglingaleið. Mikill hafís er norður af landinu Ljósmynd/Björn Jónasson Hafísinn Meginísinn er býsna þéttur en framan við ísröndina er talsvert hrafl af ísjökum. Gott veður var við hafísröndina í gær eins og myndin ber með sér. Í baksýn blasa við fjöll Grænlands. Gervihnattamynd/MODIS/NASA Ísspöng Stór hafísspöng teygði sig frá meginísnum og í átt að landinu. Ísinn er 16 sjómílur norður af Kögri. - Meiri ís en hefur verið undanfarin ár - Ísspöng getur færst nær landinu Andrés Magnússon andres@mbl.is Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra lét í gær undan þrýstingi og lét senda fjölmiðlum velflest gögn tengd reglugerð- arsetningu hinn 1. apríl, þar sem m.a. var kveðið á um skyldudvöl í sóttkvíarhóteli, sem héraðsdóm- ur úrskurðaði síð- ar ólögmæta. Morgunblaðið hafði óskað eftir þeim gögnum í samræmi við upp- lýsingalög, en ráðherra synjaði því og bar við trúnaði, þar sem gögnin hefðu verið lögð fram á ríkisstjórn- arfundi. Af fyrirliggjandi gögnum að dæma, sem eru fá og afar rýr í roð- inu, virðist sem lögmætið hafi ekki borið á góma hjá starfsmönnum heil- brigðisráðherra fyrr en eftir gildis- töku reglugerðarinnar, þegar allt var komið í óefni. Það er ekki fyrr en Páll Þórhallsson, lögfræðingur í for- sætisráðuneytinu, skrifar minnis- blað 29. mars, degi fyrir ríkisstjórn- arfund, sem fyrst er vikið að því. Ólík afstaða Í minnisblaði Páls er ekki tekið sterklega til orða, en þó segir að ekki leiki „vafi á því að lagaheimild er til staðar að kveða á um að ferðamenn skuli við komu til landsins vera í sóttkví í húsnæði þar sem hægt er að hafa með þeim eftirlit og sem upp- fyllir sóttvarnarkröfur“. Við nokkuð annan tón kveður í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins, sem tekið var saman skömmu eftir gildistöku reglugerðarinnar. Þar er bent á að „hvergi í sóttvarnalögum [sé] kveðið á um það að heimilt sé að skylda einstaklinga sem geta sýnt fram á það að þeir geti vistast í heimahúsi, til að sæta sóttkví í sótt- varnahúsi […]“ og að vafi leiki á lög- mæti reglugerðarinnar: „Í samræmi við hina almennu lögmætisreglu og grundvallarregluna um lögbundnar refsiheimildir verður því að telja að vafi leiki á því að 5. gr. reglugerðar nr. 355/2021 eigi sér fullnægjandi lagastoð samkvæmt sóttvarnalögum nr. 17/1997 og því óljóst hvort unnt sé að beita henni sem grundvelli fyr- ir ákvörðun um þvingunaraðgerð eða sem gildri refsiheimild.“ Lögmæti reglugerðar ekki skoðað í ráðuneyti - Fyrst skoðað í forsætisráðuneyti degi fyrir ríkisstjórnarfund Lyfjastofnun Evrópusambandsins, EMA, greindi frá því í gær að hún væri að rannsaka tilkynningar um blóðtappamyndun hjá fólki í kjölfar bólusetningar með bóluefni Jans- sen, dótturfyrirtækis Johnson & Johnson. Tilkynnt hefur verið um fjögur slík tilfelli, þar af eitt ban- vænt, eftir að viðkomandi var bólu- settur með efni Johnson & Johnson. Sagði í tilkynningu stofnunar- innar að enn væri ekki ljóst hvort um orsakasamhengi væri að ræða. Þá var stofnunin að kanna hvort tengsl væru á milli bóluefnis Astra- Zeneca og rofs í háræðum í fimm tilfellum hjá fólki sem hefði þegið bóluefnið. Ísland er á meðal þeirra ríkja sem eiga að fá bóluefni Janssen, en það hefur fengið skilyrt markaðs- leyfi á Íslandi. Ísland fær bóluefni fyrir 235.000 einstaklinga. Sam- kvæmt upplýsingum á covid.is er áætlað að byrja afhendingu þess í seinni hluta aprílmánaðar. Skoða tengsl blóðtappa við bóluefni Janssen Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sóttvarnahótel Um 170 gestir voru í sóttkví á Fosshóteli Reykjavík um miðjan dag í gær og von var á fleiri gestum þangað undir kvöld. Svandís Svavarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.