Morgunblaðið - 10.04.2021, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
undaförnum misserum. Það er
órækur vitnisburður um stöðuna.“
Spurður um hvort óbreytt endur-
greiðslufyrirkomulag hefði riðið
mörgum fyrirtækjum að fullu, segir
Halldór að fyrirtækin þurfi að
standa undir mörgum skuldbinding-
um jafnvel þó að tekjuflæðið sé
verulega skert eða jafnvel ekki til
staðar í sumum atvinnugreinum.
„Þannig að allir frestir eru vel þegn-
ir. Því lengur sem við náum að dreifa
þessu, því líklegra er að fyrirtækin
nái vopnum sínum á nýjan leik.“
Hann segir að með dreifingu í 48
mánuði sé greiðslunum frestað inn í
næstu hagsveiflu, þegar umhverfið
verði orðið heilbrigt og fyrirtækin
hafi náð vopnum sínum á ný. Það sé
betra en að fyrirtækin þurfi að hefja
endurgreiðslur þegar þau eru enn í
sárum vegna veirunnar. „Það er
augljóst að það myndi ekki leiða til
góðrar niðurstöðu fyrir neinn. Við
megum ekki gleyma því að tilgang-
urinn er að standa vörð um fyrir-
tækin í landinu, að þau geti farið á
fullt um leið og réttar aðstæður
skapast.“
Hann segir að SA hafi pressað
þungt á stjórnvöld að framlengja öll
helstu úrræði, enda hafi slíkt loforð
verið gefið. Framlengja þurfi einnig
hlutabótaleiðina, stuðningslán og
fleira sem í boði er.
Halldór bendir á það sem fram
kemur í frétt á vef SA að tæplega 67
prósent stjórnenda fyrirtækja í
ferðaþjónustu telja samkvæmt
könnun að aðgerðir stjórnvalda sem
kynntar voru í mars í fyrra hafi ver-
ið gagnlegar. Þar kemur jafnframt
fram að tæplega helmingur for-
svarsmanna allra fyrirtækja telur að
aðgerðirnar í heild hafi komið að
miklu eða einhverju gagni. Já-
kvæðni ríkir því gagnvart aðgerðum
stjórnvalda meðal fyrirtækja og hef-
ur sú afstaða lítið breyst síðastliðna
6 mánuði, þrátt fyrir að faraldurinn
hafi dregist á langinn.
Liggur í augum uppi
Svanhildur Hólm Valsdóttir,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Ís-
lands, tekur í sama streng og Hall-
dór. Hún segir greiðsludreifinguna
til mikilla bóta. „Það liggur í augum
uppi að fyrirtækin sem þurftu að
fresta greiðslum voru í verulegum
vanda og það yrði mjög íþyngjandi
fyrir þau að greiða þetta upp á
þremur mánuðum. Eins og kemur
fram í greinargerðinni er þetta líka
hagsmunamál fyrir ríkissjóð, sem
nýtur góðs af því að fyrirtæki kikni
ekki undan greiðslubyrðinni áður en
þau komast út úr þessu ástandi. Það
yrði tap fyrir alla.“
48 mánaða frestun jákvæð
Atvinnulíf Tilgangur aðgerða að standa vörð um fyrirtækin í landinu.
- Skattgreiðslum dreift yfir lengra tímabil - Betur má ef duga skal segir fram-
kvæmdastjóri SA - Hagsmunamál fyrir ríkið - Greiðslum dreift inn í næstu hagsveiflu
9,8 milljörðum frestað
» Frestun skatta og trygginga-
gjalds nam 8,4 mö.kr. í fyrra.
» Frestanir á gjalddaga í jan.
2021 og ekki var óskað eftir að
dreifa áfram nema 830 m.kr.
» Fresta má allt að tveim
gjalddögum 2021. Þær frest-
anir nema nú 665 m.kr.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir að fyrir þau fyrir-
tæki sem standa frammi fyrir erfiðri
stöðu sé frestun gjalda í 48 mánuði í
stað þriggja mjög jákvætt skref.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hefur frumvarpi fjár-
málaráðherra um frekari aðgerðir til
að mæta áframhaldandi óvissu um
efnahagsleg áhrif faraldursins verið
dreift á Alþingi. Þar er lagt til að
launagreiðendum verði gefinn kost-
ur á frekari fresti til að standa skil á
staðgreiðslu af launum og trygg-
ingagjaldi með greiðsludreifingu og
geti sótt um að dreifa þeim
greiðslum í 48 jafnháar mánaðarleg-
ar greiðslur, að uppfylltum tiltekn-
um skilyrðum. Að óbreyttu yrðu
fyrirtækin að endurgreiða frestuð-
um greiðslum í júní, júlí og ágúst
næstkomandi.
Staðan orðin grafalvarleg
„Með nýjustu sóttvarnaaðgerðum,
sem hafa komið mjög illa við mörg
fyrirtæki, þá fylgdu þau skilaboð frá
stjórnvöldum að þau úrræði sem
hafa verið til staðar yrðu framlengd
og/eða betrumbætt. Þannig að við
hljótum að fagna þessari breytingu,
en betur má ef duga skal. Staðan er
því miður orðin grafalvarleg,“ segir
Halldór.
Hann segir að staðan í atvinnulíf-
inu sé víða afskaplega þung. „Það
sést best á því að í 22 af 25 atvinnu-
greinum hefur starfsfólki fækkað á
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
markaðinn hafa tekið vel við sér
eftir áramótin og raunar eftir að
vaxtalækkunarferlið hófst í fyrra.
Þá hafi umræða og væntingar um
lítið framboð nýrra íbúða haft
áhrif á sölu og verð. Einar segir
jafnframt búið að selja tvö stór
atvinnurými á jarðhæð Hafnar-
brautar 13-15. Þar verði annars
vegar veitingahúsið Brasserie
Kársnes og hins vegar bakaríið
Brikk. Fyrirhugað sé að opna á
báðum stöðum fyrir sumarið.
baldura@mbl.is
Um 150 íbúðir hafa selst í
nýbyggingum á Kársnesi í ár.
Þannig hafa selst 128 íbúðir á
Hafnarbraut 12 og 14 og síðustu
20 íbúðirnar á Hafnarbraut 13-15
eða alls 148 íbúðir frá áramótum.
Að auki hafa selst íbúðir á
Hafnarbraut 9 sem er nú upp-
seld.
Íslensk fjárfesting fer með
uppbygginguna á Hafnarbraut 9
og 13-15. Einar Steindórsson,
framkvæmdastjóri fjárfestinga
hjá Íslenskri fjárfestingu, segir
Roksala nýrra íbúða á Kársnesi í ár
- Brikk og Brasserie Kársnes í hverfið Sala nýrra íbúða á Kársnesi 2018-2021
Seldar íbúðir Óseldar Alls
Hlutfall
seldra íbúða Sala íbúða hófst
Hafnarbraut 9 24 0 24 100% Október 2018
Hafnarbraut 11 25 6 31 81% Júní 2019/apríl 2020
Hafnarbraut 12 61 10 71 86% Febrúar 2021
Hafnarbraut 13-15 54 0 54 100% Desember 2019
Hafnarbraut 14 67 19 86 78% Mars 2021
Samtals 231 35 266 87%
Heimild: Karsnes.is,
Íslensk fjárfesting,
söluvefir
M
yn
d:
Ka
rs
ne
s.
is
10. apríl 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.16
Sterlingspund 174.98
Kanadadalur 101.01
Dönsk króna 20.302
Norsk króna 14.982
Sænsk króna 14.791
Svissn. franki 137.02
Japanskt jen 1.1642
SDR 181.12
Evra 151.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.433
Hrávöruverð
Gull 1743.7 ($/únsa)
Ál 2239.5 ($/tonn) LME
Hráolía 63.02 ($/fatið) Brent
Allt um
sjávarútveg