Morgunblaðið - 10.04.2021, Blaðsíða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021
Á næstu 40 til 50 ár-
um þarf að afla raforku
til margvíslegra nota ef
gert er ráð fyrir að
orkufrekur málmiðn-
aður hverfi. Ör fólks-
fjölgun, víðtæk orku-
skipti, nýjar
atvinnugreinar, m.a.
eldsneytisframleiðsla,
öflug nýsköpun, bætt
endurnýting úrgangs og
vöxtur matvælafram-
leiðslu til innanlandsneyslu og útflutn-
ings kalla á vistvæna orku innan
hringrásarhagkerfis. Orkukostum í
sátt við náttúru og samfélag fækkar
óðum, sé horft til virkjana í vatns-
föllum sem best eru höfð frjáls. Tak-
markaður hluti raforku fæst með
virkjun jarðhitasvæða, eðli og legu
þeirra samkvæmt og stöðu gagnvart
náttúruvernd. Óvíst er hvort takist að
virkja jarðvarma á 5-6 kílómetra dýpi
á öruggan og hagkvæman hátt, þar
sem fyrir eru jarðvarmavirkjanir.
Tækist það myndu djúpholur marg-
falda orkuframleiðslugetuna og tak-
marka sókn í önnur og ósnert jarð-
hitasvæði sem best henta til
varðveislu. Þróunin beinir athyglinni
að vindorkuverkum. Þau geta hentað
til þess að létta álagi á
aðra orkukosti og gert
kleift að auka rafafl í
landinu í takt við orku-
þörf og samfélagsleg
verkefni. Samtímis
verður, orkuöryggis
vegna, að styrkja og
samtengja flutnings-
kerfi raforku (meginhá-
spennuloftlínur og -jarð-
strengi eftir þörfum) í
eina samverkandi heild.
Af hverju vindorka?
Þróun vind-
orkutækja, einkum vindmylla, hefur
verið hröð. Orkuframleiðslugeta
þeirra eykst, hlutfall endurnýtingar á
efnum í þeim batnar og reksturinn
verður æ hagkvæmari. Tiltölulega
auðvelt er að fjarlægja ummerki
þeirra og framkvæmdasvæða. Á móti
stendur að þær stærstu eru yfir 200 m
háar, fuglum er hætta búin og sjón-
ræn áhrif af svokölluðum vindlundum
eru jafnan mikil. Vistspor tækja geta
verið veruleg í fyrstu en ná að jafnast
að mestu við notkun og endurnýtingu
efnis í þeim. Nýjar og fyrirferðaminni
gerðir vindmylla geta hentað í smærri
skala. Tilraunir Landsvirkjunar ná-
lægt Búrfelli hafa reynst jákvæðar og
búið er að kortleggja helstu landsvæði
þar sem veðurfar hentar undir vind-
orkuver, en þá ekki horft til annarra
þátta í grunninn. Kosti og galla vind-
orku verður að meta, einnig í sam-
hengi við aðra orkukosti. Jökulárnar
geta tímabundið skilað auknu rafafli
núverandi orkuvera vegna meira
rennslis, bætt flutningskerfi skilar dá-
litlum viðbótum og fáein ný eða
stækkuð varmaorkuver fylla í mynd-
ina, einkum ef þau skila líka heitu
vatni og verðmætum efnum til auð-
lindagarða. Hluti nýrrar raforkufram-
leiðslu getur, að mínu mati, farið fram
í nokkrum vindorkulundum er lúta
heildarskipulagi og reglum eins og
önnur raforkuframleiðsla. Hlutfall
þeirra af heildarorkuframleiðslu
ræðst af orkuþörf og getu til þess að
stýra daglegri framleiðslu í samræmi
við aðstæður og óvænt atvik.
Tekið af skarið
Árum saman hafa erlend orkufyr-
irtæki eða fjárfestar, í samvinnu við
íslenska aðila, undirbúið byggingu
vindorkuvera. Sum þeirra taka til
tuga vindmylla og aflgetu á við með-
alstórt vatnsorkuver, 100 til yfir 200
MW. Önnur eru minni. Vindlundir eru
mislangt komnir í undirbúningi eða á
hugmyndastigi, og í a.m.k. einu tilviki
er horft til tíu mögulegra staða á veg-
um norsks fyrirtækis. Alls er verið að
hyggja að vindorkuverum á yfir 40
stöðum! Samanlögð aflgeta alls þessa
er lauslega áætluð nálægt 3.000 MW,
meira en allt rafafl í landinu. Tveir
vindlundir Landsvirkjunar tengjast
áföngum verndar- og orkunýting-
aráætlunarinnar (Rammaáætlunar).
Nokkur erlend verkefni hafa, með
samþykki sveitarfélaga, náð inn í
skipulag og eru þar með staðsettir og
skilgreindir vindlundir af hálfu þeirra.
Slíkt gerist á undan beinni tengingu
við Rammaáætlun eða í samræmi við
heildarskipulag orkuframleiðslu.
Framhald þessara verkefna er auðvit-
að háð mati á umhverfisáhrifum fram-
kvæmda, öðrum lögum, m.a. Ramma-
áætlun ef afl er meira en 10 MW, og
ýmissi annarri vinnslu í stjórnkerfinu.
Fjórða og fimmta áfanga Ramma-
áætlunar bíður í raun sægur vind-
orkuverkefna til að leggja dóm á. Við
þessu þarf að bregðast svo vindorka
lúti heildrænu skipulagi og stefnu og
verði í samræmi við þarfir okkar. Rík-
isstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur
lagt fram alhliða orkustefnu og ný
frumvörp eða þingsályktunartillögur
til þess að ná utan um þróunina í orku-
málum. Nýjust er þingsályktun um
vindorku og ný lög um mat á um-
hverfisáhrifum áætlana og fram-
kvæmda.
Þrír flokkar
Þingsályktunartillagan rúmar þrjá
svæðisflokka. Í flokki 1 eru stór land-
væði, m.a. friðlýst svæði í A- og B-
flokki, óröskuð víðerni á miðhálendinu
og t.d. vatnsverndarsvæði. Þar er
bygging vindlunda óheimil. Í öðrum
flokki eru viðkvæm svæði, en samt
ekki útilokuð fyrir fram til nýtingar
vindorku en háð m.a. samþykki verk-
efnastjórnar Rammaáætlunar og
ýmsu fleiru, ef aflgeta er yfir 10 MW.
Flokkur 3 eru svæði sem ekki eru til-
greind í flokkum 1 og 2. Þar er orku-
vinnslan á forræði sveitarfélaga og
annarra stjórnvalda. Alls staðar eru
framkvæmdir háðar skipulagslögum,
lögum um mat á umhverfisáhrifum
o.fl. Með þessu frumkvæði er komið í
veg fyrir vandræðaástand og sú eðli-
lega staða ákvörðuð að vindorka geti
gagnast samfélaginu en um leið tekið
skynsamlegri stýringu og lotið heild-
rænu skipulagi.
Eftir Ara Trausta
Guðmundsson »Með frumkvæðinu er
sú staða ákvörðuð að
vindorka geti gagnast
samfélaginu en um leið
tekið skynsamlegri
stýringu og lotið heild-
rænu skipulagi.
Ari Trausti
Guðmundsson
Höfundur er þingmaður VG.
Orkuþörf og orkuframleiðsla eiga að fara saman
Fólk sem stöðu sinn-
ar vegna er tekið alvar-
lega hefur nýverið hald-
ið fram þeirri firru að
staðan í atvinnulífinu
væri góð. Einungis 10%
hagkerfisins væri í
vanda. En þá gleymdist
að geta þess að lands-
framleiðslan dróst sam-
an um 200 milljarða
króna í fyrra, hvað þá að
ríkissjóður verður rekinn með ríflega
500 milljarða króna halla á árunum
2020-2021 með tilheyrandi skuldasöfn-
un eða að Seðlabankinn hefur selt
gjaldeyri fyrir 170 milljarða króna frá
ársbyrjun 2020. Það gleymdist reynd-
ar líka að nefna að um 25 þúsund ein-
staklingar eru á skrá um atvinnulausa
með öllum áhyggjum sem því fylgja
fyrir fólkið og félagslegum afleið-
ingum. Þess var heldur ekki getið að
atvinnuþátttaka á Ís-
landi hefur ekki verið
minni í áratugi.
Langvinnt atvinnu-
lausum fjölgar. Almenn
regla segir að mikil
hækkun raunlauna
fækki störfum og fjölgi
atvinnulausum. Reglan
gildir líka á Íslandi. Hún
breytist ekki þótt for-
ysta verkalýðshreyf-
ingar taki breytingum.
Það dugar ekki að
stinga höfðinu í sandinn.
Engar töfralausnir
skapa störf fyrir 25 þúsund atvinnu-
lausa eða þá sem eru á hlutabótum. Nú
er spáð yfir 5% atvinnuleysi næstu
fimm ár. Þorri Íslendinga hefur hingað
til ekki sætt sig við mikið og langvinnt
atvinnuleysi og það viðhorf hefur ekki
breyst. Aðilar vinnumarkaðarins verða
að horfast í augu við staðreyndir og
bregðast við af raunsæi. Samfélags-
legur kostnaður atvinnuleysis er of
mikill og aðstæður fjölda fólks eru
óviðunandi. Því miður hafa samnings-
aðilar brugðist hlutverki sínu. Kaup-
máttur launa starfandi fólks batnar
stöðugt en atvinnulausir sitja eftir.
Laun hafa hækkað of mikið og fjölgað
fólki án vinnu.
Skuldadagar
Áframhaldandi aukning kaupmáttar
þeirra sem eru í starfi, samhliða fjölda-
atvinnuleysi, er óheillavænlegt ástand
sem er til þess fallið að auka ójöfnuð.
Slíkt ástand dregur einnig úr fram-
leiðslukrafti hagkerfisins. Efnahags-
lögmál sjá til þess að kaup og kjör
lagast alltaf að endingu að greiðslu-
getu fyrirtækja og framleiðni í at-
vinnulífinu. Það kemur að skuldadög-
um. Í aðdraganda alþingiskosninga
hljóta stjórnmálaflokkar að setja at-
Tækifæri í kreppunni
Eftir Halldór
Benjamín
Þorbergsson
» Forsendur verð-
mætasköpunar eru
til staðar og að þeim
verður að hlúa.
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Höfundur er framkvæmdastjóri SA.
vinnumál á oddinn og þá með með öðr-
um hætti en innihaldslausum tillögum
um fjölgun starfa hjá hinu opinbera.
Annars bregðast þeir kjósendum sín-
um og sérstaklega þeim sem eru án at-
vinnu.
Kjarasamningar á almennum vinnu-
markaði losna eftir 18 mánuði. Það
ætti öllum að vera ljóst að ekki verður
haldið áfram á þeirri braut að hækka
laun hér á landi margfalt meira en
svigrúm er fyrir og fela Seðlabank-
anum að stuðla að stöðugu verðlagi á
sama tíma. Mótsögnin er augljós og af-
leiðingarnar þekktar.
Lausnin felst í verðmætasköpun
Fyrirtæki og atvinnulífið í heild
skapa verðmætin sem standa undir
samneyslu og velferðarkerfi. Heilbrigð
og samkeppnishæf rekstrarskilyrði,
hóflegir skattar og gegnsæjar reglur
eru forsendur þróttmikils atvinnulífs.
Fjárfestingar, vöruþróun, nýsköpun
og markaðssókn er eina færa leiðin til
að skapa verðmæti og leggja grunn að
fjölgun starfa, auknum tekjum fólks og
skatttekjum til hins opinbera. Sem
dæmi er nýliðin loðnuvertíð gríðarleg
innspýting í lykilbyggðarlög á krefj-
andi tíma.
Lausnin felst ekki í enn meiri um-
svifum ríkis og sveitarfélaga til að
bæta upp töpuð störf og verkefni í
einkageiranum. Forsendur verðmæta-
sköpunar eru til staðar og að þeim
verður að hlúa. Tækifærin eru mörg.
Sjávarútvegurinn, orkugeirinn, öflug
iðnfyrirtæki, heilbrigðistækni, sprota-
fyrirtæki á fjölmörgum sviðum ásamt
þjónustu og fyrirtækjum í öðrum
greinum búa við mikla möguleika til að
vaxa og dafna. Ferðaþjónustan mun
einnig ná vopnum sínum og vonandi
komast á skrið sem fyrst.
Það má láta sig dreyma um álíka
samstöðu um leið út úr atvinnuvand-
anum og ríkt hefur gegn kórónuveir-
unni. Þótt slík samstaða sé ekki í aug-
sýn kæmi hún atvinnulausum best og
stuðlaði að sjálfbærri þróun á komandi
árum. En sporin hræða.
Í glímunni við heims-
faraldurinn höfum við
öll þurft að laga okkur
að nýjum aðstæðum.
Fólk og fyrirtæki hafa
þurft að bregðast við
mismunandi ráðstöf-
unum sem stjórnvöld
hafa beitt til að koma í
veg fyrir útbreiðslu
veirunnar, bæði þegar
slakað er á eða hert.
Vissulega hefur ekki
verið gripið til jafnharðra aðgerða
hér og víða annars staðar og almennt
hefur hérlendis verið samstaða um
að reyna að viðhalda eins eðlilegu
ástandi og fært er miðað við stöðuna
á hverjum tíma. Nú er svo komið að
bólusetningar ganga ágætlega og
áætlanir um öflun bóluefnis og bólu-
setningu landsmanna hafa verið birt-
ar. Því er eðlilegt að sú spurning
vakni hvaða áætlanir hið opinbera
hefur um afléttingu takmarkana
samhliða bólusetningum.
Áætlanir kynntar í
nágrannaríkjum
Að undanförnu hafa verið kynntar
og virkjaðar svokallaðar opnunar-
áætlanir í nágrannalöndum okkar,
Noregi og Danmörku.
Þannig hyggjast
stjórnvöld í Danmörku
afnema helstu frels-
isskerðingar þegar
bólusetningu 50 ára og
eldri verður lokið og
Norðmenn hafa einnig
kynnt áætlun um af-
léttingu sem gert er
ráð fyrir að taki gildi í
skrefum til júníloka.
Hér er ekki lagt neitt
mat á það hver staðan
hefur verið í þessum
ríkjum, né hvort aðgerðir séu sam-
bærilegar milli landa. Það sem
skiptir máli er að stjórnvöld í þess-
um ríkjum birta áform sín og þeim
er ætlað að veita ákveðinn fyr-
irsjáanleika, með eðlilegum fyr-
irvörum. Þannig geti fólk gert ráð
fyrir að líf þess komist smám saman
í fyrra horf ef allt gengur sam-
kvæmt áætlun hvað bólusetningar
varðar.
Hér hefur því verið haldið á lofti
að ný afbrigði geti breytt þeirri
mynd sem við höfum af faraldrinum
og viðbrögðum við honum. Í því
sambandi er rétt að minna á að hin
nýju afbrigði veirunnar sem nú eru
komin hingað til lands finnast einnig
í Noregi og Danmörku. Eigi að síður
hafa stjórnvöld þessara landa birt
áætlanir um afléttingu.
Skýrum sameiginleg markmið
Fyrirsjáanleiki er nauðsynlegur
þáttur í eðlilegu lífi, þótt reynslan
sýni okkur að allt sé breytingum
háð. En jafnvel þótt fyrirsjáanleik-
inn sé skilyrtur, skapar hann ákveð-
inn ramma og aðhald gagnvart þeim
aðgerðum sem stjórnvöld beita.
Fyrirsjáanleiki er lykilatriði fyrir
þá sem standa í rekstri. Sem dæmi
má nefna að fyrirtæki þurfa að geta
metið gróflega hverjar tekjur
þeirra til næstu vikna, mánaða eða
missera verða. Þau þurfa að geta
skuldbundið sig til kaupa á aðföng-
um eða gert ráð fyrir að slíkar
skuldbindingar gangi ekki upp
vegna aðgerða stjórnvalda. Þau
þurfa líka að geta brugðist við ólík-
um aðstæðum í starfsmannahaldi, –
ein sviðsmynd getur kallað á upp-
sagnir og önnur á ráðningar.
Við umræður á Alþingi í lok mars
lýsti forsætisráðherra því yfir, með
fyrirvara um ný afbrigði, að þegar
60 ára og eldri hefðu verið bólusett-
ir myndi hætta á alvarlegum veik-
indum, innlögnum og dauðsföllum
dragast verulega saman, sem þýddi
að stjórnvöld gætu stigið ákveðin
skref til að draga úr sóttvarn-
aráðstöfunum. Nú er ljóst, miðað
við yfirlýsingar heilbrigðisyf-
irvalda, að þetta markmið næst
öðru hvoru megin við næstu mán-
aðamót. Því er nú tilefni til að
hvetja stjórnvöld til að leggja fram
afléttingaráætlun í samræmi við ár-
angur í bólusetningum. Slík áætlun
myndi auðvelda fólki og fyr-
irtækjum að skipuleggja sig og
starfsemi sína, en ekki síður skapa
traust og skýra þau sameiginlegu
markmið sem við viljum stefna að,
um öfluga viðspyrnu og opið sam-
félag.
Forsendur fyrirsjáanleika
Eftir Ara Fenger
Ari Fenger
» Því er nú tilefni til að
hvetja stjórnvöld til
að leggja fram aflétting-
aráætlun í samræmi við
árangur í bólusetn-
ingum.
Höfundur er formaður Viðskiptaráðs
Íslands.
Innlagnir í sjúkrahús
Hlutfall af smitum eftir aldri
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
>8980-8970-7960-6950-5940-4930-39<29
ALDURSBIL Í ÁRUM