Morgunblaðið - 10.04.2021, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021
✝
Sveinn Sig-
urbjarnarson
fæddist 21. júlí
1945 á Hafursá í
Vallahreppi. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað 30. mars
2021.
Foreldrar Sveins
voru: Kristín María
Þorkelsdóttir hús-
freyja, fædd 1918,
dáin 1985, og Sigurbjörn Pét-
ursson, bóndi á Hafursá, fæddur
1915, dáinn 1978.
Systkini Sveins eru: Kolbrún,
fædd 1940, Sigríður Ingileif,
fædd 1941, Helga, fædd 1943,
dáin 2020, Pétur Karl, fæddur
1946, Þorkell, fæddur 1947,
Bergþóra, fædd 1949 og Brynj-
ólfur, fæddur 1951.
Eftirlifandi eiginkona Sveins
er Margrét Óskarsdóttir, fyrr-
verandi verkakona og bókari,
fædd 16. október 1948.
Foreldrar Margrétar voru
Sigurbjörg Halldóra Guðnadótt-
ir, fædd 1917, dáin 1989 og Ósk-
ar J. Snædal, fæddur 1917, dá-
inn 1986.
Börn Sveins og Margrétar
eru: 1) Halldóra Ósk, fædd 1965,
sumur í Skógrækt ríkisins á
Hallormsstað. Sumarið 1962
vann hann í síld á Seyðisfirði,
sumarið eftir fór hann í síld á
Eskifjörð. Þar kynntist hann eft-
irlifandi eiginkonu sinni. Hann
sagði yfirleitt þá sögu að hann
hefði skroppið í síld á Eskifjörð
og væri enn í síld. Sveinn vann
hin ýmsu verkamannastörf á
Eskifirði. Veturinn 1969 stofn-
aði hann með félaga sínum bif-
reiðaverkstæði Benna og
Svenna, sem starfrækt var til
1993, þegar hann stofnaði
Tanna ferðaþjónustu sem starf-
ar enn. Hann var frumkvöðull í
vetrarsamgöngum á milli Eski-
fjarðar og Norðfjarðar. Sveinn
starfaði með björgunarsveitinni
Brimrúnu um árabil og var um
tíma formaður hennar. Hann
var frumkvöðull í austfirskri
ferðaþjónustu, tók til að mynda
þátt í stofnun Ferðamiðstöðvar
Austurlands og ýmissa hags-
munasamtaka. Hann fékk við-
urkenningu Markaðsstofu Aust-
urlands, Klettinn, árið 2006.
Hann var virkur í Félagi eldri
borgara á Eskifirði. Ævisaga
hans kom út árið 2010 og nefnist
hún „Það reddast“.
Útförin fer fram frá Eski-
fjarðarkirkju 10. apríl 2021 kl.
14.
Streymt verður frá útför:
https://tinyurl.com/3s5a9st9
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
maki Einar Örn
Jónsson, fæddur
1966, börn þeirra
eru Sveinn Pálmar,
fæddur 1986, Jón
Kristinn, fæddur
1992 og Margrét
Ósk, fædd 1996. 2)
Stúlka, fædd og dá-
in 16.12. 1970. 3)
Drengur, fæddur
og dáinn 19.11.
1971. 4) Díana
Mjöll, fædd 1974, maki Sig-
urbjörn Jónsson, fæddur 1974,
börn þeirra eru Snædís, fædd og
dáin 23.4. 1998, Jökull Logi,
fæddur 1999, Svanhildur Sól,
fædd 2002 og Sveinn, fæddur
2005.
Sveinn ólst upp á Hafursá.
Hann byrjaði í skóla 10 ára gam-
all á Eyjólfsstöðum á Völlum.
Þegar hann var 12 ára gamall
fór hann hálfan vetur í Mjóa-
fjörð í skóla og dvaldi hjá Grétu
frænku sinni og Vilhjálmi á
Brekku. Þar eignaðist hann, að
eigin sögn, aðra foreldra og
fleiri systkini. Haustið 1960 fór
hann í Eiða og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi vorið 1963. Árið
1965 tók hann svo meirapróf.
Eftir fermingu vann hann þrjú
Þú ert farinn, eftir sit ég ein
aftur skilur leiti milli vega.
Í mínu hjarta minning fersk og hrein
mildar söknuð, léttir þungan trega.
Við gengum snemma út á lífsins leið
lögðum saman krafta okkar tveggja.
Þó stundum virtist gatan ekki greið
gæfan fylgdi ætíð starfi beggja.
Þegar lífs míns orku förlast fer
flyst á milli heima andans kraftur.
Handan fljótsins bústað býrð þú mér
og bíður mín, þá kem ég til þín aftur.
(Hákon Aðalsteinsson)
Elsku Svenni.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín
Magga.
Að sitja og skrifa minningar-
grein um þig, elsku pabbi, er erf-
iðara en tárum taki.
Það var alltaf gaman að fá að
skottast með þér í hinum ýmsu
ferðum þegar ég var krakki. Ég
átti það líka til að „húkka“ mér
far með þér á Norðfjörð þegar þú
varst í áætlunarferðunum, þá
fylgdist ég með þér koma niður
Hólmahálsinn og hljóp niður á
Strandgötu eða niður á pósthús
til að ná þér. Eitt sem þurfti þó
að passa var að týna þér ekki því
þá gæti maður gleymst. Margar
haustferðir til fjalla voru farnar
með þér og mömmu og dyggum
ferðalöngum sem fóru með ykkur
ár eftir ár. Þetta eru ferðir sem
skilja mikið eftir í minningabank-
anum. Fyrsta ferðin mín til út-
landa, árið 1988, var með ykkur,
það var ein af fyrstu ferðum ykk-
ar með hópa til Færeyja, en þær
voru árlega allt til ársins 2019.
Ég fór snemma að heiman og
flutti til Reykjavíkur 20 ára göm-
ul, þá varð óhjákvæmilega lengra
á milli þess sem ég hitti þig en
alltaf voru fagnaðarfundir þegar
þú komst til okkar eða við kom-
um á Fossgötuna. Alltaf var gott
að leita ráða hjá þér og fá aðstoð
þína við hin ýmsu verkefni.
Síðustu mánuðir voru þér
mjög langir og strangir, þú svona
kraftmikill maður, brotinn á bak
aftur af veikindum. Æðruleysi og
þolinmæði einkenndu þitt veik-
indastríð en viljinn var þitt sterk-
asta vopn og allt fram á síðasta
dag varstu ákveðinn í því að þú
ættir eftir að fara í sund og hitta
vini þína á Melbæ. Ég þakka sér-
staklega fyrir þann tíma sem ég
gat verið með þér síðustu vikurn-
ar sem þú lifðir. Nú ert þú laus
undan verkjum og vanlíðan og
kominn á betri stað. Ég veit að
þú munt vaka yfir okkur öllum.
Takk fyrir allt og allt elsku pabbi.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Halldóra Ósk.
Elsku pabbi, ég segi eins og
góð vinkona, ég hélt þú gætir
ekki dáið. Hversu sárt það er að
horfa á eftir þér. Ást mín og að-
dáun á þér er óendanleg, tak-
marka- og skilyrðislaus.
Efst í huga er þakklæti fyrir
að hafa átt þig, svo stóran og
sterkan, við hlið mér alla tíð.
Hvernig þú nenntir endalaust að
hafa mig með þér hvert sem þú
fórst, allar minningarnar þjóta
um huga mér. Við að drekka hrá
egg í snjóbíl Tanna og öll æv-
intýrin okkar á Vatnajökli, þú að
ganga á undan rútunni yfir ár til
að skoða árfarveginn eða að ráð-
leggja mér og styðja mig í því
sem ég tók mér fyrir hendur. Þú
að kenna mér að keyra rútu og
við að drekka kaffi og ræða
heimsmálin eða bara að horfa
saman út um gluggann.
Barnabörnin gátu alltaf leitað í
viskubrunn þinn og væntum-
þykju og þú varst alltaf tilbúinn
að gefa þér tíma, hlusta á þau og
vera til staðar með þinn stóra
faðm.
Elsku mamma, mikið áttuð þið
pabbi fallegt samband og það var
dásamlegt að sjá ykkur njóta lífs-
ins saman. Mundu að þú ert ekki
ein, þú átt okkur að og saman
munum við ylja okkur við dásam-
legar minningar um pabba, hlæja
að því þegar hann keyrði næstum
rútu inn á útikaffihús á Ítalíu,
dást að því þegar hann, mállaus á
erlenda tungu, bjargaði sér hvar
sem var, flissa yfir því þegar
hann keypti tíu stykki af öllu til
að eiga nóg, minnast góð-
mennsku hans þegar hann var
alltaf til í að gera allt fyrir alla,
atorku hans í að ganga í og klára
verkefnin sín.
Pabbi, þú auðmjúkur, um-
burðalyndur og ósérhlífinn, ég
kveð þig með svo mikilli sorg í
hjarta.
Litla stúlkan smeygir sér í stígvélin,
hún hleypur út, vill ekki missa af hon-
um,
hann hinkrar eftir henni,
hún missir aldrei af honum.
Litla stúlkan lítur upp til hans,
hún fetar með smáum fótum sínum í
stór fótspor hans,
hún horfir, hlustar, skynjar,
stundirnar margar, ævintýri.
Litla stúlkan heldur út í hinn stóra
heim,
spennt fyrir lífsins ævintýrum,
óhrædd með veganesti frá honum,
klettinum.
Litla stúlkan stendur með honum við
gatnamótin,
hún vill ekki missa af honum,
hann bíður ekki eftir henni,
hún missir af honum,
hann leggur upp í sitt hinsta ferðalag.
Góða ferð og sofðu rótt elsku
pabbi, nú ertu hjá litlu englunum
okkar og þau njóta nú samveru
með þér.
Þín dóttir,
Díana Mjöll.
Elsku afi, ég á erfitt með að
trúa því að þú sért farinn frá okk-
ur. Ég á erfitt með að trúa því að
ég muni aldrei heyra röddina
þína aftur, aldrei fá mér kaffi-
bolla með þér aftur, aldrei sjá
brosið þitt aftur og aldrei knúsa
þig aftur.
Þú varst einstakur karakter
og ég lærði heilan helling af þér.
Það leið ekki ein samræða þar
sem þú kenndir mér ekki eitt-
hvað nýtt hvort sem það var hvað
eitthvert fjall héti, hvernig mótor
í vespu virki eða hvernig maður
ætti að ná árangri í lífinu.
Þú kenndir mér að hafa trú á
sjálfri mér. Mér er mjög ofarlega
í huga þegar ég var að taka við
skrifstofustarfi hjá Tanna Travel
sumarið 2019 og ég hafði ekki trú
á að ég gæti það og var að efast
um þetta, þá stappaðir þú í mig
stálinu og sagðir að ég gæti þetta
sko alveg, ég þyrfti bara að hafa
trú á sjálfri mér og henda mér út
í djúpu laugina. Ef þú hefðir ekki
hvatt mig svona til þess þá hefði
ég mögulega ekki tekið starfinu
og hefði þar af leiðandi ekki lært
allt það nýja sem ég lærði.
Þú kenndir mér líka um 10 ára
aldur að skoða flightradar og
marinetraffic þar sem ég gat
fylgst með öllum skipum og flug-
vélum í heiminum og séð hvar
þau væru staðsett og oft kom ég í
heimsókn til ykkar ömmu og við
vöfruðum í þessu langt fram eftir
kvöldi. Þannig kviknaði mikill
flugvélaáhugi hjá mér og þú
hvattir mig alveg fram á þinn síð-
asta dag að halda í þann draum
og fylgja honum eftir. Þú sagðir
mér að þú hefðir ætlað að læra
flugmanninn ef þú hefðir haft
tækifæri til þess þegar þú varst
ungur og sagðir að það væri frá-
bært að ég væri með sama
drauminn og að ég ætti að halda
fast í hann.
Elsku afi, þú ert eftirminnileg-
ur hjá mörgum og efast ég ekki
um að skólafélagar mínir muni
alltaf muna eftir því þegar þú
keyrðir okkur í skólasund og
kallaðir okkur litlu grísina þína.
Elsku afi, takk fyrir allt. Ég
veit að núna ertu á betri stað og
ert ekki kvalinn. Ég sakna þín
mikið en við hittumst aftur þegar
minn tími verður kominn.
Fljúgðu nú hátt og hvíldu í friði
og passaðu upp á alla sem þú átt
að í sumarlandinu.
Ég elska þig.
Þín
Svanhildur Sól (Svansý).
Elsku afi minn (nafni) þú varst
mín stærsta fyrirmynd og átt
stóran hluta í uppeldi mínu. Ég
gleymi aldrei þegar þú kenndir
mér að borða egg og að henda
ekki ab-mjólk ef dagsetningin
væri ekki rétt. Það er erfitt að
hugsa til þess að ég fái ekki að
fara aftur að tína með þér gæs-
aregg eða borða svið með þér. Þú
kenndir mér margt og ég lofa að
ég skal alltaf klára af diskinum
og hreinsa hann eins og þú sagðir
mér alltaf að gera. Bara það að
keyra með þér upp á Egilsstaði
var lærdómsríkt.
Við áttum margar eftirminni-
legar stundir saman og ég mun
aldrei gleyma því þegar við
stússuðumst saman í úrinu sem
ég fékk í jólagjöf.
Þú verður alltaf ofarlega í
huga mér þegar ég þarf ráð, líður
illa eða bara í hversdagslífinu. Ég
veit það að núna finnurðu frið og
þjáist ekki meir og við sjáumst
aftur einn góðan veðurdag í sum-
arlandinu.
Þar sem englarnir syngja
sefur þú, sefur í djúpinu væra.
(Bubbi Morthens)
Ég mun alltaf elska þig.
Þinn junior,
Svenni
Elsku besti afi okkar.
Við vitum ekki alveg hvar við
eigum að byrja því söknuðurinn
er svo mikill. Við erum svo þakk-
lát fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir okkur öll. Við verðum alltaf
litlu grísirnir þínir.
Þú varst alltaf með svo góða
nærveru, alltaf stutt í brosið og
gleðina hjá þér. Þegar við vorum
kannski að fara yfir strikið þurft-
ir þú bara að segja „A-A-A-A“ og
við vissum nákvæmlega að við
vorum að gera eitthvað sem
mátti ekki og brostum.
Alltaf gaman að vera með þér
á verkstæðinu, sitja með þér í
rútunum í þeim ófáu ferðum sem
við fórum í með þér og hlusta á
þig segja sögur t.d. af fjöllunum
eða umhverfinu. Alltaf kenndir
þú okkur eitthvað nýtt og spurðir
okkur oft út í fjöllin eða umhverf-
ið á leiðinni til baka, bara til að
athuga hvort við hefðum fylgst
með.
Alltaf leyfðir þú okkur að
segja brandara eða syngja lag í
míkrófóninn í rútunni og hlóst
Sveinn
Sigurbjarnarson
Góður vinur og
félagi í starfinu fyrir
KR – okkar góða fé-
lag – er látinn.
Það var á árunum upp úr 1990,
að þeim, sem þá voru í forystu
fyrir getraunasölu knattspyrnu-
deildar KR, bárust fréttir af stór-
virkum tippara úti í bæ, sem
ánafnaði KR alltaf sölulaunin.
Þegar farið var að kanna hver
væri þar á ferð reyndist það vera
Birgir Örn Harðarson, eða Biggi
Harðar eins og hann var síðan
ætíð kallaður í okkar hópi. Hann
var ekki þekktur fyrir iðkun
íþrótta en í honum reyndist vera
stórt KR-hjarta, sem brann af
áhuga fyrir því að starfa fyrir fé-
lagið.
Biggi varð fljótlega einn af að-
almönnunum í getraunastarfi
KR. Hann mætti alla laugardaga
til tryggja að starfið gengi smurt
fyrir sig. Til að auka áhugann –
og vinningsvonina – voru á þess-
um tíma settir á fót hópleikir sem
urðu fljótt mjög vinsælir. Til-
koma þeirra blés nýju lífi í það fé-
lagslíf sem lengi einkenndi öflugt
getraunastarf KR. Í þessu var
Biggi brautryðjandi, sem eftir
var tekið. Hér starfaði hann
ótrauður fyrir félagið okkar
næstu tvo áratugina eða svo.
Biggi lét ekki getraunirnar
einar duga, því að flugeldasala
KR-flugelda reyndist honum
einnig langur og farsæll starfs-
Birgir Örn
Harðarson
✝
Birgir Örn
Harðarson
fæddist 27. október
1946. Hann lést 20.
mars 2021.
Útförin hefur
farið fram í kyrr-
þey að ósk hins
látna.
vettvangur innan fé-
lagsins, bæði hvað
varðar söluna sjálfa
og önnur tilfallandi
verkefni. Fram und-
ir það síðasta var
Biggi einn af okkar
traustustu sölu-
mönnum. Flugelda-
vinnunni fylgir asi
og spenna sem
Biggi höndlaði alltaf
vel. Hann var með
allt á hreinu og þeir sem nutu
þjónustu hans voru í góðum
höndum. Og ef það var þörf á
yngri höndum, þá voru afasynirn-
ir, Birgir og Helgi, kallaðir til, og
ávallt boðnir og búnir í verkefnin.
Í þessum störfum eru vinnudag-
arnir mjög langir en þó kemur oft
stund milli stríða. Það eru ekki
síst þær stundir sem kalla fram
minningar um Bigga, þegar hann
var að segja sögur og oft fylgdi
græskulaus stríðni. Ekki var síð-
ur gott að eiga í Bigga hauk í
horni í starfi sínu hjá Ólafi Gísla-
syni og Co. með aðgangi að þeim
eldvarnarútbúnaði sem nauðsyn-
legur er í flugeldasölu eða á flug-
eldalager.
Biggi var góður félagi og yf-
irleitt létt yfir honum. Það var
gaman að hitta hann. Rétt fyrir
áramótin síðustu, þegar flugelda-
salan var framundan, bárust okk-
ur hins vegar þær fréttir að Biggi
hefði greinst með krabbamein.
Fram undan væri erfið barátta
og hann því ekki væntanlegur í
flugeldasöluna þetta árið. Sú bar-
átta varð skemmri en okkur óraði
fyrir. Eftir stöndum við og syrgj-
um góðan vin og traustan sam-
starfsfélaga. Hvíl í friði.
F. h. knattspyrnudeildar KR,
Lúðvík S. Georgsson
og Stefán Haraldsson.
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Ástkær eiginmaður minn, faðir og
tengdafaðir,
HAFÞÓR JÓNSSON,
Brekkulæk 4,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
Fossvogi 5. apríl. Útför verður auglýst síðar.
Lilja Hjördís Halldórsdóttir
Tómas Bolli Hafþórsson Edward Duncan Subben
og aðrir ástvinir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ÞÓRHALLS HJARTAR
HERMANNSSONAR,
Húsavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Skógarbrekku.
Fjölskyldan