Morgunblaðið - 10.04.2021, Blaðsíða 14
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Skipulags- og byggingarnefnd Borg-
arbyggðar hafnaði nýverið umsókn
félagsins Húsafell Hraunlóðir um
breytingu á landnotkun á lóð Litla-
Tunguskógar í Húsafelli. Líkt og
greint var frá í Morgunblaðinu 31.
mars síðastliðinn hafa Húsafells-
bændur kynnt og hafið sölu á fjölda
heilsárshúsa sem teiknuð hafa verið
og færð inn á skipulag ofan við nú-
verandi sumarhúsasvæði í Húsafelli.
Samkvæmt áætlunum þeirra er
gert ráð fyrir að allt að 75 heils-
árshús rísi á svæðinu en í fyrri
áfanga verkefnisins er stefnan sett á
sölu 40 húsa. Hefur verkefnið m.a.
verið auglýst á þeim forsendum að
þar geti fólk skráð sig til fastrar bú-
setu en það auðveldar m.a. mjög
fjármögnun á kaupum á húsnæðinu.
Skilgreint sem frístundabyggð
Samkvæmt núverandi skipulagi
er svæðið ekki skilgreint sem þétt-
býli eða íbúðarbyggð heldur er að-
eins gert ráð fyrir að þar rísi frí-
stundabyggð.
Í fundargerð nefndarinnar segir
að hún hafni því að svæðið sem til
umfjöllunar er „verði skilgreint sem
þéttbýli,“ og að svæðið uppfylli ekki
skilgreiningu laga um þéttbýli né sé
það í samræmi við stefnumörkun í
núverandi aðalskipulagi Borgar-
byggðar. Leggur nefndin til í bókun
sinni að skipulags- og byggingar-
deild sveitarfélagsins verði falið að
„koma á fundi landeiganda og nefnd-
ar til að ræða framtíðaruppbyggingu
og landnotkun á svæðinu“.
Bergþór Kristleifsson, eigandi fé-
lagsins Húsafells Hraunlóða, segir
að nefndin hafi hafnað beiðninni á
þeim forsendum að hún hafi falið í
sér að svæðið yrði skilgreint sem
blönduð frístunda- og íbúðabyggð.
Það hafi í raun verið formgalli á um-
sókninni sem slíkri sem ráðið hafi
niðurstöðu nefndarinnar.
„Við viljum hins vegar ekki að
svæðið verði skilgreint sem þéttbýli
heldur aðeins sem íbúðabyggð og við
munum því leggja málið fyrir byggð-
aráð þar sem við höfum væntingar
um að vel verði tekið í þessi áform,“
segir Bergþór.
Morgunblaðið bar málið einnig
undir Lilju Björg Ágústsdóttur, for-
seta sveitarstjórnar Borgarbyggðar.
„Meirihlutinn í sveitarstjórn er
mjög hlynntur þessari uppbyggingu
og ég hef trú á því að við munum
finna lausn á þessu máli.“
Verði svæðið að endingu skil-
greint sem íbúðabyggð mun sveitar-
félagið þjónusta það á þeim for-
sendum en í því felst talsvert meiri
þjónusta en sú sem tengist frí-
stundabyggð.
Bergþór ítrekar þó að félag hans
verði veghaldari á svæðinu eins og
verið hefur og muni sinna snjó-
mokstri og öðru sem tengist vega-
málum á svæðinu.
Tölvuteikning/Onno
Byggð Mikil eftirspurn hefur verið eftir húsunum að undanförnu og eru 26 seld eða frátekin að sögn Bergþórs.
Stefna enn á heilsárs-
byggð í Húsafellsskógi
- Skipulagsráð Borgarbyggðar hafnaði blandaðri byggð
Bergþór
Kristleifsson
Lilja Björg
Ágústsdóttir
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
ER KOMIÐ AÐ ÞÉR
AÐ EIGNAST
NÝJAN BÍL?
IB ehf leggur ríka áherslu á að veita
viðskiptavinum góða þjónustu á öllum sviðum.
Sala nýrra bíla byggist á því að IB ehf finnur
þann bíl sem viðskiptavinurinn óskar eftir
að fá fluttan til landsins og sér síðan að koma
honum í skip, tollafgreiða hann og skrá.
Hjá IB ehf er ávallt mikið úrval
notaðra bíla á skrá.
ÚR BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal
Mýrdalurinn hefur fundið verulega fyrir
áhrifum af Covid-19, þar sem stór hluti at-
vinnulífsins hefur undanfarin ár snúist í kring-
um þjónustu við ferðamenn. Það er því víða
erfið staða hjá þeim sem reka ýmiss konar
gistingu, afþreyingu og matsölustaði, og þar af
leiðandi einnig af allri annarri afleiddri at-
vinnu.
Covid-19-hópsmitið sem kom upp í vik-
unni í Mýrdalnum virðist þó vera mjög ein-
angrað, eins og sést af því hvað fáir hafa þurft
að fara í sóttkví vegna þess. En smitin sýna að
það þarf bara einn sem ekki fylgir reglum til
að úr verði jafnvel enn stærra hópsmit en
þetta.
- - -
Vegagerðin vinnur nú að undirbúningi og
rannsóknum í samræmi við gildandi samgöngu-
áætlun 2020-2024 vegna forhönnunar og mats á
umhverfisáhrifum vegna jarðganga í gegnum
Reynisfjall og nýrrar veglínu um Mýrdal. Bor-
aðar hafa verið holur í bergið beggja vegna
Reynisfjallsins og nú kjarnaborun uppi á Reyn-
isfjalli til að kanna bergið fyrir fyrirhugaða jarð-
gangalínu til þess að rannsaka nánar jarðlög
Reynisfjalls.
- - -
Sunnlenskir grunnskólar fá rúmlega
fjórar milljónir króna í nýrri úthlutun sprota-
sjóðs, sem styður við þróun og nýjungar í
skólastarfi. Víkurskóli í Vík í Mýrdal fékk
hæsta styrkinn, 1,2 milljónir króna, vegna
strandlínurannsóknar nemenda í Víkurfjöru
en verkefnið er unnið í samstarfi við Kötlu
jarðvang.
Sveitarstjórnir Mýrdalshrepps, Skaft-
árhrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings
ytra og Ásahrepps hafa samþykkt að kosið
verði um sameiningu sveitarfélaganna í haust,
samhliða alþingiskosningum laugardaginn 25.
september. Verði sameiningin samþykkt verð-
ur þetta langstærsta sveitarfélag Íslands. Inn-
an marka sveitarfélagsins yrði stór hluti há-
lendisins, Vatnajökulsþjóðgarður, merkar
náttúruminjar og margir af helstu ferða-
mannastöðum landsins. Íbúar sveitarfélagsins
yrðu um fimm þúsund og fjögur hundruð.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík Karlinn í Kvíarnefinu austan við Vík í Mýrdal horfir á þessi fallegu glitský. Vestan Víkur er verið að skoða jarðgöng og nýja veglínu.
Láglendisvegur um Mýrdal í umhverfismati