Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 10.04.2021, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. APRÍL 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þau tíðindibárust ífyrradag frá Þýskalandi að stjórnvöld þar hygðust semja beint við Rússa um kaup á Spútník 5-bóluefninu gegn kórónuveirunni, sem enn bíður samþykkis Evrópsku lyfjastofnunarinnar EMA. Fylgir þýska alríkisstjórnin fordæmi Bæjara, en Markus Söder, forsætisráðherra Bæjaralands og einn af þeim sem helst hafa verið mátaðir við kanslarastólinn eftir að Merkel yfirgefur hann, kynnti á miðvikudaginn áform sambandsstjórnarinnar um að kaupa 2,5 milljónir skammta af rússneska efninu um leið og EMA veitti samþykki sitt. Það kemur kannski ekki á óvart að Þjóðverjar leiti nú til Rússa, þar sem Spútník 5-bólu- efnið þykir veita jafngóða vörn gegn kórónuveirunni og þau bóluefni sem þróuð hafa verið á Vesturlöndum og Evrópusam- bandið hefur samið um kaup á, en ýmsir framleiðslugallar og byrjunarörðugleikar hafa tafið mjög bólusetningar innan Evr- ópusambandsins. Hefur þar ekki hjálpað til að helstu for- kólfar þess hafa talið tíma sín- um best varið í illa ígrundaðar skilnaðarþrætur við Breta, sem um leið hafa dregið úr vilja almennings í ESB-ríkjunum til að láta bólusetja sig. Ljóst er að ákvörðun Bæjara og þýsku ríkisstjórnarinnar er gríðarlegur áfellisdómur yfir stefnu Evrópusambandsins í bólusetningarmálum og þeim hægagangi sem þar hefur ein- kennt för. Hin sameiginlega innkaupastefna, sem átti að tryggja minni ríkjum sam- bandsins jafnan aðgang, hefur reynst algjört öfugmæli, og höfðu raunar ýmsar Evrópu- þjóðir, þar á meðal bæði Aust- urríkismenn og Danir, leitað leiða til þess að auka sínar eig- in birgðir, þvert á það sem inn- tak hinnar opinberu stefnu sagði. Á sama tíma hefur nýjasta bylgja faraldursins, sú sem tal- in er hin þriðja í Evrópu, safn- að krafti hægt og bítandi, en hún er knúin áfram af breska afbrigðinu svonefnda. Þeirri bylgju verður ekki hrundið með aðstoð bóluefna úr þessu, og horfa nú ríki Evrópusam- bandsins fram á annað glatað sumar með tilheyrandi töfum á upprisu efnahagslífsins. Viðvörunarbjöllurnar voru farnar að klingja fyrir nokkru í Þýskalandi, en læknar þar vör- uðu við því í gær að sjúkrahús landsins væru komin að þol- mörkum vegna faraldursins, en slík staða hefur í faraldrinum til þessa jafnan verið undanfari mikilla hörmunga, hvort sem litið er til Wuhan-borgar í upphafi eða Norð- ur-Ítalíu fyrir ári. Ljóst var fyrir löngu að leiðin út úr kórónuveirufaraldrinum lægi í gegnum bóluefnin og þau vestrænu ríki sem hengdu sig ekki aftan í Evrópusambandið en treystu þess í stað á eigin getu hafa náð miklum árangri. Bandaríkin og Bretland eru hratt og örugglega að skilja sig frá ríkjum Evrópusambands- ins og ýmsum öðrum, meðal annars Íslandi, þegar kemur að bólusetningum og þar með tal- ið smithættu og aðgerðum hennar vegna. Nú er rætt um að hjarðónæmi kunni að nást á Bretlandi strax eftir helgi og verða mikil kaflaskil þegar það takmark næst, hvort sem sú tímasetning stenst nákvæm- lega eða ekki. Þar er nánast helmingur þjóðarinnar bólu- settur og hækkar hlutfallið hratt. Í Bandaríkjunum er rúmur þriðjungur bólusettur og þar fjölgar sömuleiðis hratt í þeim hópi. Hlutfallið hjá þeim ríkjum sem fylgt hafa Evrópu- sambandinu í þessum efnum er um og innan við 15%, og er þá, líkt og í tilvikum Bretlands og Bandaríkjanna, miðað við þá sem fengið hafa að minnsta kosti eina sprautu, enda virðist fyrri sprautan ákaflega þýð- ingarmikil og duga vel. Þessi ólíka þróun í Banda- ríkjunum og Bretlandi annars vegar og í Evrópusambandinu og ólánsömum fylgiríkjum þess hins vegar, veldur því að í fyrr- nefndu ríkjunum er nú byrjað markvisst að slaka á sóttvarna- aðgerðum en á sama tíma virð- ist ekki við neitt ráðið í Evrópusambandinu. Hér á landi er staðan í raun svipuð. Ekki þó að því leyti að hér sé stjórnlaus faraldur, alls ekki sem betur fer, heldur að því leyti að vegna takmarkaðra bólusetninga hafa yfirvöld talið þörf á að herða á reglum – og hafa raunar stigið ótrúleg feil- spor í þeim efnum eins og ný- legur héraðsdómur sannar. Það er afskaplega skiljanlegt að Þjóðverjar reyni nú að fara aðra leið en Evrópusambandið vill skammta þeim. Þeir hafa gefist upp á mislukkaðri stefnu þess og vilja reyna að brjótast út úr þeim vandræðum sem sambandið hefur komið þeim í. Þeim var viss vorkunn að taka þátt í innkaupum Evrópusam- bandsins, verandi kjarnaríki þess. Erfiðara er að skýra þá ákvörðun Íslands að binda trúss sitt við Evrópusam- bandið í þessum efnum og leita ekki annarra leiða. Enda hefur engin skynsamleg skýring fengist á þeim mistökum. Jafnvel kjarnaríki ESB gefst upp á inn- kaupastefnunni sem Ísland hengdi sig í} Þjóðverjar spila einleik F yrr í vikunni birtist á sama stað í Morgunblaðinu pistill eftir Helgu Völu Helgadóttur. Pist- illinn fjallaði um nauðsyn þess að koma á laggirnar embætti umboðsmanns aldraðra. Helga minntist þess að slíkar tillögur hefðu komið fram á Alþingi fyrir nokkrum árum en ekki náð fram að ganga og sagði að nú væri tilefni til að rifja þær upp á ný. Ég er henni hjartanlega sammála að þörf sé á stofnun slíks embættis. Ég tel þó enga þörf á upprifjun, enda hefur Flokkur fólks- ins lagt fram þingsályktunartillögur um stofnun slíks embættis síðustu þrjá þing- vetur. Tillagan liggur nú inni í velferðar- nefnd og bíður þar afgreiðslu. Því vekur það furðu mína að Helga Vala, formaður velferðarnefndar, virð- ist ekki þekkja málið. Mögulega liggur vandinn í því að tillaga Flokks fólksins nefnir embættið hagsmuna- fulltrúa en ekki umboðsmann. Ég ætla þó að vona að slíkt formsatriði komi ekki í veg fyrir stuðning henn- ar við það. Ljóst er að um samskonar embætti er að ræða. Í tillögu Flokks fólksins segir m.a. um hlutverk hagsmunafulltrúa: „Hagsmunafulltrúa aldraðra er ætlað að vekja athygli á réttinda- og hagsmunamálum aldraðra almennt, jafnt á opinberum vettvangi sem hjá einkaaðilum, leiðbeina öldruðum um réttindi sín og bregðast við telji hann að brotið sé á þeim.“ Öll viljum við eiga áhyggjulaust ævikvöld. Því mið- ur er raunin önnur hjá alltof mörgum. Eft- ir því sem við eldumst þurfum við sífellt oftar að glíma við hið opinbera, meðal ann- ars almannatryggingar, lífeyrisréttindi, að- gengi að heilbrigðisþjónustu og fleira. Stjórnvöldum ber að taka tillit til aldraðra og sníða opinbera þjónustu algerlega að þörfum þeirra. Ekki er langt um liðið síðan ríkið skerti ellilífeyrisgreiðslur með ólög- mætum afturvirkum hætti. Í stað þess að viðurkenna mistökin og bæta fyrir þau barðist ríkið af hörku. Flokkur fólksins átti frumkvæði að því að dómsmál var höfðað gegn ríkinu og þurfti á endanum að leita til Landsréttar til að fá mistökin leiðrétt. Eldri borgarar eiga skilið virka réttinda- og hagsmunagæslu og hafa mikla þörf fyrir hana, eins og dæmin sanna. Tillaga Flokks fólksins um hagsmunafulltrúa aldr- aðra hefur ítrekað farið fyrir velferðarnefnd Alþingis og þangað hafa borist margar jákvæðar umsagnir um málið. Þrátt fyrir það hefur tillagan aldrei losnað úr prísund nefndarinnar. Því er það mikið fagnaðarefni að heyra, að formaður nefndarinnar vilji veita mál- staðnum liðsauka. Nú gefst Helgu Völu kjörið tæki- færi til að standa við stóru orðin og beita sér fyrir því að tillagan verði afgreidd úr velferðarnefnd til síðari umræðu á Alþingi og atkvæðagreiðslu. Inga Sæland Pistill Hvort heldur sem er Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is N íu af hverjum tíu öldr- uðum telja andlega heilsu sína góða og 70% aldraðra eru mjög sjald- an eða aldrei einmana. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar Hagir og líðan aldraðra á Íslandi 2020. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði könnunina fyrir félags- málaráðuneytið, velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Lands- samband eldri borgara. Spurningarnar sem lagðar voru fyrir svarendur lutu meðal annars að almennu heilbrigði fólks 67 ára og eldra. Einnig var spurt um viðhorf til heilbrigðisþjónustunnar, um heil- brigðisútgjöld, hvort og hvaða að- stoð fólk fær inn á heimili sitt. Þá var einnig spurt um búsetuhagi, at- vinnuhagi, fjárhag, félagslega virkni, tölvunotkun, notkun sam- félagsmiðla og margt fleira. Niðurstöðurnar sýna einnig að 23% svarenda töldu sig hafa ein- angrast frekar eða mjög mikið eftir að Covid-19-faraldurinn byrjaði en 40% töldu sig ekki hafa einangrast í kjölfar faraldursins, samkvæmt frétt félagsmálaráðuneytisins. Meðal annars var spurt hvort fólk nýtti sér ýmsa þjónustu sem er í boði. Í ljós kom að 3% eiga símavin, 4% fá heimsendan mat frá sveitarfé- laginu og 5% panta sér mat á netinu en 89% hafa ekki nýtt sér ofan- greindar þjónustur eftir að Co- vid-19-faraldurinn hófst. Þá sýndu niðurstöðurnar að 66% svarenda gátu hitt nákomna ættingja og vini með hefðbundnum hætti þrátt fyrir faraldurinn, 5% gátu hitt þá í gegnum gler, 28% í myndsímtölum og 22% með öðrum hætti. En 16% kváðust ekki hafa getað hitt nákomna vini og ættingja vegna faraldursins og 4% sögðust hafa almennt lítið hitt nákomna vini og ættingja fyrir faraldurinn. Aukin tölvu- og netnotkun „Þessi aldurshópur notar tölvur og netið og það sem því tengist miklu meira nú en svarendur gerðu í fyrri könnunum um sama efni. Það er í takti við almenna þróun í sam- félaginu,“ segir Helgi Guðmunds- son, verkefnisstjóri hjá Félags- vísindastofnun HÍ, en hann sá um framkvæmd könnunarinnar. Hann segir margar niðurstöður í könnuninni nú svipaðar og í fyrri könnunum en þó hafi viðhorf um sumt breyst. „Nú var meiri ánægja með verð á heilbrigðisþjónustu en verið hefur í fyrri könnunum. Við höfum spurt um það frá 1999 hvort fólki þyki heil- brigðisþjónusta vera ódýr eða dýr. Frá upphafi þótti um 35% svarenda hún vera frekar eða mjög ódýr en nú þótti rúmlega helmingi svarenda hún vera frekar eða mjög ódýr,“ sagði Helgi. Svarendum þótti einnig þjón- usta heilsugæslustöðva hafa batnað. Helgi segir að í könnunum 2012 og 2016 hafi einungis um 20% þótt þjón- ustan hafa batnað frekar mikið eða mjög mikið en nú var það hlutfall 41%. Helgi segir það hafa komið sér einna mest á óvart að einmanaleiki fólks jókst ekki með aldri. Þeir elstu sem voru í minna síma- sambandi við ættingja og vini og hittu sjaldnar fólk en þeir yngri voru ekkert frekar ein- mana, kvíðnir eða þunglyndir en yngri svarendur. Þá sýnir könnunin að upp- reiknaðar ráðstöf- unartekjur svarenda eru sambærilegar nú og þær hafa verið frá 2012. Meirihluti aldraðra er sjaldan einmana Könnun á högum og líðan aldr- aðra var gerð í fimmta sinn á tímabilinu frá 16. nóvember 2020 og til 16. janúar 2021. Könnunin var fyrst gerð árið 1999, síðan árið 2006, svo ár- ið 2012 og í fjórða sinn 2016. Í niðurstöðunum má sjá þróun frá fyrri könnunum, en einnig hefur verið bætt við nokkrum nýjum spurningum, meðal annars nokkrum spurningum varðandi líðan á tímum Co- vid-19-faraldursins. Tekið var 1.800 manna tilviljunarúrtak fólks 67 ára og eldra úr þjóð- skrá. Spurningar voru lagðar fyrir þátttak- endur ýmist í síma eða með netkönnun. Alls svöruðu 1.033 og var nettósvarhlutfall í könn- uninni, að teknu til- liti til brottfalls, 60%. Kannað í fimmta sinn HAGIR ALDRAÐRA Helgi Guðmundsson Morgunblaðið/Ómar Eldri borgarar Nýlega voru kynntar niðurstöður könnunar um hagi eldri borgara. Þar var gerð greining á líðan þessa aldurshóps og viðhorfum hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.