Morgunblaðið - 12.04.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Ullin kemur sífellt sterkar inn þessi
misserin, enda góð náttúruleg af-
urð,“ segir Margrét Jónsdóttir hjá
Ullarvinnslunni á Þingborg í Flóa.
Síðastliðinn föstudag var í fyrsta
sinn haldinn Evrópudagur ullar-
innar og af því tilefni var sitthvað
gert til hátíðarbrigða í ullarvinnslum
landsins og hjá prjónafólki. Mikil
framþróun er í allri prjóna- og hand-
verksmenningu um þessar mundir
og sífellt að koma fram nýjar upp-
skriftir að peysum, sjölum, teppum
og öðru fallegu, meðal annars frá
Þingborg, sem er skammt austan við
Selfoss. Þar er í senn verslun og sam-
komustaður prjónakvenna, sem
margar koma frá Selfossi og úr
sveitunum á Suðurlandi.
„Ullarvinnslan hefur reynst mik-
ilvægur þáttur í þeirri viðeitni að
halda við hefðum og ekki síður að
skapa nýjar. Þar skiptir líka öllu
máli að vera með rétta lopann,
lambsull sem við sérveljum og Ístex
vinnur fyrir okkur,“ segir Margrét.
Evrópudagur ullarinnar haldinn í fyrsta sinn og því var fagnað hjá sunnlenskum prjónakonum
Halda í hefð-
irnar og
skapa nýjar
Ljósmynd/Halldóra Óskarsdóttir
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Velferðarnefnd býst við því að fá af-
hent í dag öll gögn sem til staðar eru
um könnun á lagagrundvelli reglu-
gerðar heilbrigðisráðherra um
skyldudvöl í sóttvarnahúsi, þ.á m. álit
frá heilbrigðisráðuneytinu og dóms-
málaráðuneytinu. Þetta segir Helga
Vala Helgadóttir, formaður velferð-
arnefndar, í samtali við Morgunblað-
ið.
Helga Vala segir að sér hafi verið
brugðið þegar hún sá að Morgunblað-
ið hefði álit dómsmálaráðuneytisins
undir höndum. Álitið var ekki á meðal
þeirra minnisblaða og gagna sem
nefndin fékk þegar hún óskaði eftir
gögnum sem leiddu að reglugerðar-
setningunni. Þeirra á meðal er hins
vegar álit frá lagaskrifstofu forsæt-
isráðuneytisins sem ritað var tveimur
dögum fyrir ríkisstjórnarfund, þann
29. mars, en reglugerðin tók gildi 1.
apríl.
Velferðarnefnd og Morgunblaðinu
var fyrst synjað um aðgang að gögn-
unum á grundvelli upplýsingalaga en
heilbrigðisráðuneytið lét undan
þrýstingi og afhenti gögnin fyrr-
nefndu síðdegis á föstudag.
Í áliti forsætisráðuneytisins er ekki
tekin bein afstaða til lögmætis reglu-
gerðarinnar en þar er þó talið að skil-
greining sóttvarnahúss í sóttvarna-
lögum sé ansi þröng. Tekið var hins
vegar fram að enginn vafi væri á því
að heimild væri í lögum til að skylda
fólk í sóttkví í húsnæði undir eftirliti. Í
áliti dómsmálaráðuneytisins kemur
hins vegar skýrt fram að vafi sé á því
að lagaheimild sé til staðar fyrir að
skylda ferðamenn í sóttvarnahús.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og fulltrúi flokksins
í velferðarnefnd, telur ljóst að ekki
nægur undirbúningur hafi farið í
reglugerðarsetninguna: „Mér finnast
þessi gögn sem þingmenn hafa fengið
benda til þess að reglugerðin hafi ekki
fengið neinn undirbúning. Það má
greina af gögnunum að það var fyrst
þann 13. mars sem sóttvarnalæknir
óskaði eftir því að þessi mál yrðu
skoðuð. Það virðist ekki hafa verið
gert,“ segir hún og bætir við að svo
virðist sem það sama sé uppi á ten-
ingnum hvað varðar nýjustu reglu-
gerð heilbrigðisráðuneytisins.
Umdeilt að úthýsa fólki
Sigríður bætir við að hún hafi eng-
ar upplýsingar um það hvernig menn
hafi lagt mat á lagaheimildina fyrir
reglugerðinni eða hvert markmið, ár-
angur og nauðsyn hennar sé.
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra
kveður á um skyldu til þess að fara í
sóttkví eða sóttvarnahús sé ferðast til
landsins frá skilgreindum áhættu-
svæðum – dvöl í sóttvarnahúsi er val-
kvæð en neiti einstaklingur að sæta
sóttkví er hægt að skylda hann í sótt-
varnahús. Þá segir í leiðbeiningum
sóttvarnalæknis um heimasóttkví að
æskilegast sé að heimilismenn, sem
ekki hafa verið berskjaldaðir fyrir
smiti, dvelji ekki á heimili sínu á með-
an annar heimilismaður er í sóttkví.
„Það er auðvitað svolítið viður-
hlutamikið að vísa fólki út af heimilum
sínum,“ segir Sigríður og vísar þá til
réttarins til friðhelgi heimilis og
einkalífs.
Fengu ekki öll gögn sem lágu fyrir
- Velferðarnefnd fær einungis hluta gagna um lagagrundvöll skyldudvalar í sóttvarnahúsi - Engin
gögn að baki nýrri reglugerð - Mælt með að aðrir yfirgefi heimili á meðan einstaklingur er þar í sóttkví
Sóttvarnahús
» Velferðarnefnd fékk ein-
ungis hluta gagna.
» Álit dómsmálaráðuneytisins
ekki á meðal þeirra.
» Talinn vafi um lagaheimild.
» Helga Vala býst við því að fá
öll gögn afhent í dag.
Sóttvarnahús Velferðarnefnd býst við að fá öll gögn afhent í dag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Karítas Ríkharðsdóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
Formenn VR og Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Akraness gagnrýna og
undirbúa lögsóknir á hendur ASÍ því
ekki hafi verið haft samráð við aðild-
arfélög sambandsins vegna frum-
varps fjármálaráðherra um lágmarks-
tryggingavernd og fleira sem tengist
lífeyrismálum. Frumvarpið sem
gengur nú til umfjöllunar Alþingis var
birt í síðustu viku og þar er gert ráð
fyrir talsverðum breytingum á lögum
um skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður
VR segir alvarlegt að lagt sé til að
ekki verði greidd iðgjöld fyrir fólk 16-
18 ára. Slíkt feli í sér skerðingu á
tekjum og réttindum. Þá segir Ragn-
ar breytingar á verðtryggingarmál-
um, sem lagðar eru til í frumvarpinu,
fela í sér miklar kjaraskerðingar.
Samningsumboðið
tekið af stéttarfélögum
„Við undirbúum með lögmanni fé-
lagsins að stefna Alþýðusambandi Ís-
lands og Samtökum atvinnulífsins
líka,“ segir Vilhjálmur Birgisson, for-
maður Verkalýðsfélags Akraness, í
samtali við mbl.is í gærdag. Ástæð-
una segir Vilhjálmur vera að ASÍ og
SA telji alfarið sitt að semja um líf-
eyrismál. Þessi tvö meginsamtök at-
vinnulífsins, það er launþega og
vinnuveitenda, hafi tekið sér það vald
að vera í samráði við stjórnvöld við
gerð frumvarpsins. Þó séu lífeyris-
mál stór þáttur í kjarasamningum
stéttarfélaga við viðsemjendur.
Skýrt sé í lögum að stéttarfélög ráði
sínum málefnum sjálf og að samn-
ingsumboðið liggi hjá stéttarfélögum
en ekki ASÍ.
„Í lögum um lífeyrissjóði er líka
kveðið á um að um iðgjöld er samið í
kjara- eða ráðningarsamningum.
Þarna er búið að taka samningsum-
boðið af stéttarfélögunum,“ segir Vil-
hjálmur.
Ætla að stefna ASÍ og SA
- Gagnrýna samráðsleysi vegna frumvarps um lífeyrismál
Ragnar Þór
Ingólfsson
Vilhjálmur
Birgisson