Morgunblaðið - 12.04.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*
-�-"%
,�rKu!,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
veikja bakland Bónusverslana sinna
hér og sama má segja um Festi sem
á og rekur Krónuna og N1.“
Þeir Hilmar og Hannes segjast
þokkalega ánægðir með viðbrögð við
undirskriftasöfnuninni, en óákveðið
er hve lengi hún verður í loftinu.
Slíkt ráðist í raun af því hvort olíufé-
lögin svari kalli, og minna megi á að
verðlagning á eldneyti úti á landi sé
víðar með sama móti og á Suðurnesj-
um. Málið sé því stærra en virðist í
fyrstu.
Eðlilegt og réttlátt
Sveitarfélögunum á Suðurnesjum
var kynnt efni undirskriftasöfnunar-
innar á dögunum og hefur málið
komið til umfjöllunar og ályktana á
þeirra vettvangi. „Atvinnuástand á
Suðurnesjum er nú með allra versta
móti,“ segir bæjarráð Reykjanes-
bæjar sem skorar á olíufélögin að
sýna samfélagslega ábyrgð og lækka
eldsneytisverð á svæðinu til sam-
ræmis við það sem best gerist á höf-
uðborgarsvæðinu. Í bókun bæjar-
ráðs Suðurnesjabæjar, sem nær yfir
Garð og Sandgerði, eru viðhorfin
samtóna og sagt að bæði sé „eðlilegt
og réttlátt“ að eldsneyti kosti það
sama á Suðurnesjum og best gerist í
borginni.
Ósk fólks suður með sjó er hins
vegar að eitthvert – helst öll olíufé-
lögin – bjóði á stöðvum sínum verð
svipað og Costco. Verðlagning þar er
raunar smitandi, ef svo mætti segja,
því við í syðstu byggðum Hafnar-
fjarðar og með Reykjanesbraut al-
veg inn í Bústaðahverfi í Reykjavík
eru nokkrar eldsneytisstöðvar þar
sem eldsneytislítrinn er á svipuðu
verði og í Costco. Þá má nefna að á
Akureyri hafa olíufélögin, það er N1,
Olís og Orkan, hvert fyrir sig opnað
sína lágverðsstöðina, sem er svo í
keppni við aðrar afgreiðslur þeirra í
bænum.
Viðskipti færast af svæðinu
„Algengt er að fólk taki hér í bæn-
um eldsneyti fyrir jafn lítið og hægt
er að komast af með í ferð á höf-
uðborgarsvæðið. Tekur þar fullan
tank, sem svo sannarlega munar um,
þegar munurinn á hæsta Suður-
nesjaverði og því sem býðst í Costco
er jafn mikill og raun ber vitni,“ seg-
ir Hannes Friðriksson. „Þessi háa
álagning á eldneyti hér leiðir auðvit-
að til þess að viðskipti, svo sem kaup
almennings á daglegum nauðsynj-
um, færast í talsverðum mæli inn til
Reykjavíkur. Hagar sem reka Olís
eru með þessu að mínu mati að
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Um 1.800 manns höfðu í gær skráð
nafn sitt í undirskriftasöfnun á Suð-
urnesjum þar sem skorað er á olíufé-
lögin að lækka eldneytisverð á svæð-
inu, til samræmis við það sem
ódýrast er á sjálfsafgreiðslustöðvum
á höfuðborgarsvæðinu. Á laugardag
kostaði bensínlítrinn hjá afgreiðslu
N1 við Hafnargötu í Reykjanesbæ
246,90 kr. og lítrinn af díselolíu 228,9
kr. Hjá Costco í Garðabæ kostar lítr-
inn nú 201,90 kr. sem er 45 kr. lægra
en hæsta Suðurnesjaverð. Söfnun
undirskrifta fer fram á slóðinni
http://chng.it/cfQZTCCh.
Verðlagning sé sanngjörn
„Við teljum okkur alls ekki jafn-
sett öðrum landsvæðum með verð á
eldsneyti,“ segir Haukur Hilmars-
son, kennari í Keflavík, sem stendur
að þessari söfnun undirskrifta og
með honum er Hannes Friðriksson
innanhúsarkitekt. „Atvinnuástand
hér á svæðinu er erfitt og margir í
þröngri stöðu. Sanngjörn verðlagn-
ing olíufélaganna á þessu svæði væri
því mikilvægt skref til þess að bæta
lífskjör fólks hér,“ segir Haukur enn
fremur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Undirskriftasöfnun Haukur Hilmarsson, t.v., og Hannes Friðriksson á förnum vegi í Reykjanesbæ um helgina.
Eldsneytisverð á Suður-
nesjum verði lækkað
- Undirskriftasöfnun - Munar 45 kr. á Keflavík og Costco
Jóna Sigurðardóttir er 100 ára í
dag, en hún er fædd 12. apríl 1921 í
Vestmannaeyjum. Hún ólst upp á
Hvanneyri í Eyjum fram til tólf ára
aldurs, við leik og gleði.
Að þurfa að flytja 12 ára gömul
frá hressum Eyjapæjum og í sveit
undir Vestur-Eyjafjöllum var ekki
spennandi í hennar huga en átti eft-
ir, þegar allt kom til alls, að reynast
henni afar farsæl vegferð. Jóna
sótti barnaskóla sem var staðsettur
á hlaði Skálabæjanna. Þar var mik-
ið líf og fjör enda bjuggu á einum
bæjanna, Ysta-Skála, alls þrettán
systkini sem Jóna kynntist mjög vel
og meira einu þeirra en öðrum,
Kristni Auðunssyni, sem síðar varð
hennar lífsförunautur.
Jóna fór 16 ára gömul til náms í
Gagnfræðaskóla Reykjavíkur við
Lindargötu. Á námsárum sínum
æfði hún fimleika hjá ÍTR og vann í
hannyrðaverslun og blómabúð sem
voru í Bankastrætinu. Þetta þrennt;
það er fimi, blóm og hannyrðir,
hafa verið henni til yndisauka alla
tíð síðan og prjónar hún enn sér til
gamans.
Jóna giftist æskuvini sínum,
Kristni Auðunssyni, 30. nóvember
1946 og eignuðust þau fjögur börn
og eru afkomendur þeirra nú orðn-
ir alls 31 talsins. Húsmóðir með
mikið jafnaðargeð varð hennar
ævistarf. Jóna og Kristinn endur-
vöktu sveitarómantíkina aftur á
síðari árum. Byggðu sér sumar-
húsið Fjallasel á æskuslóðum undir
Eyjafjöllum. Einnig eignuðust þau
hlut í Ysta-Skála, æskuheimili
Kristins en hann lést árið 2008.
Lífgleði og heilsuhreysti Jónu
leiddu til þess að hún gat haldið eig-
ið heimili alveg til 96 ára aldurs. Nú
nýtur Jóna sinna elliára á hjúkr-
unarheimilinu Hrafnistu í Laug-
arási í Reykjavík, við einstaka og
hlýja umönnun, að sögn afkomenda
hennar.
Fimi, blóm og hann-
yrðir til yndisauka
- Jóna Sigurðardóttir er 100 ára í dag
Afmælisbarn Jóna Sigurðardóttir
verður 100 ára í dag en hún dvelst á
Hrafnistu í Reykjavík.
Steinunn Þóra
Árnadóttir, þing-
maður Vinstri
grænna í Reykja-
víkurkjördæmi
norður, tilkynnti
í gær að hún gæfi
kost á sér í 2.
sætið í öðru
hvoru Reykjavík-
urkjördæminu.
Sameiginlegt
forval verður fyrir bæði Reykjavík-
urkjördæmin 16.-19. maí og verður
kosið um átta efstu.
Steinunn Þóra hefur setið á þingi
fyrir VG frá árinu 2014. Hún segir í
samtali við Morgunblaðið að hún
telji mikilvægt að Vinstri græn
verði áfram í forystu í ríkisstjórn
og að áherslur flokksins muni
skipta lykilmáli í endurreisninni
eftir heimsfaraldurinn. „Því við
þurfum samfélag þar sem allir geta
tekið þátt og allir hafa jöfn tæki-
færi,“ segir Steinunn Þóra.
Steinunn Þóra
gefur kost á sér í
2. sætið í Reykjavík
Steinunn Þóra
Árnadóttir
Guðrún Hálfdánardóttir
Karítas Ríkharðsdóttir
Alexander Gunnar Kristjánsson
Tveir einstaklingar greindust með
kórónuveiruna á laugardaginn og
reyndust báðir hafa verið utan
sóttkvíar. Smitrakning stóð enn yfir í
gær og var því ekki ljóst hversu
margir yrðu að fara í sóttkví vegna
smitanna.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir sagði í samtali við mbl.is í gær að
það kæmi sér ekki á óvart að enn væri
fólk að greinast utan sóttkvíar. „Þetta
er í samræmi við það sem við höfum
sagt. Eins er fólk að koma í skimun
sem hefur verið með einkenni í ein-
hvern tíma en hefur þrátt fyrir það
ekki mætt í sýnatöku fyrr. Það er
mikið áhyggjuefni ef fólk með ein-
kenni mætir ekki í sýnatöku,“ segir
Þórólfur. Að hans sögn eru þetta oft
einstaklingar af erlendu bergi brotnir
sem stundum hefur verið erfitt að ná
til.
Þórólfur sagði einnig að engar
skerðingar myndu verða á afhend-
ingu bóluefnis AstraZeneca líkt og
fréttir um helgina höfðu gefið til
kynna. Er von á 9.360 skömmtum af
bóluefni Pfizer í viku 15, frá Moderna
koma 2.640 skammtar, af Astra-
Zeneca-bóluefninu er von á 1.980
skömmtum og fyrstu skammtarnir af
bóluefni Janssen eru væntanlegir í
vikunni – alls 2.400 skammtar.
Enn tími til að kanna málin
Spurður út í hvað verði með seinni
bólusetningu þeirra sem eru yngri en
55 ára, sem þegar hafa fengið fyrri
bólusetningu með AstraZeneca hér á
landi, minnir Þórólfur á að seinni
bólusetning eigi að fara fram þremur
mánuðum eftir fyrstu.
„Við erum í samvinnu við Norður-
löndin og önnur ríki Evrópu um hvað
verði gert varðandi skammt tvö,“ seg-
ir Þórólfur. Þjóðverjar og Frakkar
hafa þegar ákveðið að bjóða yngra
fólki upp á annað bóluefni en sú
ákvörðun byggir ekki á neinum rann-
sóknarniðurstöðum að hans sögn.
„Við erum aðeins að hinkra og bíðum
eftir því að fá frekari gögn en það er
ekki komið að þessari bólusetningu,“
segir hann. Þórólfur á von á því að
skila heilbrigðisráðherra minnisblaði
á næstu dögum en núgildandi sótt-
varnareglur gilda til fimmtudags, 15.
apríl. Vinnu við minnisblaðið er ekki
lokið.
Þá var greint frá því í gær að Hótel
Barón við Barónsstíg yrði ekki nýtt
sem sóttkvíarhótel þegar hótelið við
Þórunnartún fyllist vegna yfirstand-
andi framkvæmda. Þetta staðfesti
Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumað-
ur farsóttarhúsa Rauða krossins, í
samtali við mbl.is í gær en
til stóð að hótelið yrði tekið í gagnið
í gær. Sagði hann Sjúkratryggingar
vera í viðræðum um leigu á öðru hót-
eli í höfuðborginni vegna þessa.
Engar skerðingar á afhendingu
- Tvö smit greindust utan sóttkvíar á laugardaginn - Ekki enn búið að ákveða
með framhald AstraZeneca - Hótel Barón verður ekki gert að sóttvarnahúsi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bólusetning Bólusett er nú af mikl-
um móð í Laugardalshöll.