Morgunblaðið - 12.04.2021, Side 17

Morgunblaðið - 12.04.2021, Side 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021 Guðlaugur Þór Þórð- arson utanríkisráð- herra brást við tveimur tillögum okkar í Við- reisn um nýja nálgun Evrópumálanna með grein í Morgunblaðinu síðastliðinn fimmtu- dag. Fyrirsögnina um „snemmbúið apríl- gabb“ tekur hann úr leiðara Morgunblaðs- ins, sem skrifaður var af sama tilefni 1. apríl. Leiðaraopna Morgunblaðsins þennan dag, sem grein ráðherrans birtist, er lýsandi fyrir það hvernig komið er fyrir Sjálfstæðisflokknum, sem áður var kjölfestan í utanrík- ismálum landsins. Nú birtist flokk- urinn í þessu gamalgróna blaði þver- klofinn á einu helsta málasviði stjórnmálanna. Með og móti EES Utanríkisráðherrann er í frjáls- lyndari armi flokksins. Í greininni ver hann EES-samninginn og aðild- ina að innri markaði Evrópusam- bandsins með skynsamlegum rök- um. Við erum sammála honum um þau. En ritstjórar Morgunblaðsins, sem eru í hugmyndafræðilegri for- ystu fyrir íhaldsarmi flokksins, birta leiðara við hliðina á grein ráð- herrans til að tæta jafn- harðan niður rök hans fyrir EES. Þar er tekið undir þau sjónarmið að Ís- land hafi tapað fullveld- inu með framkvæmd samningsins. Forherð- ingin er svo mikil að blaðið gengur í lið með þeim sem halda því fram að aðild Íslands að Mannréttindasáttmála Evrópu stríði gegn fullveldi landsins. Það eru þessi öfgaviðhorf í íhalds- armi Sjálfstæðisflokksins, sem binda hendur þeirra sem frjálslyndari eru. Þegar þeir verja EES-samninginn er jafnvel sett ofan í við þá samdæg- urs á sömu opnu Morgunblaðsins. Kyrrstaðan heldur flokknum saman Veruleikinn er sá að það eru þrjá- tíu og þrjú ár síðan umræður hófust um þátttöku Íslands í EES. Það var fyrir fall múrsins. Þetta þýðir að all- ar ákvarðanir um stöðu landsins í fjölþjóðasamvinnu voru teknar á tímum kalda stríðsins. Heimurinn hefur bara gjörbreyst á þessum tíma. En klofningurinn í Sjálfstæðisflokknum kemur í veg fyrir að ræða megi hvort unnt sé að taka ný skref í fjölþjóðasamvinnu til þess að styrkja samkeppnishæfni Ís- lands í nýrri heimsmynd. Kyrrstaðan ein getur haldið flokknum saman. Hún er tekin fram yfir umræðu, sem leitt getur til öfl- ugri hagsmunagæslu fyrir Ísland. Varðstaða um fortíðina verður mik- ilvægari en sókn fyrir framtíðina. Sammála um hindranir Full aðild að Evrópusambandinu er ekki markmið í sjálfu sér. Hún er aðeins leið fyrir Ísland eins og flest önnur Evrópuríki til þess að ná þeim markmiðum, sem við horfum til. Tökum dæmi: Verðbólga er áttföld miðað við Danmörku. Vextir hér eru umtalsvert hærri en þar. Gengis- sveiflur eru að mati forstöðumanna nýsköpunarfyrirtækja helsta hindr- un fyrir þróun þekkingariðnaðar. Ís- land er eina vestræna ríkið sem tek- ur nú erlend lán í stórum stíl með gengisáhættu til að fjármagna ráð- stafanir vegna kórónuveirunnar. Utanríkisráðherra veit jafn vel og ég að þetta er stórar hindranir. Fyrir heimili sem fyrirtæki. Þær gera at- vinnulífinu erfiðara um vik að hlaupa hraðar. Um þetta deilum við ekki. Ósammála um leiðir Hvernig á þá að bregðast við? Þar skilur leiðir. Utanríkisráðherra hefur ásamt samráðherrum sínum lagt fyrir þing- ið að framselja vald til Seðlabankans til þess að beita jafn víðtækum fjár- magnshöftum og gera þurfti eftir hrun. Með öðrum orðum: Það á að setja upp nýjar viðskiptahindranir því krónunni er ekki treyst. Fyrsti áfanginn í tillögum okkar í Viðreisn um ný skref í alþjóðasam- vinnu miðar að því að taka upp stöð- ugleikasamstarf í gjaldeyrismálum við Evrópusambandið. Markmiðið er að tryggja íslensku atvinnulífi sam- bærilega samkeppnisstöðu og ná- grannar okkar njóta. Með slíku samstarfi getum við rutt hindrunum úr vegi án þess að taka upp nýjar viðskiptahindranir. Það eru ríkir hagsmunir. Að þóknast ritstjórum Utanríkisráðherra reynir að þókn- ast ritstjórum Morgunblaðsins með því að halda því fram að Ísland sé ekki nú þegar aðili að stærstum hluta Evrópusamstarfsins. Því að við innleiðum ekki nema 13,4% af reglum þess. Annar af ritstjórum blaðsins var á sinni tíð fyrstur til að nota þessa talnaleikfimi. Auðvitað veit utanríkisráðherra að fjöldi lagareglna er ekki góður mæli- kvarði á þau umsvif sem að baki búa. Með sömu rökum væri unnt að halda því fram að ferðaþjónusta hefði óverulegt vægi í þjóðarbúskapnum af því að ríkisstjórnin hefur bara flutt eitt frumvarp sem snertir þá at- vinnugrein sérstaklega. Til frekari skýringar má benda á að flestar reglur Evrópusambands- ins eru á sviði landbúnaðar. Margar þeirra gilda í stuttan tíma og eru því settar aftur og aftur. Á innri mark- aðnum eru reglurnar í miklu ríkari mæli til lengri tíma. Af sjálfu leiðir að fjöldi reglna er ekki mælikvarði á umfangið. Kyrrstaðan er versti óvinur atvinnulífsins Kjarni málsins er sá að við lifum í öðrum heimi en í kalda stríðinu þótt sumir vilji halda dauðahaldi í þá tíma. Við stöndum andspænis nýjum áskorunum til þess að tryggja ís- lenskum fyrirtækjum sömu stöðu og keppinautarnir njóta. Ný skref í al- þjóðasamvinnu geta einfaldlega hjálpað okkur til þess að ná settum markmiðum. Kyrrstaðan er versti óvinur at- vinnulífsins um þessar mundir. Það er því hættulegt að láta klofninginn í Sjálfstæðisflokknum ráða því hvaða mál komast á dagskrá stjórnmál- anna. Klofinn Sjálfstæðisflokkur Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur » Við stöndum and- spænis nýjum áskorunum til þess að tryggja íslenskum fyrir- tækjum sömu stöðu og keppinautarnir njóta. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er formaður Viðreisnar. HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum vinnuföt fást einnig í Nýlega komu stjórnvöld fram með frumvarp að nýjum hálendisþjóðgarði. Í skýrslu nefndar um- hverfis- og auðlind- aráðuneytisins og hagaðila um for- sendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhá- lendi Íslands sem frumvarpið byggist á er lögð rík áhersla á að þjóðgarðurinn sé góður fyrir umhverfisvernd og ferðaþjónust- una því: „Að þróa og markaðs- setja ferðaþjónustu og útivist- armöguleika innan þjóðgarðs felur því í sér mikil tækifæri“ (bls. 10). Sem sagt, ferðamenn eiga eftir að flykkjast til landsins vegna þjóðgarðsins en eins og al- þjóð veit þá kemur mikill meiri- hluti ferðamanna til landsins með flugi. Þá spyr ég, er þessi tillaga um hálendisþjóðgarð góð umhverf- isvernd því á sama tíma og þjóð- garðurinn verndar vissulega gróður og náttúru þá losar flug umtalsvert meira af gróðurhúsa- lofttegundum en stóriðjan á Ís- landi sem sumir umhverfissinnar hafa haft horn í síðu um langt árabil. Kolefnisspor flugs meira en stóriðju Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands (tölur úr lofslagsbókhaldi (AEA)) var losun gróðurhúsa- lofttegunda frá hagkerfi Íslands árið 2016 langmest fyrir flutninga með flugi eða 1.939 kt CO2 ígildi og 2.645 kt CO2 ígildi árið 2017, þ.e. árin á undan gjaldþroti WOW/Primera Air og Covid en töluverð minnkun hefur orðið á flugi síðan. Á sama tíma var kol- efnisfótspor málmvinnslu 1.777 kt CO2 ígildi (2016) og 1.825 kt CO2 ígildi (2017) (sjá Hagstofa Ís- lands, bráðabirgðatölur fyrir los- un gróðurhúsalofts frá hagkerfi Íslands). Græn orka bönnuð, hvað þá? Frumvarpið gengur reyndar lengra því öll ný raforkufram- leiðsla er bönnuð innan svæðisins sem þekur um 30.000 km2 (3 milljónir hekt- ara) eða um 30% af Íslandi. Á sama tíma er ljóst að skapa þarf um 50 þúsund ný störf á næstu 10 árum fyrir unga fólkið okk- ar og vegna fólks- fjölgunar og vandséð að hægt sé að gera það án raforku því nánast öll störf krefj- ast raforku með ein- hverjum hætti. Ef frumvarp um hálendisþjóðgarð verður samþykkt af Alþingi og verður að lögum þá er vandséð hvernig stjórnvöld ætla að skapa ný störf því búið verður að þrengja svo að nýjum endurnýj- anlegum virkjunarkostum að í óefni stefnir en eins og alþjóð veit þá er meginþorri endurnýjan- legrar raforku framleiddur með vatnsafli sem staðsett er á hálend- inu. En vatnið finnur sér leið og ef þrengt verður svo að nýjum end- urnýjanlegum virkjunarkostum að ekki verður hægt að uppfylla þörf næstu ára fyrir raforku með end- urnýjanlegri raforku, þá neyðast fyrirtæki og sveitarfélög til að uppfylla þörfina með annarri teg- und raforku, þ.e. kolefnisraforku s.s. með díselrafstöðvum, líkt og kom fram á fundi um raforku- öryggi á Akureyri fyrir nokkru (Vísir, 5. okt. 2017). Slíkt væri al- gjör stefnubreyting á Íslandi og gengi þvert gegn markmiðum landsins í loftslagsmálum. Niðurstaða Að þessu sögðu get ég ekki séð annað en að hálendisþjóðgarður vinni beinlínis gegn umhverfis- vernd á Íslandi og geti þegar fram í sækir unnið gegn mark- miðum Íslands í loftslagsmálum. Hálendisþjóðgarður góð umhverfisvernd? Eftir Magnús B. Jóhannesson Magnús B. Jóhannesson » Get ég ekki séð ann- að en að hálendis- þjóðgarður vinni bein- línis gegn umhverfis- vernd á Íslandi. Höfundur er framkvæmdastjóri og umhverfissinni. Ari Trausti Guðmundsson, þing- maður Vinstri grænna, sendir eft- irfarandi leiðréttingu: „Í Morg- unblaðinu 10. apríl birtist grein mín um orkumál og hefst á þess- um orðum: „Á næstu 40 til 50 ár- um þarf að afla raforku til marg- víslegra nota ef gert er ráð fyrir að orkufrekur málmiðnaður hverfi.“ Hér átti að standa: „Á næstu 40 til 50 árum þarf að afla raforku til margvíslegra nota hvort sem gert er ráð fyrir að orkufrekur málmiðnaður hverfi eða hverfi ekki.““ LEIÐRÉTT Leiðrétting á upphafi greinar um orkumál

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.