Morgunblaðið - 12.04.2021, Qupperneq 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021
✝
Pétur Áskell
Svavarsson
fæddist á Sjúkra-
húsinu á Hólmavík
24. maí 1980. Hann
lést 1. apríl 2021.
Faðir Péturs var
Svavar Pétursson
skipstjóri sem er
látinn, móðir er
Aðalheiður Stein-
arsdóttir kennari.
Systkini Péturs
eru Jóhanna Karlotta Svav-
arsdóttir og Svavar Kári Svav-
arsson.
Pétur kvæntist Díönu Árna-
dóttur árið 2011, þau skildu.
Dóttir þeirra er
Hrefna Sóley,
fædd 13. október
2012. Pétur var
vélamaður og vann
við ýmsar fram-
kvæmdir, s.s við
virkjanir og jarð-
gangagerð.
Útförin fer fram
í dag, 12. apríl
2021, kl. 15.
Streymt verður frá
útför á:
https://www.digraneskirkja.is
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Pétur Áskell kom í heiminn
með miklum látum og varð strax
ljóst að um orkumikinn og
skemmtilegan dreng væri að
ræða. Eldri systir Péturs, Jó-
hanna, tók hlutverk sitt sem
stóra systir strax alvarlega og
reyndi að stjórnast með hann og
passa hann þó oft gengi það ekki
eftir sem skyldi. Síðar bættist
Svavar í hópinn og var þá
þríeykið sem síðar átti eftir að
bralla svo margt mótað.
Það sem einkenndi Pésa var
útsjónarsemi og sjálfsbjargar-
hvöt í að finna sér leiðir til að
gera það sem honum datt í hug.
Snemma á unglingsárum hans
mátti oft koma að honum með
ónýt raftæki sem hann var byrj-
aður að skrúfa í sundur og laga
og var herbergið hans á tíðum
eins og vélaverkstæði með
sokkapari hér og þar á milli.
Næsta dag mátti svo sjá til hans
niður í fjöru að leggja fiskinet
eða dorga á bryggjunni á
Hólmavík.
Pétur var ofvirkur fyrir allan
peninginn eins og sagt er og átti
erfitt með að sitja við skólabæk-
ur og læra í rólegheitum. Hann
lék sér þó að því síðar að taka
vinnuvélapróf enda lá þar brenn-
andi áhugi og einhver meðfædd-
ur skilningur á því hvernig vélar
og tæki virka.
Pési var góð eftirherma og
gerðu systkinin stundum símaat.
Skemmtilegt dæmi var persóna
sem þurfti aðstoð við að hlaða
GSM-kortið sitt með inneign af
skafkorti þar sem ekki væri
pláss fyrir kortið í símanum.
Upphófst þá langt símtal þar
sem starfsmaðurinn reyndi að
útskýra að það ætti að setja
númerin á kortinu í símann en
ekki kortið sjálft.
Besti tíminn í lífi hans var
þegar hann kynntist Díönu sem
hann síðar giftist og eignaðist
með dóttur sína, Hrefnu Sóleyju.
Hún lýsti upp lífið og tilveruna
og þótti Pésa óendanlega vænt
um hana. Þó hann hefði ekki allt-
af tök á því að vera inni í lífi
hennar, leið ekki sá dagur sem
hann hugsaði ekki til hennar og
vildi hann alltaf fá fréttir og
myndir af henni þegar þannig
tímabil stóðu yfir.
Pési var m.a. til sjós með föð-
ur sínum og vann á stórvirkum
vinnuvélum t.d. við Kárahnjúka-
virkjun, Vaðlaheiðargöng og í
Noregi. Þar var hann á sínum
heimavelli og naut sín vel. Það
var hins vegar í þannig starfi
sem hann lenti í vinnuslysi sem
gerði það að verkum að fótur
hann bæklaðist og mátti hann
lifa með miklar kvalir í fætinum
allt til loka.
Pési var vinmargur og náði
vel til margra úr misjöfnum átt-
um. Hann var einnig mikill mat-
gæðingur og góður kokkur og
skiptust hann og systir hans
gjarnan á uppskriftum til að
prófa og þótti honum gaman að
elda fyrir félaga sína.
Þegar lifað er með fíknisjúk-
dóm eins og Pési gerði má gera
ráð fyrir því að svo geti farið að
ekki verði snúið aftur við. Síð-
ustu árin virtist stefna í það þó
hann sjálfur, fjölskyldan hans og
vinir vonuðust alltaf til þess að
einn daginn væri hann öruggur
frá þeim slæmu örlögum sem
sjúkdómurinn er. Lífið sem
fylgir honum er átakanlegt og
veldur skaða. Að morgni 1. apríl
fékk fjölskyldan þær sorgar-
fréttir að Pési væri nú látinn.
Einhvern veginn var það í anda
Pésa að kveðja þann 1. apríl og
brá fyrir þeirri hugsun hvort
þetta væri bara nokkuð satt.
Það eru erfiðir tímar fram
undan fyrir fjölskyldu Pésa og
vini. Það er ósk okkar sem höfum
ferðast með honum í gegnum
þetta líf að það sé í raun líf eftir
þetta líf og að þar sé hann með
pabba sínum að baka pönnukök-
ur eða stússast við eitthvað
skemmtilegt, laus við allt sem lét
honum líða svo illa í þessu lífi.
Við sem eftir stöndum munum
hlýja okkur við fallegar minning-
ar um hann og fylgjast með
stúlkunni hans og passa hana
alla tíð.
Kær kveðja,
Aðalheiður Steinarsdóttir,
Jóhanna K. Svavarsdóttir og
Eva Valdís Jóhönnudóttir
Svavar Kári Svavarsson,
Ester Rán Ómarsdóttir
Já það var drengur, já lítill
mömmudrengur sem fæddist 24.
maí 1980 við fallegan fjörð fyrir
vestan. Ég frænka þín var með
þeim fyrstu sem börðu þig aug-
um eftir að þú komst í heiminn,
hraustur og fallegur drengur og
seinna meir ákaflega fjörmikill
og lífsglaður. Seinna fluttir þú
með fjölskyldu þinni á Ísafjörð
og svo í Hnífsdal og varst heima-
gangur hjá frænku þinni og fjöl-
skyldu. Lékuð þið frændurnir
mikið saman og var oft glatt á
hjalla og engin lognmolla í kring-
um þig. Þú varst vinmargur og
mikið líf og fjör bæði í afmælum
og daglegum leikjum og kom nú
fyrir að þú fengir skurð á ennið
eða kúlu. Svo liðu árin og þú
stækkaðir, alltaf var stutt í
brosið þitt og grínið, unglings-
árin komu og þú varðst fullorð-
inn.
Þú varst duglegur að vinna
og tókst vinnuvélaréttindi og
vannst við ýmsa vélavinnu og
gangagerð. Allt sem sneri að
vélum, vélaviðgerðum og tölvu-
viðgerðum lék í höndunum á
þér. En smátt og smátt fór að
síga á ógæfuhliðina hjá þér Pési
minn. En þú áttir líka þína góðu
tíma, reifst þig upp og ákvaðst
að standa þig. Ég man þegar ég
kom og heimsótti þig í húsið
þitt, nýgiftur og búinn að stofna
fjölskyldu og eignaðist svo lítinn
gullmola, hana Hrefnu Sóleyju,
og lífið blasti við þér. Þú varst
svo hreykinn pabbi.
Elsku Pési minn, þú átt alltaf
stað í hjarta mínu og vil ég trúa
því að þú sért laus við þær raun-
ir sem þú þurftir að glíma við og
þér líði vel í nýjum heimkynn-
um. Votta ég Hrefnu Sóleyju og
systur minni, Aðalheiði, Jó-
hönnu Karlottu, Svavari Kára
og fjölskyldum þeirra mína
dýpstu samúð.
Þín frænka,
Hulda.
Pétur Áskell
Svavarsson
✝
Freyja Egils-
dóttir Mogen-
sen fæddist 9. nóv-
ember 1977. Hún
lést 2. febrúar
2021.
Faðir: Egill Eg-
ilsson, f. 26. ágúst
1929, d. 21. ágúst
2019. Móðir: Bót-
hildur Hauksdóttir,
f. 6. ágúst 1936.
Systur: a. Dísa-
Maria Egilsdóttir, f. 1963; maki
a. Magnús Halldór Helgason, f.
1962. Börn: a1. Árni Magnússon,
f. 1989; maki a1: Margrét Júlía
Fannarsdóttir, f. 1990. Börn:
a1a Dagrún María Árnadóttir f.
2017, a1b; Magney Fönn Árna-
dóttir f. 2018. a2 Egill Magn-
ússon f. 1993; maki a2 Lisa Ma-
culan f. 1994. b. Ásthildur
Egilsdóttir f. 1965.
Barn:
b1 Oddný María
Oddsdóttir f. 1990;
maki b1; Gudmund-
ur Freyr Ómarsson
f. 1985. Börn: b1a
Avona Hrönn Guð-
mundsdóttir f.
2016. b1b Egill Óm-
ar Guðmundsson f.
2020. c Sólrún Eg-
ilsdóttir f. 1966;
maki c; Björgvin Helgason f.
1959. Börn: c1 Rakel Björgvins-
dóttir, f. 1988; maki c1 Finnur
Torfi Gíslason, f. 1987; c2 Helgi
Björgvinsson f. 1992. Börn
Freyju: Alex Mogensen, f. 1993,
Lúkas Mogensen, f. 2011, og
Emma Mogensen, f. 2015.
Jarðarför Freyju á Íslandi fer
fram síðar.
Á erfiðum tímum er gott að
finna fyrir hlýhug og umhyggju
frá fjölskyldu, vinum og nærum-
hverfi. Við þökkum því góða fólki
sem hugsaði til okkar og gaf okk-
ur styrk.
Freyja fæddist árið 1977. Það
ár hafði fjölskyldan, foreldrar
okkar og við þrjár eldri systur
hennar, flutt frá Hveragerði í
Gaulverjabæjarhrepp til þess að
stunda búskap. Við bjuggum þó
ekki lengi í sveitinni og þegar
Freyja var 6 mánaða flutti fjöl-
skyldan á Selfoss og þar átti hún
sín uppvaxtarár.
Það var mikið fjör og gleði að
fá kornabarn í hópinn þegar við
hinar systurnar vorum komnar,
eða nánast komnar, á unglings-
aldur. Hún var einstaklega ljúft
barn og mikill gleðigjafi sem
gerði alla daga betri.
Eftir hefðbundna skólaskyldu
fór hún að hugsa sér til hreyfings
því hún var fróðleiksfús og þráði
að skoða heiminn. Á sautjánda
ári fór hún sem skiptinemi til
Austurríkis í eitt ár. Þar eign-
aðist hún góða fjölskyldu sem
hún hélt tryggð við alla tíð.
Nokkrum árum síðar, eftir að
hún hafði lokið stúdentsprófi, lá
leið hennar til Frakklands þar
sem hún stundaði nám í frönsku.
Á leið heim frá Frakklandi dvaldi
hún um tíma hjá fjölskyldu sinni
í Austurríki og síðar hjá systrum
sínum tveimur sem bjuggu þá í
Árósum í Danmörku. Danmörk
heillaði Freyju og hún ákvað að
búa þar tímabundið og standa á
eigin fótum. Þar átti hún svo eft-
ir að búa það sem eftir var ævi
hennar. Freyja átti auðvelt með
að læra og tungumál voru henn-
ar uppáhald. Auk ensku og
dönsku lærði hún þýsku og
frönsku. Það lá því beinast við að
í Danmörku næmi hún málvís-
indi vid Aarhus Universitet. Hún
lauk meistaragráðu á því sviði en
þar sem lítið var um atvinnu við
það fag menntaði hún sig til fé-
lagsliða, sem henni þótti ekki síð-
ur spennandi og starfaði í fram-
haldinu á hjúkrunarheimili í
Stenslundscentret Odder þar til
hún lést.
Fátt var það sem Freyja þráði
meira en að eignast sína eigin
fjölskyldu og gleði hennar var
mikil þegar hún tók að sér fóst-
urson sinn Alex, sem þá var á
barnsaldi. Rúmum áratug síðar
jók það enn á hamingju hennar
að eignast son sinn Lúkas og
nokkrum árum seinna dótturina
Emmu.
Freyja var lífsglöð, hún gladdi
fólk með nærveru sinni og fann
til með því fólki sem átti erfitt. Í
starfi sínu sem félagsliði á hjúkr-
unarheimili á Jótlandi var hún
elskuð og dáð af sínum skjól-
stæðingum og samstarfsfólki.
Hún var mjög listræn, elskaði
tónlist og málaði litskrúðugar
myndir sjálfri sér og öðrum til
ánægju. Við minnumst Freyju
umfram allt fyrir hjartahlýju og
jákvæðni til lífsins.
Freyju verður sárt saknað og
hún ávallt elskuð.
Dísa-María Egilsdóttir
og fjölskylda.
Ásthidur Egilsdóttir
og fjölskylda.
Sólrún Egilsdóttir
og fjölskylda.
Freyja Egilsdóttir
Mogensen
Haustið 1961 hitt-
ust stúlkur víðsveg-
ar að af landinu á
Kvennaskólanum á
Blönduósi. Við Bergljót vorum
þar á meðal. Begga, eins og hún
var kölluð, var ein af þeim sem
Bergljót
Hermundsdóttir
✝
Bergljót Her-
mundsdóttir
fæddist 17. desem-
ber 1943. Hún lést
11. mars 2021.
Útför Bergljótar
fór fram 19. mars
2021.
komu úr Reykjavík.
Hún var áberandi í
hópnum, dökk yfir-
litum og íþrótta-
mannsleg. Hún
stundaði handbolta
og var Valsari. Það
var alltaf fjör í
kringum Beggu
enda spilaði hún á
gítar og fékk alla
með sér í söng.
Eftir Kvenna-
skólann áttum við Begga samleið í
Reykjavík. Við giftum okkur og
eignuðumst elstu dætur okkar um
svipað leyti. Á þessum árum átti
ungt fólk þess kost að sækja um
byggingarlóðir. Við Begga fórum
þá leið ásamt eiginmönnum okkar
og fleiri fjölskyldum sem tóku sig
saman og byggðu stigahúsið
Gautland 5. Þarna hittust fjórar
fjölskyldur með fimm stelpur á
svipuðum aldri og tókst með okk-
ur mikill og góður vinskapur. Árin
í Gautlandinu voru þroskandi fyr-
ir ungt fólk sem var að koma und-
ir sig fótunum. Þarna hjálpuð-
umst við að með ýmislegt og
nutum góðs af. Hápunktur sam-
vinnu og samveru í Gautlandi 5
var hið árlega gamlárskvöld þeg-
ar allar dyr opnuðust og stiga-
gangurinn varð sem eitt fjöl-
skylduhús. Þá var Begga mín í
essinu sínu með gítarinn og allir
sungu með.
Begga útskrifaðist úr Fóstru-
skóla Sumargjafar vorið 1970.
Stuttu síðar var hún orðin for-
stöðukona á leikskólanum Sól-
bakka sem hún tók þátt í að stofna
og var á þeim árum einn af leik-
skólunum sem Landspítalinn rak.
Það kom að því að sambýlið í
Gautlandinu breyttist. Fólk fór að
stækka við sig og fluttu Begga og
Kristmann í Garðabæ. Þrátt fyrir
það héldum við Begga vinskap
okkar enda unnum við saman á
Sólbakka á þessum árum. En allt
er breytingum háð og næst togaði
sveitin Beggu og Kristmann til
sín. Þau fluttu austur í Fljótshlíð
og þá fór Begga að vinna við leik-
skólann á Hvolsvelli. Alltaf fannst
mér jafn gott og gaman að koma
til Beggu minnar, hvort sem það
var heim til hennar eða á vinnu-
stað því maður kom frá henni rík-
ari af hugmyndum og hvatningu
til að takast á við vinnu og daglegt
líf. Eftir að við hættum að vinna
utan heimilis áttum við margar
góðar stundir saman, t.d. við
handavinnu, og þegar við máluð-
um steina með fleiri konum naut
sköpunargleði Beggu sín.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæl á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Blessuð sé minning Bergljótar
Hermundsdóttur.
Þín vinkona,
Margrét Þorvaldsdóttir.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Yndislegur eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, tengdafaðir og besti afi í heimi,
BJÖRN ÞÓRISSON
húsasmíðameistari,
Furuvöllum 13, Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
4. apríl. Útförin fer fram miðvikudaginn 14. apríl og verður
henni streymt.
Kristín Garðarsdóttir
Ingvar Þór Guðjónsson Ásdís Petra Oddsdóttir
Reynir Örn Björnsson Tanja Dögg Arnardóttir
Andri Steinn, Thelma Kristín og Dagur Logi Ingvarsbörn
Styrkár Vatnar, Kjalvör Brák og Skjöldur Vindar Reynisbörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HANS GEORG BÆRINGSSON
málarameistari frá Ísafirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi
fimmtudaginn 8. apríl.
Útför auglýst síðar.
Hildigunnur Lóa Högnadóttir
Hilmar Þór Georgsson
Íris Georgsdóttir Júlíus G. Gunnlaugsson
Halldór Högni Georgsson
barnabörn og barnabarnabarn
Okkar ástkæri
VILHJÁLMUR INGIMARSSON
varð bráðkvaddur hinn 8. apríl.
Útför verður auglýst síðar.
Erla Ösp Ingvarsdóttir
Kolbrún Ósk Vilhjálmsdóttir Alexander Örn Vilhjálmsson
og aðrir ástvinir
Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur og
barnabarn,
EGILL VALGEIRSSON,
Kambahrauni 25, Hveragerði,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
fimmtudaginn 8. apríl. Jarðarför verður
auglýst síðar.
Valgeir Ásgeirsson Þórunn Sigurðardóttir
Sigurður Valgeirsson Sunna Björk Karlsdóttir
Valur Rafn Valgeirsson Díana Björk Olsen
Sigurður Sigurdórsson Erla Ragnarsdóttir