Morgunblaðið - 12.04.2021, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021
gagn og nauðsynjar. Við hlógum
mikið að því, að stuttu eftir að ég
flutti til Grundarfjarðar þá
ákváðu þau að selja og flytja í
Hafnarfjörðinn, búin að fá nóg af
kellunni og innrás hennar til
þeirra um helgar. Eldhúsumræð-
urnar fóru þá bara fram á nýjum
stað, í Berjavöllunum, og alltaf
var jafngaman að koma í heim-
sókn, blaðra hlæja eins og vit-
leysingar og borða einhvern
svakalega gúrme mat.
Stebbi frændi var dásamlegur
maður, hann var gullið og að hafa
hann í sínu lífi gerði alla ríkari.
Hann var einstaklingurinn sem
enginn þarf að skreyta aukalega í
minningargreininni. Hann var
hreinn og beinn og sagði manni
til syndanna eða studdi þegar
þess þurfti, en alltaf til þess að
gera mann að betri manneskju.
Hann var einn af hornsteinunum
í mínu þorpi, ég var svo rík að
eiga hann að ásamt öllum systk-
inum pabba og þeirra mökum.
Hann lifði sínu lífi til fullnustu við
að gera það sem honum þótti
skemmtilegt, sinna fjölskyldunni,
vinum og ættingjum, ferðast og
hlusta á góða tónlist. Hann sýndi
manni að því leytinu til hversu
einfaldur og góður tilgangur lífs-
ins er. Vertu trúr þínu fólki og
sinntu vel þeim sem eru þér efst í
huga.
Skarðið sem Stebbi skilur eftir
sig verður aldrei fyllt, tíminn
mun gera söknuðinn þolanlegri,
en núna er sorgin og depurðin
blandin þakklæti og ást. Við þurf-
um því miður að kveðja allt of
snemma en í hug og hjörtum lifa
minningarnar um góðan mann.
Elsku Hafdís, Sigurvin, Ísa-
bella og Ísafold, ég sendi mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Guðfinna Guðjónsdóttir.
Elsku Stebbi minn, besti vin-
urinn. Það er svo sárt að kveðja
þig, en enginn veit sína ævi fyrr
en öll er. Aðalvélin þín var reynd-
ar búin að vera hálfbiluð í nokkur
ár.
Ég kynntist þér fyrir rúmum
50 árum. Þá var vaninn að safnast
saman í austurbænum á Selfossi
á kvöldin fyrir utan heima hjá þér
á Rauðholti 11 í skotbolta. Það er
margs að minnast á 50 árum, en
það sem stendur upp úr er hve
hjálpsamur og umhyggjusamur
þú varst. Alltaf rólegur og yfir-
vegaður.
Þú varst svo músíkalskur, man
eftir fjögurra rása segulbandinu
og öllum hátölurunum í rauða
Volkswageninum og það var sko
hækkað vel í græjunum, við höfð-
um sama tónlistarsmekk, Uriah
Heep, Led Zeppelin, Pink Floyd
og fleiri góðir rokkarar. Svo
kynnist ég bróður þínum og það
var smá fyndið að við þekktumst
svona vel.
Þegar þið Kata farið að vera
saman förum við að fara í útileg-
ur saman og veiða og ýmislegt
skemmtilegt. Árið 1977 fæðist
svo einkadóttirin hún Hafdís
Björk og verður hún bara ein af
mínum börnum líka. Þær voru
ófáar ferðirnar sem við fórum í
Ólafsvíkina. Þið voruð á fullu að
græja Vetrargleðina á haustin
með góðum vinum ykkar og það
var gaman að vera með ykkur í
þeirri gleði. Þar nutuð þið ykkar,
enda miklar félagsverur. Svo
voru það Færeysku dagarnir, þá
var sko opið hús fyrir alla, því
fleiri því betra fannst ykkur. Þið
voruð öðlingar heim að sækja.
Svo var endað sumarið í Galtalæk
ár eftir ár.
Síðan takið þið ykkur upp og
flytjið í bæinn til að vera nær
Hafdísi, Sigurvini, Ísabellu og
Ísafold. Missir þeirra er mikill,
en nú eruð þið Kata sameinuð og
ég veit þið vakið yfir okkur öllum
og fylgist vel með.
En ég kveð þig með miklum
söknuði, elsku besti vinur minn
og þakka fyrir þann tíma sem ég
átti með þér.
Leiði þig í hæstu heima
höndin Drottins kærleiks blíð.
Ég vil biðja Guð að geyma
góða sál um alla tíð.
Öðrum stærra áttir hjarta
æ þín stjarna á himni skín.
Myndin geymir brosið bjarta
blessuð veri minning þín.
(Friðrik Steingrímsson)
Elsku Hafdís, Sigurvin, Ísa-
bella og Ísafold, ég sendi mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Ólína María Jónsdóttir
(Lóló).
Þegar ég minnist vinar míns
Stefáns Egilssonar kýs ég að
hverfa hálfa öld aftur í tímann.
Við erum síðhærðir strákar í út-
víðum buxum, háhæluðum skóm
og smá töffarar að eigin mati alla-
vega. Við erum að fara að spila á
réttarballi í Grundarfirði. Hann
er nýbúinn að stilla upp hljóðfær-
unum, dugnaðarlegur og ósér-
hlífinn. Við erum jafnaldrar en
félagar okkar Gissur og Sigfús
miklu eldri, að okkar mati, enda
erum við bara um tvítugt ég og
Stebbi og þeir um þrítugt, hálf-
gerðir karlar. Stebbi er mágur
Sigfúsar. Hann er traustur rótari
hljómsveitar Gissurar Geirsson-
ar. Við ferðumst um landið, hann
ekur hljómsveitarbílnum og er
maður sem hægt er að treysta.
Meðan Stebbi stillir upp hljóð-
færunum fylgist ung stúlka með
þessum vörpulega dugnaðarforki
og skyndilega hverfur Stebbi
með stúlkunni út úr samkomu-
húsinu öruggum skrefum. Þetta
er einbeittur brotavilji. Haustið
er rómantískur tími og það er
byrjað að húma. Talið er í fyrsta
lagið og fólk flykkist út á dans-
gólfið. Stefán sést ekki í
hljómsveitarpásunni á miðjum
dansleik, sem er óvenjulegt. Þeg-
ar síðasta lagið er leikið, sem er
auðvitað vangadans, er hann
mættur, dularfullur og sællegur
á svipinn. Hann er að dansa
vangadans við stúlkuna sem var
við sviðið áðan. Hann er eldfljót-
ur að taka saman hljóðfærin og
unga stúlkan sem hann dansaði
við er dreymin á svipinn og viti
menn, hún tekur sér far með
hljómsveitarbílnum alla leið á
Selfoss, þó að hún eigi heima í
Ólafsvík. Þetta er hún Kata eða
Katrín Ríkharðsdóttir, hálfur
Færeyingur sem varð lífsföru-
nautur Stebba frá þessari
stundu. Svona gerðust nú ævin-
týrin. Já sveitaböllin voru þess
virði að sækja. „Hver stund og
hver dagur á sitt gildi,“ sagði
skólameistarinn forðum daga.
Leiðir skilur og tíminn líður.
Ég gerist kennari í Ólafsvík. Þar
hafa Stebbi og Kata komið sér vel
fyrir. Kennarinn þekkir fáa í
Ólafsvík og er tíður gestur hjá
þeim hjónum, því þau voru afar
gestrisin og höfðu yndi af því að
elda og bjóða gestum í mat.
Stebbi er sjómaður, duglegur og
ósérhlífinn, kröftugur og úrræða-
góður eins og fólkið hans. Þeim
hjónum fæðist dóttirin Hafdís
Björk, sólargeislinn í lífi þeirra
svo ekki sé talað um barnabörnin
sem veða líf þeirra og yndi. Enn
skilur leiðir. Fyrir fimm árum
missir Stebbi Kötu sína fyrir ald-
ur fram. Þá verða straumhvörf í
lífi Stebba. Við hringjumst á og
vitum hvor af öðrum.
Við Stebbi hittumst síðast á
kirkjutröppunum í Selfosskirkju
þar sem við erum að fylgja vini
okkar og mági Stebba, Sigfúsi
Ólafssyni tónlistarkennara, sem
var með okkur í hljómsveitinni
forðum daga. Stebbi strengir
þess heit að heimsækja mig í
Fljótshlíðina með vorinu. Úr
þeirri heimsókn verður ekki þar
sem hann svífur nú á vit feðra
sinna þar sem Kata bíður hans
með opinn faðminn eins og rétt-
arballinu á Grundarfirði forðum
daga. Hafdísi Björk og fjölskyld-
unni allri sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Þú verður
búinn að stilla upp trommusett-
inu þegar við hittumst næst kæri
vinur.
Ísólfur Gylfi Pálmason.
✝
Elín Sig-
urjónsdóttir
fæddist 12. sept-
ember 1929 á
Búðum í Fá-
skrúðsfirði. Hún
lést á Sjúkrahús-
inu á Akureyri
29. mars 2021.
Foreldrar hennar
voru Sigurjón
Guðmundsson,
sjómaður og vél-
stjóri, f. 21. mars 1906, d. 6.
júní 1931, og Guðbjörg Stef-
ánsdóttir, f. 20. september
1900, d. 23. júní 1960.
Systkini Elínar voru
Drengur Hallgrímsson, f. 3.
nóvember 1926, d. 4. nóv-
ember 1926, Sigurjón Sig-
urjónsson, f. 1. maí 1931, d.
13. janúar 1935, og Edda
Stefáns Þórarinsdóttir, f. 28.
maí 1939.
Þann 23. maí 1953 giftist
Elín Gísla Bjarnasyni frá
Uppsölum í Blönduhlíð í
Skagafirði, f. 3. júlí 1930, d.
30. maí 2009, þau skildu.
Synir þeirra voru: 1) Ævar
Gíslason, f. 7. september
ness og átti heimili hjá
Sveini, föðurbróður sínum,
þar til hún hafði lokið námi.
Elín tók gagnfræðipróf frá
Gagnfræðaskólanum á Akra-
nesi 1946 og kennarapróf frá
Kennaraskóla Íslands 1951.
Fljótlega eftir að námi lauk
fluttu hún og Gísli á Bíldudal
og bjuggu þar frá 1952 til
1956. Þau fluttu til Akureyr-
ar 1956 og þar bjó Elín alla
tíð upp frá því.
Elín vann aðallega við af-
greiðslustörf áður en hún
gerðist kennari, hún var
kennari við Barnaskólann á
Bíldudal 1952-1956 og kenn-
ari við Barnaskóla Akureyrar
1958-1999.
Elín var félagi í Kvenfélagi
Akureyrarkirkju og Sorop-
timistaklúbbi Akureyrar, þar
sem hún var heiðursfélagi.
Útförin fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju 12. apríl 2021,
klukkan 13. Vegna að-
stæðna í þjóðfélaginu verða
einungis nánustu aðstand-
endur viðstaddir athöfnina.
Hægt verður að nálgast
streymi á Facebook-síðunni
Jarðarfarir í Akureyrar-
kirkju – Beinar útsendingar.
Stytt slóð á streymi:
https://tinyurl.com/mj3w8kut
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
1953, d. 23. febr-
úar 2011, ókvænt-
ur og barnlaus. 2)
Kári Gíslason, f.
22. nóvember
1956, kvæntur
Bryndísi Dag-
bjartsdóttur, son-
ur þeirra er Arn-
ór, hann er
kvæntur Katrínu
Björgu Þór-
isdóttur. Einnig á
Kári soninn Halldór Inga,
móðir hans er Hafdís Magnea
Magnúsdóttir. Halldór er
kvæntur Guðrúnu Sigríði
Pálsdóttur og eiga þau þrjá
syni. 3) Árni Gíslason, f. 17.
maí 1967, kvæntur Sig-
urborgu Ísfeld, sonur þeirra
er Þorsteinn og dóttir þeirra
er Hildur Magnea. Þorsteinn
er í sambúð með Erlu Rún
Ingólfsdóttur, þau eiga þrjú
börn. Hildur er gift Korie
Andrew Harrison, áður átti
Sigurborg dótturina Evu Ís-
feld, hún á tvö börn.
Elín fæddist og ólst upp á
Fáskrúðsfirði til 15 ára ald-
urs, þá flutti hún til Akra-
Elsku Elín amma. Nú á
kveðjustundinni er margs að
minnast. Efst í hugann kemur
þakklæti og söknuður. Við átt-
um margar góðar stundir. Bæði
áður en ég varð fjölskyldumað-
ur en ekki síður eftir. Árin tvö
sem ég bjó í kjallaranum hjá
þér í Vanabyggðinni mynduð-
ust tengsl sem aldrei rofnuðu.
Litlum stundum sem og stórum
eins og stúdentsveislunni
minni, áttir þú mikinn þátt í.
Þú vildir alltaf fagna þegar
þannig bar undir og varst stolt
af þínu fólki. Mér eru eftir-
minnileg áttræðis- og níræðis-
afmælin þín þar sem skein í
gegn hversu óeigingjörn og
nægjusöm þú varst. Engar
gjafir, bara framlög til málefna
sem voru þér hugleikin. Þannig
varstu.
Þú varst ættrækin með
meiru og oftar en ekki spjöll-
uðum við lengi um ættingja
okkar þar sem þú varst óþreyt-
andi að segja mér af skyld-
mennum okkar, og jafnvel
stundum mínum eingöngu,
bæði austan og vestan Akur-
eyrar. Þessa viðleitni kann ég
að meta og þá sérstaklega núna
eftir þinn dag.
Eftir að ég eignaðist fjöl-
skyldu styrktist samband okk-
ar enn frekar. Arnar Páll fékk
sérstaklega að kynnast þér vel
og þú náðir vel til hans. Ég
held að hann hafi ýmislegt lært
af þér. Árlegar ferðir okkar í
Skagafjörðinn hafa gefið okkur
öllum mikið og ferðalag okkar
um Austfirðina er ógleyman-
legt.
Bútasaumsteppin sem þú
hefur gefið okkur hafa svo
sannarlega staðið fyrir sínu og
eiga eftir að gera það lengi enn.
Hvíldu í friði um alla eilífð
elsku Elín amma.
Halldór Ingi Kárason.
Kveðja.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
- Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal)
Kær systir okkar í Soroptim-
istaklúbbi Akureyrar, Elín Sig-
urjónsdóttir kennari, lést
mánudaginn 29. mars síðastlið-
inn.
Elín var fædd að Búðum í
Fáskrúðsfirði 12. september
1929. Hún lauk kennaraprófi
árið 1951 og var Barnaskóli Ak-
ureyrar hennar starfsvettvang-
ur í hartnær 50 ár. Elín var af-
burða kennari og minnast
nemendur og samstarfsfólk
hennar með hlýhug og þakk-
læti. Elín var einstaklega fróð
og óspör að miðla af þekkingu
sinni og reynslu. Við sem
þetta skrifum nutum þess all-
ar í ríkum mæli að geta leitað
í hennar gagnabrunn fyrstu
starfsárin okkar. Elín var
mjög hjálpsöm og alltaf fús að
leggja af mörkum ef einhver
var í vanda eða átti um sárt að
binda.
Elín gekk til liðs við Sorop-
timistaklúbb Akureyrar í febr-
úar 1987 og var gerð að heið-
ursfélaga 2007. Hún gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
klúbbinn okkar og sat í stjórn
bæði sem ritari og meðstjórn-
andi. Í klúbbstarfinu nutum
við fórnfýsi Elínar sem ávallt
var til þjónustu reiðubúin,
hvort heldur var að lesa ljóð
og fróðleik á fundum, eða
föndra og baka hnallþórur við
hin ýmsu tækifæri.
Hún var mikil íþróttakona
og var umhugað um heilbrigð-
an lífsmáta og geislandi við-
mót hennar, orð og æði, smit-
aði bæði nemendur og
samstarfsfólk.
Elín var hress alveg fram á
síðustu stundu og aldrei brást
minnið henni og þakkaði hún
áhuga sínum á krossgátum
hversu vel það entist.
Elín er ein þeirra kvenna
sem vann sín verk í hljóði en
skildi eftir sig spor sem seint
gleymast.
Í sandinum átti ég eftir
ástkæru sporin þín.
En regnið grét, uns þau grófust,
geisli þar yfir skín.
Í sál minni ógleymd á ég
að eilífu brosin þín.
Þau grafast ei, þó ég gráti,
- geisli þar yfir skín.
(Hulda)
Um leið og Soroptimista-
klúbbur Akureyrar þakkar El-
ínu fyrir allt það sem hún gaf
okkur og samfélaginu sendum
við fjölskyldu hennar innilegar
samúðarkveðjur.
Fyrir hönd klúbbsystra,
Helga Sigurðardóttir,
Ragnheiður Ólafsdóttir
og Sigurlína Jónsdóttir.
Enn hefur fækkað í hópi
þeirra kennara sem útskrifuð-
ust frá Kennaraskóla Ísland
1951. Elín Sigurjónsdóttir, eða
Ella eins við kölluðum hana,
sem var ein úr hópnum, hefur
nú yfirgefið þess jarðvist. Ella
var nett og frískleg stúlka,
skemmtileg og alltaf hreinskil-
in. Hún var sjálfkjörin í þann
hóp nemenda sem kom fram
fyrir hönd bekkjarins á árshá-
tíðum skólans og við aðra sam-
bærilega atburði. Sigríður Val-
geirsdóttir, sem kenndi
stúlkum leikfimi og okkur öll-
um dans, valdi auðvitað Ellu í
danshópinn sem kom fram á
sýningum. Ella var dugleg að
mæta þegar bekkjarsystkinin
komu saman eftir að í kenn-
arastarfið var komið. Hún var
kennari á Bíldudal fyrstu árin
til 1952 en flutti þá til Akureyr-
ar og gerðist kennari við
Barnaskóla Akureyrar og starf-
aði þar til loka starfsaldurs.
Þessi kennarahópur frá 1951
var samansettur af nemendum
á ýmsum aldri. Flestir voru
þeir utan af landi. Aldursmun-
ur var mikill, sá elsti fæddur
1921 en sá yngsti 1932. Ella
sem fædd var 1929 tilheyrði
því yngri hópnum. Sumir í
þessum nemendahópi höfðu
kennt áður en voru nú komnir
til að ná sér i kennararéttindi.
Það hve hópurinn kom víða að
jók á fjölbreytileikann, við
kynntumst fólki víða að af
landinu: Ella var mjög áhuga-
söm um að kynnast sem flest-
um og halda hópinn. Hún gift-
ist skólabróður okkar Gísla
Bjarnasyni og kenndi hann
lengst af á Akureyri og áttu
þau sína fjölskyldu þar. Það
var alltaf tilhlökkunarefni að
hitta Ellu því henni fylgdi svo
mikill ferskleiki og hún var
dugleg að rifja ýmislegt upp
frá skólaárunum.
En meirihluti hópsins sem
útskrifaðist 1951 hefur nú
kvatt þessa jarðvist enda orðið
rígfullorðið fólk: Þannig er lífs-
ins gangur. En það er alltaf
gott að rifja upp gömul kynni
og góðar minningar. Ég sendi
fyrir hönd bekkjarsystkinanna
innilegar samúðarkveðjur til
aðstandenda og þakka um leið
góða vináttu Elínar.
Kári Arnórsson.
Kæra Elín.
Það er erfitt að skilja það að
við munum ekki sjá hvor aðra í
þessu jarðlífi.
Ég lít til baka og rifja upp
hvernig við Elín kynntumst.
Ég hóf störf við Barnaskóla
Akureyrar upp úr 1980 og þar
var Elín með sína reynslu sem
leiðbeindi mér á sinn ljúfa og
hógværa hátt.
Við náðum fljótt saman og
eftir kennslu og undirbúning á
daginn fórum við iðulega í
gönguferðir um bæinn okkur
til upplyftingar og heilsubótar.
Í Barnaskóla Akureyrar var
góður starfsandi og margt sér
til gamans gert.
Eftirminnilegar eru skóla-
skemmtanir sem haldnar voru
árlega fyrir foreldra og að-
standendur barnanna. Elín var
vel látinn kennari og lét sér
annt um velferð barnanna.
Ég þakka Elínu fyrir sam-
fylgdina og votta aðstandend-
um hennar samúð mína.
Þórunn Sigurbjörnsdóttir.
Elín
Sigurjónsdóttir
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr
að andlátum og útförum. Þar eru birtar
andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar
sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar
á vefnum.
" 1+.&*0 +4 (/ ,&&( *!!3%)#&-(4 *0
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar
*!!3%)#&-(4 '23(/(4 (/)2(&$+&$*0
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát