Morgunblaðið - 12.04.2021, Side 26

Morgunblaðið - 12.04.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021 England Sheffield United – Arsenal..................... 0:3 - Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Arsenal. Burnley – Newcastle ............................... 1:2 - Jóhann Berg Guðmundsson fór af velli hjá Burnley á 90. mínútu. Manchester City – Leeds ........................ 1:2 Liverpool – Aston Villa ............................ 2:1 Crystal Palace – Chelsea ......................... 1:4 West Ham – Leicester ............................. 3:2 Tottenham – Manchester United ........... 1:3 Staðan: Manch. City 32 23 5 4 67:23 74 Manch. Utd 31 18 9 4 61:34 63 Leicester 31 17 5 9 55:37 56 West Ham 31 16 7 8 51:39 55 Chelsea 31 15 9 7 50:31 54 Liverpool 31 15 7 9 53:37 52 Tottenham 31 14 7 10 52:35 49 Everton 29 14 5 10 41:38 47 Arsenal 31 13 6 12 43:35 45 Leeds 31 14 3 14 49:49 45 Aston Villa 30 13 5 12 43:33 44 Wolves 31 10 8 13 31:41 38 Crystal Palace 31 10 8 13 33:52 38 Southampton 30 10 6 14 39:53 36 Burnley 31 8 9 14 25:42 33 Brighton 30 7 11 12 33:38 32 Newcastle 31 8 8 15 32:51 32 Fulham 32 5 11 16 24:42 26 WBA 30 4 9 17 25:59 21 Sheffield Utd 31 4 2 25 17:55 14 B-deild: Millwall – Swansea.................................. 0:3 - Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill- wall á 77. mínútu. C-deild: Lincoln – Blackpool................................. 2:2 - Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn með Blackpool. D-deild: Cambridge – Exeter................................ 1:4 - Jökull Andrésson varði mark Exeter. Holland AZ Alkmaar – Sparta ............................. 1:0 - Albert Guðmundsson lék fyrsta klukku- tímann með AZ. Belgía B-deild: Lommel – Union St.Gilloise.................... 0:2 - Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn með Lommel. - Aron Sigurðarson lék í 77 mínútur með Union og lagði upp mark. Rúmenía Univers. Craiova – CFR Cluj.................. 1:0 - Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 72 mínúturnar með CFR. Katar Al-Arabi – Al-Sailiya............................... 3:1 - Aron Einar Gunnarsson lék í 76 mínútur með Al-Arabi í lokaumferðinni. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið sem endaði í sjö- unda sæti deildarinnar. Danmörk Meistarakeppnin: Bröndby – Köbenhavn ............................ 1:3 - Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Bröndby. AGF – Midtjylland ................................... 1:4 - Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 65 mínúturnar með AGF. - Mikael Anderson kom inn á hjá Midtjyll- and á 25. mínútu og skoraði þriðja markið. B-deild: Esbjerg – Silkeborg ................................ 1:1 - Kjartan Henry Finnbogason og Andri Rúnar Bjarnason léku ekki með Esbjerg. Ólafur H. Kristjánsson þjálfar liðið. - Patrik Gunnarsson markvörður og Stef- án Teitur Þórðarson léku allan leikinn með Silkeborg. Viborg – Fredericia ................................ 4:1 - Elías Rafn Ólafsson varði mark Fre- dericia í leiknum. Lettland Metta – Riga ............................................. 1:1 - Axel ÓskarAndrésson kom inn á hjá Riga á 86. mínútu. Hvíta-Rússland Minsk – BATE Borisov ........................... 2:2 - Willum Þór Willumsson lék fyrstu 55 mínúturnar með BATE. Svíþjóð Örebro – Gautaborg................................ 0:0 - Kolbeinn Sigþórsson kom inn á hjá Gautaborg á 66. mínútu. Malmö – Hammarby................................ 3:2 - Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Hammarby. Halmstad – Häcken ................................. 1:0 - Valgeir Lunddal Friðriksson fór af velli hjá Häcken á 89. mínútu og Oskar Tor Sverrisson kom í hans stað. Norrköping – Sirius ................................ 1:1 - Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Norrköping og skoraði mark liðsins. Finn- ur Tómas Pálmason var á varamanna- bekknum en Ísak Bergmann Jóhannesson og Oliver Stefánsson voru ekki í hópnum. - Aron Bjarnason var í nítján manna hópi Sirius en ekki á leikskýrslu. B-deild: Akropolis – Brage ................................... 1:1 - Bjarni Mark Antonsson lék fyrstu 57 mínúturnar með Brage. 50$99(/:+0$ _ Arna Sif Ásgrímsdóttir var fyrirliði skoska meistaraliðsins Glasgow City í gær þegar það vann stórsigur á úti- velli, 7:0, gegn Forfar Farmington í úr- valsdeildinni þar í landi. Arna, sem er í láni hjá skosku meisturunum frá Þór/ KA, lék sinn annan leik með liðinu en hún skoraði í þeim fyrsta gegn Celtic um síðustu helgi. Í gær lagði hún upp eitt marka Glasgow City með því að skalla boltann þvert fyrir mark Forfar. Glasgow City og Rangers eru jöfn og efst á toppi deildarinnar, bæði með 24 stig úr níu leikjum en keppni er nýhaf- in á ný í deildinni eftir hlé frá því í desember vegna útbreiðslu kór- ónuveirunnar. _ Olympiacos, lið Ögmundar Kristinssonar, tryggði sér í gær gríska meistaratitilinn í knattspyrnu í 46. skipti í sögunni og í 21. skipti á síðustu 25 árum. Olympiacos vann Pa- nathinaikos, 3:1, í 29. umferð í gær og á enn sjö leiki eftir en er með 22 stiga forskot á næsta lið, Aris. Ögmundur var varamarkvörður í gær, hann hefur ekki fengið tækifæri í deildinni í vetur en hefur varið mark Olympiacos í þremur bikarleikjum á tímabilinu. Sverrir Ingi Ingason og félagar í PAOK eru í þriðja sæti, þremur stigum á eftir Aris, en Sverrir lék allan leikinn í 1:1 jafntefli gegn Asteras Tripolis í gær. _ Alfreð Finnbogason missti í gær af sínum tíunda leik í röð með Augsburg í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu þegar lið hans mætti Schalke. Heiko Herr- lich þjálfari Augsburg sagði fyrir leik- inn að framfarir Alfreðs í kjölfar meiðsla væru hægar og hann væri ekki tilbúinn til að spila enn sem kom- ið er. _ Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður í knattspyrnu skoraði stórglæsilegt mark í fyrsta leik sínum með Norrköp- ing í sænsku úrvalsdeildinni í gær en keppni í deildinni hófst um helgina. Ari kom til Norrköp- ing frá Oostende í Belgíu í byrjun mánaðarins og skoraði með skoti af 25 metra færi upp í hægri markvinkilinn eftir 24. mínútna leik. Það dugði þó ekki nema til jafnteflis en Sirius jafnaði, 1:1. _ Birkir Bjarnason, félagi Ara í lands- liðinu, lagði upp mark Brescia sem gerði jafntefli, 1:1, við Pescara, hans gamla félag, í ítölsku B-deildinni. Brescia er þar í harðri baráttu um að komast í umspil og er tveimur stigum frá því þegar fimm umferðir eru eftir. Eitt ogannað GOLF Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Japaninn Hideki Matsuyama skráði sig í sögubækurnar í gærkvöldi er hann bar sigur úr býtum á Masters- mótinu í golfi á Augusta National- vellinum í Georgíuríki í Bandaríkj- unum. Matsuyama lék lokahringinn í gær á 73 höggum eða einu höggi yf- ir pari og hringina fjóra á samtals tíu höggum undir pari. Er hann fyrsti japanski kylfingurinn sem sigrar á risamóti í karlaflokki. Matsuyama hafði betur eftir spennandi keppni við Bandaríkjamennina Xander Schauffele og Will Zalatoris. Matsuyama var með sex högga forskot þegar lokahringurinn var hálfnaður í gær, en taugarnar virt- ust ná til Japanans því hann missti forskotið niður í tvö högg þegar þrjár holur voru eftir. Scheuffele fékk fjóra fugla í röð frá 12. til 15. holu en þrefaldur skolli á 16. holu gerði út um sigurvonir hans og felldi hann niður í þriðja sæti. Þegar Matsuyama átti tvær holur eftir var hann með tveggja högga forskot á Zalatoris þegar sá banda- ríski hafði lokið leik. Japananum urðu ekki á nein mistök á síðustu tveimur holunum og fagnaði hann því sigri á 85. Masters-mótinu og fékk að klæðast græna jakkanum fræga. Will Zalatoris varð annar á níu höggum undir pari og þeir Xander Schauffele og Jordan Spieth voru jafnir í þriðja og fjórða sæti á sjö höggum undir pari. Þar á eftir komu Spánverjinn Jon Rahm og Ástralinn Marc Leishman sem léku á sex höggum undir pari. Sigraði á risamóti fyrstur Japana - Mikil spenna á lokasprettinum AFP Meistarinn Hideki Matsuyama frá Japan tryggði sér sigurinn á Masters- mótinu með góðri spilamennsku, þrátt fyrir smá hikst undir lokin. ÍTALÍA – ÍSLAND 1:0 1:0 Arianna Caruso 72. M Cecilía Rán Rúnarsdóttir Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir Alexandra Jóhannsdóttir Karitas Tómasdóttir Gult spjald: Alexandra 59. Dómari: Valentina Finzi, Ítalíu. Áhorfendur: Engir. Lið Íslands: (4-3-3) Mark: Cecilía Rán Rúnarsdóttir. Vörn: Elísa Viðarsdóttir (Hafrún Rakel Halldórsdóttir 86), Glód- ís Perla Viggósdóttir (Guðný Árnadóttir 46), Guðrún Arnardóttir, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Miðja: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Alexandra Jóhanns- dóttir (Berglind Rós Ágústsdóttir 86), Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Karitas Tómasdóttir 46). Sókn: Hlín Eiríksdótt- ir (Sveindís Jane Jónsdóttir 62), Elín Metta Jensen (Berglind Björg Þor- valdsdóttir 72), Agla María Albertsdótt- ir. _ Glódís Perla Viggósdóttir lék sinn 90. landsleik og var leikjahæst þeirra sem tóku þátt í leiknum. _ Karitas Tómasdóttir og Hafrún Rak- el Halldórsdóttir léku sinn fyrsta A- landsleik. _ Leikurinn var sá fyrsti hjá liðinu und- ir stjórn Þorsteins Halldórssonar. _ Sjö leikmenn í byrjunarliði Íslands hefðu verið gjaldgengir í U23 ára lands- lið og fimm þeirra eru fæddir eftir alda- mót. Ítalir voru með fimm leikmenn í byrjunarliði sem hefðu verið gjaldgeng- ir í U23 ára landslið og aðeins einn leik- mann fæddan eftir aldamót. _ Liðin mætast aftur í Flórens á morg- un klukkan 14. ist heilt yfir vel og kom með nokk- ur hættuleg hlaup upp kantinn, eins og hún hefur gert með Breiðabliki undanfarin ár. Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir eru ekki með í verkefninu og því fékk Alexandra Jóhannsdóttir stærra hlutverk sem hún skilaði virkilega vel. Alexandra er orðin lykilmaður í þessu landsliði og hefur henni verið líkt við Söru Björk, enda báðar uppaldar hjá Haukum og spila báðar á miðjunni. Það sem helst mátti bæta í leik íslenska liðsins var bit í sókn- arleiknum. Elín Metta Jensen komst ekki í takt við leikinn í fram- línunni og þær Agla María Alberts- dóttir og Hlín Eiríksdóttir hafa oft verið meira áberandi á köntunum. Það skapaðist meiri hætta um leið og Sveindís Jane Jónsdóttir leysti Hlín af hólmi á 62. mínútu og komst Keflvíkingurinn nálægt því að skora skömmu síðar. Sveindís ætti að vera í byrjunarliðinu í kom- andi keppnisleikjum. Það er óhætt að líta björtum aug- um á framhaldið þrátt fyrir tapið. Átta af ellefu í byrjunarliðinu leika sem atvinnumenn erlendis og fjórar af sex sem komu inn á sömuleiðis. Þá eru margir ungir og sterkir leik- menn að fá stærri hlutverk í liðinu. Íslenska liðið á bæði Dagnýju og Söru inni og því komin skemmtileg blanda af reynslumeiri leikmönnum og ungum og efnilegum. Liðin mæt- ast aftur á morgun klukkan 14. Góð teikn á lofti þrátt fyrir tap Morgunblaðið/Eggert Sterk Alexandra Jóhannsdóttir lék vel í fjarveru lykilmanna í Flórens. - Ungir leikmenn stóðu sig vel á Ítalíu LANDSLIÐIÐ Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 0:1-tap fyrir Ítalíu í vin- áttuleik í Flórens á laugardaginn var í fyrsta leik liðsins undir stjórn Þorsteins Halldórssonar. Þorsteinn tók við liðinu af Jóni Þór Haukssyni í janúar. Ítalska liðið er mjög sterkt og hefur m.a. tekið þátt á öll- um Evrópumótum frá 1997 og þá fór liðið alla leið í átta liða úrslit heimsmeistaramótsins í Frakklandi fyrir tveimur árum. Cecilía fyrsti kostur? Íslenska liðið, sem var yngra en oft áður, þarf því ekki að skammast sín fyrir naumt tap í jöfnum leik sem hefði getað dottið hinum meg- in. Fimm leikmenn byrjunarliðsins voru fæddir árið 2000 eða síðar. Þá fékk Cecilía Rán Rúnarsdóttir tækifæri í markinu og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir lék í vinstri bakverði. Þær nýttu tæki- færin afar vel og voru á meðal betri leikmanna Íslands í leiknum. Ce- cilía átti nokkur góð úthlaup, greip vel inn í og var örugg í sínum að- gerðum. Það verður mjög áhuga- vert að sjá hvort hún verði fyrsti kostur í markið í komandi und- ankeppni HM og jafnvel í loka- keppni EM á næsta ári, en hún er aðeins 17 ára. Áslaug Munda varð-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.