Morgunblaðið - 12.04.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.04.2021, Blaðsíða 27
_ Landsliðsmaðurinn Bjarki Már El- ísson var ekki með Lemgo er liðið vann 29:27-sigur á Minden í þýsku 1. deildinni í handbolta í gær. Hornamað- urinn er nýkomin úr einangrun eftir að hann greindist með kórónuveiruna. Hópsmit kom upp í herbúðum Lemgo og var Bjarki einn sjö leikmanna liðs- ins sem greindust með veiruna þann 23. mars síðastliðinn. Var tveimur leikjum Lemgo frestað vegna þessa og mátti liðið ekki æfa í rúmar tvær vikur. Bjarki fékk loksins grænt ljós á að hefja æfingar á nýjan leik á föstudag- inn var, en landsliðsmaðurinn stað- festi í samtali við mbl.is í gær að hann hafði ekki æft í 20 daga eftir smitið og því var tekin sú ákvörðun að hann yrði ekki með í leiknum. Bjarki kvaðst vera við góða heilsu og vonast hann til að taka þátt í leik Lemgo og Coburg næstkomandi laugardag. _ Handknatt- leiksmaðurinn Daníel Þór Inga- son verður ekki áfram í herbúðum danska úrvalsdeildarliðsins Ribe- Esbjerg eftir yfirstandandi keppn- istímabil. Þetta staðfesti Daníel í sam- tali við handbolti.is í gær en þó nokkrir leikmenn eru á förum frá félaginu. Ribe-Esbjerg átti erfiðan vetur og tókst ekki að vera í hópi átta efstu liða deildarinnar sem nú leika um meist- aratitilinn í úrslitakeppni. Liðið leikur þess í stað um áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni. Daníel er að ljúka sínu öðru tímabili með félaginu en hann fór til Danmerkur frá Haukum árið 2019. Rúnar Kárason spilar einnig með Ribe-Esbjerg en hann hefur þegar samið við ÍBV. _ Ómar Ingi Magnússon er áfram í baráttunni um markakóngstitilinn í þýsku 1. deildinni í handknattleik en hann skoraði 12 mörk fyrir Magdeburg í sigri á Nordhorn í gær, 33:26. Ómar er þriðji markahæstur með 162 mörk en á undan honum eru Marcel Schiller frá Göppingen með 171 mark og Ro- bert Weber hjá Nordhorn með 163. Ómar fór upp fyrir Viggó Kristjánsson sem skoraði fjögur mörk fyrir Stutt- gart í ósigri gegn Wetzlar, 24:31, og er nú fjórði markahæstur með 157 mörk. Bjarki Már Elísson er fimmti með 138 mörk fyrir Lemgo en hann hefur leik- ið þremur til fjór- um leikjum minna en þeir sem eru fyrir ofan hann á listanum. _ Mikael Anderson landsliðsmaður í knattspyrnu skoraði fyrir Midtjylland í gær þegar liðið náði fjögurra stiga for- skoti í dönsku úrvalsdeildinni með 4:1 útisigri á AGF. Midtjylland er með 49 stig og Bröndby 45 þegar átta umferð- um er ólokið í deildinni. Hjörtur Her- mannsson og félagar í Bröndby töp- uðu fyrir FC Köbenhavn í grannaslag í höfuðborginni, 1:3. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021 Þýskaland Coburg – RN Löwen ........................... 28:31 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. Flensburg – Leipzig ............................ 29:23 - Alexander Petersson skoraði ekki fyrir Flensburg. Nordhorn – Magdeburg ..................... 26:33 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 12 mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson er frá keppni vegna meiðsla.. Lemgo – Minden .................................. 29:27 - Bjarki Már Elísson lék ekki með Lemgo. Stuttgart – Wetzlar ............................. 24:31 - Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Stuttgart. Staða efstu liða: Flensburg 38, RN Löwen 38, Kiel 37, Magdeburg 36, Göppingen 33, Füchse Berlín 29, Bergischer 27, Wetzlar 26, Mel- sungen 25, Lemgo 24, Leipzig 23. Leverkusen – Mainz ............................ 37:24 - Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Leverkusen. B-deild: Aue – N-Lübbecke............................... 25:33 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3 mörk fyrir Aue og Sveinbjörn Pétursson varði 7 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. Nord Harrislee – Sachsen Zwickau.. 24:27 Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði eitt mark fyrir Sachsen Zwickau. Danmörk Úrslitakeppnin, riðill 1: Kolding – GOG..................................... 28:36 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 4 skot í marki Kolding. - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 11 skot í marki GOG. SönderjyskE – Bjerr/Silkeborg ........ 32:28 - Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE. _ GOG 4 stig, SönderjyskE 3, Bjerringbro/ Silkeborg 1, Kolding 0. Úrslitakeppnin, riðill 2: Skanderborg – Aalborg...................... 30:26 - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Skjern – Holstebro .............................. 27:33 - Elvar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Skjern. - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk fyrir Tvis Holstebro. _ Holstebro 3 stig, Skanderborg 2, Aal- borg 2, Skjern 0. Fallkeppnin: Ribe-Esbjerg – Lemvig....................... 32:32 - Rúnar Kárason skoraði 2 mörk fyrir Ribe-Esbjerg en Daníel Ingason ekkert. _ Mors 3 stig, Ribe-Esbjerg 3, Fredericia 2, Lemvig 1, Aarhus 1. Pólland Gwardie Opole – Kielce...................... 29:37 - Sigvaldi Björn Guðjónsson lék ekki með Kielce og Haukur Þrastarson er frá keppni vegna meiðsla. Frakkland B-deild: Massy Essonne – Nice ......................... 28:25 - Grétar Ari Guðjónsson varði 13 skot í marki Nice. Sviss Kadetten – St. Gallen .......................... 40:31 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. Svíþjóð Undanúrslit, fyrsti leikur: Skövde – Kristianstad......................... 25:22 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði ekki fyrir Skövde. - Ólafur Guðmundsson skoraði 6 mörk fyrir Kristianstad og Teitur Einarsson 2. %$.62)0-# Spánn Zaragoza – Valencia ........................... 76:85 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 10 stig fyrir Zaragoza og tók 9 fráköst en hann lék í 25 mínútur. - Martin Hermannsson hjá Valencia er frá keppni vegna meiðsla. B-deild: Girona – Caceres ................................. 74:75 - Kári Jónsson skoraði 9 stig fyrir Girona, átti 3 stoðsendingar og tók 2 fráköst á 21 mínútu. Litháen Alytaus Dzukija – Siaulai ................... 88:98 - Elvar Már Friðriksson skoraði 13 stig fyrir Siauliai, átti 13 stoðsendingar og tók 4 fráköst á 34 mínútum. Siauliai er komið í sjöunda sæti eftir þrjá sigra í röð. NBA-deildin Cleveland – Toronto......................... 115:135 Brooklyn – LA Lakers..................... 101:126 Oklahoma City – Philadelphia........... 93:117 Utah – Sacramento........................... 128:112 Golden State – Houston................... 125:109 Phoenix – Washington ..................... 134:106 Portland – Detroit ............................ 118:103 Charlotte – Atlanta .......................... 101:105 Denver – Boston ................................. 87:105 4"5'*2)0-# FRJÁLSAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Erna Sóley Gunnarsdóttir hefur sett stefnuna á verðlaunasæti á Evr- ópumeistaramótinu í frjálsíþróttum U23 ára í sumar eftir að hafa sett nýtt Íslandsmet í kúluvarpi utanhúss á háskólamóti í Texas á laugardag- inn. Erna kastaði þar kúlunni 16,72 metra og bætti met Ásdísar Hjálms- dóttur frá haustinu 2019 um nítján sentimetra. „Það er mjög gott að vera loksins búin að ná báðum Íslandsmetunum í kúlunni,“ sagði Erna við Morg- unblaðið í gær en hún setti glæsilegt Íslandsmet innanhúss í greininni í febrúar þegar hún kastaði 16,95 metra á innanhússmóti í Birm- ingham í Alabama. „Eftir þetta kast í febrúar þá vissi ég að það hlaut að koma að því að ég næði svona kasti líka utanhúss. Þetta er búið að vera takmarkið hjá mér í frekar langan tíma. Þótt það séu not- aðar mismunandi kúlur innanhúss og utanhúss er mjög lítill munur á því að kasta þeim,“ sagði Erna en innan- hússmetið, sem hún tók líka af Ás- dísi, bætti hún um heila 77 senti- metra. Árið 2020 fór að stærstum hluta í vaskinn hjá þessari 21 árs gömlu af- rekskonu, eins og hjá mörgu öðru frjálsíþróttafólki, en Erna hafði sýnt nítján ára gömul á árinu 2019 að hún væri til alls líkleg í greininni. Þá kast- aði hún lengst 16,13 metra. Þann ár- angur bætti hún á móti í Texas í lok mars þegar hún kastaði 16,25 metra. Ætlar að kasta yfir 17 metra „Þetta er góð byrjun, eftir tvö ut- anhússmót er þetta vonandi upphafið á frekar góðu utanhússtímabili hjá mér. Nú er ég á leið á þrjú mót í röð hérna í Bandaríkjunum og keppi hér fram í byrjun júní og kemst vonandi á stóra háskólamótið. Síðan stefni ég á að koma til Íslands í júní og keppa á Íslandsmótinu áður en ég fer á Evr- ópumót U23 ára í Noregi í júlí. Þar er stóra markmiðið hjá mér að komast á verðlaunapallinn. Ég veit að þar verða margar góðar stelpur, sumar þeirra eru hérna í Bandaríkjunum. En ég stefni að því að kasta yfir 17 metrana á þessu tímabili og ef það tekst er þetta alveg möguleiki. Von- andi verður sumarið eðlilegt en ekki eins og það síðasta,“ sagði Erna. „Þá var ég föst í Bandaríkjunum þegar kóvid skall á og ég gat ekkert æft í tvo mánuði. Síðan náði ég smá æfingu fyrir Íslandsmótið en annars var ekkert í gangi. Ég kom aftur til Bandaríkjanna í ágúst og náði þá mjög góðu uppbyggingartímabili sem hjálpaði mér mikið fyrir þetta ár, enda er frábær aðstaðan sem ég hef hérna í Houston,“ sagði Erna en hún stundar nám í hreyfifræði við Rice-háskóla þar sem hún er á þriðja ári og stefnir á mastersnám í alþjóð- legum samskiptum næsta vetur. Erna segist vissulega horfa til Ól- ympíuleikanna í Tókýó síðsumars. „Það er alltaf gaman að horfa á þá sem markmið en þá verð ég að kasta reglulega vel yfir 17 metra til að eiga möguleika. Ég geri bara mitt besta og sé til hvað gerist. Þetta er alltaf möguleiki en ég get ekki stjórnað neinu nema því sem ég geri sjálf,“ sagði Erna Sóley sem hefur kastað kúlu frá níu ára aldri og spilaði hand- bolta með Aftureldingu fram að sex- tán ára aldri en hefur verið ÍR-ingur í frjálsíþróttum síðan hún var fimm- tán ára gömul. Stefnir á verðlaunasæti á EM - Erna sló Íslandsmetið í kúluvarpi og hefur náð báðum metunum í ár Ljósmynd/Stefán Þór Stefánsson Íslandsmethafi Erna Sóley Gunnarsdóttir í kúluvarpshringnum á móti í Texas í síðasta mánuði. Á laugardaginn féll Íslandsmetið utanhúss. Atlético Madrid gaf enn frekar eftir í baráttunni um spænska meist- aratitilinn í knattspyrnu í gærkvöld þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Real Betis á útivelli. Þar með hefur Atlético, sem á tímabili var með yf- irburðaforystu í deildinni, aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikj- um sínum og er einu stigi á undan Real Madrid og tveimur á undan Barcelona. Yannick Carrasco kom Atlético yfir á 5. mínútu en Cristian Tello jafnaði fljótlega og þar við sat. Real Madrid fór upp fyrir Barce- lona með sigri í uppgjöri stórveld- anna í Madríd, 2:1, í fyrrakvöld og þar með tapaði Katalóníuliðið í fyrsta sinn í nítján leikjum. Kareem Benzema og Toni Kroos komu Real í 2:0 á fyrsta hálftím- anum en Óscar Mingueza minnkaði muninn fyrir Barcelona á 60. mín- útu. Engu munaði að hinn átján ára gamli Ilaix Moriba jafnaði fyrir Barcelona undir lokin þegar hann átti hörkuskot í þverslána á marki Madrídarliðsins. AFP Svekktir Diego Simeone knattspyrnustjóri Atlético Madrid hughreystir sína menn eftir jafnteflið gegn Real Betis í gærkvöld. Forysta Atlético er komin niður í eitt stig Keppnin um þriðja og fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni i fótbolta harðnaði enn frekar um helgina þegar West Ham, Chelsea og Liver- pool unnu góða sigra á meðan Leic- ester og Tottenham töpuðu. West Ham er búið að koma allra liða mest á óvart og lagði Leicester að velli í hörkuleik í London, 3:2, eftir að hafa eina ferðina enn kom- ist í 3:0. Jesse Lingard skoraði tvö fyrstu mörkin og hefur blómstrað í níu leikjum sem lánsmaður með West Ham þar sem hann hefur skorað átta mörk og lagt upp þrjú. Kelechi Iheanacho skoraði bæði mörk Leicester sem hefur tapað tveimur leikjum í röð og gæti misst af Meistaradeildarsæti á loka- sprettinum annað árið í röð. _ Christian Pulisic skoraði tvö mörk fyrir Chelsea sem vann Crys- tal Palace auðveldlega, 4:1, og er áfram í fimmta sæti. _ Trent Alexander-Arnold skor- aði glæsilegt sigurmark fyrir Liv- erpool í uppbótartíma gegn Aston Villa, 2:1, og meistararnir fráfar- andi komust í fjórða sætið í nokkra klukkutíma fyrir vikið. _ En óvæntustu úrslit helg- arinnar voru sigur nýliða Leeds gegn Manchester City, 2:1, á úti- velli. Leeds var með tíu menn allan seinni hálfleik en samt skoraði Stu- art Dallas sigurmark í uppbót- artíma, sitt annað mark í leiknum. _ Manchester United vann Tott- enham 3:1 í London og er þá ellefu stigum á eftir City, og á leik til góða. Mason Greenwood innsiglaði sigurinn í uppbótartíma. Annað sætið er í höndum United og enn er ekki útilokað að liðið geti unnið upp forskot nágranna sinna. Harðnandi slagur um Evrópusætin AFP Óstöðvandi Jesse Lingard skoraði tvö mörk fyrir West Ham í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.