Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 6

Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 6
Það er leyndarmál. Margrethe Kristinsson jafnréttisdani Valli rostungur Rostungurinn Valli hefur vakið mikla kátínu meðal Íslendinga, Íra og Breta. Valli kíkti á bæjar­ búa á Höfn í Hornafirði og fangaði hjörtu landsmanna. Valli er fjögurra til fimm ára Atlants­ hafsbrimill og vegur 800 kíló. María Sjöfn Árnadóttir lögfræðingur María hafði betur í Lands­ rétti gegn fyrrverandi sambýlis­ manni. Hún er ein níu kvenna sem kærðu íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir að hafa brotið á rétti þeirra til réttlátrar málsmeðferðar. Hún hafði kært líkamsárás sambýlis­ mannsins en brotin fyrndust. Ríkislögreglustjóri hefur beðið hana afsökunar. Atli Rafn Sigurðarson leikari Atli Rafn lagði Leikfélag Reykjavíkur í Hæstarétti. Voru honum dæmdar 1,5 milljónir króna í miska­ bætur vegna uppsagnar í Borgarleikhúsinu árið 2017 eftir tilkynningar um kynferðislega áreitni. Hæstiréttur segir leik­ félagið hafa vikið frá skráðum reglum við mat á ásökununum. n n Þrjú í fréttum BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND, SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM. ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI RAM 3500 BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK. 9.202.300 KR. M/VSK. UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 Forseti Mannréttindadóm­ stóls Evrópu segir ábyrgð þeirra sem vilja draga úr trúverðugleika dómstólsins mikla. Viðsjárverðir tímar séu fyrir mannréttindakerfi Evrópu. Efla verði þátttöku Íslands í alþjóðasamstarfi til að standa vörð um það. adalheidur@frettabladid.is DÓMSTÓLAR Ef la þarf þátttöku Íslands í starfi Evrópuráðsins, að mati Róberts Spanó forseta Mann­ réttindadómstóls Evrópu (MDE). Þetta kom fram í erindi hans á mál­ þingi undir yfirskriftinni Réttarríki, lýðræði og Mannréttindasáttmáli Evrópu, í Háskóla Íslands í gær. „Ísland verður að gegna þar lykil­ hlutverki samhliða öðrum Norður­ löndum, sérstaklega á þeim tímum sem við nú lifum. Raunar þarf að ef la enn frekar þátttöku Íslands í þessu samstarfi og ekki síst með það í huga að Ísland mun taka við formannssætinu í ráðherranefnd Evrópuráðsins í nóvember á næsta ári,“ sagði Róbert í erindi sínu. Róbert hafnaði fullyrðingum um að réttarríkið væri orðið að innan­ tómu slagorði eða draumórum, sem misst hefðu öll tengsl við raunveru­ leikann. Hann rifjaði upp þá vegferð sem mörkuð var á árunum 1994 til 1995 er Mannréttindasáttmáli Evrópu var lögfestur hér á landi og endurbætur gerðar á mann­ réttindakafla stjórnarskrárinnar. Sjaldan hafi verið mikilvægara en nú að hvergi verði hvikað frá þeirri vegferð. „Við lifum á viðsjárverðum tímum. Við skulum ekki velkjast í vafa um það. Leitast er við að grafa undan réttarríkinu, lýðræðinu og mannréttindum, sem eru undir­ stöður okkar stjórnskipunar og til­ vistargrundvöllur Evrópuráðsins,“ sagði Róbert. Hann vék að gagnrýni á Mann­ réttindadómstólinn bæði hér heima og í ríkjum sem legið hafa undir ámæli fyrir aðför að dóms­ valdi sínu. Eðli málsins samkvæmt komi stundum dómar frá MDE sem valdhöfunum mislíki. Þá sé einn­ ig skiljanlegt að stjórnmálamenn kunni, í hita leiksins, að misskilja hlutverk dómstólsins. „En ábyrgð þeirra sem til þekkja, einkum lög­ fræðinga, er aftur á móti mikil við slíkar aðstæður,“ sagði Róbert. Eðli­ legt sé að þeir ræði úrlausnir dóm­ stólsins og annarra dómstóla. „En við það verður að gera athugasemdir að því sé haldið fram af þeim sem lengi hafa starfað sem dómarar eða lögfræðingar, án nokk­ urra haldbærra raka, að Mannrétt­ indadómstóllinn sé í störfum sínum kominn inn á hið pólitíska svið með því einfaldlega að leysa úr þeim málum sem honum berast í sam­ ræmi við skýran texta sáttmálans,“ sagði Róbert og bætti við: „Kjarninn er sá að það er einmitt hlutverk lögfræðinga í réttarríki að leggja sitt af mörkum til að minna á þær grundvallarreglur sem stjórn­ skipan okkar er reist á, sérstaklega þegar stormar geisa í þjóðfélags­ umræðunni.“ Róbert rifjaði upp þá samstöðu sem ríkti á Alþingi um lögfestingu Mannréttindasáttmálans, ekki aðeins ákvæðin um mannréttindin sjálf heldur einnig ákvæðin um dómstólinn og áhrif dóma hans hér innanlands. Í lögskýringargögnum með lögfestingunni kæmi skýrt fram að dómar MDE skyldu teljast fordæmi sem skyldu hafa leið­ sagnargildi. Róbert fagnaði jákvæðum breyt­ ingum sem orðið hefðu á íslenska dómskerfinu og tók dæmi um nýleg­ an dóm Hæstaréttar þar sem minnt er á að Hæstiréttur hafi „ítrekað slegið því föstu að líta beri til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu við skýringu ákvæða mannréttinda­ sáttmálans, þegar reynir á hann sem hluta af landsrétti.“ n Réttarríkið er ekki innantómt slagorð Róbert Spanó og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, sem hlýddi á erindi hans. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Við lifum á viðsjár- verðum tímum. Við skulum ekki velkjast í vafa um það. Róbert Spanó, forseti Mannréttindadómstóls Evrópu kristinnhaukur@frettabladid.is KOSNINGAR Margrethe Kristinsson er einn af þremur svokölluðum „jafnréttisdönum“ sem mega kjósa til Alþingis og forsetakosninga. En jafnréttisdanir eru þeir dönsku ríkisborgarar sem búsettir voru hér á landi 6. mars árið 1946, eða ein­ hvern tímann á síðustu tíu árunum fyrir þann tíma. „Ég er búin að kjósa,“ sagði Mar­ grethe í gær þegar Fréttablaðið náði af henni tali. Hún segir kosninga­ réttinn dýrmætan og að hún nýti hann ávallt. Margrethe f lutti hingað til lands árið 1946 og var gift Sigurbirni Kristinssyni listmálara, sem lést fyrir tíu árum. Þegar hún kom til Íslands fyrst var hún í vist hjá Agn­ ari Kofoed­Hansen lögreglustjóra. Hún býr í Garðabænum og kýs því í Suðvesturkjördæmi. „Ég fylgist ekkert svo mikið með stjórnmálunum, bara annað slag­ ið,“ segir Margrethe, en gefur ekk­ ert upp um hvað hún kaus. „Það er leyndarmál,“ segir hún. Fyrir síðustu kosningar voru jafnréttisdanirnir fimm, en nú eru tveir fallnir frá. Kosningaréttur erlendra ríkis­ borgara til sveitarstjórnarkosninga er mun rýmri en til alþingis­ og for­ setakosninga. n Einn af þremur jafnréttisdönum á Íslandi búinn að kjósa Margrethe Kristinsson er búin að kjósa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 4 Fréttir 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.