Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 104
LEIKHÚS
Ásta
Þjóðleikhúsið- Kassinn
Handrit og leikstjórn: Ólafur Egill
Egilsson
Leikarar: Birgitta Birgisdóttir,
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Gunnar
Smári Jóhannesson, Oddur
Júlíusson, Hákon Jóhannesson og
Steinunn Arinbjarnardóttir
Hljómsveit: Guðmundur Óskar
Guðmundsson, Matthildur
Hafliðadóttir, Rögnvaldur
Borgþórsson og Svanhildur Lóa
Bergsveinsdóttir
Tónlist: Guðmundur Óskar
Guðmundsson og Matthildur
Hafliðadóttir
Leikmynd: Sigríður Sunna
Reynisdóttir
Búningar: Sigríður Sunna
Reynisdóttir og Sigurbjörg
Stefánsdóttir
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
Myndbandshönnun: Steinar
Júlíusson
Sigríður Jónsdóttir
„Stigaopið gein við mér kolsvart, til-
búið að gleypa mig lifandi. Ég fann,
að það hafði botn einhvers staðar
langt niðri.“ – Svo skrifaði Ásta Sig-
urðardóttir í Sunnudagskvöld til
mánudagsmorguns, sem kom út í
tímaritinu Líf og list árið 1951. Ásta,
frumsýnd í Þjóðleikhúsinu síðast-
liðinn föstudag, er sýning byggð á
lífshlaupi þessarar merkilegu lista-
konu sem lauk alltof snemma, stiga-
opið beið hennar og gleypti.
Skissur úr lífi
Ólafur Egill Egilsson leikstýrir og
skrifar leikgerðina. Handritið skort-
ir litbrigði og raunverulega dýpt,
hér er of mikil áhersla lögð á fram-
vindu, frekar en túlkun á atburðum.
Aðstæður eru útskýrðar en ekki
sviðsettar. Myndræn framsetning
á Sunnudagskvöld til mánudags-
morguns er eftirminnilegasta sena
sýningarinnar og lýsandi dæmi um
þá túlkunarmöguleika sem líf og list
Ástu hefur að geyma. Einnig koma
fram áhugaverðar hugmyndir um
hvað er satt og hvað ekki; er eðli
bæjarslúðursins öðruvísi heldur
en afneitun einstaklingsins á eigin
gjörðum? Ólafur er fær leikstjóri,
en honum tekst ekki að brjótast frá
eigin höfundarverki.
Titilhlutverkið, Ásta Sigurðar-
dóttir, er leikið af Birgittu Birgis-
dóttur, en hún hefur verið á góðri
siglingu síðustu misseri og bregst
ekki bogalistin hérna. Í hennar
túlkun er Ásta drifin áfram af sköp-
unarkrafti og ástríðu, fyrir listinni
og ástinni. Ögrandi nærvera hennar
dregur til sín aðdáendur en flestir
þeirra stoppa stutt við. Birgitta skil-
ur að undir niðri kraumar rísandi
örvænting og stjórnleysi, en nær
ekki að koma lokaaugnablikunum
nægilega vel til skila.
Of margar aukapersónur ferðast
um sviðið, manneskjur sem áhorf-
endur fá sjaldan að kynnast af ein-
hverri dýpt, heldur fremur í gegnum
einstaka frasa. Persónur tala að auki
í yfirlýsingum og útskýringum, sem
gerir leikurunum ekki auðvelt fyrir.
Aðalbjörg Árnadóttir sýnir öruggan
leik í hlutverkum sínum, þá sérstak-
lega sem Þóranna, móðir Ástu, og
Stefán Hörður Grímsson. Oddur
Júlíusson er eftirminnilegur sem
atómskáldið Jónas Svafár, en fær
ekki úr miklu að moða þess utan.
Hákon Jóhannesson gerir sér
mat úr Elíasi Mar og næmur leikur
hans gerir Geir Kristjánsson að full-
skapaðri persónu, fullum af hroka
en líka sársauka. Gunnar Smári
Jóhannesson japlar á hlutverki
Steingríms Sigurðssonar, kannski
af of miklum móð og Þorsteini frá
Hamri kynnast áhorfendur sára-
lítið. Steinunn Arinbjarnardóttir
stígur hér sín fyrstu skref í Þjóðleik-
húsinu og stendur sig með prýði, þá
sérstaklega í hlutverki Oddnýjar,
systur Ástu.
Óreiða á striga
Leikmynda- og búningahönnun er
í höndum Sigríðar Sunnu Reynis-
dóttur, en búningana vinnur hún
með Sigurbjörgu Stefánsdóttur.
Leikmyndin er eins og samansafn
af hugarbrotum Ástu og nýtur sín
vel í Kassanum, en verður stundum
of þunglamaleg þegar leikararnir
þurfa að færa hana til. Búningarnir
eru áferðarfagrir, þá sérstaklega
búningar Ástu sem eru hver öðrum
glæsilegri, kannski of glæsilegir
miðað við samfélagsstöðu hennar.
Tónlistin er hljómþýð en textarnir
eru teknir upp úr skáldskap Ástu.
Hugmyndin er prýðisgóð en er samt
ekki fundinn nægilega góður staður
í sýningunni. Matthildur Hafliða-
dóttir syngur laglega en hljómsveit-
in stimplar sig ekki nægilega vel inn
og túlkun á ljóðunum þyrfti að vera
meira ögrandi, eins og konan sjálf.
Lífshlaup Ástu Sigurðardóttir var
átakanlegt, en þessa sýningu skortir
tilfinnanlega átök. Nálgunin ein-
skorðast við að segja frá frekar en
að túlka og fátt nýtt kemur upp á
yfirborðið, í handriti sem þyrfti að
stytta. Áhorfendur kynnast auka-
persónum verksins lítið og leik-
arar sitja uppi með sýnishorn af
persónum frekar en heildstæðar
manneskjur. Sýningin er upp á
sitt besta þegar hún endurspeglar
skáldskap Ástu, frekar en að mata
áhorfendur með fróðleiksmolum
um líf hennar. n
NIÐURSTAÐA: Birgitta ber af
í hlutverki Ástu, en sýninguna
skortir dýpt.
Lifað í listinni og listin að lifa
Nálgunin einskorðast
við að segja frá frekar
en að túlka og fátt nýtt
kemur upp á yfir-
borðið.
Birgittu Birgis-
dóttur bregst
ekki bogalistin í
hlutverki Ástu.
MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Næstkomandi þriðjudag, 28. sept-
ember kl. 19.30 í Tíbrá, bjóða Guð-
rún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzó-
sópran og Francisco Javier Jáuregui
gítarleikari, til ferðalags um tón-
heim rithöfundarins, ljóð- og leik-
ritaskáldsins Federico Garcia Lorca.
Þau f lytja vinsælar útsetningar
Lorca á spænskum þjóðlögum í
bland við tónlist samtímamanna
hans. Að auki flytja þau útsetningar
Javiers á sönglögum úr sefardískri
hefð útlægra, spænskra gyðinga. n
Heimur Lorca
Guðrún Jóhanna söngkona.
Bílamerkingar
Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 777 2700 | xprent@xprent.is
Vel merktur bíll er besta auglýsingin.
Tökum að okkur allt frá litlum merkingum
að heilpökkuðum bílum.
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
54 Menning 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ