Fréttablaðið - 25.09.2021, Síða 104

Fréttablaðið - 25.09.2021, Síða 104
LEIKHÚS Ásta Þjóðleikhúsið- Kassinn Handrit og leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson Leikarar: Birgitta Birgisdóttir, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Gunnar Smári Jóhannesson, Oddur Júlíusson, Hákon Jóhannesson og Steinunn Arinbjarnardóttir Hljómsveit: Guðmundur Óskar Guðmundsson, Matthildur Hafliðadóttir, Rögnvaldur Borgþórsson og Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir Tónlist: Guðmundur Óskar Guðmundsson og Matthildur Hafliðadóttir Leikmynd: Sigríður Sunna Reynisdóttir Búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir og Sigurbjörg Stefánsdóttir Lýsing: Halldór Örn Óskarsson Myndbandshönnun: Steinar Júlíusson Sigríður Jónsdóttir „Stigaopið gein við mér kolsvart, til- búið að gleypa mig lifandi. Ég fann, að það hafði botn einhvers staðar langt niðri.“ – Svo skrifaði Ásta Sig- urðardóttir í Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns, sem kom út í tímaritinu Líf og list árið 1951. Ásta, frumsýnd í Þjóðleikhúsinu síðast- liðinn föstudag, er sýning byggð á lífshlaupi þessarar merkilegu lista- konu sem lauk alltof snemma, stiga- opið beið hennar og gleypti. Skissur úr lífi Ólafur Egill Egilsson leikstýrir og skrifar leikgerðina. Handritið skort- ir litbrigði og raunverulega dýpt, hér er of mikil áhersla lögð á fram- vindu, frekar en túlkun á atburðum. Aðstæður eru útskýrðar en ekki sviðsettar. Myndræn framsetning á Sunnudagskvöld til mánudags- morguns er eftirminnilegasta sena sýningarinnar og lýsandi dæmi um þá túlkunarmöguleika sem líf og list Ástu hefur að geyma. Einnig koma fram áhugaverðar hugmyndir um hvað er satt og hvað ekki; er eðli bæjarslúðursins öðruvísi heldur en afneitun einstaklingsins á eigin gjörðum? Ólafur er fær leikstjóri, en honum tekst ekki að brjótast frá eigin höfundarverki. Titilhlutverkið, Ásta Sigurðar- dóttir, er leikið af Birgittu Birgis- dóttur, en hún hefur verið á góðri siglingu síðustu misseri og bregst ekki bogalistin hérna. Í hennar túlkun er Ásta drifin áfram af sköp- unarkrafti og ástríðu, fyrir listinni og ástinni. Ögrandi nærvera hennar dregur til sín aðdáendur en flestir þeirra stoppa stutt við. Birgitta skil- ur að undir niðri kraumar rísandi örvænting og stjórnleysi, en nær ekki að koma lokaaugnablikunum nægilega vel til skila. Of margar aukapersónur ferðast um sviðið, manneskjur sem áhorf- endur fá sjaldan að kynnast af ein- hverri dýpt, heldur fremur í gegnum einstaka frasa. Persónur tala að auki í yfirlýsingum og útskýringum, sem gerir leikurunum ekki auðvelt fyrir. Aðalbjörg Árnadóttir sýnir öruggan leik í hlutverkum sínum, þá sérstak- lega sem Þóranna, móðir Ástu, og Stefán Hörður Grímsson. Oddur Júlíusson er eftirminnilegur sem atómskáldið Jónas Svafár, en fær ekki úr miklu að moða þess utan. Hákon Jóhannesson gerir sér mat úr Elíasi Mar og næmur leikur hans gerir Geir Kristjánsson að full- skapaðri persónu, fullum af hroka en líka sársauka. Gunnar Smári Jóhannesson japlar á hlutverki Steingríms Sigurðssonar, kannski af of miklum móð og Þorsteini frá Hamri kynnast áhorfendur sára- lítið. Steinunn Arinbjarnardóttir stígur hér sín fyrstu skref í Þjóðleik- húsinu og stendur sig með prýði, þá sérstaklega í hlutverki Oddnýjar, systur Ástu. Óreiða á striga Leikmynda- og búningahönnun er í höndum Sigríðar Sunnu Reynis- dóttur, en búningana vinnur hún með Sigurbjörgu Stefánsdóttur. Leikmyndin er eins og samansafn af hugarbrotum Ástu og nýtur sín vel í Kassanum, en verður stundum of þunglamaleg þegar leikararnir þurfa að færa hana til. Búningarnir eru áferðarfagrir, þá sérstaklega búningar Ástu sem eru hver öðrum glæsilegri, kannski of glæsilegir miðað við samfélagsstöðu hennar. Tónlistin er hljómþýð en textarnir eru teknir upp úr skáldskap Ástu. Hugmyndin er prýðisgóð en er samt ekki fundinn nægilega góður staður í sýningunni. Matthildur Hafliða- dóttir syngur laglega en hljómsveit- in stimplar sig ekki nægilega vel inn og túlkun á ljóðunum þyrfti að vera meira ögrandi, eins og konan sjálf. Lífshlaup Ástu Sigurðardóttir var átakanlegt, en þessa sýningu skortir tilfinnanlega átök. Nálgunin ein- skorðast við að segja frá frekar en að túlka og fátt nýtt kemur upp á yfirborðið, í handriti sem þyrfti að stytta. Áhorfendur kynnast auka- persónum verksins lítið og leik- arar sitja uppi með sýnishorn af persónum frekar en heildstæðar manneskjur. Sýningin er upp á sitt besta þegar hún endurspeglar skáldskap Ástu, frekar en að mata áhorfendur með fróðleiksmolum um líf hennar. n NIÐURSTAÐA: Birgitta ber af í hlutverki Ástu, en sýninguna skortir dýpt. Lifað í listinni og listin að lifa Nálgunin einskorðast við að segja frá frekar en að túlka og fátt nýtt kemur upp á yfir- borðið. Birgittu Birgis- dóttur bregst ekki bogalistin í hlutverki Ástu. MYND/AÐSEND kolbrunb@frettabladid.is Næstkomandi þriðjudag, 28. sept- ember kl. 19.30 í Tíbrá, bjóða Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzó- sópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari, til ferðalags um tón- heim rithöfundarins, ljóð- og leik- ritaskáldsins Federico Garcia Lorca. Þau f lytja vinsælar útsetningar Lorca á spænskum þjóðlögum í bland við tónlist samtímamanna hans. Að auki flytja þau útsetningar Javiers á sönglögum úr sefardískri hefð útlægra, spænskra gyðinga. n Heimur Lorca Guðrún Jóhanna söngkona. Bílamerkingar Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 777 2700 | xprent@xprent.is Vel merktur bíll er besta auglýsingin. Tökum að okkur allt frá litlum merkingum að heilpökkuðum bílum. Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is 54 Menning 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.