Morgunblaðið - 29.04.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Höskuldur Daði Magnússon
Ragnhildur Þrastardóttir
„Nýja fyrirkomulagið hefur gefist
afar vel og bólusetningin hefur geng-
ið eins og í sögu í dag,“ sagði Ragn-
heiður Ósk Erlendsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
þegar Morgunblaðið tók á henni
púlsinn um miðjan dag í gær. Um níu
þúsund manns voru boðaðir í bólu-
setningu við kórónuveirunni í Laug-
ardalshöll í gær og var það stærsti
bólusetningardagurinn frá upphafi.
Að sögn Ragnheiðar gekk bólusetn-
ingin hratt og örugglega fyrir sig
þrátt fyrir mikla fjölgun frá fyrri
bólusetningardögum. Um fimm þús-
und höfðu verið bólusettir á hádegi.
Ástæðulaust að vera hræddur
Einn þeirra sem voru bólusettir í
gær var Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir. Hann var bólusettur
með bóluefni AstraZeneca sem hefur
verið mikið í umræðunni undanfarið.
„Við erum búin að boða bara þá sem
við teljum að bóluefnið sé öruggt fyr-
ir og við munum gera það áfram.
Þetta bóluefni er öruggt og virkar
mjög vel, alveg jafn vel og hin bólu-
efnin,“ sagði hann. „Það á enginn að
vera sérstaklega hræddur við þetta
bóluefni og fólk á bara að gleðjast yf-
ir því að fá þessa bólusetningu,“
bætti hann við.
Svo skemmtilega vildi til að sami
hjúkrunarfræðingurinn, Anna Ólafs-
dóttir, bólusetti bæði Kára Stefáns-
son, forstjóra Íslenskrar erfðagrein-
ingar, og Þórólf Guðnason
sóttvarnalækni. „Ég verð að viður-
kenna að ég er svolítið stressuð,“
sagði Anna létt í bragði rétt áður en
hún bólusetti sóttvarnalækni í gær.
Enn stærri vika fram undan
Alls verða 26 þúsund skammtar af
bóluefni gefnir í vikunni á landinu
öllu, þar af fá 23 þúsund manns sinn
fyrri skammt. Um fjögur þúsund
skammtar af bóluefni bárust á Heil-
brigðisstofnun Norðurlands í þessari
viku.
Búast má við því að fleiri fái bólu-
setningar í Reykjavík í næstu viku
en þessari, eða um 20 þúsund manns.
Bóluefni Janssen verður að öllum
líkindum tekið í notkun í borginni í
næstu viku.
Alls hafa 34.492 einstaklingar ver-
ið fullbólusettir hér á landi eða 11,7%
landsmanna. Bólusetning er hafin
hjá 52.546 einstaklingum. Alls hafa
verið gefnir 121.530 skammtar af
bóluefni á Íslandi frá því bólusetning
hófst í lok desember.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sprauta Þórólfur Guðnason, sem staðið hefur í stafni baráttunnar, var einn þeirra sem bólusettir voru í gær.
Þórólfur fékk sprautu
á metdegi bólusetninga
- Um níu þúsund boðaðir í bólusetningu í Laugardalshöll
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Annríki Löng röð myndaðist þegar níu þúsund manns mættu í bólusetningu
í Höllinni í gær. Allt gekk þó hratt fyrir sig. Áfram verður bólusett í dag.
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
Marek Moszczynski var augljóslega
mjög veikur þegar geðlæknir reyndi
að ræða við hann daginn eftir elds-
voðann við Bræðraborgarstíg í
fyrrasumar. Þrír létust í brunanum.
„Hann talaði hátt og blótaði mikið.
Það var erfitt að ná nokkru sam-
hengi í það sem hann sagði. Hann
endurtók það sama aftur og aftur og
talaði í hringi,“ sagði einn geðlækn-
irinn um fyrsta fund hans og Mareks
daginn eftir brunann.
Þrír geðlæknar sögðu við aðal-
meðferð í gær að Marek hefði ekki
verið fær um að stjórna gjörðum sín-
um þegar eldsvoðinn varð. Hann er
ákærður fyrir brennu, manndráp og
tilraun til manndráps með því að
hafa kveikt í á þremur stöðum í hús-
inu. Marek neitar sök og er metinn
ósakhæfur samkvæmt yfirmati geð-
lækna.
Marek hafði verið veikur frá því í
byrjun maí og lést um tólf kíló. Hann
lá inni á Landspítala í nokkra daga
með magasár en um tíma var talið að
um krabbamein væri að ræða. Fyrir
dómi kom fram að Marek taldi veik-
indin ógna lífi sínu og komst ekki að
hinu sanna fyrr en eftir brunann.
Komst út við illan leik
„Ég veit ekki hvað gerðist eða
hvernig það gerðist því það sá það
enginn,“ sagði Wieslaw Papacz, íbúi
í húsinu. Hann var í Covid-
einangrun í gær og bar vitni í gegn-
um síma. Wieslaw sagði að hegðun
Mareks hefði verið skrítin áður en
eldurinn kom upp. Hann hefði labb-
að um ör og verið öðruvísi en áður.
Marek kom tvisvar inn til Wieslaws
og nágrannakonu þeirra, sagði eitt-
hvað og fór út.
„Ég var að horfa á sjónvarpið og
var á netinu og fór fyrir tilviljun
fram og var í sjokki að sjá á hvaða
stig eldurinn var kominn,“ sagði
Wieslaw. Hann fór fljótt aftur inn í
herbergi og vildi fara út um glugga
en glugginn var of lítill. Wieslaw sá
reykinn koma undir hurðina inn í
herbergi hans.
„Ég ákvað að fara í gegnum gang-
inn, setti sæng á mig og fór þá leið.
Það var erfitt að anda en ég náði að
komast út,“ sagði hann. Wieslaw
fékk brunasár á hendur, bak og víð-
ar.
Skýrslutökur halda áfram á föstu-
dag áður en munnlegur málflutn-
ingur fer fram.
Hinn ákærði
var augljóslega
mjög veikur
- Var ekki fær um að stjórna gerðum
sínum, að mati geðlækna - Neitar sök
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Héraðsdómur Lögmaður Mareks
færir honum vatn að drekka.
Níu greindust með kórónuveirusmit
innanlands í fyrradag. Sjö voru í
sóttkví en tveir utan sóttkvíar við
greiningu í fyrradag. Átta þeirra
greindust við einkennasýnatöku en
einn við sóttkvíarskimun. Í gær voru
183 í einangrun og 408 í sóttkví. Ekki
hafði fjölgað á sjúkrahúsi en þar
voru fjórir líkt og í fyrradag.
Á Suðurlandi hafði fjölgað um sex
með staðfest smit. Í fyrradag voru
þar 23 í einangrun en voru orðnir 29
talsins í gær.
Alls voru tekin 1.864 sýni innan-
lands í fyrradag og 493 á landamær-
unum.
Einn þeirra sem greindust smit-
aðir af Covid-19 í fyrradag býr í
Hrunamannahreppi. Í ljósi þess að
viðkomandi á barn í grunnskólanum
á Flúðum var ákveðið, til að gæta
ýtrustu varkárni, að 4. og 5. bekkur
skólans og kennarar tengdir þeim
yrðu heima í gær. Nemandinn var
einkennalaus og fór í sýnatöku í gær.
Nemendurnir í Flúðaskóla sem
sendir voru heim voru fimmtán og
kennararnir fimm.
Kórónuveirusmitum
fjölgaði á Suðurlandi