Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 11
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Skipholti 29b • S. 551 4422
GARDEUR - GERRY WEBER - BUXNAÚRVAL
Skoðið
laxdal.is
TRAUST
Í 80 ÁR
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
Blússa
kr. 6.990.-
Str. S-XXL
Peysa
kr. 10.900.-
Fleiri litir
Str. S-XXXL
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Flott föt, fyrir flottar konur
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
FLOTTIR STRIGASKÓR
Sameyki, stéttarfélag í almanna-
þjónustu, hefur samþykkt ályktun
þar sem mótmælt er harðlega
hvernig ríkisstjórnin hafi fjársvelt
hjúkrunarheimili fyrir aldraða með
þeim hætti, að daggjöldin sem
stjórnvöld skammta rekstrinum
duga engan veginn til að standa
straum af kostnaði sem hlýst af lög-
bundnu hlutverki þeirra.
„Með síðustu ákvörðunum stjórn-
valda er tilgangurinn augljós, að
koma rekstri hjúkrunarheimila úr
umsjá ríkisins í hendur einkaaðila.
Eldri borgarar á Íslandi eiga rétt
á þessari þjónustu samkvæmt ís-
lenskum lögum. Það er skömm að
því hvernig stjórnvöld hafa ekki
sinnt hlutverki sínu, að veita nægu
fjármagni til hjúkrunarheimilanna.
Þess í stað hefur ríkisvaldið velt
ábyrgðinni yfir á sveitarfélögin án
þess að með fylgi nægilegt fjár-
magn, sem leitt hefur af sér veru-
legan aukakostnað fyrir þau,“ segir
m.a. í ályktuninni.
Mótmæla einka-
væðingu hjúkr-
unarheimila
Margir samfögnuðu Þórði Tóm-
assyni, rithöfundi og fyrrverandi
safnverði Byggðasafnsins í Skógum
undir Eyjafjöllum, sem varð 100
ára ára í gær, 28. apríl. Á tímamót-
unum færði Lilja Einarsdóttir,
sveitarstjóri Rangárþings eystra,
Þórði virðingarvott fyrir ómetan-
legt framlag hans til menningar í
sveitarfélaginu í áratugi.
Þórður hafði veg og vanda af
uppbyggingu þessa stærsta
byggðasafns á Íslandi, sem hefur
notið gríðarlegra vinsælda meðal
innlendra sem erlendra gesta í ára-
raðir og er ekkert lát þar á. Þórður
tók persónulega á móti gestum
byggðasafnsins með orgelspili,
söng og sagnalist í áraraðir.
Hann hefur einnig verið afar öt-
ull í útgáfumálum í gegnum árin og
skrifað fjölda bóka um þjóðhætti,
minja- og safnamál. Nú í tilefni ald-
arafmælis síns sendir hann frá sér
bókina Stóraborg, staður mannlífs
og menningar og er sögusvið henn-
ar undir Eyjafjöllum.
Virðingarvottur við
Þórð í Skógum
Ljósmynd/Rangárþing eystra
100 Lilja Einarsdóttir sveitarstjóri
og Þórður Tómasson í Skógum.
Sportveiðiblaðið,
fyrsta tölublað
ársins, er komið
út. Meðal efnis í
blaðinu er viðtal
við knattspyrnu-
manninn Gylfa
Þór Sigurðsson
sem er sagður
hafa veiðidellu á
háu stigi en fyrst renndi hann fyrir
fisk í Læknum í Hafnarfirði þegar
hann var drengur.
Af öðru efni má nefna viðtal við
Þóri Hergeirsson, landsliðsþjálfara
norska kvennaliðsins í handbolta,
sem byrjaði að renna fyrir fisk í ná-
grenni Selfoss en veiðir nú aðallega
í norskum laxveiðiám. Þá er fjallað
um metsumarið á síðasta ári í
Eystri-Rangá en þá veiddust 9.070
laxar í ánni.
Ritstjóri Sportveiðiblaðsins sem
fyrr er Gunnar Bender.
Gylfi á forsíðu
Sportveiðiblaðsins