Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Hótel um land allt Stöðvar um land allt
Notaðir bílar
Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. *Forsendur: 7 ára lán hjá Lykli með 50% útborgun. Sjá nánari upplýsingar um kaupauka á notadir.benni.is
SsangYongKorandoDlx ‘16, sjálfskiptur,
ekinn 85þús. km. Verð: 1.990.000 kr.
NissanX-trail Tekna ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 53þús. km. Verð: 4.990.000 kr.
SsangYongRextonDlx ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 60þús. km. Verð: 5.490.000 kr.
Toyota YarisHybrid Y20 ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 21þús. km. Verð: 2.690.000 kr.
OpelMokkaX Innovation ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 71þús. km. Verð: 3.390.000 kr.
Greiðsla á mánuði: 39.137 kr.* Greiðsla á mánuði: 24.226 kr.* Greiðsla á mánuði: 19.255 kr.*
4X4
4X4
4X4
Greiðsla á mánuði: 14.285 kr.* Greiðsla á mánuði: 35.587 kr.*
590928
446516
446848 800036
446403
Kaupauki með völdum notuðum bílum
Sjö nætur á Fosshotel Eldsneytiskort Óvæntur ferðag
laðningur
Að verðmæti allt að 210.000 kr. Að verðmæti 50.000 kr. Dregið út
vikulega
Bílabúð Benna gefur þér tækifæri til að kynnast Íslandi betur í sumar og styðja við íslenska ferðaþjónustu í leiðinni, meðglæsilegum kaupauka s
em fylgirmeð völdu
m notuðum bí
lum.
ÍSLAND VILL SJÁ ÞIG Í SUMAR
4X4
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g er fædd hér hinum
megin við götuna, í svefn-
herbergi sem er yfir bak-
aríinu. Ég ólst upp hjá afa
mínum og ömmu, en amma hataði
ketti, hún var ekkert hrifin af dýrum
almennt,“ segir Herdís Storgaard
þar sem hún bendir út um gluggann
á íbúð sinni við Hringbraut, en að
eigin sögn er hún ólæknandi katta-
kona.
„Þegar ég var átta ára fór ég í
sveit að Eiðum þar sem ég átti að líta
eftir litla frænda mínum, en ég var
alltaf komin út í fjós og innan um
dýrin, því mér fannst ekkert
skemmtilegra. Þegar ég bjó seinna í
Danmörku eignaðist ég minn fyrsta
kött. Þá varð ekki aftur snúið,“ segir
Herdís sem býr núna með kettinum
Olla en hann verður 18 ára 22. maí
næstkomandi.
„Olli kom inn í líf mitt af því ég
átti svo erfitt með að vera kattarlaus
eftir að Jordan drapst. Jordan var
köttur sem ég fékk frá Kattholti,
hann var sá eini meðal margra katta
þar sem gerði sig til fyrir mig og
reyndi að ná athygli minni. Hann lét
skýrt í ljós að hann vildi fara heim
með mér. Jordan var rosalega fal-
legur köttur og Brian Pilkington
teiknari hefur gert hann ódauðlegan
því hann fékk hann lánaðan til að
nota hann sem módel í bók um ís-
lensku dýrin.“
Kötturinn stundaði barina
Herdís segir að Jordan hafi ver-
ið til þó nokkurra vandræða, því hann
gerði sig víða heimakominn.
„Hann var alltaf á þvælingi, fór
inn í Háskólabíó, Hótel Sögu og út
um allt. Ég hljóp hér um allt hverfið
að sækja hann hingað og þangað,
jafnvel um miðjar nætur. Þegar for-
seti Írlands kom hingað mætti Jord-
an þar í móttökuna. Hann var svo
mikil félagsvera og fór líka mikið á
barina í miðbænum. Vinkona mín,
sem er í andlegum málefnum, hélt því
fram að það væri einhver að drekka í
gegnum hann,“ segir Herdís og hlær.
„Ég var mjög hrædd um að ein-
hver gerði honum mein þegar hann
var á djamminu í miðbænum, en
hann lenti aldrei í neinu slíku.
Vegna þessa flækings á honum þá
endaði þetta illa, ég var vakin um
miðja nótt þegar maður bankaði hér
upp á sem hafði séð þegar keyrt var
á Jordan. Honum hafði tekist að
skríða hér yfir Hringbrautina og
hann lá við Grund, hryggbrotinn.
Það varð að aflífa hann. Ég var al-
veg miður mín, því ég hafði átt kött
á undan Jordan sem ég missti líka
undir bíl og þá var ég harðákveðin í
að eiga aldrei kött hér ofan í um-
ferðarþungri Hringbrautinni. Ég
gat bara ekki staðist það að taka að
mér kött þegar vinafólk mitt keypti
hús í Hafnarfirði sem fylgdi köttur
fyrri eiganda. Börnin voru með of-
næmi svo ég tók kisa að mér. Því
miður var keyrt á hann við Brávalla-
götu. Ég var friðlaus að fá mér ann-
an kött og þannig kom Jordan inn í
líf mitt. Hann bjó hér hjá mér í tíu
ár. Það var sama sagan; ég þrjósk-
aðist við og ætlaði ekki að fá mér
annan kött. Þegar vinnufélagi minn
auglýsti eftir eiganda fyrir Olla, sem
var einn þriggja kettlinga sem læð-
an hans hafði eignast og gekk ekki
út, þá tók ég hann að mér. Læð-
urnar systur hans voru kelnar en
enginn vildi fressið Olla, því hann
var alltaf í felum og mjög ófélags-
lyndur. Hann lóðar við að vera ein-
hverfur.“
Olli eignaðist kærustu
Herdís segir að Olli hafi ekki
verið kelinn köttur, en þó hafi það
skánað með hækkandi aldri.
„Fyrstu fjögur árin var hann
ekkert hrifinn af því að búa hér, en
svo ákvað hann að gefa sig að lok-
um. Hann er svo mikið músarhjarta,
hann er hræddur við öll hljóð og er
fyrir vikið ekkert að þvælast út um
allt. Hann hefur aldrei farið út að
framanverðu þar sem Hringbraut-
arumferðin er, heldur aðeins út í
bakgarðinn og hættir sér örlítið út
fyrir lóðarmörk. Um leið og hann
heyrir hljóð kemur hann til baka.
Fyrir vikið er hann enn á lífi, því hér
hefur verið keyrt yfir mjög marga
ketti.“ Kattaheimurinn er skemmti-
legur og Olli tileinkaði sér sam-
félagsmiðlana, hann stofnaði sína
eigin síðu á facebook og eignaðist
fljótt gríðarlegan fjölda vina bæði
hér heima og úti um allan heim.
„Hann eignaðist einstaklega
góða vinkonu, eiginlega unnustu,
læðuna Jósefínu Dietrich á Akra-
nesi. Hún var eðalborin og fræg fyr-
ir að vera hagmælt, hún hefur gefið
út ljóðabók sem við fengum áritaða í
pósti frá frökeninni. Vinátta þeirra
Olla hófst á því að Jósefína fékk ekki
einn tiltekinn ost og Olli ákvað að
senda henni slíkan ost í pósti. Þann-
ig urðu þau perluvinir. Olli er ekki
með bílpróf og gat ekki heimsótt
fröken sína, hann reyndi að verða
svo hugrakkur að þora að fara með
strætó á Akranes, en af því varð
ekki, því Olli er ekki hugrakkur.
Enda þurfa ekki allir að vera hug-
rakkir,“ segir Herdís og bætir við að
Olli stjórni á heimilinu.
„Hann rekur mig hiklaust í
rúmið ef honum finnst ég vaka of
lengi fram eftir.“
Kanill er góður með sig
Herdís segir að Olli sé svo blíð-
ur og góður að hann hafi aldrei veitt
fugl.
„Það er stórkostlegt að sjá
hvernig svartþrastaparið sem held-
ur til hér í garðinum treystir Olla.
Þegar hann liggur þar í sólbaði
heyri ég fuglana aldrei skríkja til
varnaðar, þeir éta rétt við nefið á
honum. En þegar ég heyri varúðar-
skræki fuglanna veit ég að kötturinn
Kanill er mættur út í garð. Hann
býr hér í næsta húsi og er mjög
skemmtilegur, en hann má ekki vita
það, því hann er fljótur að ganga á
lagið og ofmetnast. Kanill er fylginn
sér og hann hefur áttað sig á að það
er miklu betri matur hér en heima
hjá honum. Hann sætir lagi að koma
hingað inn og éta matinn hans Olla.
Hann hreiðrar stundum um sig og
leggur sig hér í íbúðinni, hann er
hálfvegis fluttur inn. Olli segir ekk-
ert við þessu, af því hann er yngri.
Þegar Olli hittir aðra ketti í hverfinu
sem eru jafnaldrar eða yngri, þá eru
slagsmál. Nýlega lenti hann í svo
hörðum slagsmálum að ég þurfti að
fara með hann til læknis. Hann ver
sitt svæði,“ segir Herdís og bætir
við að Olli sé að mörgu leyti afar
sérstakur.
„Hann hefur mjög hvell hljóð
og þegar hann mjálmar er það ekki
ólíkt mjálmi síamskatta. Hann segir
„æi“ þegar ég set hann í búrið til að
fara til dýralæknis, honum er óskap-
lega illa við það.“
Herdís segist ekki vita hvort
hún treysti sér til að taka annan kött
eftir lífdaga Olla.
„Ég starfa í útlöndum og þarf
mikið að láta passa hann. Reyndar
er ég með tvo eðalkattapassara;
annars vegar vinkonu mína sem er
að verða áttræð og hins vegar ní-
ræðan mann sem býr hér uppi á
lofti. Þetta er samt svo mikið álag og
mig langar að ferðast mikið. Olli er
hraustur og hann getur átt nokkur
góð ár í viðbót. Kettir ná háum aldri
ef þeir eru við góða heilsu. Ég man
eftir tveimur læðum sem Katrín
Fjeldsted átti; önnur varð 21 árs en
hin 20 ára. Þær sátu alltaf á grind-
verkinu við Hólatorg á morgnana í
von um klapp frá vegfarendum á leið
til vinnu.“
Spjallar við alla kettina í hverfinu
Hún er ólæknandi kattakona og þeir eru orðnir
nokkrir kettirnir í lífi hennar. Herdís Storgaard býr
með 18 ára einhverfum ketti sem er með slíkt mús-
arhjarta að fuglar hræðast hann ekki einu sinni.
Ljósmynd/Sebastían Storgaard
Herdís og Olli Kötturinn er ekkert gefinn fyrir annað fólk en Herdísi.
Jordan Teikning Brians Pilkingtons
af Jordan, barflugunni félagslyndu.