Morgunblaðið - 29.04.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 29.04.2021, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 Hótel um land allt Stöðvar um land allt Notaðir bílar Meira úrval á notadir.benni.is Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. *Forsendur: 7 ára lán hjá Lykli með 50% útborgun. Sjá nánari upplýsingar um kaupauka á notadir.benni.is SsangYongKorandoDlx ‘16, sjálfskiptur, ekinn 85þús. km. Verð: 1.990.000 kr. NissanX-trail Tekna ‘19, sjálfskiptur, ekinn 53þús. km. Verð: 4.990.000 kr. SsangYongRextonDlx ‘19, sjálfskiptur, ekinn 60þús. km. Verð: 5.490.000 kr. Toyota YarisHybrid Y20 ‘19, sjálfskiptur, ekinn 21þús. km. Verð: 2.690.000 kr. OpelMokkaX Innovation ‘18, sjálfskiptur, ekinn 71þús. km. Verð: 3.390.000 kr. Greiðsla á mánuði: 39.137 kr.* Greiðsla á mánuði: 24.226 kr.* Greiðsla á mánuði: 19.255 kr.* 4X4 4X4 4X4 Greiðsla á mánuði: 14.285 kr.* Greiðsla á mánuði: 35.587 kr.* 590928 446516 446848 800036 446403 Kaupauki með völdum notuðum bílum Sjö nætur á Fosshotel Eldsneytiskort Óvæntur ferðag laðningur Að verðmæti allt að 210.000 kr. Að verðmæti 50.000 kr. Dregið út vikulega Bílabúð Benna gefur þér tækifæri til að kynnast Íslandi betur í sumar og styðja við íslenska ferðaþjónustu í leiðinni, meðglæsilegum kaupauka s em fylgirmeð völdu m notuðum bí lum. ÍSLAND VILL SJÁ ÞIG Í SUMAR 4X4 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g er fædd hér hinum megin við götuna, í svefn- herbergi sem er yfir bak- aríinu. Ég ólst upp hjá afa mínum og ömmu, en amma hataði ketti, hún var ekkert hrifin af dýrum almennt,“ segir Herdís Storgaard þar sem hún bendir út um gluggann á íbúð sinni við Hringbraut, en að eigin sögn er hún ólæknandi katta- kona. „Þegar ég var átta ára fór ég í sveit að Eiðum þar sem ég átti að líta eftir litla frænda mínum, en ég var alltaf komin út í fjós og innan um dýrin, því mér fannst ekkert skemmtilegra. Þegar ég bjó seinna í Danmörku eignaðist ég minn fyrsta kött. Þá varð ekki aftur snúið,“ segir Herdís sem býr núna með kettinum Olla en hann verður 18 ára 22. maí næstkomandi. „Olli kom inn í líf mitt af því ég átti svo erfitt með að vera kattarlaus eftir að Jordan drapst. Jordan var köttur sem ég fékk frá Kattholti, hann var sá eini meðal margra katta þar sem gerði sig til fyrir mig og reyndi að ná athygli minni. Hann lét skýrt í ljós að hann vildi fara heim með mér. Jordan var rosalega fal- legur köttur og Brian Pilkington teiknari hefur gert hann ódauðlegan því hann fékk hann lánaðan til að nota hann sem módel í bók um ís- lensku dýrin.“ Kötturinn stundaði barina Herdís segir að Jordan hafi ver- ið til þó nokkurra vandræða, því hann gerði sig víða heimakominn. „Hann var alltaf á þvælingi, fór inn í Háskólabíó, Hótel Sögu og út um allt. Ég hljóp hér um allt hverfið að sækja hann hingað og þangað, jafnvel um miðjar nætur. Þegar for- seti Írlands kom hingað mætti Jord- an þar í móttökuna. Hann var svo mikil félagsvera og fór líka mikið á barina í miðbænum. Vinkona mín, sem er í andlegum málefnum, hélt því fram að það væri einhver að drekka í gegnum hann,“ segir Herdís og hlær. „Ég var mjög hrædd um að ein- hver gerði honum mein þegar hann var á djamminu í miðbænum, en hann lenti aldrei í neinu slíku. Vegna þessa flækings á honum þá endaði þetta illa, ég var vakin um miðja nótt þegar maður bankaði hér upp á sem hafði séð þegar keyrt var á Jordan. Honum hafði tekist að skríða hér yfir Hringbrautina og hann lá við Grund, hryggbrotinn. Það varð að aflífa hann. Ég var al- veg miður mín, því ég hafði átt kött á undan Jordan sem ég missti líka undir bíl og þá var ég harðákveðin í að eiga aldrei kött hér ofan í um- ferðarþungri Hringbrautinni. Ég gat bara ekki staðist það að taka að mér kött þegar vinafólk mitt keypti hús í Hafnarfirði sem fylgdi köttur fyrri eiganda. Börnin voru með of- næmi svo ég tók kisa að mér. Því miður var keyrt á hann við Brávalla- götu. Ég var friðlaus að fá mér ann- an kött og þannig kom Jordan inn í líf mitt. Hann bjó hér hjá mér í tíu ár. Það var sama sagan; ég þrjósk- aðist við og ætlaði ekki að fá mér annan kött. Þegar vinnufélagi minn auglýsti eftir eiganda fyrir Olla, sem var einn þriggja kettlinga sem læð- an hans hafði eignast og gekk ekki út, þá tók ég hann að mér. Læð- urnar systur hans voru kelnar en enginn vildi fressið Olla, því hann var alltaf í felum og mjög ófélags- lyndur. Hann lóðar við að vera ein- hverfur.“ Olli eignaðist kærustu Herdís segir að Olli hafi ekki verið kelinn köttur, en þó hafi það skánað með hækkandi aldri. „Fyrstu fjögur árin var hann ekkert hrifinn af því að búa hér, en svo ákvað hann að gefa sig að lok- um. Hann er svo mikið músarhjarta, hann er hræddur við öll hljóð og er fyrir vikið ekkert að þvælast út um allt. Hann hefur aldrei farið út að framanverðu þar sem Hringbraut- arumferðin er, heldur aðeins út í bakgarðinn og hættir sér örlítið út fyrir lóðarmörk. Um leið og hann heyrir hljóð kemur hann til baka. Fyrir vikið er hann enn á lífi, því hér hefur verið keyrt yfir mjög marga ketti.“ Kattaheimurinn er skemmti- legur og Olli tileinkaði sér sam- félagsmiðlana, hann stofnaði sína eigin síðu á facebook og eignaðist fljótt gríðarlegan fjölda vina bæði hér heima og úti um allan heim. „Hann eignaðist einstaklega góða vinkonu, eiginlega unnustu, læðuna Jósefínu Dietrich á Akra- nesi. Hún var eðalborin og fræg fyr- ir að vera hagmælt, hún hefur gefið út ljóðabók sem við fengum áritaða í pósti frá frökeninni. Vinátta þeirra Olla hófst á því að Jósefína fékk ekki einn tiltekinn ost og Olli ákvað að senda henni slíkan ost í pósti. Þann- ig urðu þau perluvinir. Olli er ekki með bílpróf og gat ekki heimsótt fröken sína, hann reyndi að verða svo hugrakkur að þora að fara með strætó á Akranes, en af því varð ekki, því Olli er ekki hugrakkur. Enda þurfa ekki allir að vera hug- rakkir,“ segir Herdís og bætir við að Olli stjórni á heimilinu. „Hann rekur mig hiklaust í rúmið ef honum finnst ég vaka of lengi fram eftir.“ Kanill er góður með sig Herdís segir að Olli sé svo blíð- ur og góður að hann hafi aldrei veitt fugl. „Það er stórkostlegt að sjá hvernig svartþrastaparið sem held- ur til hér í garðinum treystir Olla. Þegar hann liggur þar í sólbaði heyri ég fuglana aldrei skríkja til varnaðar, þeir éta rétt við nefið á honum. En þegar ég heyri varúðar- skræki fuglanna veit ég að kötturinn Kanill er mættur út í garð. Hann býr hér í næsta húsi og er mjög skemmtilegur, en hann má ekki vita það, því hann er fljótur að ganga á lagið og ofmetnast. Kanill er fylginn sér og hann hefur áttað sig á að það er miklu betri matur hér en heima hjá honum. Hann sætir lagi að koma hingað inn og éta matinn hans Olla. Hann hreiðrar stundum um sig og leggur sig hér í íbúðinni, hann er hálfvegis fluttur inn. Olli segir ekk- ert við þessu, af því hann er yngri. Þegar Olli hittir aðra ketti í hverfinu sem eru jafnaldrar eða yngri, þá eru slagsmál. Nýlega lenti hann í svo hörðum slagsmálum að ég þurfti að fara með hann til læknis. Hann ver sitt svæði,“ segir Herdís og bætir við að Olli sé að mörgu leyti afar sérstakur. „Hann hefur mjög hvell hljóð og þegar hann mjálmar er það ekki ólíkt mjálmi síamskatta. Hann segir „æi“ þegar ég set hann í búrið til að fara til dýralæknis, honum er óskap- lega illa við það.“ Herdís segist ekki vita hvort hún treysti sér til að taka annan kött eftir lífdaga Olla. „Ég starfa í útlöndum og þarf mikið að láta passa hann. Reyndar er ég með tvo eðalkattapassara; annars vegar vinkonu mína sem er að verða áttræð og hins vegar ní- ræðan mann sem býr hér uppi á lofti. Þetta er samt svo mikið álag og mig langar að ferðast mikið. Olli er hraustur og hann getur átt nokkur góð ár í viðbót. Kettir ná háum aldri ef þeir eru við góða heilsu. Ég man eftir tveimur læðum sem Katrín Fjeldsted átti; önnur varð 21 árs en hin 20 ára. Þær sátu alltaf á grind- verkinu við Hólatorg á morgnana í von um klapp frá vegfarendum á leið til vinnu.“ Spjallar við alla kettina í hverfinu Hún er ólæknandi kattakona og þeir eru orðnir nokkrir kettirnir í lífi hennar. Herdís Storgaard býr með 18 ára einhverfum ketti sem er með slíkt mús- arhjarta að fuglar hræðast hann ekki einu sinni. Ljósmynd/Sebastían Storgaard Herdís og Olli Kötturinn er ekkert gefinn fyrir annað fólk en Herdísi. Jordan Teikning Brians Pilkingtons af Jordan, barflugunni félagslyndu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.