Morgunblaðið - 29.04.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
um haustið og einmitt þá, í október,
hefjast kjaraviðræður á almennum
og opinberum markaði og það var
hálf-útópískt ástand að hefja kjara-
viðræður í húsnæði ríkissáttasemj-
ara sem þá var fullt af mönnum í
teinóttum jakkafötum frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum og hinum og
þessum öðrum sem voru komnir til
að bjarga því sem bjargað varð,“
rifjar Snorri upp.
„Hér varð hrun“
Málið var að sögn Snorra einfalt,
einn alversti tími Íslandssögunnar
til að standa í kjarasamningum var
upp runninn og minna en ekkert
svigrúm til launahækkana í þjóð-
félaginu. „„Hér varð hrun“ var setn-
ing sem heyrðist í samningum allt til
ársins 2015,“ segir Snorri. „Við náð-
um þó með herkjum að halda því
sem við höfðum og aðeins að bæta í.
Þó að sá árangur sem náðist þarna
hafi ekki verið stór var hann mjög
góður miðað við ástandið í samfélag-
inu. Þarna stóð til að taka af okkur
hluta þeirra launa sem við vorum að
fá greidd aukalega, sem voru í þessu
sérstaka álagi sem við vorum með,“
segir formaðurinn.
LL vann varnarsigur í viðræðun-
um haustið 2008, en björninn var
langt í frá unninn, viðræðurnar
héldu áfram árin 2009, 2010 og allt
til 2015. „Þarna var bara framlengt
um ár í senn því enginn vissi hver
staðan yrði að ári liðnu og tvisvar á
þessu tímabili fórum við með okkar
mál fyrir þennan gerðardóm sem, að
okkur fannst, gerði ekkert fyrir okk-
ur, við fengum bara þá samninga
sem voru á borðinu og lítið til við-
bótar, þó nokkru meira í seinni gerð-
ardómnum en við höfðum búist við,“
rifjar Snorri upp.
Háskólastigið mikil framför
Talið berst frá hinum eilífa vígvelli
samningaborðsins að lögreglunámi á
háskólastigi sem varð að raunveru-
leika norðan heiða, við Háskólann á
Akureyri, árið 2016 og það eftir
vægast sagt langt þóf þar sem
Snorri bendir á að lesa megi greinar
í Lögreglumanninum, tímariti lands-
sambandsins, allt aftur til 1970, sem
fjalli um íslensk lögreglufræði á há-
skólastigi.
„Það var einmitt líka á þessu ör-
lagaríka ári, 2008, sem lands-
sambandið setti fram formlega
kröfu til stjórnvalda um að þetta
skref yrði tekið og það er svo árið
2016 sem Ólöf heitin Nordal [þáver-
andi innanríkisráðherra] tekur þá
ákvörðun um sumarið, að þessi leið
skuli farin, eftir að tveir starfshópar
hafa skilað af sér miklum og góðum
skýrslum um þetta mál,“ segir
Snorri.
Fyrirvari á færslu námsins upp á
háskólastig hafi þó verið býsna
knappur, að mati Snorra, lands-
sambandið hafi séð fyrir sér að lög-
regluskólinn yrði keyrður áfram að
minnsta kosti tvo árganga samhliða
því að námi á háskólastigi yrði komið
á.
„Nú er nýlega komin út skýrsla
alþjóðlegs aðila sem gerir úttekt á
háskólanámi og hún er frekar nei-
kvæð í garð þessa náms og utanum-
halds um það, eins og það fór af stað.
Þetta táknar ekki að þarna séu á
ferð einhverjir vankantar sem ekki
er hægt að sníða af og ég tek það
skýrt fram, að það var gríðarleg
framför að fá lögreglunámið upp á
háskólastig og er mál sem hefur
lengi legið á stéttinni,“ segir Snorri.
Staða fjarnáms sterk við HA
Bætir hann því við að auðvitað
komi það misvel út fyrir nemendur,
sem búsettir eru annars staðar á
landinu, að þurfa að sækja stað-
bundnar lotur til Akureyrar, en það
gildi þó um flest háskólanám, hvar
sem skólinn er staðsettur, að nem-
endur þurfi að hliðra til á ýmsan hátt
í lífi sínu til að koma því að. Í þessum
efnum hafi enn fremur haft mjög
mikið að segja hve þróun fjarnáms
hafi verið komin langt við Háskólann
á Akureyri þegar lögreglunám þar
var að hefjast.
„Við horfðum á það líka að þetta
gæti orðið til þess að einstaklingar
sem byggju utan suðvesturhornsins
sæktu þetta nám og þar með væri
orðið auðveldara fyrir minni lög-
regluliðin á landinu að ráða til sín
fólk. Nú er svo sem ekki búið að gera
neinar faglegar úttektir á því hvort
þetta markmið hafi náðst að öllu
leyti, en að einhverju leyti hefur það
náðst,“ segir Snorri, vongóður um
framtíð íslensks lögreglunáms á há-
skólastigi.
Lögregla í skugga faraldurs
Undir lokin er freistandi að spyrja
formanninn fráfarandi þess hvað nú
taki við hjá honum, vel rúmlega ára-
tugar starfi við réttinda- og kjara-
mál íslenskra lögreglumanna er
senn lokið og gjörólíkur vettvangur
hlýtur að vera fyrir stafni.
„Ég hef í sjálfu sér ekki tekið
neina formlega ákvörðun um það
enn sem komið er, en staðan er sú,
að á sínum tíma gerði ég samning
við þáverandi lögreglustjóra, Stefán
Eiríksson, um að ég sinnti þessum
störfum, sem ég nú er að hverfa frá,
í launalausu leyfi frá minni stöðu hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þannig að staða mín er væntanlega
til þótt ég geri fastlega ráð fyrir að
einhver annar sé að sinna henni í
dag. Nú þarf ég bara að ræða við
sitjandi lögreglustjóra og athuga
hver staðan er og hvort hún vill yfir
höfuð fá mig aftur. Ég er að verða
atvinnulaus eins og staðan er í dag,“
segir Snorri og hlær við.
Fyrst ætli hann þó að taka sér
sumarleyfi og velta stöðunni fyrir
sér, erfitt tímabil er að baki hjá
Landssambandi lögreglumanna eins
og flestum öðrum í kórónuveiruf-
araldrinum sem nú hefur verið sem
myllusteinn um háls heimsbyggð-
arinnar vel á annað ár.
„Lögreglustöðvar voru hólfaðar
niður út og suður og enginn sam-
gangur á milli þeirra. Öll samskipti
við fólk hafa líka bara orðið þyngri,
allir útataðir í grímum og svo þessi
áhætta, þar til búið var að sprauta
allt liðið, að fólk smitaðist af Covid í
útköllum sem var að gerast hjá okk-
ur, lögreglumenn misstu af fæð-
ingum barna sinna og skírnum og
fleiru af því að þeir voru í sóttkví og
svo framvegis. Þetta hefur bara ver-
ið gríðarlega erfitt eins og hjá öllum,
en við sjáum nú vonandi fram á
bjartari tíma núna.“
Antíkhúsgögn og mótorhjól
Sjálfur hefur Snorri að nógu að
hverfa í því fríi sem hann tekur sér
nú. Hann er með góða aðstöðu til að
sinna smíðinni heima við og hefur
verið að dunda sér við að aðstoða
vini og vandamenn við að gera upp
antíkhúsgögn auk þess sem hann
hefur verið að smíða sólpall við hús-
ið, framkvæmd sem nú fær byr und-
ir báða vængi með rísandi sól og frí-
tíma.
„Ég hef líka verið að fljúga fjar-
stýrðum flugmódelum og fer í veiði
árlega með góðu fólki upp á Arnar-
vatnsheiði og stefnir í þá ferð núna í
júní. Svo á ég mótorhjól sem ég er að
gera upp inni í skúr svo mig vantar
ekki verkefnin, aðallega að mig vanti
lengri sólarhring,“ segir Snorri
Magnússon að lokum, fráfarandi for-
maður Landssambands lögreglu-
manna eftir þrettán ár á þeim vett-
vangi.
„Ég er að verða atvinnulaus“
- Við stjórnvölinn hjá LL í þrettán ár - Margs að minnast úr fremstu víglínu fjölmenns stéttarfélags
- Tekist á um kjörin í miðju bankahruni - Torsótt barátta fyrir réttindum lögreglu eilífðarverkefni
Lokavikan Óhætt er að segja að Snorri Magnússon hafi marga fjöruna sopið síðustu 13 ár, en nú er mál að linni.
VIÐTAL
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Snorri Magnússon víkur úr for-
mannssæti Landssambands lög-
reglumanna nú í vikunni eftir þrett-
án ára setu, allar götur frá
hrunárinu eftirminnilega 2008 hefur
hann staðið í fremstu víglínu kjara-
og réttindamála íslenskra lögreglu-
manna og háð þar marga hildina,
setið þrotlausa fundi um kjarasamn-
inga, þar sem sigrar hafa unnist en
fórnir jafnframt verið færðar, séð
gamla lögregluskólann verða að há-
skólanámi á Akureyri og horft upp á
meira en nóg af kórónuhremmingum
þar sem lögreglumenn misstu af
fæðingum og skírnum barna sinna
auk þess að búa við eilífa smithættu í
útköllum þar til búið var að sprauta
allt liðið.
„Formlega hætti ég á morgun,“
segir Snorri í þessu samtali sem fór
fram í hádeginu á mánudaginn. „Þá
verður haldið rafrænt þing til að af-
greiða þessi formsatriði svo stjórn-
arskipti geti farið fram með eðlileg-
um hætti og svo er ég að hnýta
einhverja enda út vikuna,“ bætir for-
maðurinn fráfarandi við og þar með
tekur nýr maður sér stöðu í brúnni,
Fjölnir Sæmundsson.
Snorri hóf störf í lögreglunni í
nóvember 1984, hann á ættir að
rekja vestur á firði, austur undir
Eyjafjöll og í Biskupstungur, alinn
upp í Vesturbænum, miðbænum og
Breiðholtinu í Reykjavík, búsettur á
Seltjarnarnesi mest ævinnar, en
flutti aftur til Reykjavíkur árið 2014.
Húsasmiður og lögreglumaður að
mennt, þriggja barna faðir, kvæntur
Hafdísi Jónu Gunnarsdóttur, starfs-
manni hjá Hertz-bílaleigunni á Ís-
landi.
AGS-menn í teinóttum
Eðlilega er margs að minnast úr
víglínu fjölmenns stéttarfélags á
rúmum áratug þar sem Snorri
gegndi í fyrstu formannsstöðu, sem
hann var kosinn í, en fram-
kvæmdastjóri LL var þá Steinar
Adolfsson. Snorri var svo ráðinn
framkvæmdastjóri samhliða for-
mennskunni 2014, en reyndi fyrst
ýmsar útfærslur til að láta for-
mennskuna ganga upp samhliða
stöðu sem rannsóknarlögreglumað-
ur. Þar játaði hann sig að lokum
sigraðan og tók sér leyfi frá lög-
reglustörfum til að sinna stéttar-
félaginu alfarið.
Eldskírnina fékk hann þó strax í
kjarasamningunum haustið 2008.
„Ég tók við formannsembættinu í
maí 2008 þegar allt var í blússandi
uppsiglingu hér í samfélaginu eins
og menn muna. Svo hrynur allt
bankakerfið eins og það leggur sig
Lengri útgáfa af viðtalinu
verður birt á mbl.is.
mbl.is
MERCEDES-BENZ C300 DE AMG PLUG IN HYBRID
RN. 153592. Nýskráður 11/2019, ekinn 27 þ.km.,
dísel/rafmagn, svartur, sjálfskipting, 9 gíra, GPS,
bluetooth, bakkmyndavél, litað gler, túrbína.
Verð 7.490.000 kr.
VW GOLF GTE COMFORT – RN. 331250
Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km. bensín/rafmagn,
hvítur, sjálfskipting, bluetooth, litað gler, bakk-
myndavél, 360° nálgunarvarar, akreinavari.
Verð 4.990.000 kr.
TOYOTA PROACE CITY VERSO – RN. 153567
Nýskráður 8/2020, ekinn 13 þ.km., dísel, dökk-
grár, sjálfskipting, bluetooth, bakkmyndavél, GPS,
fjalægðarskynjarar að framan, hraðastillir.
Verð 5.890.000 kr.
HYUNDAI TUCSON 2WD – RN. 331268
Nýskráður 4/2017, ekinn 115 þ.km., dísel, 7 gíra,
ljósbrúnn, sjálfskipting, bluethooth, GPS, hraða-
stillir, bakkmyndavél, hiti í stýri, litað gler.
Verð 2.890.000 kr.
ÞÚ FINNUR DRAUMABÍLINN
Í BÍLAHÖLLINNI
Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is