Morgunblaðið - 29.04.2021, Page 16

Morgunblaðið - 29.04.2021, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 um haustið og einmitt þá, í október, hefjast kjaraviðræður á almennum og opinberum markaði og það var hálf-útópískt ástand að hefja kjara- viðræður í húsnæði ríkissáttasemj- ara sem þá var fullt af mönnum í teinóttum jakkafötum frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og hinum og þessum öðrum sem voru komnir til að bjarga því sem bjargað varð,“ rifjar Snorri upp. „Hér varð hrun“ Málið var að sögn Snorra einfalt, einn alversti tími Íslandssögunnar til að standa í kjarasamningum var upp runninn og minna en ekkert svigrúm til launahækkana í þjóð- félaginu. „„Hér varð hrun“ var setn- ing sem heyrðist í samningum allt til ársins 2015,“ segir Snorri. „Við náð- um þó með herkjum að halda því sem við höfðum og aðeins að bæta í. Þó að sá árangur sem náðist þarna hafi ekki verið stór var hann mjög góður miðað við ástandið í samfélag- inu. Þarna stóð til að taka af okkur hluta þeirra launa sem við vorum að fá greidd aukalega, sem voru í þessu sérstaka álagi sem við vorum með,“ segir formaðurinn. LL vann varnarsigur í viðræðun- um haustið 2008, en björninn var langt í frá unninn, viðræðurnar héldu áfram árin 2009, 2010 og allt til 2015. „Þarna var bara framlengt um ár í senn því enginn vissi hver staðan yrði að ári liðnu og tvisvar á þessu tímabili fórum við með okkar mál fyrir þennan gerðardóm sem, að okkur fannst, gerði ekkert fyrir okk- ur, við fengum bara þá samninga sem voru á borðinu og lítið til við- bótar, þó nokkru meira í seinni gerð- ardómnum en við höfðum búist við,“ rifjar Snorri upp. Háskólastigið mikil framför Talið berst frá hinum eilífa vígvelli samningaborðsins að lögreglunámi á háskólastigi sem varð að raunveru- leika norðan heiða, við Háskólann á Akureyri, árið 2016 og það eftir vægast sagt langt þóf þar sem Snorri bendir á að lesa megi greinar í Lögreglumanninum, tímariti lands- sambandsins, allt aftur til 1970, sem fjalli um íslensk lögreglufræði á há- skólastigi. „Það var einmitt líka á þessu ör- lagaríka ári, 2008, sem lands- sambandið setti fram formlega kröfu til stjórnvalda um að þetta skref yrði tekið og það er svo árið 2016 sem Ólöf heitin Nordal [þáver- andi innanríkisráðherra] tekur þá ákvörðun um sumarið, að þessi leið skuli farin, eftir að tveir starfshópar hafa skilað af sér miklum og góðum skýrslum um þetta mál,“ segir Snorri. Fyrirvari á færslu námsins upp á háskólastig hafi þó verið býsna knappur, að mati Snorra, lands- sambandið hafi séð fyrir sér að lög- regluskólinn yrði keyrður áfram að minnsta kosti tvo árganga samhliða því að námi á háskólastigi yrði komið á. „Nú er nýlega komin út skýrsla alþjóðlegs aðila sem gerir úttekt á háskólanámi og hún er frekar nei- kvæð í garð þessa náms og utanum- halds um það, eins og það fór af stað. Þetta táknar ekki að þarna séu á ferð einhverjir vankantar sem ekki er hægt að sníða af og ég tek það skýrt fram, að það var gríðarleg framför að fá lögreglunámið upp á háskólastig og er mál sem hefur lengi legið á stéttinni,“ segir Snorri. Staða fjarnáms sterk við HA Bætir hann því við að auðvitað komi það misvel út fyrir nemendur, sem búsettir eru annars staðar á landinu, að þurfa að sækja stað- bundnar lotur til Akureyrar, en það gildi þó um flest háskólanám, hvar sem skólinn er staðsettur, að nem- endur þurfi að hliðra til á ýmsan hátt í lífi sínu til að koma því að. Í þessum efnum hafi enn fremur haft mjög mikið að segja hve þróun fjarnáms hafi verið komin langt við Háskólann á Akureyri þegar lögreglunám þar var að hefjast. „Við horfðum á það líka að þetta gæti orðið til þess að einstaklingar sem byggju utan suðvesturhornsins sæktu þetta nám og þar með væri orðið auðveldara fyrir minni lög- regluliðin á landinu að ráða til sín fólk. Nú er svo sem ekki búið að gera neinar faglegar úttektir á því hvort þetta markmið hafi náðst að öllu leyti, en að einhverju leyti hefur það náðst,“ segir Snorri, vongóður um framtíð íslensks lögreglunáms á há- skólastigi. Lögregla í skugga faraldurs Undir lokin er freistandi að spyrja formanninn fráfarandi þess hvað nú taki við hjá honum, vel rúmlega ára- tugar starfi við réttinda- og kjara- mál íslenskra lögreglumanna er senn lokið og gjörólíkur vettvangur hlýtur að vera fyrir stafni. „Ég hef í sjálfu sér ekki tekið neina formlega ákvörðun um það enn sem komið er, en staðan er sú, að á sínum tíma gerði ég samning við þáverandi lögreglustjóra, Stefán Eiríksson, um að ég sinnti þessum störfum, sem ég nú er að hverfa frá, í launalausu leyfi frá minni stöðu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þannig að staða mín er væntanlega til þótt ég geri fastlega ráð fyrir að einhver annar sé að sinna henni í dag. Nú þarf ég bara að ræða við sitjandi lögreglustjóra og athuga hver staðan er og hvort hún vill yfir höfuð fá mig aftur. Ég er að verða atvinnulaus eins og staðan er í dag,“ segir Snorri og hlær við. Fyrst ætli hann þó að taka sér sumarleyfi og velta stöðunni fyrir sér, erfitt tímabil er að baki hjá Landssambandi lögreglumanna eins og flestum öðrum í kórónuveiruf- araldrinum sem nú hefur verið sem myllusteinn um háls heimsbyggð- arinnar vel á annað ár. „Lögreglustöðvar voru hólfaðar niður út og suður og enginn sam- gangur á milli þeirra. Öll samskipti við fólk hafa líka bara orðið þyngri, allir útataðir í grímum og svo þessi áhætta, þar til búið var að sprauta allt liðið, að fólk smitaðist af Covid í útköllum sem var að gerast hjá okk- ur, lögreglumenn misstu af fæð- ingum barna sinna og skírnum og fleiru af því að þeir voru í sóttkví og svo framvegis. Þetta hefur bara ver- ið gríðarlega erfitt eins og hjá öllum, en við sjáum nú vonandi fram á bjartari tíma núna.“ Antíkhúsgögn og mótorhjól Sjálfur hefur Snorri að nógu að hverfa í því fríi sem hann tekur sér nú. Hann er með góða aðstöðu til að sinna smíðinni heima við og hefur verið að dunda sér við að aðstoða vini og vandamenn við að gera upp antíkhúsgögn auk þess sem hann hefur verið að smíða sólpall við hús- ið, framkvæmd sem nú fær byr und- ir báða vængi með rísandi sól og frí- tíma. „Ég hef líka verið að fljúga fjar- stýrðum flugmódelum og fer í veiði árlega með góðu fólki upp á Arnar- vatnsheiði og stefnir í þá ferð núna í júní. Svo á ég mótorhjól sem ég er að gera upp inni í skúr svo mig vantar ekki verkefnin, aðallega að mig vanti lengri sólarhring,“ segir Snorri Magnússon að lokum, fráfarandi for- maður Landssambands lögreglu- manna eftir þrettán ár á þeim vett- vangi. „Ég er að verða atvinnulaus“ - Við stjórnvölinn hjá LL í þrettán ár - Margs að minnast úr fremstu víglínu fjölmenns stéttarfélags - Tekist á um kjörin í miðju bankahruni - Torsótt barátta fyrir réttindum lögreglu eilífðarverkefni Lokavikan Óhætt er að segja að Snorri Magnússon hafi marga fjöruna sopið síðustu 13 ár, en nú er mál að linni. VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Snorri Magnússon víkur úr for- mannssæti Landssambands lög- reglumanna nú í vikunni eftir þrett- án ára setu, allar götur frá hrunárinu eftirminnilega 2008 hefur hann staðið í fremstu víglínu kjara- og réttindamála íslenskra lögreglu- manna og háð þar marga hildina, setið þrotlausa fundi um kjarasamn- inga, þar sem sigrar hafa unnist en fórnir jafnframt verið færðar, séð gamla lögregluskólann verða að há- skólanámi á Akureyri og horft upp á meira en nóg af kórónuhremmingum þar sem lögreglumenn misstu af fæðingum og skírnum barna sinna auk þess að búa við eilífa smithættu í útköllum þar til búið var að sprauta allt liðið. „Formlega hætti ég á morgun,“ segir Snorri í þessu samtali sem fór fram í hádeginu á mánudaginn. „Þá verður haldið rafrænt þing til að af- greiða þessi formsatriði svo stjórn- arskipti geti farið fram með eðlileg- um hætti og svo er ég að hnýta einhverja enda út vikuna,“ bætir for- maðurinn fráfarandi við og þar með tekur nýr maður sér stöðu í brúnni, Fjölnir Sæmundsson. Snorri hóf störf í lögreglunni í nóvember 1984, hann á ættir að rekja vestur á firði, austur undir Eyjafjöll og í Biskupstungur, alinn upp í Vesturbænum, miðbænum og Breiðholtinu í Reykjavík, búsettur á Seltjarnarnesi mest ævinnar, en flutti aftur til Reykjavíkur árið 2014. Húsasmiður og lögreglumaður að mennt, þriggja barna faðir, kvæntur Hafdísi Jónu Gunnarsdóttur, starfs- manni hjá Hertz-bílaleigunni á Ís- landi. AGS-menn í teinóttum Eðlilega er margs að minnast úr víglínu fjölmenns stéttarfélags á rúmum áratug þar sem Snorri gegndi í fyrstu formannsstöðu, sem hann var kosinn í, en fram- kvæmdastjóri LL var þá Steinar Adolfsson. Snorri var svo ráðinn framkvæmdastjóri samhliða for- mennskunni 2014, en reyndi fyrst ýmsar útfærslur til að láta for- mennskuna ganga upp samhliða stöðu sem rannsóknarlögreglumað- ur. Þar játaði hann sig að lokum sigraðan og tók sér leyfi frá lög- reglustörfum til að sinna stéttar- félaginu alfarið. Eldskírnina fékk hann þó strax í kjarasamningunum haustið 2008. „Ég tók við formannsembættinu í maí 2008 þegar allt var í blússandi uppsiglingu hér í samfélaginu eins og menn muna. Svo hrynur allt bankakerfið eins og það leggur sig Lengri útgáfa af viðtalinu verður birt á mbl.is. mbl.is MERCEDES-BENZ C300 DE AMG PLUG IN HYBRID RN. 153592. Nýskráður 11/2019, ekinn 27 þ.km., dísel/rafmagn, svartur, sjálfskipting, 9 gíra, GPS, bluetooth, bakkmyndavél, litað gler, túrbína. Verð 7.490.000 kr. VW GOLF GTE COMFORT – RN. 331250 Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km. bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, bluetooth, litað gler, bakk- myndavél, 360° nálgunarvarar, akreinavari. Verð 4.990.000 kr. TOYOTA PROACE CITY VERSO – RN. 153567 Nýskráður 8/2020, ekinn 13 þ.km., dísel, dökk- grár, sjálfskipting, bluetooth, bakkmyndavél, GPS, fjalægðarskynjarar að framan, hraðastillir. Verð 5.890.000 kr. HYUNDAI TUCSON 2WD – RN. 331268 Nýskráður 4/2017, ekinn 115 þ.km., dísel, 7 gíra, ljósbrúnn, sjálfskipting, bluethooth, GPS, hraða- stillir, bakkmyndavél, hiti í stýri, litað gler. Verð 2.890.000 kr. ÞÚ FINNUR DRAUMABÍLINN Í BÍLAHÖLLINNI Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.