Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ
Fagfólk STOÐAR veitir
nánari upplýsingar
og ráðgjöf.
Fjölbreytt úrval göngugrinda
sem auka öryggi og tækifæri
til hreyfingar og útivistar
Verð frá 39.800,-
Það var vor í lofti þegar Sigurgeir Jónasson, ljós-
myndari í Vestmannaeyjum, fór um og tók myndir
af fuglum. Sumir þeirra eru fremur sjaldséðir gestir
á Heimaey og eru ekki varpfuglar þar. Þeir koma
þar gjarnan við á vorin eftir farflugið yfir hafið frá
vetrarstöðvunum, hvíla lúin bein og safna orku áður
en haldið er á varpstöðvarnar víða um landið. Þetta
á við um ýmsar andategundir, heiðagæsir og grá-
gæsir og mófugla.
Sigurgeir lagði bílnum við Daltjörnina í Herjólfs-
dal, sem er frægur fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja.
Hann hefur lært af langri reynslu að fuglarnir fæl-
ast síður ef maður tekur myndir af þeim úr bílnum.
Þar fylgdist hann með gargönd og skúfönd sem
syntu á tjörninni og fóru svo upp á bakkann og
gæddu sér á nýgræðingnum, enda vorar alla jafna
snemma í Vestmannaeyjum. Þessar andategundir
sjást ekki oft á þessum slóðum. Skyndilega kom ást-
fangið tjaldapar og brá á leik til að viðhalda lífinu.
Parið lét sig engu skipta þótt ljósmyndarinn væri
þarna rétt hjá. Honum flaug í hug hvort fuglarnir
væru að undirbúa vorið eða mögulega að taka for-
skot á Þjóðhátíðina! gudni@mbl.is
Farfugl Tjaldurinn er að mestu farfugl en nokkrir hafa hér
vetursetu. Tjaldurinn er þjóðarfugl Færeyja.
Pörun Tjaldurinn verpir oft í möl og sandi við sjó, ár og vötn
en líka í vegköntum. Hreiðrið er alltaf á berangri.
Tjaldar Ástin blómstraði í Herjólfsdal. Tjaldurinn er auðþekkt-
ur og með stærstu vaðfuglum sem verpa hér.
Vorleikur í
Vestmanna-
eyjum
- Farfuglar koma við og
safna kröftum í Eyjum
Skúfönd Hún er er að langmestu leyti farfugl en nokkur hundruð fuglar
halda til hér á vetrum. Skúfönd er útbreidd en langalgengust á Mývatni.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Jaðrakan Háfættur og spengilegur spígsporar jaðrakan um votlendi og
leitar sér að fæðu. Hann verpir aldrei langt frá vatni. Jaðrakan er farfugl.
Stelkur Hefur hátt ef honum finnst sér eða ungum ógnað.
Hljóð stelksins eru einn órækasti vottur vorkomunnar.
Gargönd Hún er sjaldgæf og fáliðaður varpfugl hér á landi og nær alger
farfugl. Steggurinn líkist kollu meira en hjá öðrum buslöndum.