Morgunblaðið - 29.04.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 29.04.2021, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is NÝIR LITIR Hitakanna 1 L – 9.990,- Ferðamál 20cl – 4.590,- Ferðamál 40cl – 5.990,- Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Meðan á framkvæmdum stendur við göng fyrir gangandi og hjól- andi umferð undir Hafnarfjarðar- veg við Hraunsholtslæk á móts við Lækjarás í Garðabæ verður bíla- umferð um veginn beint um framhjáhlaup utan við ganga- stæðið. Fjórar akreinar verða í framhjáhlaupinu og hámarkshraði verður takmarkaður við 30 kíló- metra, en tilkynnt verður næstu daga um hvenær bílaumferð um Hafnarfjarðarveg verður beint um framhjáhlaupið. Að þessum framkvæmdum lokn- um verður hægt að komast undir Hafnarfjarðarveg á tveimur stöð- um sem eykur öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Það verður sérstaklega til bóta fyrir börn og ungmenni sem eiga leið í skóla og frístundir eins og íþróttir og sund. Fyrir eru undirgöng sunnan við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar og göngubrú enn sunnar úr Ásahverfi yfir í Fitja- hverfi, en talsverð uppbygging hefur verið í Ásahverfi síðustu ár og er fram undan. Upplýstir um raskið Um miðjan apríl var byrjað á undirbúningi við undirgöngin og reiknað er með að þau verði tilbú- in áður en skólar byrja í haust. Undirgöngin verða sett saman úr forsteyptum einingum en til þess að koma þeim fyrir þarf að rjúfa Hafnarfjarðarveg og lækka klöpp í gangastæðinu. Hraunsholtslæk- urinn verður leiddur í gegnum undirgöngin og lagðir verða nýir göngustígar að göngunum. Tölu- verðar breytingar verða á göngu- leiðum á meðan á þessu stendur og verður ekki hægt að komast yf- ir Hafnarfjarðarveg við Lyngás. Í vikunni hefur verið unnið við að malbika framhjáhlaupið og mörg tæki verið á svæðinu milli Ásgarðs og Hafnarfjarðarvegar. Eitt íbúðarhús er nálægt framhjá- hlaupinu og er það í eigu bæjar- félagsins. Íbúar þess hafa verið upplýstir um það rask sem fylgir framkvæmdunum og að tímabund- ið verði þrengt að húsinu, sam- kvæmt upplýsingum frá Garðabæ. Húsið er víkjandi samkvæmt skipulagi þegar farið verður í frek- ari framkvæmdir á Hafnar- fjarðarvegi. Þegar þessum hluta framkvæmdanna er lokið verður farið í endurbætur á vegamótum Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss þar sem skipt verður um umferð- arljós og vegamótin breikkuð og lagfærð, en þar verða tvær vinstri beygjuakreinar út úr Lyngási til norðurs. Það er PK-verk ehf. sem annast framkvæmdir fyrir Vegagerðina og Garðabæ við undirgöngin og endurbætur á gatnamótum Hafn- arfjarðarvegar, Vífilsstaðavegar og Lyngáss og er reiknað með að þær standi yfir fram á haust. Stokkur innan tíu ára Samkvæmt upplýsingum frá bæjarfélaginu er markmið endur- bótanna að auka öryggi vegfar- enda og bæta umferðarflæði með því að bæta aðgengi hliðarvega inn á Hafnarfjarðarveg þar til hafist verður handa við gerð stokks á Hafnarfjarðarvegi. Í samgöngu- sáttmála ríkis og sveitarfélaga frá því í október 2019 er gert ráð fyrir að sú framkvæmd verði á áætlun 2028-2030. Umferðin um framhjáhlaup - Hafnarfjarðarvegur rofinn meðan unnið verður við undirgöng - Auka öryggi gangandi og hjólandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdir Framhjáhlaup með fjórum akreinum við Hraunholtslæk verður notað meðan unnið verður að gerð ganga undir Hafnarfjarðarveg. Loftmyndir ehf. Ví fi ls st að av eg ur Hafna rfjarð arveg ur Læ kjarfit Ásgarður Aktu Taktu Lang afit Garðaskóli Framhjáhlaup Vinnusvæði Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg í Garðabæ Ný undirgöng undir Hafnarfjarðarveg á móts við Lækjarás Ný undirgöng Gönguleiðir lokað- ar yfir gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss/Lækjarfitar Hjáleiðir um núverandi undirgöng við Aktu Taktu og göngubrú úr Ásahverfi yfir í Fitjahverfi Hafnarfjarðarvegur Lyngás Læ kjarás Áhöfn varðskipsins Þórs fór nýverið í land í Kolbeinsey og mældi eyjuna en undanfarin ár hefur hún töluvert látið undan ágangi sjávar, hafíss og veðra. Frá vestri til austurs reyndist eyjan vera 20 metrar og frá norðri til suðurs reyndist hún vera 14,5 metr- ar að lengd. Kolbeinsey er lítill klettur, leifar af eldfjallaeyju, 105 kílómetra norð- an við meginland Íslands, 74 km norðvestan við Grímsey og langt norðan við heimskautsbaug. Í frétt á vef Landhelgisgæslunnar er vitnað í alfræðiritið Wikipediu en þar segir að eyjan hafi fyrst verið mæld árið 1616 af Hvanndalabræðr- um. Þá var hún sögð 100 metra breið og 700 metra löng. Árið 1903 var hún helmingi minni en það. Árið 2001 reyndist hún vera aðeins 90 fermetr- ar að stærð. Kolbeinsey er nyrsti punktur Ís- lands og var miðað við hana þegar fiskveiðilögsagan var færð út í 200 mílur og mörkuð var miðlína milli Grænlands og Íslands. Síðar var samið við Dani um miðlínuna. Varðskip og flugvélar Landhelgis- gæslunnar hafa fylgst með þróun eyjunnar í gegnum tíðina. sisi@mbl.is Ljósmynd/Landhelgisgæslan Kolbeinsey Varðskipsmenn komnir á land þar sem þeir mældu eyjuna. Gæslumenn mældu stærð Kolbeinseyjar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.