Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 24

Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 VIÐTAL Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég fékk oft að heyra að ég hefði fæðst daginn sem Dalvíkurskjálftinn varð, sérstaklega þegar ég var krakki. Á Dalvík var ég oft kölluð jarðskjálftastelpan,“ segir Sigurveig Sigurðardóttir myndlistarmaður á Akureyri. Hún fæddist í Lambhaga á Dalvík 2. júní 1934. Ítarlega er sagt frá fæðingu hennar í Sögu Dal- víkur, 3. bindi, eftir Kristmund Bjarnason. Hér er gripið niður í þá frásögn. Foreldrar Sigurveigar, Sigurður Þorgilsson frá Sökku og Petrína Jónsdóttir frá Nýjabæ, bjuggu í Lambhaga. Það var tvílyft steinhús með lofti úr tré og þiljað að innan. Petrína var mjög berdreymin og dreymdi oft fyrir daglátum. Hún hafði erfiðar draumfarir á meðgöng- unni og var viss um að bæði hún og barnið sem hún gekk með myndu deyja. „Hafði ég skrifað Jórunni Norðmann suður í Reykjavík og bað hana að annast litlu dóttur mína, sem var rúmlega hálfs annars árs, ef eitthvað skyldi henda mig. Svo líður að þeim degi, að ég tek léttasótt. Hafði ég áður beðið Sig- urjón lækni að vera hjá mér ásamt ljósmóðurinni, því ég vissi, að barnið var í sitjandi stöðu … Ég var svo með léttasóttina um nóttina og hafði ekki fætt kl. 11 að morgni. En rétt um kl. hálftólf el ég barnið,“ er haft eftir Petrínu í Sögu Dalvíkur. Ósköpin dundu yfir Albína Bergsdóttir ljósmóðir sagði að þessi fæðing hefði verið sér sérstaklega minnisstæð. „Þegar ég kom til konunnar og tók að tala við hana fann ég fljótt, að í sál hennar var ekki hin hljóða kyrrð og ró vor- næturinnar … Kvaðst hún vita, að hér væri um sitjandafæðingu að ræða … og svo gæti farið, að hvorki hún né barnið lifði af fæðinguna. Ég reyndi að hughreysta hana … sagði sem var, að ég hefði nýlega verið við tvær slíkar fæðingar, sem báðar hefðu gengið vel …“ „Litlu fyrir hádegi ól Petrína barnið. Sagði þá Albína glöð í bragði, að ekki væri mark að draumum og ótti hennar ástæðulaus. Kvað Petr- ína sig hafa dreymt hræðilegan draum um nóttina, skömmu áður en Albína kom til hennar. Þóttist hún sjá menn í óða önn að taka gröf, og átti að grafa hana þar lifandi,“ segir í Sögu Dalvíkur. Albína ljósmóðir reyndi að róa Petrínu og bað hana að hvílast á meðan hún laugaði barnið. „Albína sótti síðan mjólkurvelling og fór að mata Petrínu. Þegar hún var með þriðju skeiðina dundu ósköpin yfir: Allt lauslegt datt af veggjum. Ofan í rúm sængurkon- unnar, sem var upp við steinvegg, féll skápur; hana sakaði þó ekki. Grauturinn helltist yfir hana, en það kom ekki heldur að sök. Mulnings- salli úr lofti og veggjum barst um allt herbergið, rigndi yfir rúmið. Skyndilega klofnaði einn veggurinn því nær frá. Hávaðinn var ærandi. Petrína bað Albínu að bjarga barninu. Þegar hún ætlaði út stóð hurðin á sér. Hún kallaði þó út og bað nærstadda menn að koma til hjálpar. Í því bar Sigurð að. Kvað hann norðurstafn hússins hruninn, reykháfinn fallinn, suðurstafn héngi uppi, en gæti farið sömu leið, hve- nær sem væri. Petrína var borin út í undirsænginni en Albína greip hvít- voðunginn, vafði í sæng og bar heim í Nýjabæ.“ Sigurveig segir að mamma hennar hafi alltaf verið mjög þakklát fyrir að þær lifðu báðar fæðinguna af og oft minnst á það. Sigurveig segir heimili þeirra í Lambhaga hafa verið í rúst eftir jarðskjálftann. „Það bjargaðist ekkert annað en einn skrautbolli sem á stóð „Góða stúlk- an“. En það var ekki ég,“ segir Sig- urveig. Hún var níunda barn for- eldra sinna. Tvö voru látin og Sigurveig því sjöunda lifandi barnið og yngst. Foreldrarnir voru komnir á fimmtugsaldur þegar hún fæddist. „Þetta var aðallega áfall fyrir systkini mín að fá öskrandi unga til þess að passa og að hafa misst fínu herbergin sín í Lambhaga,“ seg- ir hún. Fjöl- skyldan fékk inni í barnaskólanum um sumarið. Sigurður faðir hennar byggði nýjan Lambhaga, timburhús, sunn- an við gamla húsið. Hann sagðist aldrei ætla að byggja aftur úr steini. Fjölskyldan flutti svo í nýja Lamb- haga og bjó þar þangað til Sigurveig var átta ára. Þá fluttu þau í Árgerði á Dalvík. Svo áttu þau heima á Siglu- firði í eitt ár. Sigurður var daglauna- maður og fór þangað sem vinnu var að hafa. Þegar Sigurveig var tólf ára fluttu þau í Siggabúð. Í dag er þar Kaffi- hús Bakkabræðra, Gísli, Eiríkur, Helgi. Móðurbróðir hennar var þar með verslun og byggðu hann og pabbi Sigurveigar hæð ofan á húsið þar sem íbúðin var. Sigurveig flutti frá Dalvík til Akureyrar þegar hún var 19 ára og hefur búið þar að mestu síðan. Hefur búið víða um heim Í sumar verða 87 ár síðan Sigur- veig fæddist þennan eftirminnilega dag. Hún er ein eftir af systkina- hópnum í Lambhaga. „Ég er búin að eiga góða og nokk- uð langa ævi,“ segir hún. „Maðurinn minn, Sigurður Ólafs Jónsson, vann hjá Sameinuðu þjóðunum (FAO) og við vorum á heimshornaflakki í ein þrettán ár með fjölskylduna. Við bjuggum fyrst á Máritíus í Indlands- hafinu, svo í Malaví í Afríku, á Jövu í Indónesíu og í millitíðinni vorum við í tvö ár í Róm á Ítalíu þegar Sig- urður starfaði í höfuðstöðvum FAO. Þetta var heilmikið ævintýri allt saman,“ segir hún og bætir við að þeim hafi liðið einna best sem fjöl- skyldu í Malaví. Þau eiga þrjú börn og segir Sigurveig að flækingurinn hafi verið erfiðastur fyrir börnin, sem voru öll á skólaaldri, en þau kvörtuðu aldrei þótt oft væri skipt um skóla. Meðan þau bjuggu í Róm fór Sig- urveig á myndlistarnámskeið. Svo fór hún í myndlistarskóla hér heima þegar hún var sextug. Sigurveig er með Vinnustofu Veigu á Eyrinni á Akureyri og fer þangað flesta virka daga til að vinna að list sinni. „Ég hef mest gaman af að mála í olíu. Ég er nýbúin að taka niður sýn- ingu sem var á læknastofunum hér á Akureyri. Hún stóð uppi í ár út af Covid. Þetta er nú ekki orðið mikil- fenglegt hjá mér, en ég ætla að halda áfram svo lengi sem ég get valdið pensli,“ segir Sigurveig. Var oft kölluð jarðskjálftastelpan - Sigurveig Sigurðardóttir fæddist rétt fyrir Dalvíkurskjálftann 1934 - Heimili hennar eyðilagðist í jarðskjálftanum - Bjó um tíma á Máritíus, Malaví, Jövu og Ítalíu - Fór í myndlistarskóla sextug Morgunblaðið/Margrét Þóra Myndlistarmaður Sigurveig fór á myndlistarnámskeið þegar hún bjó í Róm og svo í myndlistarskóla hér heima þegar hún var sextug. Hún er með vinnustofu á Eyrinni á Akureyri og hefur mest gaman af að mála með olíulitum. Ljósmynd/Saga Dalvíkur 3. bindi Systur F.v. Sigurveig og Jórunn Sigurðardætur frá Lambhaga. Sigurveig var yngst níu systkina, af þeim komust sjö til manns. Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson Lambhagi Húsið skemmdist mjög mikið í jarðskjálftanum. Rífa þurfti efri hæðina en sú neðri stendur enn. Byggður var nýr Lambhagi við hliðina. Petrína Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.