Morgunblaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 28
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það eru mörg atriði sem ráða þessu.
Ég tel að ástundun, dugnaður og
hestakostur skipti miklu máli. Stærsti
lykillinn er þó reglusemi,“ segir Árni
Björn Pálsson hestamaður, meistari í
meistaradeild Líflands í hestaíþrótt-
um í ár, þegar hann er spurður um
lykilinn að árangrinum. Meistaratit-
illinn var sá fimmti og hefur enginn
knapi náð viðlíka árangri í deildinni.
Hann hefur einnig verið ákaflega sig-
ursæll á keppnis- og kynbótabraut-
inni á undanförnum árum, er til dæm-
is margfaldur Íslandsmeistari og
landsmótsmeistari.
Árni Björn telur að sömu atriði ráði
úrslitum í að hafa náð að sigra deild-
ina fimm sinnum og sigrinum í ár.
Nefnir reglusemina sérstaklega. Allir
afreksíþróttamenn, í hestaíþróttum
jafnt sem öðrum íþróttum, þurfi að
hafa gott skipulag og hreinan huga.
Þeir geti ekki notað vímuefni af neinu
tagi. Íþróttin krefjist svo mikillar at-
hygli, jafnt á keppnisdegi og á und-
irbúningstímabilinu sem sé langt.
Setning sem breytti
Árni Björn var með forystu í meist-
aradeildinni fyrir lokamótið sem fram
fór um helgina. Þar var keppt í tveim-
ur greinum, tölti og flugskeiði. Jakob
Svavar Sigurðsson, sem einnig er
mikill afreksmaður í hestaíþróttum,
var þó skammt undan þannig að Árni
mátti ekkert misstíga sig ef hann ætl-
aði að landa sigri.
Árni Björn hafði ætlað að keppa á
hryssu í töltinu en var hvattur til að
nota stóðhestinn Ljúf frá Torfunesi
en þeir sigruðu í tölti á síðasta lands-
móti sem raunar var haldið 2018. Sem
hann gerði og fékk til þess góðfúslegt
leyfi eiganda hestsins, Sylvíu Sig-
urbjörnsdóttur sem er kona hans og
nánasti samstarfsmaður. „Keppnin í
meistaradeildinni er orðin svo hörð
og gerðar svo miklar kröfur að ekki
er annað hægt en að tefla fram því
besta sem er í boði, ef maður ætlar
sér sigur í ákveðinni grein eða í heild-
arstigafjölda yfir mótaröðina,“ segir
Árni.
Þeim gekk ekki nógu vel í for-
keppni í töltinu, urðu í fjórða til
fimmta sæti og ef það hefði orðið nið-
urstaðan hefði Jakob Svavar, sem var
efstur eftir forkeppnina, nánast jafn-
að Árna í heildarstigakeppninni.
„Sylvía er þjálfarinn minn. Hún gefur
mér punkta og dregur það besta fram
í mér, eins og þjálfarar gera, og það
hefur einnig áhrif á hestinn. Hún er
snillingur í þessu. Sylvía sagði
ákveðna setningu við mig áður en ég
fór inn í úrslitin sem gerði það að
verkum að ég breytti aðeins til og
vann mig upp,“ segir Árni Björn.
Hann náði að sigra í töltinu og jók
með því forystuna, í stað þess að
glutra henni niður eins og stefndi í.
Þá var eftirleikurinn auðveldari, hann
þurfti aðeins að ná góðri stöðu í flug-
skeiðinu og það gerði hann og gott
betur. Varð í þriðja sæti. Þar með var
meistaratignin hans, í fimmta skipti.
Enginn annar knapi hefur náð fimm
titlum í um tuttugu ára sögu meist-
aradeildarinnar. Næstur því er Sigur-
björn Bárðarson, tengdafaðir Árna,
með þrjá titla.
Árni Björn var einnig drjúgur í
stigasöfnun fyrir lið sitt, Top Reiter,
sem varð efst í stigakeppni liða í ár.
Pælir í smáatriðum
Árni Björn segir að grunnurinn að
árangri sé að leggja sig allan í verk-
efnið og vera stöðugt í þekkingarleit.
Hann segist pæla mikið í smá-
atriðum og reyna að bæta sjálfan sig
alla daga og um leið hestinn sem ver-
ið er að þjálfa og keppa á hverju
sinni.
Árni og Sylvía eru tamningamenn
og reiðkennarar frá Hólaskóla og
stunda tamningar og þjálfun á Odd-
hóli á Rangárvöllum. Þau eru sjálf
með ræktun hrossa í frekar smáum
stíl og Sylvía er með reiðkennslu.
„Ég nota mestallan daginn til að
þjálfa hross. Vinn yfirleitt við það frá
klukkan átta á morgnana til sex eða
sjö á kvöldin. Verkefnin eru endalaus
svo dagarnir verða oft langir. Svo bú-
um við úti í sveit og það þarf einnig
að sinna bústörfum, halda við girð-
inum, halda utan um stóðhross,
heyja, gefa og hirða um hestana,“
segir Árni.
Vinnan við undirbúning og keppni
í meistaradeildinni kemur til við-
bótar hinum hefðbundnu störfum.
Árni segir að það sé ólaunað starf og
líta megi á meistaradeildina sem
áhugamál. Á móti komi að hún sé
ágætur gluggi til að koma sér á fram-
færi. Ekki eru lengur veitt pen-
ingaverðlaun fyrir sigur á mótum
deildarinnar. „Ég sakna þess. Þeim
fylgja fallegar minningar því ég gaf
verðlaunaféð til góðgerðarmála.“
Aðeins annar taktur er í þjálfun
hrossa á meðan keppnistímabilið
stendur. Með tilkomu meistaradeild-
arinnar lengdist það mjög. Það hefst
nú fljótlega eftir áramót og stendur
fram í september.
Finnur fyrir orkunni
Oddhóll stendur vestan við Eystri-
Rangá, í undurfögru umhverfi. Íbú-
arnir hafa allan fjallahringinn, þar
sem Heklu ber hæst, auk Vest-
mannaeyja, fyrir augum sínum. „Það
fæst feikna kraftur af því að búa und-
ir þessum eldfjöllum. Ég finn vel fyr-
ir orkunni,“ segir Árni.
Fær orku úr eldfjöllunum
- Árni Björn Pálsson sigraði í meistarakeppni í hestaíþróttum og bætti fimmta titlinum í safnið
- Segir að reglusemi sé mikilvæg - Hann og Sylvía Sigurbjörnsdóttir temja og þjálfa á Oddhóli
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ljúft Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Árni Björn Pálsson með gæðing Sylvíu, Ljúf frá Torfunesi, á milli sín. Sigur þeirra
í töltinu fleytti Árna langt á lokaspretti keppninnar um titilinn. Vinnuumhverfi þeirra á Oddhóli er sérlega fallegt.
Meistarar í Meistaradeild í hestaíþróttum
Árni Björn
Pálsson
Sigurbjörn
Bárðarson
Jakob
Svavar
Sigurðsson
Viðar
Ingólfsson
Sigurður
Sigurðar-
son
Bergur
Jónsson
Guðmundur
Björgvins-
son
Artemisa
Bertus
Atli Guð-
mundsson
5
3
2 2 2
1 1 1 1
Fjöldi meistaratitla 2001-2021
Sigurvegari Árni Björn Pálsson á efsta palli við verðlaunaafhendingu í lok
keppni í meistaradeild Líflands í hestaíþróttum sem lauk um helgina.
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Skemmtilegir
ferðafélagar
DUKA.IS – SMÁRALIND – KRINGLAN
NÝJIR LITIR
Ferðamál 20 cl – 4.590,-
Ferðamál 40 cl – 5.990,-
Keep It Cool vatnsflaska – 5.990,-