Morgunblaðið - 29.04.2021, Síða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Mikil óánægja er meðal íbúa fjöl-
býlishúsa við Þorrasali í Kópavogi
með áform um nýjan veg, Vorbraut,
og ca. 200 metra langan umferðar-
stokk rétt sunnan við húsin. Þessi
umferðarmannvirki verða í landi
Garðabæjar.
Fimm stór fjölbýlishús standa við
Þorrasali, 3-7 hæðir hvert. Úr hús-
unum er fagurt útsýni yfir nálægan
golfvöll og síðan út á Reykjanes.
Þegar fólk keypti íbúðir í húsunum
við Þorrasali átti það ekki von á því
að vegur yrði lagður rétt við húsin
síðar meir með tilheyrandi ónæði og
skerðingu á útsýni.
Aðalfundur húsfélagsins Þorrasal-
ir 1-3 var haldinn í gækvöldi og sagði
Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður
húsfélagsins, fyrir fundinn að álykt-
un gegn þessum áformum yrði tekin
þar til afgreiðslu.
„Þessi vegarlagning Garðabæjar
neðan við fjölbýlishús í Þorrasölum í
Kópavogi er alvarlegt skipulagsslys.
Verði af lagningu vegarins verður
um gríðarlegan umferðarþunga að
ræða. Það er með
ólíkindum að
mönnum skuli
detta svona nokk-
uð í hug á 21. öld-
inni,“ segir Aðal-
steinn.
Hann segir að
eðlilega sé íbúða-
eigendum í
Þorrasölum
brugðið við þess-
ar fréttir enda nýja veginum ætlað
að liggja við lóðarmörkin á fjölbýlis-
húsunum. Um sé að ræða verulega
skerðingu á nánd við náttúruna, frið-
sældina og græn svæði. Vegurinn
verði aðeins fáeina metra frá svefn-
herbergjum fólks. Það sem sé alvar-
legast sé að veginum muni fylgja
aukin slysahætta, sérstaklega fyrir
börn.
Verkalýðsfélagið Framsýn á
Húsavík á nokkrar íbúðir í Þorrasöl-
um 1-3 og eru þær ætlaðar félags-
mönnum til orlofsdvalar svo og ef
þeir þurfa að leita lækninga í
Reykjavík. Það er ástæðan fyrir því
að Aðalsteinn, formaður Framsýnar,
tók að sér formennsku í húsfélaginu
á sínum tíma.
Þegar nýtt deiliskipulag var aug-
lýst í fyrrasumar bárust mótmæli frá
íbúum í Þorrasölum 1-3 sem gerðu
alvarlegar athugasemdir. „Húseig-
endum var ekki kunnugt um það
þegar þeir fjárfestu í Þorrasölum að
til stæði eða til skoðunar væri að
byggja upp fjölfarinn akveg í bak-
garði Þorrasala 1-3 með tilheyrandi
óþægindum,“ sagði í athugasemd
húsfélagsins.
Rýri verðgildi íbúðanna
Auk slysahættu komi vegurinn til
með að rýra útsýni íbúa, ekki síst á
jarðhæð, auk þess sem búast megi
við að því að verðgildi íbúðanna
lækki vegna takmörkunar á útsýni
og akvegar í bakgarðinum. Fleiri
húsfélög og einstaklingar sendu inn
athugasemdir við deiliskipulags-
auglýsingu Garðabæjar.
Fram kom í auglýsingu Garða-
bæjar í fyrrasumar að til stæði að
byggja upp hverfið Hnoðraholt norð-
ur. Samkvæmt deiliskipulagstillög-
unni er gert ráð fyrir íbúðabyggð í
fjölbýli, rað- og einbýlishúsum. Land
hallar til vesturs og norðurs. At-
vinnuhúsnæði verður á norðvestur-
hluta skipulagsreitsins. Hæðir íbúð-
arhúsa verða á bilinu 1-4.
Atvinnuhúsnæði verður fjórar hæðir
með inndreginni 5. hæð þar sem hún
er hæst. Fjöldi íbúða verður 448 og
atvinnuhúsnæði verður um 20.000
fermetrar. Heildarbyggingarmagn
ofanjarðar verður um 64.000 m2.
Áætlaður fjöldi bílastæða er um
1.050.
Til að gera þessa uppbyggingu
mögulega þarf að koma fyrir teng-
ingu við gatnakerfi Kópavogs, rétt
við Þorrasali. Í athugasemdum við
deiliskipulagið hafnaði skipulagsráð
Kópavogs tengingu fyrirhugaðs
hverfis í Hnoðraholti að Arnarnes-
vegi í Leirdalsopi. Vegarlagning á
kynntum stað væri ekki framkvæm-
anleg vegna nálægðar við 13. braut
golfvallar GKG og fjölbýlishúsa við
Þorrasali og muni hún rýra mjög
gæði golfvallarins sem og byggðar-
innar við Þorrasali. Hinn nýi akveg-
ur verði með allt að 9 þúsund bíla
umferð á sólarhring; 13. brautin á
golfvellinum verði ónothæf og þessi
mikla umferð muni jafnframt valda
hávaða-, svifryks- og sjónmengun í
fjölbýlishúsunum við Þorrasali.
Skipulagsráðið benti á þann
möguleika að umrædd tenging yrði
sett í niðurgrafinn stokk á þeim stað
þar sem tengibrautin fer meðfram
fjölbýlishúsum við Þorrasali.
Eins og fram kom í umfjöllun
Morgunblaðsins 17. apríl sl. hafa
bæjarstjórar Kópavogs og Garða-
bæjar, þeir Ármann Kr. Ólafsson og
Gunnar Einarsson, gert með sér
samkomulag um stokkalausnina.
Var það undirritað í mars sl. Sam-
komulagið hefur verið samþykkt í
bæjarstjórnum Kópavogs og Garða-
bæjar. Gagnrýnt hefur verið að það
hafi verið gert án þessi að kostnaðar-
áætlun fyrir stokkinn liggi fyrir.
Þessi lausn hugnast ekki íbúum við
Þorrasali, eins og komið hefur fram.
Hver borgar fyrir stokkinn?
Kostnaður við stokkinn liggur
ekki fyrir enda ekki búið að hanna
hann. En á fundi bæjarstjórnar
Garðabæjar 18. febrúar sl. nefndi
Sara Dögg Svanhildardóttir bæjar-
fulltrúi töluna tveir milljarðar.
Fram kom í umfjöllun Morgun-
blaðsins á dögunum að bæjarstjóri
Kópavogs telur eðlilegt að Garðabær
beri kostnaðinn en bæjarstjóri
Garðabæjar telur eðlilegt að sveit-
arfélögin skipti með sér kostnaðin-
um. Það á svo eftir að koma í ljós
hvort skattgreiðendur í Kópavogi
samþykki að leggja fram fjármuni til
að byggja umferðarstokk í Garðabæ.
Morgunblaðið/sisi
Þorrasalir Fjölbýlishúsin standa við bæjarmörk Kópavogs og Garðabæjar. Hinn nýi vegur mun liggja fyrir framan húsin og umferðarstokkurinn mun liggja fyrir framan húsið lengst til hægri.
Áformin alvarlegt skipulagsslys
- Mikil óánægja er meðal íbúa fjölbýlishúsa við Þorrasali í Kópavogi með áform um nýjan veg og stokk
sunnan við húsin - Veruleg skerðing á nánd við náttúru og friðsæld - Aukin slysahætta fyrir börnin
Aðalsteinn Á.
Baldursson
Goldie 2.0, 2 litir
10.995 kr./st. 36-41
withMemory
Foam
SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS
Léttir og
sumarlegir!
SKECHERS
Ræs ehf. hlýtur Hvatningarverð-
laun Kópavogs 2021 en þetta er í
fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt.
Ræs, sem er í eigu Helgu Guð-
rúnar Gunnarsdóttur, býður upp á
þjálfun í vatni með áherslu á að
þjóna einstaklingum sem eru komn-
ir um og yfir miðjan aldur. Þetta
eykur verulega valmöguleika í
heilsueflingu og þá ekki síst fyrir
eldri aldurshópa.
Fram kemur í tilkynningu að
námskeið Helgu Guðrúnar í Sund-
laug Kópavogs hafi notið mikilla
vinsælda. Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri Kópavogs, afhenti
Helgu Guðrúnu viðurkenningu og
blóm í blíðskaparveðri á sundlaug-
arbarminum í gær við mikinn fögn-
uð þátttakenda.
Í tilkynningunni segir að hug-
myndin með verðlaununum sé að
veita viðurkenningu fyrirtæki í
Kópavogi sem hafi með starfsemi
sinni stuðlað að heilsueflingu Kópa-
vogsbúa. Auglýst var eftir tilnefn-
ingum fyrr á þessu ári og var sam-
dóma álit dómnefndar, sem skipuð
var stýrihóp lýðheilsumála í Kópa-
vogi, að veita Ræs ehf. verðlaunin.
Fékk hvatningarverðlaun
Hvatning Helga Guðrún Gunnarsdóttir og Ármann Kr. Ólafsson við afhend-
ingu Hvatningarverðlauna Kópavogs í Sundlaug Kópavogs í gær.
- Kópavogur
veitir Ræs ehf.
viðurkenningu