Morgunblaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Lifandi
píanótónlist
öll föstudags- og
laugardagskvöld
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Borðapantanir í síma 558 0000
eða á www.matarkjallarinn.is
TAKE AWAY
25% afsláttur
af sérstökum Take Away matseðli ef þú sækir
Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
gildir ekki með öðrum tilboðum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Veiðarnar hafa gengið ótrúlega vel,
en það er segin saga að þá hrapar
verðið og fáir vilja kaupa,“ segir Jón
Vilhjálmur Sigurðsson, skipstjóri á
Hilmi ST 1 frá Hómavík. Hann hef-
ur stundað grásleppuveiðar á hverju
ári í hátt í 20 ár og man ekki eftir
öðrum eins mokstri og nú í vor. Afli
hefur víðast hvar verið góður og nú
er svo komið að kaupendur hrogna
eru farnir að halda að sér höndum.
Sumir eru hættir að kaupa hrogn og
aðrir munu hafa tilkynnt um verð-
lækkun eða að þeir taki aðeins við í
nokkra daga í viðbót.
Met slegin á vertíðinni
Met hafa verið slegin á grásleppu-
vertíðinni og í vikubyrjun var Sig-
urey ST 22 frá Drangsnesi komin
með rúmlega 85 tonn. Trúlega hafa
Jón Vilhjálmur og synir hans, Sig-
urður og Ágúst, komið með mest
magn að landi úr einum róðri. Feðg-
arnir komu með 27 tunnur af hrogn-
um í land nýlega, en þeir skera grá-
sleppuna um borð. Upp úr sjó hefur
aflinn þennan dag trúlega verið um
12,6 tonn af grásleppu, en mest
hafði Jón Vilhjálmur áður fengið um
sjö tonn í róðri. Félagar þeirra á
Hlökk ST 66 komu með litlu minni
afla að landi einn daginn og margir
fleiri hafa aflað vel.
Í upphafi vertíðar var miðað við
40 veiðidaga, en þeim hefur verið
fækkað í 35 til að tryggja öllum sem
stunda grásleppuveiðar jafn marga
daga. Samkvæmt því hefðu vertíðar-
lok hjá þeim á Hilmi verið 10. maí,
en óvissa er með framhaldið, að
sögn Jóns Vilhjálms. Fiskkaup sé
hætt að taka við hrognum frá þeim
og fyrirtæki í Búðardal kaupi hrogn
af þeim út mánuðinn. Jón Vil-
hjálmur segist gera sér vonir um að
geta selt eitthvað af hrognum til Ag-
ustsson í Stykkishólmi, en það sé
ekki ljóst.
Kaupedur ganga úr skaftinu
„Kaupendur hafa verið að ganga
úr skaftinu hver af öðrum, það er
bölvað,“ segir Jón Vilhjálmur.
Auk vandræða með að losna við
hrogn fæst lítið fyrir hveljuna eða
búkinn miðað við síðustu ár og því
er skorinni grásleppu hent í sjóinn
aftur. Slíkt brottkast var heimilað
með reglugerð sem gefin var út í vor
vegna birgða frá undanförnum ár-
um og erfiðrar stöðu á mörkuðum,
einkum í Kína. Jón Vilhjálmur segir
ekki annað hafa verið í stöðunni fyr-
ir þá en að skila búknum strax aftur
í lífríkið.
Í upphafi vertíðar var algengt að
130 kónur fengjust fyrir kílóið af
óskorinni grásleppu, um hundrað
krónum lægra en í fyrra. Í fyrra var
eingöngu komið með óskorna grá-
sleppu að landi.
Jón Vilhjálmur segir að góður afli
hjálpi til svo veiðarnar beri sig, en
segir ekki gott hversu mjög verðið
fyrir hrognin hafi lækkað frá síðasta
ári. Þeir róa frá Hólmavík og eru
með netin út af Ófeigsfirði og við
Selsker, sem í bókum er einnig kall-
að Sælusker. Tíðarfar hefur yfirleitt
verið gott í vor og í góðu veðri á 16
mílna hraða eru þeir hálfan þriðja
tíma á miðin. Þeir róa á Hilmi ST,
12 metra plastbát af gerðinni Kleó-
petra 38, sem smíðaður var hjá
Trefjum í Hafnarfirði árið 2000.
Spurður um ástæður góðs afla
segir Jón Vihjálmur að ástand
hrognkelsastofnsins sé greinilega
gott. Menn velti fyrir sér hvort
minni og sum árin engar loðnuveið-
ar eigi þátt í vexti stofnsins. Meðan
ekki sé veitt í flottroll eigi seiði grá-
sleppunnar hugsanlega meiri mögu-
leika, en meiri rannsóknir vanti.
Vertíð hlaðin óvissu
Heimilt var að leggja net 23. mars
og þann dag sagði á heimasíðu
Landssambands smábátaeigenda að
vertíðin væri hlaðin óvissu, sem
sannarlega hefur komið á daginn. Í
ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er
miðað við að veiði fari ekki umfram
9.040 tonn.
„Miðað við metveiði í fyrra kom
mælingin ekki á óvart þó fæstir hafi
búist við 74% sveiflu milli ára. Með-
altal ráðgjafar stofnunarinnar á átta
ára tímabili [2013-2020] er 5.386
tonn. Það þarf því ekki að koma
neinum á óvart að markaðurinn
hiksti við slíkum tíðindum og ekki
hefur Covid-19 haft áhrif til góðs,“
sagði á heimasíðu LS 15. apríl.
Góð vertíð, en talsverð verðlækkun
- Skipstjóri á Hólmavík man ekki eftir öðrum eins grásleppuafla - Ekki sjálfgefið að losna við aflann
Ljósmynd/Júlíana Ágústsdóttir
Komið úr róðri Feðgarnir á Hilmi í höfn á Hólmavík, frá vinstri Sigurður, Jón Vilhjálmur og Ágúst, sem heldur á Gunnari. Vilhjálmur Snær fyrir framan.
Gjöful grásleppuvertíð
12.585 kg 20. apríl
Hafði sl. mánudag farið í sjö
róðra, einnig með hæsta
meðaltal í róðri 7.238 kg
*Tölur fyrir 2021 miða við 26. apríl
**Sama dag árið 2020
Gott veður
Tími milli vitjana:
2,05 dagar
2,25 dagar 2020
Sigurey STmeð 85.216 kg
Árið 2020: Norðurljós NS
með 64.567 kg
Fimm bátar með yfir 60
tonn, þrír á sama tíma í fyrra
2021 2020
Fjöldi á veiðum 133 bátar 152 bátar
Afli samtals 3.709 tonn 3.287 tonn*
Meðaltal á bát 27,9 tonn 21,6 tonn
Meðaltal í róðri 2.853 kg 1.895 kg
Meðmestan afla í róðri
Aflahæstur
Hilmir ST
Heimild: LS
Allmörg fyrirtæki víða um land
taka við grásleppu og grá-
sleppuhrognum á vertíðinni. Meðal
þeirra er Vignir G. Jónsson ehf. á
Akranesi, dótturfyrirtæki Brims,
sem hefur unnið kavíar úr grá-
sleppuhrognum í áratugi. Jón
Helgason framkvæmdastjóri segir
að staðan sé þannig núna að veiði
sé mjög góð og fyrirtækið hafi ekki
haft tök á að bæta við bátum í við-
skipti. Fyrirtækið greiðir 130 krón-
ur fyrir kílóið af heilli grásleppu.
„Við einbeitum okkur að því að
taka sem lengst við grásleppu frá
okkar viðskiptavinum, sem sumir
hafa verið lengi hjá okkur. Eins og
staðan er núna getum við samt
engu lofað um hversu lengi við
getum tekið á móti,“ segir Jón.
Fyrirtækið sker grásleppuna og
saltar hrognin á Vopnafirði og á
Akranesi og er sterkt á nær-
svæðum þessara staða, en er einn-
ig með báta í viðskiptum annars
staðar að. Nú er unnið að því að
salta hrognin og útbúa hráefni fyr-
ir kavíarframleiðslu síðar á árinu.
Eins og fram kemur hér á síð-
unni eru einhverjir kaupendur
farnir að kippa að sér höndum.
Farið er að saxast á fjölda veiði-
daga hjá mörgum og í byrjun vik-
unnar höfðu 14 bátar lokið vertíð.
Bæta ekki við bátum í viðskipti
VIGNIR G. JÓNSSON Á AKRANESI