Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 37
FRÉTTIR 37Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: 11-18 virka daga
og 11-15 laugardaga
www.spennandi-fashion.is
LURDES BERGADA
HÖNNUN FRÁ BARCELONA
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Mannfall af völdum kórónuveirufaraldursins á Ind-
landi rauf í gær 200.000 manna múrinn. Vægðarlaus
veirubylgja eirði engu og nýsmitaðir streymdu til
sjúkrahúsa eða sendu fjölskyldur sínar úrkula vonar
á götur út í leit að súrefni sem mikill hörgull var sagð-
ur á.
Sýkingar af völdum veirunnar eru fleiri á Indlandi
síðustu sjö dagana en í nokkru öðru ríki heims. Önn-
ur smitbylgjan herjar á landið og þótt því sé haldið
fram að dauðsföllin í henni séu rétt rúmlega 200 þús-
und orðin telja sérfræðingar að manntjónið sé í raun
meira.
Tíðni nýsmits og dauðsfalla hefur rokið upp í þessu
1,3 milljarða ríki ólíkt Bandaríkjunum og nokkrum
Evrópulöndum sem byrjuð eru að fóta sig fyrstu
skrefin aftur til eðlilegs lífs.
Veiran hefur lagt 3,1 milljón manna að velli í ver-
öldinni víðri og í þeim efnum er hlutfall indverskra
þegna hátt. Á sólarhring þar til í gær greindust
360.000 nýsmit og rúmlega 3.000 manns létust af
völdum kórónuveirunnar. Eins og ljós í myrkrinu
barst sú fullyrðing Ugurs Sahins, annars stofnenda
BioNTech, samstarfsaðila lyfjaframleiðandans Pfiz-
er, að hann væri vongóður um að bóluefni fyrirtækis-
ins virkaði gegn öllum afbrigðum veirunnar sem
væru á sveimi og þjökuðu Indverja.
Það er til marks um ástandið í höfuðborginni
Nýju-Delí að þar hefur stórum bílastæðum verið
breytt í bálstofur til að bregðast við vaxandi andlát-
um. Fyrr en varði leiddi starfsemin til skorts á eldivið
fyrir líkbálin. Þungamiðja kórónuveirufaraldursins
hefur verið í ríkinu Maharashtra í vesturhluta Ind-
lands. Þar er ríkidæmi mest í landinu og þar er að
finna borgina Mumbai (áður Bombey) sem er mið-
stöð fjármála í Indlandi. Í gær sýktust þar 66.000
manns á einum sólarhring sem er meiri fjöldi en í
nokkru öðru ríki. Í Maharashtra er að finna rúman
fjórðung allra hinna 17,9 milljóna sýkinga og tæp-
lega þriðjung 201.000 látinna til þessa.
Örvinglaðir ættingjar hinna veiku hafa safnast
saman í stórum hópum við spítalana og apótekin í
leit að lyfjum og annarri læknismeðferð, oftast með
litlum árangri. Þrítug kona, Priyanka Mandal, 30,
kvaðst hafa leitað að súrefni fyrir veika móður sína í
viku en ekkert haft upp úr krafsinu. „Lyf standa
heldur ekki til boða … ég hef heimsótt fimm eða sex
stórar lyfjabúðir. Og mér er sama hvað ég þarf að
bíða hér lengi, ég á engan annan að en móður mína.“
Heillavænlegt fullt tungl
Þrátt fyrir vaxandi veirusmit blótuðu um 25.000
manns goðin í fyrradag, á lokadegi Kumbh Mela-
helgihátíðarinnar í borginni Haridwar í norður-
hluta landsins. Heillavænlegt tungl dró mannskap-
inn að bökkum Ganges til síðasta hátíðarbaðsins.
Til hátíðarinnar hafa streymt milljónir manna,
fæstir með andlitsgrímu. Hefur stjórn Narendra
Modi forsætisráðherra sætt mikilli gagnrýni fyrir
að leyfa það.
Margar þjóðir hafa boðið fram aðstoð. Hafa þau
meðal annars sent þangað súrefni og aðrar hjálp-
arvörur. Í þessu hnattræna átaki sendi Singapúr í
gær tvær flutningaflugvélar fullar af súrefnis-
birgðum og Þjóðverjar sögðust ætla að senda 120
loftræstitæki og hefja eigin framleiðslu súrefnis.
Rússar boðuðu einnig neyðarhjálp, þar á meðal
súrefni, lofthreinsitæki, lyf svo og milljónir
skammta af bóluefninu spútník. Ennfremur sögð-
ust Svisslendingar myndu styrkja indversku spít-
alana með sem svarar milljón dollurum. Loks virð-
ist sem Indverjar muni fá milljónir skammta
bóluefnis AstraZeneca sem Joe Biden Bandaríkja-
forseti sagðist myndu flytja úr landi til þjóða í
brýnni þörf.
Útlit þykir fyrir að vandi Indverja eigi eftir að
aukast enn. Fólk hefur látist bíðandi eftir rúmi á
sjúkrahúsum sem eru að hrynja undan álagi vegna
súrefnisskortsins. Í byrjun maí fer af stað mikið
bólusetningarverkefni í Indlandi og gátu 18 ára og
eldri byrjað að skrá sig í gær. Vegna álags áttu
flestir erfitt með að skrá sig. Aðeins 1,8% Indverja
hafa fengið bólusetningu það sem af er fyrir kór-
ónuveirunni.
Frá því kórónuveirufaraldurinn spratt af stað í
ársbyrjun 2020 höfðu að minnsta kosti 3.137.725
dáið af hennar völdum klukkan 10 í gærmorgun að
íslenskum tíma, samkvæmt samantekt AFP-
fréttastofunnar. Að minnsta kosti 148.657.380
höfðu sýkst. Langmestur meirihluti hefur jafnað
sig af veikinni en sumir glímt við ýmis einkenni vik-
um og mánuðum saman. Í fyrradag, þriðjudag, lét-
ust 14.536 manns um heimsbyggðina alla og
844.389 nýsmit greindust. Flestir hinna nýlátnu
voru Indverjar með 3.239 einstaklinga, Brasilía
með 3.086 og Bandaríkin með 724. Þar í landi er
heildardauðinn af völdum kórónuveirunnar kom-
inn í 573.381 manns og smitin orðin 32.176.051.
Á eftir Bandaríkjunum hefur Brasilía verið verst
sett með 395.022 dauðsföll og 14.441.563 smit. Í
þriðja sæti er Mexíkó með 215.547 andlát og
2.333.126 smit, Indland er í fjórða sæti með 201.187
dauðsföll og 17.997.267 smit og í fimmta sæti er
Bretland með 127.451 dauðsföll og 4.409.631 tilfelli
veirusmits.
Sé miðað við íbúafjölda kemur í ljós að dánar-
tíðnin er mest í Ungverjalandi eða 279 dauðsföll á
hvert hundrað íbúa. Í öðru sæti er Tékkland með
272 dauðsföll, Bosnía-Hersegovína með 257, Svart-
fjallaland með 235 og Búlgaría 232.
Þegar á heildina fyrir einstök svæði heims er lit-
ið eru andlátin af völdum kórónuveirufaraldursins
orðin 1.059.028 í Evrópu og smitin 49.895.378.
Í Rómönsku Ameríku og Karíbahafi hafa
904.431 manns dáið og 28.377.041 sýkst. Samanlagt
hafa 597.446 látist og 33.368.241 sýkst í Bandaríkj-
unum og Kanada.
AFP
Örvænting Ættingjar kórónuveirusjúklinga bíða við bráðadeild JLNM-sjúkrahússins í Nýju-Delí.
Vægðarlaus veirubylgja
- Indverjar þurfa súrefni og lyf - Þjóðir heims hafa blandað sér í vanda Indlands
og boðið fram aðstoð - Hvergi fleiri sýkingar af völdum kórónuveirunnar
Sjö fyrrverandi liðsmenn ítölsku
hryðjuverkasamtakanna Rauðu her-
deildanna voru handteknir í Frakk-
landi í gær. Bíða þeir þess að verða
framseldir til Ítalíu.
Francois Mitterrand, fyrrverandi
forseti og leiðtogi Sósíalistaflokksins,
hafði veitt þeim skjól en handtakan er
sögð vera tilraun af hálfu núverandi
forseta, Emmanuels Macrons, til að
mýkja ítölsk yfirvöld.
Frakkland var lengi griðastaður
liðsmanna Rauðu herdeildanna sem
stóðu fyrir hryðjuverkum á áttunda
og níunda áratug nýliðinnar aldar.
Árið 1985 var svonefnd „Mitterrand-
kennisetning“ samþykkt við litlar vin-
sældir Ítala. Samkvæmt henni hlutu
hryðjuverkamennirnir landvist gegn
því að þeir afneituðu ofbeldisverkum
og væru ekki eftirlýstir fyrir morð
eða aðra „blóðglæpi“ í heimalandi
sínu.
Í tilkynningu frá forsetahöllinni
sagði að Macron hefði veitt samþykki
sitt fyrir handtökunni. Hafi mennirn-
ir verið eftirlýstir fyrir „alvarlegustu
glæpi“. „Frakkland, sem einnig hefur
orðið fyrir barðinu á hryðjuverka-
mönnum, skilur hina fortakslausu
nauðsyn þess að draga illvirkjana fyr-
ir rétt í þágu fórnarlamba þeirra,“
sagði þar. „Þetta framsal er liður í
þeirri afar brýnu vegferð að byggja
upp Evrópu laga og réttar með gagn-
kvæmt traust sem hyrningarstein.“
Öfgahópar vinstrimanna eins og
Rauðu herdeildirnar sáðu ringulreið á
Ítalíu á tímabili sem nefnt hefur verið
„árabil blýsins“ vegna allra þeirra
skotvopna sem beitt var í hryðjuverk-
unum. Herdeildirnar voru illræmdust
þessara samtaka og bera ábyrgð á
mannránum og morðum. Meðal fórn-
arlamba þeirra 1978 var Aldo Moro
forsætisráðherra en fjórir lífverðir
hans voru drepnir og einn særður.
Frakkar góma sjö
hryðjuverkamenn
- Mitterrand hafði veitt þeim skjól
AFP
Hryðjuverk Herdeildin drap fjóra
lífverði forsætisráðherra Ítalíu.
Nánast allir jöklar heims rýrna á
vaxandi hraða sem skilað hefur
rúmlega fimmtungi hækkunar sjáv-
arborðs það sem af er öldinni.
Alþjóðleg sveit vísindamanna
hefur kannað alla jökla veraldar,
um 220.000 talsins, til að finna út
raunverulegan hraða bráðnunar
þeirra. Undanskildu þeir íshellu
Grænlands og Suðurskautslands-
ins.
Með greiningu gervitungla-
mynda kom í ljós að á árunum 2000-
2019 töpuðu jöklarnir um 267 millj-
örðum tonna af ís ár hvert.
Í ljós kom að á bráðnuninni
hægði á austurströnd Grænlands, á
Íslandi og Skandinavíu. Skýrist það
af komu og lægri lofthita .
AFP
Lítið er eftir af mörgum jöklinum.
Bráðnun vex og
höfin hækka
Boris Johnson
forsætisráðherra
Breta þvertekur
fyrir að hafa
brotið reglur er
hann lét fríska
upp á embættis-
íbúð sína í Down-
ingstræti í Lond-
on.
Yfirkjörstjórn
Bretlandseyja hefur tekið málið til
formlegrar skoðunar, en Johnson
kveðst sjálfur hafa greitt fyrir
breytingarnar. Kjörstjórnin sagði í
gær að nægar ástæður væru til að
ætla að brot kynnu að hafa átt sér
stað sem kallaði á rannsókn.
„Ég hef að öllu leyti fullnægt
siðareglum og reglum um ráð-
herraábyrgð,“ sagði Johnson í
þinginu í gær. Hann hefur sætt
harðri gagnrýni og kröfum um að
hann skýri þinginu frá hver borg-
aði lagfæringarnar. agas@mbl.is
BRETLAND
Boris Johnson
Boris neitar allri sekt