Morgunblaðið - 29.04.2021, Page 40

Morgunblaðið - 29.04.2021, Page 40
Umbætur í orku- og umhverfis- málum efla samkeppnishæfni Orku- og umhverfis- mál hafa áhrif á sam- keppnishæfni Íslands. Leiðin að minni losun gróðurhúsalofttegunda er eitt af mikilvægustu verkefnum samtímans. Mikill árangur í þeirri baráttu hefur náðst hér á landi á síðustu ára- tugum, m.a. með nýt- ingu endurnýjanlegra orkugjafa. Þá hefur at- vinnulífið leitað leiða á eigin for- sendum til að breyta framleiðsluferl- um eða öðrum þáttum til að lágmarka áhrif á umhverfið. Þessi aukna áhersla hefur leitt og mun áfram leiða til þróunar í grænni tækni, umhverf- isvænni framleiðsluferlum og orku- skiptum í samgöngum svo dæmi séu tekin. Metnaðarfull markmið á sviði um- hverfis- og loftslagsmála verða áskor- un fyrir samfélagið en að sama skapi verða til tækifæri til þess að þróa nýja tækni og aðferðir til að gera hluti öðruvísi og betur. Ýta þarf undir slíka framþróun með jákvæðum hvöt- um í stað þess að einblína alfarið á boð og bönn. Á vettvangi raforkumála fagna Samtök iðnaðarins því að stjórnvöld hafi tekið tillit til ábendinga samtak- anna um úrbætur á því sviði en betur má ef duga skal til að stuðla að aukinni samkeppn- ishæfni allra eininga í virðiskeðju raforku- mála. Samtök iðnaðarins hafa lagt til umbætur í orku- og umhverfis- málum til að ná enn frekari árangri á þessu sviði. Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að breyta tilgangi og markmiðum Loftslagssjóðs þannig að sjóðurinn fjármagni umbreytingu í atvinnulífi sem dregur úr losun. Tekjur vegna sölu á losunarheim- ildum renni þannig óskiptar í sjóðinn. Í öðru lagi er mikilvægt að skapa fjárhagslega hvata til að stuðla að umhverfisvænum breytingum. Horfa ætti til fordæma erlendis, s.s. starf- semi hins norska ENOVA-sjóðs sem styrkir verkefni sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, þróa orku- og umhverfistækni og efla raforku- öryggi. Í þriðja lagi verður að draga úr flækjustigi í stjórnsýslu vegna uppbyggingar í raforkukerfinu, s.s. hvað varðar leyfisveitingar og um- hverfismat. Einfalda þarf málsmeð- ferð með rafrænum lausnum fyrir leyfisveitingar framkvæmda, skipu- lagsferli, mat á umhverfisáhrifum og aðra stjórnsýsluferla. Þá þarf að sam- ræma ferli, forðast endurtekningar á ferlum og einfalda kæruheimildir. Síðast en ekki síst þarf að vinna að því að gera fyrirtækjum kleift að framleiða raforku úr auðlinda- straumum í starfsemi sinni og selja inn á almennan markað. Ryðja þarf úr vegi lagalegum hindrunum sem og samningsbundnum takmörkunum til að koma slíku kerfi á og afhendingu inn á almennan raforkumarkað. Tækifærin eru til staðar og því þarf að koma breytingum á sem allra fyrst til að tryggja enn frekar framboð á raforku og efla raforkuöryggi. Árangur í orku- og umhverfis- málum styður við nýsköpun og frek- ari verðmætasköpun. Með þessum umbótum eflum við samkeppnishæfni Íslands og verðum betur í stakk búin til að endurreisa hagkerfið. Eftir Lárus M.K. Ólafsson Lárus M.K. Ólafsson »Metnaðarfull mark- mið á sviði um- hverfis- og loftslags- mála verða áskorun fyrir samfélagið en að sama skapi verða til tækifæri. Höfundur er viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins. 40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 Uppáhalds L’Occitane vörurnar okkar Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is L’Occitane stelpurnar mæla með sínum uppáhalds vörum. Kynntu þér vörurnar í versluninni okkar í Kringlunni eða á loccitane.is Konur eru nú tæp 40% þingmanna og 45% ráðherra. Þær eru nú í æ ríkara mæli í fyrstu sætum í forvali og prófkjöri flokkanna, sem bendir til þess að konur verði mögulega í meirihluta þingmanna á næsta þingi. Það ber vissulega að fagna slíkri þróun ef satt reynist að konur hafi meira hyggjuvit en karlar samanber hinar oft tilnefndu „hagsýnu hús- mæður“. Þótt flestir telji að Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra hafi komist vel frá sínu starfi þá er stað- reynd að sumar aðrar konur í rík- isstjórn hennar hafa lent undir smásjá fjölmiðla vegna aðgerða sinna í málum sem aðallega tengjast dóms-, mennta- og heilbrigðis- málum. Greinarhöfundur starfaði í ára- tugi innan heilbrigðisþjónustunnar og hefur fylgst með afar umdeildri framgöngu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra á síðasta kjör- tímabili. Má þar nefna aðför að starfsemi sjálfstætt starfandi lækna, deilur um fjár- mögnun hjúkrunar- heimila, vistun biðlista sjúklinga í liðskipta- aðgerðir á erlendri grundu, sóttvarnar- reglugerð sem ekki stóðst lög og fram- göngu hennar í mál- efnum krabbameins- leitar kvenna sem leiddi til dreifðrar stjórnunar leitar sam- hliða útvistun grunnrannsókna leg- hálskrabbameinsleitar til erlendrar rannsóknarstofu. Ráðherra segist hér fara að ráðum „bestu sérfræð- inga“ en hlustar ekki eftir ráðlegg- ingum annarra sérfróðra kunn- áttuaðila og hunsar ábendingar fjölmenns hóps kvenna sem stofnað hafa til fésbókarhópsins „Aðför að heilsu kvenna“. Reynsla síðasta kjörtímabils bendir þannig til að í komandi þing- kosningum skipti kyn einstakra frambjóðenda ekki öllu máli heldur ættu kjósendur frekar að byggja mat sitt á trúverðugleika einstakra frambjóðenda og málefnalegri stefnu stjórnmálaflokkanna. Eftir Kristján Sigurðsson » Framganga Svandís- ar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra hef- ur verið afar umdeild á síðasta kjörtímabili. Kristján Sigurðsson Höfundur er prófessor emeritus, fyrrverandi yfirlæknir og sviðsstjóri á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins og Kvennadeild Landspítala. kiddos@simnet.is Prófkjörsþankar – skiptir kyn þingmanna máli? Það hefur verið haft fyrir orðtak, að fyrsta kynslóð byggi upp, önnur haldi gangandi en sú þriðja setji á hausinn. Ekki er þetta algilt en samt freistandi að bera saman við þró- unina í landinu frá aldamótum 1900 til dagsins í dag. Örsnauð en stór- huga lagði þjóðin upp, skóp sér sjálf- stæði með heppni aðstæðna og of- urtrú og náði langt. Svo skiptust á skin og skúrir, kreppur, hernám og stríðsgróði. Að- stoð þegar allt var komið í þrot, en síðan tæknivæðing og uppbygging til lífsgæða. Allir voru með og leti þótti til skammar. Þá fóru fáir á fjöll og að skokka vissi ekki á gott, þar hlyti eitthvað að hanga skakkt. En nú eru að taka við þeir sem ekki meta puðið. Þeim þykir sjálf- sagt að hafa allt og því ekki eftir efn- islegu að slægjast. Þráin verður þá eftir því sem þyk- ir vanta: frjálsum tíma á fjöllum eða í ræktinni. Áhugamál sem hægt verði að telja upp í afmælisviðtölum framtíðar. Svona er þetta í dag. Við erum rík þjóð og getum boðið öðrum að vinna störfin. Er eitthvað að því? Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Fjórða kynslóðin Morgunblaðið/RAX Frí Gengið á fjöll í frítímanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.