Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 42

Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 42
Augnháralengingar Það hef- ur notið vinsælda að vera með augnháralengingar og þær eru fallegar þegar þær eru vel gerðar. Það er hins vegar tímafrekt að vera með augnháraleng- ingar og stundum snúið fyrir mjög uppteknar konur að koma því inn í pró- grammið. Marta María mm@mbl.is Sæl Marta María. Ég er alltaf í vandræðum með augn- hárin. Ég var lengi með augnháraleng- ingar og eftir að ég hætti hafa augnhár- in eiginlega ekki jafnað sig. Veist þú hvaða maskari er bestur til að láta augnhárin virka þéttari og lengri? Er eitthvað sem ég get gert til að reyna að fá lengri augn- hár án þess að fara aftur í augnháralengingu? Kveðja, S. Sæl S. Ég skil þjáningu þína. Einu sinni fyrir langalöngu var ég með augnháralengingar og fannst það frábært. En svo var ég orðin þreytt á að þurfa að láta laga augnhárin á nokkurra vikna fresti, hafði ekki tíma í það, og ákvað að hoppa af þessum vagni. Ég hef þó ekkert á móti augnháralengingum, finnst þær fallegar þegar þær eru vel gerðar. Ég upplifði svolítið eins og ég væri ekki með augnhár leng- ur þegar augnháralengingin var farin. Það er ljós við hinn enda ganganna. Með smá þolinmæði komst þetta allt í lag og í dag pæli ég lítið í þessu. Ég vel maskara sem þykkja og lengja augnhárin þannig að þau virki lengri og þéttari. Það eru nokkrir maskarar sem mér finnst sérstaklega góðir og ég skipti reglulega um maskara til að vera ekki föst í sama farinu. Eitt sem hef- ur virkað vel fyrir mig er að nota grunn frá Max Factor sem heitir False Lash Effect Max Out Blue ir þau afar fal- leg. Með þessa tvennu hef ég ekki saknað augn- háralenging- anna. Ég játa þó að einstöku sinnum, ef mikið liggur við, fer ég í förðun og þá læt ég setja á mig gervi- augnhár til að búa til meiri stemn- ingu. Mon- sier Big- maskarinn frá Lancôme er líka í miklu uppáhaldi og nota ég hann oft. Svo er ég mjög hrifin af maskaranum frá IT Cosmetics. Hann er ferlega góð- ur. Gangi þér vel með þetta. Kær kveðja, Marta María. - Ef þér liggur eitthvað á hjarta þá get- ur þú sent mér póst á mm@mbl.is. Lesendur Smartlands eru duglegir að leita ráða hjá mér og spyrja út í hitt og þetta sem fjallað er um á vefnum. Frá því Smartland fór í loftið hef ég fengið mörg þúsund fyrirspurnir. Hingað til hef ég svarað fyrirspurnum fólks í gegnum tölvupóst en í tilefni af 10 ára afmæli Smartlands ætla ég að svara spurn- ingunum á vefnum sjálfum til að leyfa lesendum að fá innsýn í hvað gerist á bak við tjöldin. Hér fékk ég spurningu frá konu sem var að velta fyrir sér hvaða maskari væri langbestur eftir að hún hætti að nota augnháralengingar. Hvernig fæ ég þykkari augnhár? Yfirburða Monsieur Big- maskarinn frá Lancôme er frá- bær og í miklu uppáhaldi hjá mér. Falleg áferð IT Cosmetics- maskarinn þykk- ir og lengir. Primer. Þetta er svona undirmask- ari sem er gott að nota til að láta augnhárin virka lengri. Hann er blár, sem virkar kannski furðulega, en hann gefur mjög góða fyllingu. Yfir hann finnst mér gott að nota Just Click It Volume-maskara frá Gosh. Hann er með geggjuðum bursta sem lengir augnhárin og ger- Fyrir og eftir Monsieur Big- maskarinn frá Lancôme set- ur svip á augnumgjörðina. Snilld Primerinn frá Max Factor sem er blár að lit er snilld undir mask- arann ef þú vilt mjög löng augnhár. Smelltu bara Just Click It- maskarinn frá Gosh er guðsgjöf! Hugmynd! Hægt er að nota bláa primerinn frá Max Factor einan og sér ef þú vilt vera svolítið eins og stjörnur ní- unda áratugarins. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 Snjallari lausnir í greiðslumiðlun á Íslandi Fjártæknilausnir Rapyd bjóða þér upp á snjallari greiðslumiðlun. Við bjóðum upp á fjölmargar greiðsluleiðir og virðisaukandi þjónustur sem henta þínum rekstri. Við setjum þjónustu við söluaðila í fyrsta sæti. Vertu í sambandi 558 8000 | hallo@rapyd.net | rapyd.net/is Einfaldari Snjallari Betri Leyfðu okkur að þjónusta þig. Serum frá Bláa lóninu inniheldur BL + Comples, sem bætir kollagen- birgðir húðar og styrkir náttúrulegt varnarlag hennar. Serumið er unnið úr jarðsjó Bláa lónsins, C-vítamíni og í því eru líka þrjár tegundir af hýalúrónsýru. The Serum-formúlan inniheldur einstaka samsetningu virkra efna sem stuðla að auknum raka, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens, veita vörn gegn umhverfismengun og hafa andoxunaráhrif. Húðin verður sterkari, þéttari og fær mikinn raka djúpt niður í húðlögin. Dregur úr fínum línum og hrukkum, húðin verður heilbrigðari og ljómandi. Áður en varan fór á markað var hún prófuð af húðlæknum en hún er með léttri silkimjúkri áferð. Serumið er algerlega án ilmefna og hentar öllum húðgerðum. Þess má geta að serum hentar einnig fyrir græn- kera þessa landsins og alheims- ins. mm@mbl.is Bláa lónið með nýtt vopn í baráttunni við ellikerlingu Það er alltaf gleðistund þegar nýjar íslenskar vörur koma á markað. Á dögunum leit nýtt serum dags- ins ljós frá Bláa lóninu. Um er að ræða serum sem vinnur gegn öldrun húðarinnar og styður við heil- brigði hennar. Fyrir þær sem vilja halda í æskuljóma sinn ætti þetta að vera eitthvað sem hentar vel. Ljómandi Serumið dregur úr fínum línum og hrukkum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.