Morgunblaðið - 29.04.2021, Síða 44
Dj Dóra Júlía
dorajulia@k100.is
Með hækkandi sól og mikilli von
byrjar menning borgarinnar að iða af
lífi og veitir mörgum gleði. Það er
svo skemmtilegt að gera sér daga-
mun, finna fyrir innblæstri og sköp-
unargleði fólksins og hafa augun opin
fyrir listviðburðum í kring.
Ljósmyndarinn og listakonan
Anna Maggý er að setja upp einka-
sýninguna The Perfect Body næst-
komandi laugardag 1. maí í listgall-
eríinu Þulu. Anna Maggý hefur vakið
mikla athygli fyrir sköpunarkraft
sinn, hún stundaði nám í Ljósmynda-
skólanum og hefur síðan þá starfað
sjálfstætt sem ljósmyndari og leik-
stjóri.
Ljósmyndir hennar hafa prýtt síð-
ur tímarita um allan heim og birti
Vogue Italia meðal annars myndir
eftir hana þar sem stóð að hún væri
talin einn besti íslenski ljósmyndari
sinnar kynslóðar.
Sýningin The Perfect Body er
sería af listrænum ljósmyndum þar
sem Anna Maggý brýtur upp full-
komleikann og skapar einstakar ab-
strakt myndir af líkamanum undir
vatni. Myndirnar sýna fram á hvað
ófullkomleikinn er fallegur.
Hún segir þó að hún hafi ekki
áhuga á fegurð heldur snúist þetta
um kraft myndanna og vill hún færa
mörkin á milli samfélagslega sam-
þykktrar fegurðar og þess sem er
ekki talið fallegt. Til þess notast hún
við kraft formleysisins.
Í lýsingu viðburðar stendur meðal
annars:
„Í gegnum tíðina hefur mannveran
og samfélagið reynt að skapa hina
fullkomnu manneskju. Við erum föst
í líkamanum, forminu, hvort sem
okkur líkar betur eða verr. Okkur er
ætlað að sjá brenglun, ófullkomleika,
eitthvað sem hægt er að bæta eða
breyta, skipta út, hliðra, ummynda.
Hinn skapaði fullkomleiki er þó jafn
síbreytilegur og tunglstaðan frá degi
til dags. Mörkin eru óljós og skolast
sífellt til.“
Sterkur punktur sem vert er að
minna sig á og mikilvægt að fagna
margbreytileikanum sem felst í því
að hvert og eitt okkar býr yfir ein-
stökum líkama.
Með verkum sínum vill Anna
Maggý deila einstöku sjónarhorni og
kalla fram áhugavert og forvitnilegt
andrúmsloft. Fá fólk til þess að
staldra við í huganum. Hún vill enn
fremur bjóða hverjum og einum
áhorfanda upp á rými til að geta
túlkað ljósmyndir hennar á eigin
hátt.
Virkilega áhugavert og skemmti-
legt verkefni og ég mæli með því að
gera sér ferð í listgalleríið Þulu,
Hverfisgötu 34 (á Hjartatorgi og
gengið inn frá Laugavegi). Sýningin
stendur til 23. maí.
Skoðar kraftinn sem felst í formleysinu
Ljósmynd/Anna Maggý
Listrænar Myndir Önnu Maggý eru margbreytilegar.
Ljósmynd/Anna Maggý
Einstakar Myndirnar eru abstrakt og fallegar.
Ljósmyndarinn og lista-
konan Anna Maggý setur
upp einkasýninguna The
Perfect Body í listagall-
eríinu Þulu hinn 1. maí
næstkomandi. Sýningin
er sería af listrænum
ljósmyndum þar sem
Anna Maggý brýtur upp
fullkomleikann og skapar
einstakar myndir af lík-
amanum undir vatni.
Ljósmynd/Anna Maggý
Allskonar Myndirnar sýna margbreytilega líkama.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími
8:00-16:30
Er ekki kjörið að grilla?
Frábært úrval af kjöti á grillið – Kíktu við!
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
Klassísk gæða
hönnun á
góðu verði