Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 46

Morgunblaðið - 29.04.2021, Side 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 ✝ Kristófer Már Kristinsson fæddist í Reykjavík 3. ágúst 1948. Hann lést á Landspít- alanum 19. apríl 2021. Foreldrar hans voru Guðmundur Kristinn Magn- ússon, stýrimaður og verkstjóri, f. 2. nóvember 1895, d. 1956, og Ágústa Sigríður Krist- ófersdóttir, húsfreyja og starfs- maður heimilishjálparinnar í Reykjavík, f. 17. nóvember 1908, d. 1998. Systkin hans eru Margrét, f. 1930, d. 2012; Eva, f. 1931, d. 2006; Svala, f. 1934; Ásgeir, f. 1939, d. 2017; Óli, f. 1941, d. 1997; og Kristinn Magnús, f. 1946. Fyrri kona hans var Margrét Skagfjörð Gunnarsdóttir, f. 20.9. 1950, d. 2013. Börn þeirra eru: 1) Daði Már, kvæntur Ástu Hlín Ólafsdóttur, börn þeirra eru Sólveig, Margrét Björk, Atl- frá MH og nam kennslu- og upp- eldisfræði við Kennaraháskóla Íslands. Hann lauk leiðsögu- prófi frá Ferðamálaskóla Ís- lands, BA-prófi í íslensku og MSc-prófi í umhverfis- og auð- lindafræði frá Háskóla Íslands. Hann var kennari við Héraðs- skólann í Reykholti á árunum 1973 til 1984, síðar fram- kvæmdastjóri Bandalags jafn- aðarmanna. Hann var í eitt ár fréttaritari RÚV í Brussel, fréttaritari og blaðamaður Morgunblaðsins þar í borg á ár- unum 1987 til 1993 og for- stöðumaður Evrópuskrifstofu atvinnulífsins 1993 til 2004. Hann starfaði síðar sem leið- sögumaður og kennari við Ferðamálaskóla Íslands. Krist- ófer var varaþingmaður Banda- lags jafnaðarmanna og tók oft sæti á Alþingi á árunum 1983 til 1986. Hann starfaði mikið í skátunum á yngri árum og tók virkan þátt í starfi ungmenna- félaganna í Borgarfirði þegar hann bjó þar. Kristófer verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, 29. apr- íl 2021. Boðið hefur verið til út- fararinnar, sem verður streymt: https://youtu.be/VDJ7QzNnrfI Streymishlekk má líka nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat as og Gunnhildur. 2) Ágústa, gift Óla Jóni Jónssyni, börn þeirra eru Ásdís, Tómas og Jón Kristófer. 3) Gísli Kort, kvæntur Auð- björgu Björns- dóttur, börn þeirra eru Björn Kort, Ágústa Kort og Helgi Kort. 4) Gunnar Tómas, kvæntur Katharinu Schumac- her, börn þeirra eru Elísa og Theodór. Eftirlifandi eiginkona Kristófers er Valgerður Bjarna- dóttir, viðskiptafræðingur og fv. alþingisþingmaður. Börn Valgerðar eru: 1) Guðrún Vil- mundardóttir, sambýlismaður hennar er Ólafur Kristjánsson, börn Guðrúnar eru Gylfi Þor- steinn og Eyja Sigríður. 2) Bald- ur Hrafn Vilmundarson, sam- býliskona hans er Erna Helga Pálsdóttir, börn þeirra eru Mikael Hrafn, Valgerður Freyja og Kristófer Páll. Kristófer lauk stúdentsprófi Það var alltaf gaman að koma til ömmu og afa þegar við systk- inin vorum lítil. Stundum gerði amma pönnukökur og við afi horfðum á mynd. Ég átti sérstak- an stól sem var lítill sem ég gat sett við hliðina á hans. Við horfð- um á gamlar myndir sem hann hafði margoft séð en hann horfði á þær með mér með fullri athygli. Stundum birtust á skjánum gaml- ir kunningjar hans úr skátunum, sagði hann manni. Eitt sinn vorum við í útilegu og eftir matinn sagði afi okkur syst- kinunum sögu. Hún varð löng og ansi flókin þar sem í hvert sinn sem hann ætlaði að nema staðar bentum við honum á lausa enda og báðum hann um að halda áfram. Sögusviðið var stórt, persónurnar voru margar en rauði þráðurinn var blár miði. Hún var fyndin og skemmtileg en gekk kannski ekki alveg upp. Síðustu árin var ég tíður gestur í mat á Skúlagötu. Við fórum yfir mál málanna og afi sagði nokkrar sögur tengdar því sem bar á góma, stundum voru þær langar en aldrei of. Hann hafði heyrt og séð margt og mikið og það var fróðlegt og skemmtilegt að heyra hann segja frá því. Þótt hann hafi ekki lifað jafn lengi og margir gera í dag þá átti hann langa ævi. Gylfi Þ. Gunnlaugsson. Ávallt var hressandi að hitta Kristófer Má og ræða við hann um landsins gagn og nauðsynjar. Hann var skemmtilegur, marg- fróður og lýsti oft skoðunum frá öðru og skarpara sjónarhorni en aðrir. Við kynntumst þegar hann tók að sér að rita fréttir fyrir Morg- unblaðið frá Brussel undir lok ní- unda áratugarins og ég fór þar með ritstjórn erlendra frétta. Fyrir þá sem þekkja ekki fjöl- miðla frá fyrri tíð er erfitt að setja sig í spor þeirra sem skrifuðu er- lendar fréttir á þessum árum. Þær voru ekki aukastærð eins og stundum núna heldur fylltu til dæmis að jafnaði forsíðu Morgun- blaðsins. Evrópusamstarfið var í gerjun, aðildarviðræður Íslendinga að sameiginlega markaðnum, EES, á döfinni. Hlutur Evrópumálanna varð sífellt meiri og heitari á ís- lenskum stjórnmálavettvangi. Áhuginn á því sem gerðist í Bruss- el jókst í samræmi við það. Sem Brussel-blaðamaður Morgunblaðsins fjallaði Kristófer Már um þessi mál af miklum áhuga og sífellt meiri þekkingu eftir því sem tengslanet hans í Evrópuheimi Brusselborgar stækkaði. Það var ekki heiglum hent þá frekar en núna að átta sig á gangi Evrópumálanna og átök- um um hagsmuni einstakra ríkja á bak við tjöldin eða á opnum vettvangi. Þeir voru þarna samtímis við blaðamennsku Kristófer Már og Boris Johnson, síðar forsætisráð- herra Breta, sem varð Brussel- fréttaritari The Daily Telegraph. Íslendingar töldu Jacques De- lors, forseta framkvæmdastjórn- ar ESB, sér hliðhollan enda mót- aði hann pólitískan grunn EES-samningsins af hálfu sam- bandsins. Boris Johnson lagði hins vegar fæð á Delors vegna evrópskra samrunaáforma hans. Eftir fimm ára blaðamennsku í Brussel varð Kristófer Már í september 1993 fyrsti forstöðu- maður Evrópuskrifstofu atvinnu- lífsins í Brussel, að henni stóðu Félag ísl. iðnrekenda og Vinnu- veitendasamband Íslands. Þegar Kristófer Már réðst þar til starfa lá EES-samningurinn fyrir og Íslendingar urðu að fylgjast náið með framkvæmd hans og gæta hagsmuna sinna á þessum nýja samstarfsvettvangi sem síðan opnaði íslenskt samfélag og leiddi til jákvæðra breytinga á því. Kristófer Már var frum- kvöðull í samskiptum Íslendinga utan opinbera kerfisins við ESB á mótunarárum EES-samstarfs- ins. Hann vildi ganga lengra og var ekki alltaf sáttur við að sitja utan dyra þegar fulltrúar ESB- ríkjanna réðu ráðum sínum en það spillti ekki áhuga hans á að miðla upplýsingum um fram- vindu mála í Brussel. Það auðveldaði Kristófer Má að vinna þetta brautryðjanda- starf hve hann átti auðvelt með að skapa tengsl við fólk og naut sín í líflegum samræðum. Hann var kankvís og vingjarnlegur. Minningin um hann er björt og ánægjuleg. Undir lokin var sjúkdómslega hans stutt og höggið því þyngra en ella fyrir hans nánustu sem við Rut vottum innilega samúð. Blessuð sé minning Kristófers Más Kristinssonar. Björn Bjarnason. Vinur minn Kristófer Már hef- ur lokið sinni jarðvist. Horfinn er af sviðinu um aldur fram einstak- ur og óvenjulegur maður, maður sem iðulega var með hlýlegt glettnisbros og spaugsyrði á vörum. Kristófer var sannur lífs- kúnstner sem kunni ætíð vel að meta hið fagra, góða, og skemmti- lega í lífinu. Alveg eins og per- sónuleikinn, var starfsferill hans og lífshlaup um margt sérstakt og óvenjulega fjölbreytt: kennari og sveitarstjórnarmaður til margra ára, varaþingmaður, blaðamaður, fulltrúi í Brussel til fjölda ára og loks kennari og leiðsögumaður á sviði ferðamála. Skopskyn hans var einstakt og leiftrandi, en aldr- ei meiðandi eða á kostnað ann- arra. Sýn hans til þjóðmála og stjórnmála byggðist ætíð á leit að góðum rökum, samkvæmni í mál- flutningi og réttlæti. Ég þakka mínum kæra vini ógleymanlegar samverustundir yfir rúmlega 20 ára tímabil. Hvíl í friði minn kæri vinur og blessuð sé minning þín. Hermann Sveinbjörnsson. Það var fyrir 18 árum síðan að leiðir okkar Kristófers lágu fyrst saman. Hann kom hingað í Ferða- málaskóla Íslands og óskaði eftir að fara í leiðsögunám. Það fór ekki milli mála að hann var maður vel lesinn og fróður. Árið eftir bar svo við, að kennar- inn sem var búinn að vera hjá okk- ur til fjölda ára var að flytja til út- landa og þurfti ég þá að finna staðgengil fyrir hann. Leitaði ég þá til Kristófers og var hann tilbú- inn að taka að sér kennslu sem spannaði frásagnir um landið, bókmenntir og sögu. Síðan þá, eða í 17 ár, hefur hann verið aðalkennari hér við skólann og kennt um helming alls þess námsefnis sem kenna þurfti. Aldr- ei var komið að tómum kofunum þar sem hann var hvort sem spurt var um fjöll, ártöl eða atburði úr sögu. Frásagnarhæfileikar Krist- ófers voru einstakir. Hann talaði hægt og skýrt og nemendur biðu oft í ofvæni eftir því að heyra hvað hann mundi segja næst. Það var ekki svo sjaldan að ég fékk spurn- ingar frá nemendum: „Hvernig veit hann og getur munað þetta allt?“ Sérstakur húmor KMK eða Kristó eins og hann var iðulega kallaður lífgaði heldur betur upp á kennslutímana. Á sumrin var Kristófer leið- sögumaður. Vann hann mest fyrir eina ferðaskrifstofu og líkaði það vel. Var þá mest verið að fara dagsferðir út frá Reykjavík. Hef ég það fyrir víst að ákveðnar er- lendar ferðaskrifstofur settu þær kröfur fyrir ferðum sínum hingað til lands að KMK væri leiðsögu- maður hópsins. Var hann einstak- lega vel liðinn af farþegum, ferða- skrifstofum og öðrum leiðsögumönnum. Lá hann aldrei á liði sínu við að upplýsa aðra um einhver efni sem þurfti svör við. Má segja að KMK hafi verið nokk- urs konar „Leiðsögumaður Ís- lands“. Oft og tíðum fékk ég spurning- ar við innritun nýrra nemenda hvort sami kennari væri og í fyrra en þá hafði einhver kunningi, eða náskyldur, bent viðkomandi á að fara í skólann þar sem Kristófer kenndi. Sérkenni KMK voru með sér- stökum hætti. Meðal annars gekk hann alla daga með slaufu sem vakti sérstaka athygli og átti hann til að skipta margoft um slaufu í hringferðum okkar. Á mörgum útskriftarbekkjar- myndum má sjá að allur bekkur- inn ber slaufu honum til heiðurs. Táknrænt dæmi um hug hans með slaufurnar var að undirskrift hans á prófskírteini nemenda KMK myndaði slaufu. Í gegnum tíðina fórum við sam- an í margar dagsferðir með nem- endur og síðan í skólalok var ávallt farið í fimm daga hringferð um landið. Eru þær að minnsta kosti 17 sem við fórum saman, en núna förum við hvor í sína áttina. Ég einn með stóran hóp nemenda í hringferð, en hann í Sumarlandið. Það segir um hug hans til skól- ans og nemenda, að hann hringdi í mig nokkrum sinnum af spítalan- um og hafði miklar áhyggjur af kennslunni sem eftir var vetrar. Að leiðarlokum vil ég þakka Kristó fyrir samstarfið á liðnum árum og óska honum góðrar ferð- ar í hinstu för. Friðjón Sæmundsson, skólastjóri Ferðamála- skóla Íslands. Glöggur maður hafði á orði, að maður væri alltaf að skrifa um sjálfan sig þegar minningargrein væri rituð. Sjálfsagt er talsvert til í því, enda er minningin nátengd samskiptum við hinn látna. Ég kynntist Kristófer í aðdrag- anda kosninga fyrir röskum ald- arfjórðungi þar sem við unnum saman og áttum vináttu hvor ann- ars æ síðan. Kristófer var vel gef- inn maður til orðs og æðis, hann var stilltur, skemmtilegur og drengilegur. Allir þessir kostir hans komu fram í margvíslegum samverustundum, sem við Elín eiginkona mín áttum með Krist- ófer og Völu, hvort sem var í hestaferðum með öðru góðu fólki um Skagafjörð þar sem slóðir Bólu-Hjálmars allt úr Blönduhlíð fram í Hildarsel í Austurdal voru kannaðar, og síðar um Borgar- fjörð eða á tveim jafnfljótum á Spánarströndum og í New York. Alls staðar var Kristófer eins og heima hjá sér og vissi allt um flest. Og svo líka á heimilum okkar í góðu yfirlæti og gleði. Það eru þessar samverustundir sem mað- ur saknar. Þá má ekki gleyma sameiginlegum spekistundum nokkurra vina þar sem við reynd- um að fá botn í Sturlungu. Þetta voru skemmtistundir mánaðar- lega í a.m.k. þrjá vetur, sem fylgt var eftir með vettvangsferðum. Og þar var Kristófer í essinu sínu. Hann hafði sterkar pólitískar skoðanir, öfgalausar og vel ígrundaðar. Ekki veit ég hvort við kusum nokkru sinni sama flokk- inn, en hitt veit ég, að við vorum oftar sammála en ekki. Hann nálgaðist pólitísk viðfangsefni af tilfinningum en ekki síður af skarpskyggni og rökvísi, og lét aldrei draga sig út í vitleysislegar rökræður þótt flokkslínur byðu upp á slíkt. Mér þykir líklegt að Kristófer hafi liðið bezt í stöðu fræðara, fyrst sem kennari, og nú síðast sem leiðsögumaður og kennari á ný. Ég hefi fyrir því orð nemenda hans úr Reykholti og ferðalanga sem nutu frábærrar þekkingar hans um land og þjóð, þar var eng- um spurningum ósvarað. Vinar er saknað í stað. Það er svo margt órætt og svo margt sem átti eftir að athuga. En svona er þetta nú samt. Elskulegri vinkonu okkar, Völu, sendum við innileg- ustu samúðarkveðjur og börnum hennar, svo og börnum Kristófers. Góður maður er genginn. Pétur Kjartansson. Vinátta okkar Kristófers hófst þegar ég hélt til starfa í Brussel. Hann sá mig álengdar, þar sem ég hafði síðla laugardags tyllt mér til kaffidrykkju, eða hvað það nú var, á Stockel og sagði stundarhátt við Baldur: „Þessi talar íslensku.“ Hafði ég hvorugan séð áður að mig minnir. Tókum við nú tal sam- an um heima og geima og ekki síst pólitíkina, ég sagði á mér deili og hann á sér og hví okkur hefði rekið á sömu fjöruna þarna í Belgíu og áður en ég vissi var ég kominn með kvöldverðarboð í vasann. Þau Kristó og Vala voru höfðingjar heim að sækja og veittu vel og var jafnan kátt á hjalla þegar við hittumst hjá þeim eða okkur. Kristó var stórfróður maður, sanngjarn og víðsýnni en almennt gerist. Hann var sagna- maður og var það svo að engu samtali lauk án þess að einhver saga – sönn eða login – væri sögð. Einhverju sinni fórum við Erna með þeim Kristó og Völu til Din- ant sem er smábær sunnanvert í Vallóníu og stendur á bökkum ár- innar Meuse. Áttum við góða kvöldstund við svignandi borð þar undir klettinum þunga og að morgni skyldi kirkja Vorrar frúar skoðuð. Kristó leiddi gönguna. Hann fræddi okkur trúleys- ingjana um margt sem við hefðum betur vitað. Í lok göngunnar gekk hann að fonti við kirkjudyrnar og laugaði hendur sínar og andlit með tilheyrandi krossmörkum. Þegar hann krossaði á enni sér hváði ég við og spurði til hvers þetta væri gert. Þá svaraði Kristó: „Þú veist, þetta er eins og með bílatryggingarnar – maður veit aldrei hvenær reynir á þetta.“ Kristófer naut þeirrar sérstöðu að hafa einn allra jarðarbúa fengið mér stuttbuxur og hatt að gjöf í lok einhverrar veislunnar hjá þeim í Bxl. Vinátta hans var kröfulaus og þótt langt um liði á stundum var sami þráðurinn tekinn upp næst þegar tilefni gafst. Farnist þér vel vinur á ferð þinni. Eiríkur Baldursson og Erna G. Árnadóttir. Það var mikil gæfa að eiga Kristófer Má að vini. Við hittumst á unglingsaldri í gegnum skátana og Úlfljótsvatn, en þar var hans annað heimili í uppvextinum. Kristófer hafði misst föður sinn ungur en mágur hans, Björgvin Magnússon, rak skátaskólann á Úlfljótsvatni og þar naut hann einnig nærveru Grétu systur sinn- ar. Heima á Staðarhóli við Dyngjuveg bjó Kristófer við gott atlæti hjá móður sinni, kjarnakon- unni Ágústu Kristófersdóttur. Hún var þungamiðja fjölskyld- unnar, og þangað sótti stórfjöl- skyldan. Það var mikið skrafað og hlegið við stóra borðið hennar Ágústu á Staðarhóli. Hún fylgdist glöggt með öllu og lá ekki á skoð- unum sínum, sem voru engin hálf- velgja. Í minningunni eru heim- sóknirnar til Kristófers vinar míns að Staðarhóli sveipaðar ljóma og hlýju. Við vorum duglegir í göngu- ferðum um fjöll og firnindi, sem þá þótti sérviskulegt og vart á færi annarra en furðufugla eins og skátanna. Ekki var langt að fara upp að Tröllafossi, eða inn í Mar- ardal, og klífa síðan Skeggja eða kanna Stíflisdalinn. Þegar Krist- ófer eignaðist rússajeppa sem mátti taka af blæjurnar hófst nýr kafli í þessum ævintýrum. Krist- ófer mætti alltaf í þessar ferðir vel undirbúinn, hafði grúskað í Ferðafélagsbókum og öðru efni. Það kom því ekki á óvart að síðar á lífsleiðinni skyldi hann gerast leið- sögumaður í fullu starfi. Þar naut hann sín vel enda sögumaður með afbrigðum góður. Við félagarnir störfuðum er- lendis um árabil; hann sem fulltrúi íslensks atvinnulífs í Brussel en ég hjá Matvæla- og landbúnaðar- stofnun SÞ (FAO) í Róm, svo það var um nóg að ræða þegar við hitt- umst. Kristófer fylgdist vel með og var víðlesinn, sannfærður Evr- ópusinni og sá aukna alþjóðasam- vinnu sem leið til aukinnar far- sældar og friðar í heiminum. Hann var sannkallaður þjóð- félagsrýnir í bestu merkingu þess orðs og glöggur á þróun mála. Hans aðalsmerki var að sjá jafnan spaugilegu hliðarnar á málunum. Það var því ekki leiðinlegt að rölta um stræti Brussel og Rómar með slaufuklæddum Kristófer og ræða heimsmálin. Þegar heim var komið tókum við upp fyrri háttu og ferðuðumst saman um Ísland, að vísu í hlýju og regnheldu hjólhýsi eins og heldri borgurum sæmir. Þar var ég í sæti þiggjandans því að venju lögðum við upp í vandlega undir- búnar ferðir af hans hálfu og kom fyrir að mér var úthlutað lesefni áður en lagt var í hann. Í þessar ferðir okkar kom Kristófer jafnan vel nestaður sem fyrr enda mikill sælkeri og smekkmaður í hví- vetna. Kristófer Már Kristinsson Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Ástkær systir okkar og mágkona, AÐALBJÖRG S. GUNNARSDÓTTIR Assý, Lindargötu 61, lést á Landspítalanum Fossvogi 20. apríl. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 30. apríl klukkan 13. Björg Gunnarsdóttir Finnbogi Sigurðsson Ágústa Gunnarsdóttir Þorvarður Gunnarsson Þórlaug Ragnarsdóttir Jón Gunnarsson Sigríður G. Sverrisdóttir Helga Gunnarsdóttir Ástkær eiginkona, móðir, dóttir og tengdadóttir, VALGERÐUR GUÐLAUGSDÓTTIR, myndlistarmaður og kennari, lést þriðjudaginn 27. apríl á krabbameinsdeild Landspítalans. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson Eyjólfur Orri Helgason Erla Bil Bjarnardóttir Ingibjörg Helgadóttir Eyjólfur Ingimundarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.