Morgunblaðið - 29.04.2021, Síða 49

Morgunblaðið - 29.04.2021, Síða 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021 Efst í huga mér við andlát mömmu er þakklæti. Hjarta mitt er yfirfullt af þakklæti fyrir allt sem við mamma áttum saman. Hún var mikill hluti af lífi mínu og tók þátt í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Hún lá ekki á skoð- unum sínum ef hún var ósátt við eitthvað, sérstaklega á mínum yngri árum, en hún bar alltaf hag minn fyrir brjósti og vildi bara það sem var mér fyrir bestu. Fyrir það er ég þakklát. Það sem einkenndi hana voru G-in tvö, glaðværð og gjafmildi. Hún gat aldrei átt pening nema deila hon- um með öðrum. Gott dæmi sem ég vil nefna hér lýsir svo mikið því sem hún var. Ein jólin hringdi hún í Emil Hörð mann- inn minn og spurði hvort hann vantaði ekki eitthvað, því nú ætti hún nóg af pening. Hún hafði hringt í bankann og ætlaði að fá yfirdrátt á reikninginn fyrir jóla- gjöfum. Starfsmaður bankans sagði að hún þyrfti þess ekki enda stæði reikningurinn í um 500 þúsund. Hún þakkaði fyrir upplýsingarnar og hringdi beint í Emil og vildi endilega deila þessari óvæntu upphæð. Vantar þig ekki eitthvað eða hvað get ég gefið þér, voru algeng orð af munni elsku mömmu og fyrir það er ég þakklát. Glaðværðin var aldrei langt undan og kaus hún hana frekar en leiðindi og fýlu. Í veikindum hennar sl. þrjú ár voru það þeir kostir sem héldu henni uppi. Hvað ég á eftir að sakna mömmu mikið get ég ekki tjáð mig um, en er þakklát fyrir að hafa fengið að hafa hana í lífi mínu í 58 ár. Enn og aftur takk fyrir sam- veruna í öll þessi ár, elsku mamma mín. Jóhanna Sigrún Jónsdóttir. Hæ amma. Mig dreymdi þig síðastliðna sunnudagsnótt. Ég sótti þig við Laugaveginn og átti að skutla þér til sólarlanda. Við spjölluð- um um daginn og veginn. Mér fannst ótrúlegt að jarðarförin þín væri handan við hornið. Þú varst ekki veik, ekki vitund. Við beygðum inn á stóra hrað- braut sem lá svo langt sem augað eygði í átt að stórri grasbreiðu, það var kvöld, himinninn var heiður og sólin sat lágt, beint af augum. Næturljóð MA-kvartettsins hljómaði í útvarpinu. „Þetta er svo fallegt lag,“ Elsa Jóhanna Gísladóttir ✝ Elsa Jóhanna Gísladóttir fæddist í Reykjavík 24. janúar 1941. Hún andaðist 11. apríl 2021. Foreldrar henn- ar voru Hafdís H. Rosenberg, f. 1916, d. 1990, og Gísli Guðni Jónsson, f. 1909, d. 1980. Börn: Gísli Már, Hjörtur Gísli og Jóhanna Sigrún Jónsbörn og Haraldur Thorla- cius. Eftirlifandi sambýlismaður Elsu Jóhönnu er Þórður Mar- teinn Adólfsson. sagðir þú og lokaðir augunum. Þú kunn- ir ekki textann en raulaðir með eins og þú gerðir svo oft, og það gerði ég líka. Svo fór ég að gráta. „Oh, þessir ung- lingar,“ sagðir þú og klappaðir mér á öxl- ina, eins og þú værir að sýna æsku minni samúð. Þegar laginu lauk stöðvaði ég bílinn. Fram undan var falleg strönd með hvítum sandi, það var logn. Þú steigst út úr bílnum og þakkaðir mér fyrir farið. Þú lok- aðir dyrunum og gekkst í átt að ströndinni. Hilmar Rafn Emilsson. Elsku vinkona, nú ert þú farin og komin í sumarlandið til þeirra sem þér þótti svo vænt um. Ég ætla að reyna að bera smyrsli á sárin og setjast niður umkringd minningum um öll góðu árin okk- ar sem við áttum saman, en við kynntumst þegar þú varst 4 ára og ég 5 ára og höfum því verið vinkonur í 77 ár. Margs er að minnast frá æsku okkar og unglingsárunum enda alltaf fjör í kringum þig. Má þar nefna ógleymanlegar minningar á leikvellinum þar sem nú er Vesturbæjarskóli. Við fórum einnig í margar ferðir á bryggj- una út í Örfisey að veiða mar- hnúta og kom mynd af okkur á forsíðu Vikunnar, sem þú síðan gafst mér í afmælisgjöf fyrir nokkrum árum síðan. Þér var margt til lista lagt og elskaðir að mála, fara í veiðiferðir og að prjóna. Það var því erfitt fyrir þig að þurfa að hætta að gera þessa hluti þegar sjóninni fór að hraka en þú gafst ekki upp og reyndir. Það var yndislegt að koma til þín og Dodda og sjá hvað garð- urinn hjá ykkur var fallegur og þakinn blómum og trjám þegar fór að vora. Þú hafðir svo gaman af öllum dýrum og áttir fugla og hunda sem þú elskaðir að dekra við. Það var aðdáunarvert að sjá hvað þú varst alltaf jákvæð og hvernig þú vannst úr veikindun- um þínum, alltaf hringdir þú í mig á hverju kvöldi til að bjóða mér góða nótt og athuga hvernig ég hefði það. Sorg fjölskyldu þinnar og vina er mikill og sár, en dauð- inn er líka kærkominn þegar heilsan er farin að bila. Elsku Doddi, Hanna Rúna, Gísli, Hjört- ur, Halli og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur til ykkar. Hvíl þú í friði elsku vinkona og hafðu þökk fyrir allt. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöð- um hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. óþekktur) Þín vinkona, Eygló Fjóla Guðmundsdóttir. Í dag kveðjum við yndislega konu sem var æskuvinkona móð- ur okkar. Elsa eins og hún var alltaf kölluð var mikið á okkar heimili enda mæður okkar miklar vinkonur og því samgangur mik- ill. Það var alltaf gaman að sitja og spjalla við Elsu enda vildi hún fá að fylgjast með okkur systk- inunum og einnig börnunum okk- ar. Það var svo gaman að fylgjast með hvað hún var dugleg að tak- ast á við ný verkefni og lét ekkert stoppa sig. Það var ótrúlegt að fylgjast með Elsu berjast við hina ýmsu sjúkdóma í gegnum ævina. Aldrei fundum við fyrir vonleysi eða vor- kunn heldur styrk og baráttu eins og henni var tamt með alla hluti sem hún tók sér fyrir hendur. Það er með miklum söknuði og trega sem við kveðjum góða vin- konu hennar mömmu. Minningin um yndislega og góða konu lifir áfram í hugum okkar. Elsku Doddi, Hanna Rúna, Gísli, Hjörtur, Halli og aðrir aðstandendur. Megi guð styrkja ykkur í sorginni sem þið takist á við núna. Minning um einstaka konu mun lifa með okk- ur öllum. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Guðmundur, Áslaug og Ólafía. Þá líða fer að lokum ævidags og ljósið slekkur dauðans kalda hönd, í aftanroða síðsta sólarlags við sjáum blika ný og fegri lönd. Því guðdómsandinn sjálfur sviptir hjúp frá sjón hins gönguþreytta ferða- manns, svo fái’ hann litið dýrðarinnar djúp og dásemd viskunnar og kærleikans. Óttast ei. Sú hönd er mild og hlý, sem hvarmi þreyttum lokar hinsta sinn, þá nóttin dvínar, dagur rís við ský, og dauðinn, lífsins þjónn, er vinur þinn. Já, dauðinn, hann er Drottins hinsta gjöf til dauðlegs manns, sem ferðast hér á jörð. Og, fegra líf þín bíður bak við gröf, því ber að kveðja hér með þakkargjörð. (Sr. Sveinn Víkingur Grímsson) Áræði, dugnaður, jákvæðni, hnyttni, örlæti og tryggð eru meðal þeirra eiginleika sem ein- kenndu Þórunni. Leiðir okkar lágu saman fyrir margt löngu þegar bróðir minn Þórarinn og dóttir hennar Álfhildur felldu hugi saman. Samverustundirnar með stórfjölskyldunum eru eftir- minnilegar, borð hlaðin kræsing- um og umræður fjörugar. Þórunn í essinu sínu að fjalla um æsku- slóðirnar fyrir austan, Gunnhild- argerði í Hróarstungu, sem voru henni svo kærar eða að lifa sig inn í heitar umræður um þjóðfélags- mál. Glettin á svip með leiftrandi augu og hláturinn skammt undan. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir vináttu henn- ar og velvild síðustu fjörutíu ár. Börnum Þórunnar, Jónu, Álfhildi, Gunnari og Guðmundi, fjölskyld- um þeirra og ástvinum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Megi Guð varðveita þau að eilífu. Far heil Þórunn, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Ingiveig Gunnarsdóttir. Nú kveður móðir vinkonu minnar hennar Öllu þessa jarð- vist. Þegar við Alla vorum yngri varstu frekar fjarlæg okkur en með árunum færðist þú nær í ró- legheitum. Þú varst ekki að flíka tilfinningum þínum en sýndir þær best með hugulsemi. Ég man þegar þú komst með fulla matarpoka til dóttur þinnar þegar hún var að stofna fjöl- skyldu og fjárfesta í íbúð og hafði ekki mikið á milli hand- anna. Ekki varstu að tala mikið um það en hjálpaðir á þann hátt sem kom sér svo vel. Ekki mátti minnast á að þú hefðir oft og tíð- um átt erfitt með mann sem var í óreglu heldur var þetta bara tekið á hnefanum. En með tíð og tíma fórstu að verða opnari um þessa hluti og tókst alltaf meiri og meiri þátt í lífi barna þinna. Ekki man ég til þess að nokkr- um sunnudegi hafi mátt sleppa sem þú eldaðir fyrir börnin þín og fjölskyldur þeirra. Kransa- kökurnar þínar voru frægar í hverri fermingu og giftingum líka enda bæði flottar og mjög góðar, ég var svo heppin að þú bauðst til að gera fyrir mig kransaköku í fermingu dóttur minnar, vá hvað mér þótti vænt um það. Þegar dóttir mín var yngri var gaman að fylgjast með þegar við hittum þig hversu mikil blíða var í augum þínum og hve vel þú talaðir um dóttur mína. Börnin þín voru mjög heppin að hafa þig sem stoð og styttu í lífi sínu. Ég bið algóðan guð að taka vel á móti þér og vera þínum stoð og stytta í líf- inu. Elsku Alla, Jóna, Gunnar, Gummi og aðrir ástvinir, megi ljós og kærleikur umvefja ykkur um ókomna framtíð. Svanhvít Bragadóttir. Óli Pétur Útfararstjóri s. 892 8947 Hinrik Valsson Útfararstjóri s. 760 2300 Dalsbyggð 15, Garðabæ Sími 551 3485 osvaldutfor@gmail.com Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Álalind 3, Kópavogi, lést á krabbameinsdeild Landspítalans mánudaginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Lindakirkju miðvikudaginn 5. maí klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir en streymt verður frá athöfninni sem má nálgast á https://www.lindakirkja.is/utfarir Halldór Ebenesersson Kristján Guðni Halldórsson Helen Símonardóttir Bjarni Sigurjón Halldórsson Elísabet Halldórsdóttir Aron Kristjánsson Löve Tara Kristjánsdóttir Löve Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG WIUM, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 22. apríl. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 4. maí klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir útförina. Útförinni verður streymt. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat. Sigrún Ragnarsdóttir Magnús Páll Ragnarsson Þórunn Þorleifsdóttir Atli Bent Þorsteinsson Þuríður Magnúsdóttir Jakob Fannar Árnason Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS SIGURÐSSON hagfræðingur, varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 25. apríl. Kristrún B. Jónsdóttir Áslaug Magnúsdóttir Sacha F. Tueni Sigurður R. Magnússon Regína Rist Friðriksdóttir Gunnar Ágúst Thoroddsen Marlena Piekarska Ástkær eiginkona mín, móðir og dóttir, SILKE WAELTI, Efstasundi 53, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 17. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Garðar Jónsson Benjamín Tumi Bergsveinsson Móey Garðarsdóttir Inge Waelti Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNNAR KARLSDÓTTUR, Básbryggju 51, Reykjavík, fer fram frá Garðakirkju laugardaginn 1. maí klukkan 13.00. Vegna samkomutakmarkana verður streymt frá athöfninni. Hlekk á streymið má nálgast á Facebook-viðburðinum: Útför Unnar Karlsdóttur. Úlfur Þór Ragnarsson Karl Ágúst Úlfsson Ágústa Skúladóttir Inga Úlfsdóttir Ragnar S. Ragnarsson Linda Rán Úlfsdóttir Sigurður Ingi Jónsson barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURLAUG RAGNARSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans 23. apríl. Útför fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 30. apríl klukkan 15. Vegna aðstæðna verður einungis nánasta fjölskylda viðstödd en útförinni verður streymt á eftirfarandi slóð: https://www.youtube.com/watch?v=KZ_Xw3Pwyb8. Aðstandendur afþakka vinsamlegast blóm og kransa en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Góðgerðarsamtökin Samferða (0327-26-114, kt. 651116-2870). Hörður Bjartmar Níelsson Ragnar Svanur Þórðarson Bryndís Ásmundsdóttir Þórður Rafn Þórðarson Sóley Þrastardóttir Linda Hlín Þórðardóttir Pálmi Hlöðversson Heba Rún Þórðardóttir Einar Jóhann Jónsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.