Morgunblaðið - 29.04.2021, Qupperneq 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2021
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú lætur umhverfið stjórna
skapi þínu um of. Sæktu þér lærdóm
og lífsvisku sem þroskar þig og hjálpar
þér að ná lengra á lífsleiðinni.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það getur reynst hættulegt að
láta fólki bregða illa. Allt sem viðkemur
útgáfumálum, fjölmiðlum eða mennta-
málum er þér að skapi.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Með því að fylgjast betur
með tíðarandanum mun skilningur milli
þín og ungs fólks aukast. Þú tekur
miklum framförum í sjálfsþekkingu,
enda unnið heimavinnuna vel.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Næsti mánuður verður anna-
samur því fram undan eru margar
veislur og mannfagnaðir. Þér verður
boðin vinna sem þú getur ekki hafnað.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Reyndu að koma þannig fram við
aðra eins og þú vilt að komið sé fram
við þig. Allt hefur sinn tíma.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Að viðurkenna að þú hafir rangt
fyrir þér, hefur ekki verið þín sterkasta
hlið hingað til. Komdu vini á óvart.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú geislar af krafti og ert tilbúin
(n) að hefjast handa í nýju starfi. Allt
fellur í ljúfa löð í ástamálunum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú færð tækifæri til að
auka við menntun þína eða til ferða-
laga. Gerðu ekki of miklar kröfur til
þín.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Öryggið er fyrir öllu en þó
máttu ekki ganga svo langt að þú lokir
þig alveg af frá umheiminum. Bíddu
eftir góðu tækifæri til að segja fjöl-
skyldunni fréttir sem þú lumar á.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þér getur reynst erfitt að
standa einn í lífsins ólgusjó. Þú skilar
þínu og stingur þar með upp í öfund-
armenn þína.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Leit þín að ást ber árangur.
Leggðu börnunum lífsreglurnar, það er
aldrei of snemmt.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú ert að átta þig á muninum
að sjá og horfa á. Ef þú ætlar að vinna
ástir einhvers veistu að leiðin að hjarta
einhvers er í gegnum mat.
fallegri stúlku, Hildi, sem síðan varð
eiginkona mín. Svo gerðist ég fylgd-
armaður erlendra veiðimanna í lax-
veiði, fyrst margar vikur á sumri og
síðar eina viku og þá alltaf með sama
manninum allt fram yfir árið 2000.
Þeir hörðustu elskuðu að koma í
Laxá að veiða, sögðu það einfaldlega
halda í sér lífinu. Einn sá alharðasti
lést nýlega 94 ára gamall en hann
Valsarar í íslenska handboltaliðinu.
Ég heimsótti æskuvin minn úr Hlíð-
unum, Stebba Gunn., í Ólympíu-
þorpinu. Daginn eftir gerðust hræði-
legir atburðir þar sem yfir 12 manns
létust í hryðjuverkaárás á ísraelskt
íþróttafólk, eins og margir muna.“
Jafet réð sig í vinnu eftir stúdents-
prófið til Árness í Aðaldal og þá kom
ástin inn í líf hans. „Þar kynnist ég
J
afet Sigurður Ólafsson
fæddist á Landspítalanum
í Reykjavík 29.4. 1951 og
var fæðingunni fagnað
með söng. „Frændi minn
og gleðigjafinn Sigurður Ásmunds-
son var að ljúka prófi frá Versló, á
leið úr gleðskap í Vetrargarðinum og
hann, Keli Valda og fleiri stoppuðu
fyrir utan fæðingardeildina og sungu
fyrir okkur mömmu um nóttina.“
Jafet ólst upp í Mávahlíðinni á
þeim tíma sem hverfið var að byggj-
ast upp og Öskjuhlíðin, Nauthóls-
víkin, Klambratúnið og Hlíðarendi
voru aðalleiksvæðin. „Ég man vel
eftir rykugum malargötunum sem
sprautubíllinn kom að bleyta og
einnig eftir kolakyndingunni og þeg-
ar hitaveitan kom. Varð auðvitað
gallharður Valsari og starfaði síðar
mikið fyrir félagið.“
Eins og tíðkaðist á þessum árum
var Jafet í sveit. „Ég var í sveit á
hverju sumri frá 6 ára aldri og fram
yfir fermingu á Kóngsbakka í Helga-
fellssveit hjá Sigurborgu systur
pabba og manni hennar Birni Jóns-
syni. Kom ég yfirleitt aldrei til baka
fyrr en eftir réttir upp úr miðjum
september eftir að skólinn var byrj-
aður. Ekkert stórmál og sveitastörf-
in voru góður skóli og ég lærði
margt. Þarna bjuggu saman fimm
systkini, og þetta var mikið mynd-
arheimili, ekkert rafmagn og enn
kynt upp með mó. Þriðja hvern
sunnudag var siglt til kirkju í Bjarn-
arhöfn, því enginn var bíllinn.“ Jafet
bætir við að síðar hafi þau hjónin
eignast hlut í þessari fallegu jörð og
farið í endurbyggingu á gamla íbúð-
arhúsinu og útihúsunum.
„Ég fer síðan í Versló í sex ára
nám sem lauk með stúdentsprófi og
hef alla tíð verið þakklátur fyrir góða
vélritunarkennslu hjá Þórunni Fel.
og margt annað hagnýtt sem maður
lærði í þar. Þarna kviknaði áhugi á
að læra þýsku almennilega og fór ég
því tvö sumur til Þýskalands í nær
fjóra mánuði hvort ár og vann við
járnabindingar. Það var mikil vinna
og mér líkaði mjög vel við Þjóðverj-
ann. Seinna sumarið fór ég á Ólymp-
íuleikana í München 1972 með Ara
Sæm. vini mínum, en þar voru sex
kom síðast til veiða 92 ára.“ Jafet og
Hildur byggðu sér hús í landi Árness
árið 2007 og eyða orðið þar drjúgum
hluta sumarsins.
Vorið 1977 útskrifast Jafet sem
viðskiptafræðingur og hóf strax störf
hjá iðnaðarráðuneytinu þar sem
hann vann til 1984. Þá lá leiðin til
Sambandsins sem var mikið veldi á
þeim tíma, Jafet var þar deild-
arstjóri fatadeildar. Árið 1987 er
hann ráðinn útibússtjóri Iðn-
aðarbankans í Lækjargötu og síðar
Íslandsbanka fram til 1994 og tók
þátt í stærsta samrunanum í banka-
kerfinu þar sem höfuðstöðvar Út-
vegsbankans sameinuðust í útibúinu
í Lækjargötu með 130 manns. Hann
var ráðinn útvarpsstjóri Íslenska út-
varpsfélagsins og var þar í tvö ár þar
til hann stofnaði Verðbréfastofuna
ásamt fleirum árið 1997 og var þar
framkvæmdastjóri til 2006 þegar
hann seldi sinn hlut. „Fjármál og
bankamál hafa verið mér mjög hug-
leikin og í gegnum það hef upplifað
marga skemmtilega hluti og séð
hæðir og lægðir. Bankakreppan
kenndi okkur margt en var dýr lexía.
Við héldum hér uppi of háum vöxtum
allt of lengi, það er ekki fyrr en
strákurinn úr Bjarnarhöfn tekur við
stjórnartaumnum í Seðlabankanum
að skynsamlegir vextir eru inn-
leiddir.“ Jafet hefur sinnt ýmsum
stjórnunarstörfum og var stjórn-
arformaður Aðalskoðunar í 9 ár. „Ég
hef verið konsúll fyrir Rúmeníu síð-
an 2007 og hef kynnst því ágæta
landi með fjölmörgum ferðum þang-
að. Hef setið í ýmsum stjórnum fyrir
Val og stangaveiðimenn og var for-
maður Badmintonsambandsins
1990-1994.“
Flestir þekkja Jafet mest fyrir
briddsáhugann. Hann hefur verið
forseti Bridgesambandsins frá 2009
og einnig setið í stjórn Evrópska
Bridgesambandsins. „Ég hef fylgt í
fjölmargar keppnir íslenska bridge-
landsliðinu, sem unnið hefur Norð-
urlandameistaratitil fjórum sinnum
á síðustu 10 árum. Hef tvisvar verið
fyrirliði liðsins án þess að spila. Ég
spila enn bridds með gömlum vinum
úr Hlíðunum, en við byrjuðum að
spila 12 ára gamlir og okkur er enn
Jafet Sigurður Ólafsson – 70 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Jón Björgvin, Jóhanna Sigurborg, Jafet Stefán,
Matthildur María, afmælisbarnið Jafet Sigurður, Hildur, Sigríður Þóra,
Arney Tinna, Sonja, Katrín Tanja, Ari Hermóður og Hildur Karen.
„Bridds gerir lífið skemmtilegra“
Norðurlandameistarar 2019 Frá vinstri: Aðalsteinn Jörgensen, Gunn-
laugur Sævarsson, Bjarni Hólmar Einarsson, Sigurbjörn Haraldsson, Jón
Baldursson, Kristján Már Gunnarsson og Jafet. Sigurður Ólafsson.
Til hamingju með daginn
60 ÁRA Lára Mar-
teinsdóttir er fædd í
Reykjavík 29. apríl
1961 og ólst upp í
Laugarnesi, Árbæ og
Vogunum. Móðir henn-
ar, Agnes Gestsdóttir,
er af færeyskum ætt-
um og faðir hennar,
Marteinn Jónsson (Do-
nald Martin) tann-
smiður, var fæddur í
New York. Systkini
Láru eru María, Sus-
an, Ellen Freydís og
Tómas Freyr. Lára
stundaði frjálsar
íþróttir með ÍR frá 8-
12 ára aldurs og 11 ára
lék hún um stundar-
sakir með drengjaliði Fylkis í fótbolta, þar sem hún þótti spretthörð með
afbrigðum. Frá móðurafa sínum, Gesti Óskari Friðbergssyni, fékk hún
áhuga á andlegum efnum og byrjaði snemma að stunda andlega íhugun.
Kvikmyndir urðu einnig snemma ástríða og útskrifaðist Lára með meist-
aragráðu í kvikmyndagerð frá California Institute of the Arts í Kaliforníu
árið 2000.
Lára byrjaði að hugleiða af alvöru árið 2001, bjó um árabil á hugleiðslu-
setri í Englandi og stundar í dag theravada-búddisma.
„Mér finnst mikilvægt að fólk vinni í erfiðum tilfinningum og færist ekki
undan að horfast í augu við þær, reyni að uppræta þær og skilja. Öll höfum
við þurft að glíma við erfiðleika einhvern tímann á ævinni. Innra frelsi er
ekki mögulegt fyrr en maður lætur af dómhörku gagnvart öðrum og sjálf-
um sér. Mildi gagnvart öllum lifandi verum er lykillinn að hamingjunni.“
Lára kennir kvikmynda- og aðlögunarfræði við Háskóla Íslands þar sem
hún er einnig í doktorsnámi. Sonur Láru er Áki Jarl Láruson, doktor í líf-
fræði, tengdadóttir hennar er Viktoria Sindorf sjávarlíffræðingur og eiga
þau Signýju Lóu Ákadóttur, f. 29.7. 2020, sem er fyrsta ömmubarn Láru.
Lára Martin
Gleðistund Hér er Lára með ömmubarnið
Signýju þegar þær hittust í fyrsta skipti.