Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 www.kofaroghus.is - sími 553 1545 369.750 kr . Tilboðsverð 697.500 kr . Tilboðsverð 449.400 kr . Tilboðsverð 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar Afar einfalt er að reisa húsin okkar Uppsetning te kur aðeins ein n dag BREKKA 34 - 9 fm STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm 25% afsláttur 25% afsláttur 30% afsláttur TILBOÐ Á GARÐHÚSUM! TIL Á LAGER VANTAR ÞIGPLÁSS? Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hönnunarmars er nú í fullum gangi og hafa nokkrar sýningar verið settar upp í Hönnunar- safni Íslands af því tilefni. Nú er þar sýning Ýrar Jóhannsdóttur, sem vinnur undir nafninu Ýrúr- arí. Hún hefur unnið að eigin verkum sem snúast um að gefa ónýtum peysum frá Rauða krossinum nýtt líf með skapandi og skemmtilegum við- gerðum. Ýr hefur einnig fengið fólk til að taka að sér peysur í fataviðgerðasmiðjum. Morgunblaðið/Eggert Ónýtar peysur fá nýtt líf hjá Ýrúrarí Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ríflega helmingur kjörinna sveitar- stjórnarmanna hefur orðið fyrir áreitni eða neikvæðu umtali á yf- irstandandi eða síðasta kjörtímabili og er lítill munur á milli kynja. Þetta kemur fram í rannsókn sem dr. Eva Marín Hlynsdóttir vinnur að en Sig- urður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, greindi frá þessum niðurstöðum í ávarpi á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær. „Tölurnar sýna að algengast var að þátttakendur hefðu orðið fyrir áreitni á samfélagsmiðlum en einnig var töluvert um áreitni í opinberu rými, til dæmis á skemmtunum eða í verslunum. Allt að 10% höfðu orðið fyrir slíkri áreitni á heimilum sín- um,“ sagði Sigurður Ingi. Áreitni sem sveitarstjórnar- fulltrúar verða fyrir og mikil og hröð endurnýjun í sveitarstjórnum kom töluvert til umræðu í ræðum og fyrirspurnatíma á þinginu í gær. Sagði ráðherrann að unnið væri að undirbúningi að því að bæta starfsaðstæður kjörinna fulltrúa. Í tengslum við það hefði ráðuneytið fengið þessar niðurstöður úr viða- mikilli könnun Evu Marínar um áreitni sem sveitarstjórnarfólk verð- ur fyrir. Sigurður Ingi benti einnig á að við lok undanfarinna tveggja kjörtímabila hefði rúmlega helming- ur sveitarstjórnarfulltrúa ekki gefið kost á sér til endurkjörs. Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, vakti athygli á því í setningarræðu sinni að aldrei fyrr hefðu jafn marg- ir framkvæmdastjórar sveitarfélaga hætt störfum á miðju kjörtímabili eins og nú. 21 sveitarstjóri hefur hætt störfum á tímabilinu af ýmsum ástæðum. „Í mínum huga er enginn vafi á því að endurnýjun sveitar- stjórnarmanna er of mikil og of hröð. Sveitarstjórnarmenn endast ekki nógu lengi í störfum sínum og það veldur miklu álagi á þá sem þessi störf taka að sér og ekki síður fyrir bæjar- og sveitarstjóra,“ sagði Aldís. Hún kvaðst vera afar hugsi eftir að hafa lesið viðtal við borgarfull- trúa sem hefði nú valið að hverfa af vettvangi sveitarstjórnarmála, ekki síst vegna þess umhverfis og þeirrar orðræðu sem sveitarstjórnarmenn byggju við. Rjúpan býr við betri skilyrði „Þetta getur ekki gengið svona lengur. Við verðum sem íbúar þessa lands, sem virkir þátttakendur í lýð- ræðissamfélagi, að ná okkur út úr þeim farvegi þar sem skotleyfi er veitt á alla þá sem gefa sig í opinber störf. Skotleyfi og það án allra skil- yrða. Það er ekkert tímabil þar sem þessi veiði er bönnuð og það eru engin svæði lokuð fyrir þessum veið- um. Meira að segja rjúpan býr við betri skilyrði en sveitarstjórnar- menn og aðrir stjórnmálamenn hvað þetta varðar,“ sagði hún. Helmingur varð fyrir áreitni - Allt að 10% sveitarstjórnarfólks hafa orðið fyrir áreitni á heimilum sínum samkvæmt könnun - Áreitni rædd á landsþingi sveitarfélaga - „Skotleyfi er veitt á alla þá sem gefa sig í opinber störf“ Aldís Hafsteinsdóttir Sigurður Ingi Jóhannsson Tæplega 7.800 störf hafa verið boðin í átakinu Hefjum störf síð- an því var ýtt úr vör 22. mars. Þar af hafa fyrirtækin gengið frá ríflega 2.000 ráðningarsamn- ingum. Til sam- anburðar voru ríflega 20 þúsund án vinnu í lok apríl og um 4.000 í skertu starfshlutfalli. Nokkur utan styrkjakerfis Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir yfir þús- und manns hafa farið af atvinnuleys- isskrá í apríl. Þar af nokkur hundruð manns sem ekki voru ráðnir með ríkisstyrk. Hún er bjartsýn á að störfin í áðurnefndu átaki muni skila sér í ráðningum á næstu vikum. Hátt í sögulegu samhengi Með þetta í huga kann atvinnu- lausum að fækka í 14 þúsund í sum- ar. Það myndi samsvara 7% atvinnu- leysi í sumar sem yrði vel yfir meðaltalinu yfir hábjargræðistím- ann á þessari öld og raunar í sögu- legu samhengi. Unnur segir aðspurð að ekki hafi farið fram greining á áhrifum snjall- væðingar á fjölda starfa í ferðaþjón- ustu. Hún telji ríkt tilefni til að taka þau áhrif með í greininguna. Með átakinu Hefjum störf fá fyrirtæki styrk til ráðninga. baldura@mbl.is 7.800 störf í boði - Atvinnulausum gæti fækkað í 14.000 ef ráðningar í sumar ná fram að ganga Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir það í höndum Reykjavíkur- borgar ef hún vilji úthýsa Landhelg- isgæslunni og það séu aðrir staðir meira en tilbúnir að taka við henni. Það sé sjálfsagt að skoða þá mögu- leika. Landhelgisgæslan er með aðstöðu á Reykjavíkurflugvelli en eins og Morgunblaðið hefur greint frá er ekki lengur pláss fyrir allar flugvélar og þyrlur Gæslunnar í flugskýlinu sem þar er. Haft var eftir formanni skipulags- ráðs borgarinnar, Pawel Bartoszek, að þar sem fyrirhugað væri að flytja Reykjavíkurflugvöll á annan stað væri eðlilegt að starfsemi tengd hon- um, svo sem aðstaða fyrir loftför Gæslunnar, flyttist einnig. Rétt væri því að beina framtíðaruppbyggingu aðstöðu Landhelgisgæslunnar annað. Sigurður Ingi er ósammála því að staðsetning aðstöðu fyrir Landhelg- isgæsluna og staðsetning innanlands- flugvallar þurfi að fylgjast að. Þetta séu algjörlega aðskilin mál. Sigurður Ingi segir að aðstaða Gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli sé óboðleg. „Ef Reykjavíkurborg hefur ekki áhuga á að hýsa Landhelgisgæsluna hlýtur hún að þurfa að skoða það.“ esther@mbl.is Sjálfstæð ákvörðun borgarinnar að úthýsa Gæslunni Morgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 25. maí. Frétta- þjónusta verður um hvíta- sunnuhelgina á fréttavef Morg- unblaðsins, mbl.is. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is. Áskriftarþjónustan er opin á laugardaginn kl. 8-12 en lokað er á hvítasunnudag og annan dag hvítasunnu. Netfang áskriftardeildar er askrift- @mbl.is og símanúmer er 569- 1122. Áskriftarþjónustan verð- ur opnuð aftur á þriðjudag kl. 7. Auglýsingadeildin er lokuð um helgina en verður opnuð aftur á þriðjudag kl. 8. Hægt er að bóka dánartilkynningar á mbl.is. Fréttaþjónusta mbl.is um helgina Sigurður Ingi Jóhannsson sagði á landsþinginu að mörg sveitar- félög gætu nýtt tekjustofna sína betur. „Á höfuðborgar- svæðinu til dæmis væri hægt að innheimta um milljarði meira í útsvar en gert er og því skal það viðurkennt að það veki nokkra og sérstaka furðu þegar það koma stórar fjárkröfur á hendur ríkinu vegna fjármála sveitarfé- laganna þaðan, eins og gerðist á síðasta ári.“ Gætu inn- heimt meira FJÁRKRÖFUR VEKJA FURÐU Unnur Sverrisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.