Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 AÐAL FUNDUR Félagið veitir ferða- styrk til þeirra félags- manna sem búa í meira en 40 km fjarlægð frá fundarstað. Félags iðn- og tæknigreina 2021 verður haldinn laugardaginn 29. maí kl. 10 að Stórhöfða 31, jarðhæð. Gengið inn Grafarvogsmegin. Dagskrá: 1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu. 3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins. 4. Kjöri stjórnar lýst. 5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga, og uppstillinganefndar. 6. Kosning endurskoðenda. 7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að. 8. Önnur mál. Hádegismatur í boði félagsins. Stjórnin Athugið að gildandi reglum um sóttvarnir verður fylgt á fundinum. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Líklegt er að fyrstu íslensku upp- sjávarskipin byrji að svipast um eft- ir makríl fyrir Suðurlandi í næstu viku. Fleiri bætist síðan við á makríl- veiðum eftir sjómannadag og fram eftir júnímánuði. Ákvörðun ís- lenskra stjórnvalda um makrílkvóta ársins liggur ekki fyrir, en gert er ráð fyrir að reglugerð um makríl- veiðar í ár verði gefin út fyrir lok þessa mánaðar, samkvæmt upplýs- ingum úr sjávarútvegsráðuneytinu. Auk Íslands eiga Færeyingar eft- ir að tilkynna Norðaustur-Atlants- hafsfiskveiðiráðinu, NEAFC, um sínar fyrirætlanir og Norðmenn hafa tilkynnt um upphafskvóta upp á 104.998 tonn. Aðrar tilkynningar til NEAFC eru frá Bretum um 222.288 tonn, frá Evrópusambandinu um 200.179 tonn, frá Rússlandi um 120.423 tonn og frá Grænlandi upp á 60.000 tonn, samkvæmt upplýsing- um úr ráðuneytinu. Veiðar umfram ráðgjöf Þegar hefur því verið tilkynnt um að fyrrnefnd strandríki hyggist veiða samtals um 708 þúsund tonn. Tvö strandríki hafa ekki gefið upp sína viðmiðun, en í fyrra veiddu ís- lensk skip um 150 þúsund tonn af makríl. Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, lagði til í lok síðasta árs að aflinn 2021 færi ekki yfir 852 þúsund tonn og var um 8% samdrátt í ráð- gjöf að ræða frá árinu á undan. Ráð- gjöf fyrir síðasta ár, 2020, var 922 þúsund tonn, en afli ársins varð hins vegar um 1,1 milljón tonn, eða um 18% umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr makrílstofninum um skiptingu afla- hlutdeildar og hver þjóð setur sér aflamark, sem hefur haft þær afleið- ingar að veiðar hafa verið umfram ráðgjöf ICES. Þjóðirnar eru sam- mála um að fylgja ráðgjöf ársins um 852 þúsund tonn, en eins og áður er langt í frá að menn séu sammála um skiptinguna. Árin 2014-2020 var í gildi sam- komulag Norðmanna, Færeyinga og Evrópusambandsins um makrílveið- ar, en það rann út í fyrra. Þá hefur sú stóra breyting orðið frá síðasta ári að eftir Brexit eru Bretar sjálf- stætt strandríki og hafa tilkynnt um aflamark fyrir sín skip. Bretar hafa ekki samið um aðgang t.d. Norð- manna og Færeyinga til makrílveiða í breskri lögsögu í ár. Gætu aukið sinn hlut Eins og áður sagði hafa Norð- menn tilkynnt um upphafskvóta, en reiknað er með að þeir muni bæta í á næstunni. Samkvæmt fyrrnefndu samkomulagi ESB, Færeyja og Noregs fengu Norðmenn 22,5% af ráðgjöfinni eða 192 þúsund tonn í fyrra. Í Fiskaren í Noregi mátti í vikunni lesa vangaveltur um að þar sem Norðmenn væru nú óbundnir af þessum samningi gætu þeir veitt mun meira við Noreg, Jan Mayen og á fiskverndarsvæðinu við Svalbarða á grundvelli þess hve mikið og hve lengi makríll er á þessum slóðum. Ann Kristin Westberg, aðalsamn- ingamaður Norðmanna í makríl- viðræðum síðustu ára, kynnti í vik- unni tvær sviðsmyndir um hlutdeild Norðmanna. Voru þær um 30% eða 35% af heildarráðgjöfinni og færi aflinn upp í tæplega 300 þúsund tonn ef miðað væri við hærri hlut- deildina. Í frétt Fiskaren er einnig velt upp spurningu um hvort norski flotinn myndi ráða við að veiða svo mikið. Einnig um gæði hráefnis og verð fyrir afurðir. Fyrstu skipin á mak- ríl fyrir mánaðamót - Strandríki tilkynna um aflamark - Engir samningar Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Vertíð Ásgrímur Halldórsson SF og Jón Kjartansson SU á makrílveiðum í Síldarsmugunni síðasta haust. Vertíð ársins fer í gang á næstu vikum. Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir vegna kórónuveir- unnar tekur gildi á þriðjudag og hafa samkomutakmarkanir þá ekki verið minni í nærri átta mánuði. Almennar fjöldatakmarkanir verða færðar úr 50 manns í 150. Þá verður grímuskylda frekar undan- tekning en regla og starfsemi sund- lauga og líkamsræktarstöðva verður nærri eðlileg. Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra segir að nýja reglugerðin sé áþekk þeim skrefum sem tekin voru síðasta sumar. Það sem nú sé ólíkt er að mið er tekið af bólusetn- ingum. Yfir 80 þúsund eru nú full- bólusettir eða 24,8% þeirra lands- manna sem eru 16 ára og eldri. Stór bólusetningarvika er fram undan og er von á 30 þúsund skömmtum af bóluefni í næstu viku. Ekkert smit greindist innanlands í fyrradag. 48 manns voru í ein- angrun í gær og 157 í sóttkví. Í skim- unarsóttkví voru 1.043. Breytingar á fjöldatakmörkunum frá 25.maí Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 150 manns en börn fædd 2015 og síðarverða áfram undanþegin Enginn hámarksfjöldi verður á viðskiptavin- um í verslunum Líkamsræktarstöðvar, sund- og baðstaðir og söfnmega hafa opið fyrir leyfilegan hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í stað kröfu um 75% áður Heimild: Stjórnar- ráðið Reglugerð um takmarkanir á skólastarfi fellur brott Létt verður á grímu- skyldu og hún fellur m.a. niður í verslunum og á vinnustöðum Einungis er gerð krafa um grímu á sitjandi viðburð- um og vegna þjónustu sem krefst mikillar nándar Tveggja metra nándarmörk verða áframmeginregla Hámarksfjöldi áhorfenda á sitjandi viðburðum fer úr 150 í 300 og veitingar, þ.m.t. vín-veitingar heimilar í hléi Afgreiðslutími veitingastaða lengist um klukkustund eða frá kl. 22 til kl. 23 Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir miðnætti Takmarkanir ekki minni í átta mánuði Jón Sigurðsson Nordal jonn@mbl.is Reykjavíkurborg braut gegn laga- skyldu sinni til útboðs með samning- um við Orku náttúrunnar ohf. (ON) um LED-væðingu götulýsingar í borginni. Þetta kemur fram í úr- skurði kærunefndar útboðsmála, en auk tveggja milljóna króna stjórn- valdssektar lagði nefndin fyrir borg- ina að bjóða verkið út. Fyrir rétt rúmu ári kærðu Samtök iðnaðarins (SI) þjónustusamninga á milli Reykjavíkurborgar og ON er vörðuðu rekstur, viðhald og LED- væðingu ljósastaura í Reykjavík til kærunefndar útboðsmála. Fram kom í gögnum sem lögð voru fyrir nefndina að borgin hefði greitt ON tæpar 84 milljónir króna frá ársbyrj- un 2020 til 30. apríl 2021 fyrir rekst- ur, viðhald og endurnýjun götulýs- ingarinnar. SI kröfðust þess að samningarnir yrðu lýstir óvirkir og að lagt yrði fyrir Reykjavíkurborg að bjóða út verkið. Í úrskurði kærunefndarinnar seg- ir að tengsl Reykjavíkurborgar og ON hafi ekki verið þess eðlis að und- antekningarregla 13. gr. laga um op- inber innkaup, sem fjallar um opin- bera samninga sem ekki er skylt að bjóða út, ættu við. „Þar sem inn- kaupin voru ekki boðin út verður lagt til grundvallar að varnaraðili hafi brotið gegn skyldu sinni til út- boðs samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga [um opinber innkaup],“ segir þar enn fremur. Þannig hafi viðskipti Reykjavíkurborgar við ON verið út- boðsskyld. Beita ekki óvirkjunarheimild Þrátt fyrir að hún legði stjórn- valdssekt á borgina lýsti kærunefnd- in samningana ekki óvirka og vísaði því til rökstuðnings í eðli samnings- sambands borgarinnar og ON sem fram fór innan ramma þjónustu- samnings frá árinu 2010. Af því sam- bandi að dæma kom ekki til greina að beita óvirkjunarheimild sem finna má í 1. mgr. 115. gr. laga um opinber innkaup. Hvað varðar kröfu SI um að borg- inni yrði skylt að bjóða út verkið að viðlögðum dagsektum skýrði nefnd- in niðurstöðu sína með því að skipta LED-væðingu götulýsingar í Reykjavík í tvo meginþætti. Annars vegar kaup á LED-lömpum og hins vegar kaup á þjónustu við uppsetn- ingu þeirra. Fyrir lá að rammasamn- ingur um kaup á lömpum væri í gildi, en ekki var ákvæðum um útskipt- ingu og uppsetningu lampanna til að dreifa í honum. Nefndin mat það svo að Reykja- víkurborg hefði ekki fært fram hald- bærar röksemdir fyrir því að ekki væri unnt að bjóða út þjónustu tengda útskiptingu og uppsetningu LED-lampa né að brýnir almanna- hagsmunir stæðu í vegi fyrir að breytingar yrðu gerðar á núverandi fyrirkomulagi, eins og borgin hafði byggt á í vörn sinni. Var Reykjavík- urborg því gert að bjóða fyrrgreinda þjónustu út og greiða bæði milljón krónur í málskostnað til SI og tvær milljónir í stjórnvaldssekt eins og áð- ur segir. Reykjavíkurborg braut gegn lagaskyldu sinni - Kærunefnd útboðsmála sektar borgina um tvær milljónir Morgunblaðið/Ómar Ráðhús Fyrir rúmu ári kærðu SI samninga á milli borgarinnar og ON.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.