Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
Forysta nokkurra verkalýðs-félaga hér á landi, auk Alþýðu-
sambands Íslands, hefur algerlega
misst sjónar á erindi
sínu og tilgangi. Til-
veruréttur verka-
lýðsfélaga byggist á
því að þau vinni að
því að bæta kjör fé-
lagsmanna sinna og
hafa flestir forystu-
menn þessara félaga
í gegnum tíðina haft
skilning á þessu
hlutverki þeirra. Nú
er komin fram ný
kynslóð háværra
leiðtoga sem telja
hlutverk sitt allt
annað. Baráttumál
þeirra eru meira af pólitískum toga
og vinnan að hagsmunum launafólks
virðist komin neðarlega á verkefna-
listann.
- - -
Þetta má til að mynda sjá á ítrek-aðri hvatningu eða þrýstingi
um að almenningur eða lífeyris-
sjóðir taki ekki þátt í fjárfestingum í
tilteknum félögum sem forystu-
mönnunum er í nöp við af ein-
hverjum ástæðum.
- - -
Þetta gengur vitaskuld þvertgegn hagsmunum launþega,
ekki síst þegar illa árar, en for-
ystumennirnir láta það ekki flækjast
fyrir sér.
- - -
Icelandair varð fyrir barðinu áþessu viðhorfi í fyrra og nú er
komið að Play sem ASÍ hvetur fólk
til að sniðganga.
- - -
Þegar forystumenn í verkalýðs-hreyfingunni sýna ítrekað slíkt
ábyrgðarleysi og misnota félögin
með þessum hætti er ljóst að tíma-
bært er orðið að endurskoða löggjöf
um vinnumarkað og koma íslensk-
um vinnumarkaði í svipað horf og
þekkist í öðrum löndum.
Þegar stéttarfélög
missa tilgang sinn
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag
tillögu borgarstjóra um að fela umhverfis- og
skipulagssviði að þróa hugmyndir um aukna nýt-
ingu Hagatorgs og skilgreina það sem torg í bið-
stöðu. Þar með er fallið frá fyrri hugmyndum um
að reisa leikskóla til bráðabrigða á torginu. Einnig
hefur borgin fallið frá áformum um að reisa leik-
skóla við Vörðuskóla á Barónsstíg, a.m.k. um sinn.
Markmið tillögunnar sé að kanna tækifærin
sem felast í því að hugsa Hagatorg sem fjölnota al-
menningsrými eða almenningsgarð sem taki einn-
ig mið af nálægð þess við Melaskóla, Hagaskóla og
nærliggjandi byggingar. Rýni á samgöngumálum
og umferðaröryggi verði hluti af verkefninu með
sérstakri áherslu á öruggar göngutengingar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bók-
uðu að Hagatorg hefði mikla sérstöðu sem stórt
grænt rými í vesturborginni enda orðið fátt um
fína drætti hvað varðar græn svæði í þar. Tæki-
færi kunna að felast í því að efla það sem almenn-
ingsrými. Bráðabirgðalausnir í leikskólamálum
samrýmist með engu móti þróun almenningsrým-
is við Hagatorg . sisi@mbl.is
Hætt við leikskóla á Hagatorgi
- Torginu verði breytt í
fjölnota almenningsrými
Morgunblaðið/RAX
Hagatorg Rými fyrir almenning í framtíðinni.
Lágmarkslaun lægsta taxta flugliða
flugfélagsins PLAY eru um 350 þús-
und krónur, án vinnuframlags og
aukagreiðslna, ekki 260.000 krónur
eins og Alþýðusamband Íslands hef-
ur haldið fram. Þetta kemur fram í
yfirlýsingu frá Play. Þar segir jafn-
framt að heildartekjur nýráðinna
séu um 500 þúsund krónur í meðal-
mánuði og að fyrir reyndan starfs-
mann gætu föst laun verið allt að 450
þúsund krónur án vinnuframlags.
„Félagið lauk nýverið hlutafjár-
útboði þar sem breiður hópur fag-
fjárfesta fjárfesti fyrir um 6 millj-
arða króna í félaginu. Þessi fjár-
festing var gerð í kjölfarið á faglegri
áreiðanleikakönnun þar sem öll aðal-
atriði rekstursins voru könnuð
gaumgæfilega eins og vera ber í
svona stórum verkefnum. Þar með
talið voru kjarasamningar enda var
það algjörlega skýrt af hálfu allra
þessara aðila að þau mál þyrftu að
vera fullkomlega í takt við lög og
reglur. Þessi atriði voru því sér-
staklega rannsökuð af sérfræð-
ingum í kjaramálum,“ segir í yfirlýs-
ingunni.
Þar kemur fram að kjarasamning-
urinn sem Íslenska flugstéttafélagið
hafi upprunalega gert við PLAY hafi
vegna lífskjarasamninga tekið
breytingum í kjölfar fyrrnefndrar
vinnu.
„Allra lægstu grunnlaunaflokkum
þess samnings sem PLAY gerði við
Íslenska flugstéttafélagið (ÍFF) var
breytt til að mæta lífskjarasamning-
unum með þeim hætti að greiðslur
sem áður voru breytilegar voru
gerðar fastar og tryggðar. Sem
dæmi þá fær flugliði greidda breyti-
lega þóknun af sölu veitinga og varn-
ings um borð ofan á fastan grunn-
launataxta. Þessar greiðslur eru
tryggðar hjá PLAY. Flugliði hjá
fyrirtækinu fær að lágmarki 34 þús-
und krónur á mánuði og oftast meira
ef salan er hærri. Sama má segja
með akstursgreiðslu, hún er tryggð
að upphæð 51 þúsund krónur. Þann-
ig mynda þessar greiðslur föst laun
sem breytast ekkert þó að starfs-
maður fari í fæðingarorlof, veik-
indaorlof eða annað slíkt,“ segir í
yfirlýsingunni.
Ofan á þessi laun bætast ýmsar
aðrar greiðslur og telur PLAY að
þær verði til þess að mánaðarleg
laun starfsmanna PLAY, reyndra
sem óreyndra, verði algerlega sam-
keppnishæf í íslensku samfélagi. „Þó
að þau séu á sama tíma miklu hærri
en gengur og gerist hjá þeim erlend-
um flugfélögum sem einnig eru að
fljúga til Íslands.“
Nýráðnir starfsmenn Play fá
um 500 þúsund krónur í laun
PLAY Flugfélagið sagði ASÍ reyna að knésetja PLAY með ásökunum.
- Segja launin samkeppnishæf í íslensku samfélagi
AÐAL FUNDUR
Aðalfundur landsamtakanna Spítalinn okkar verður
haldinn þriðjudaginn 25. maí 2021 kl. 16.00 á Nauthól,
Nauthólsvegi 106 í stóra salnum.
DAGSKRÁ
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Að loknum aðalfundarstörfum verða flutt tvö erindi;
Hringbrautarverkefnið – staðan í dag
- Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH
Nútímaleg og batamiðuð umgjörð
um geðþjónustu Landspítala
- Nanna Briem geðlæknir og forstöðumaður
geðþjónustu Landspítala
Lokaorð – Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar
Stjórn Spítalans okkar
Atvinna